Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Síða 38
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987. 58 Nýjar bækur Svik í Sinkiang eftir Adam Hall Iöunn hefur geflð út bók eftir spennusagnahöfundinn Adam Hall og nefnist hún Svik í Sinkiang. Þetta er saga um njósnir og gagnnjósnir og atburðarásin er hröð og spenn- andi frá upphaíi til enda. Á baksíðu bókar segir svo: „Hver er raunverulegur tilgangur hinnar flóknu og hættulegu sendifarar sem yfirmenn Quillers hafa sent hann í? Mun hann komast lifandi á leiða- renda - og ef honum tekst það, hvað tekur þá við?“ Verð kr. 1288. Álfheiður Kjartans- dóttir þýddi. Max Frisch á íslensku Út er komin hjá Bókaútgáfunni Erni og Örlygi íslensk þýðing á skáldsög- unni Homo faber eftir Max Frisch. Max Frisch er fremsti rithöfundur Svisslendinga á þessari öld og meðal þekktustu skálda sem skrifa á þýska tungu. Skáldverk hans hafa verið þýdd á ótalörg tungumál og hefur honum hlotnast mikil viðurkenning úralþjóðavettvangi. Hann er til dæm- is einn þeirra höfunda sem tilnetndir voru til bókmenntaverðlauna Nóbels 1987. íslendingar hafa til þessa einkum þekkt Frisch sem leikritaskáld og þá sérstaklega verkin Andorra og Bied- ermann og brennuvargarnir. Homo faber er nafngift sem vísar annars vegar til aðalpersónu og sögumanns bókarinnar, Walters Fabre, en hins vegar til ákveðinnar persónugerðar, „tæknimannsins" í nútímasamfélagi, þeirrar manngerð- ar sem telur sig vera æðsta stig „homo sapiens." Skáldsöguna þýddu Ástráður Ey- steinsson og Eysteinn Þorvaldsson. Þeir hafa jafnframt ritað ítarlegan eftirmála með verkinu þar sem lýst er höfundarferli Frisch. Verð kr. <m ss irriWrj.[r0Tí[ijji^|i!].iijipnnwn8jiiflfln(ijijMinj,PaPfri^TWiwaBfTnimMawwM» HOMO FABER r====^ SKÁlÐiAGA FRISCH 1890. Er þetta ást? eftir Liz Berry Iðunn hefur gefið út nýja unglinga- bók, Er þetta ást? eftir höfundinn Liz Berry. í bókarkynningu segir svo: „Ótal stelpur dreymir um að kynn- ast frægum rokkstjömum. En Cathy er ekki í þeim hópi. Hún er sautján L I Z B E R R y ára og efnilegur listmálari. Rokk- stjörnur skipta 'hana engu máli - ekki fyrr en hún verður á vegi gítar- leikarans fræga, Paul Devlin. Þetta er óvenjuleg saga sem setur spurn- ingamerki við hinn farsæla endi á þeim ævintýrum sem margar ungar stúlkur dreymir um. Jón Ásgeir Sig- urðsson þýddi. Verð kr. 993. HAMMOND INNES Skuldaskil v • ioms/rjmiÁ Skuldaskil eftir Hammond Innes Iðunn hefur gefið út nýja bók eftir Hammond Innes. Nefnist hún Skuldaskil og er hörkuspennandi eins og fyrri bækur höfundar. í kynningu forlagsins segir: „Geoífrey Bailey hefur yfirgefiö Hin sívinsæla og myndarlega jólagjafahandbók kemur út 3. desember nk. Þeir auglýsendur sem áhuga hafa á að auglýsa í JÓLAGJAFAHANDBÓKINNI vinsamlegast hafi samband við auglýsingadeild ÞverhoH 11 eða í síma 27022 kl. 9-17 virka daga sem fyrst. í síðasta lagi fimmtudaginn 26. nóv. nk. sjóherinn og vill hefja nýtt líf. Skipa- félagið Strode & Co gerir honum dularfullt tilboð þar sem frekari frami er undir því kominn að hann leiti uppi hinn svarta sauð fjölskyl- dunnar, ævintýramanninn Peter Strode, og snúi honum til heima- haga. Bailey lætur slag standa og er fyrr en varir staddur í hringiðu ófyr- irsjáanlegra atburöa og átaka á framandi slóðum." Álfheiður Kjartansdóttir þýddi bókina. Verð kr. 1338. Saga vestrænnar tónlistar ísafoldarprentsmiðja hf. hefur gefið út bókina Saga vestrænnar tónlistar eftir Christopher Headington í þýð- ingu Jóns Ásgeirssonar tónskálds. í bókinni rekur höfundurinn þróun vestrænnar tónlistar frá upphafi hennar í fornöld og fram á okkar daga. Hann ræðir um framlag allra helstu tónskálda, margvísleg tónlist- arform, félagslega og pólitíska þætti sem haft hafa áhrif á starfandi tón- listarmenn gegnum aldirnar og rekur þróun hljóðfæra. Fjölmörg tóndæmi eru notuð til að skýra text- ann, auk þess sem margar myndir prýða bókina. Bókin er rituð á léttu og lipru máli og hentar því jafnt tón- listarfólki sem áhugamönnum um tónlist. Bókin er 463 bls. Verð kr. 3450. Jólafrí í New York Ný skáldsaga eftir Stefán Júlíusson Jólafrí í New York er allsérstætt skáldverk. Þótt segja megi að bókin skiptist í fimm sjálfstæðar sögur tengjast þær samt svo aö ásamt inn- ganginum getur bókin í heild talist skáldsaga. Fimm ungmenni við nám í háskóla halda til New Yorkborgar til að eyða þar j ólafríi. Þetta eru fj órir karlmenn og ein stúlka. Öll eru þau í fram- haldsnámi og sum þeirra reynslunni ríkari. Þau eru af ólíku þjóðerni og uppruna. Bókin er 197 bls. unnin í Prent- smiðju Hafnarfjaröar. Útgefandi er Bókaútgáfan Björk. Verð kr. 1500. Farseðlar til Argentínu ísafoldarprentsmiðja hf. hefur gefið Út bókina Farseðlar til Argentínu eftir Erlend Jónsson. Farseðlar til Argentínu er smá- sagnasafn með raunsönnum sögum með rómantískum bakgrunni og gamansömu ívafi. Manngerðir og málefni samtímans í hnotskum. Út- tekt á samskiptareglum einstaklinga og stétta í þjóðfélagi þar sem refjar og kænska duga stundum betur en einlægni og heiðarleiki. Áhrifamikill og litríkur skáldskapur sem höfðar beint til lesenda á líðandi stund. Bók- in er 160 bls. Verð kr. 998. Chebet og Carlos Bókaútgáfan Salt hf. hefur sent frá sér tvær nýjar barnabækur í flokki bóka um börn í ýmsum löndum. Fjallár önnur bókin um dreng í Bras- ilíu en hin um stúlku í Kenýju. Segir önnur frá Chebet, stúlku í Pókothér- aði í Kenýju og leit hennar að týndri geit sinni. Hin fjallar um Carlos, munaðarlausan dreng í stórborg í Brasilíu, hvernig hann lendir á betr- unarhúsi og eignast síðar heimili. Bækurnar eru í stóru broti, prýddar fjölda litmynda en höfundar eru Ben Álex og Marcos Carpenter. Jóhannes Tómasson þýddi bækurnar. Filmu- vinna texta fór fram í Prentstofu G. Benediktssonar en bækurnar voru prentaðar í Singapore. Þær kosta kr. 650. stk. DV Ásta grasalæknir Atli Magnússon blaðamaður skráði Ásta Erlingsdóttir hefur frá unga aldri iðkað hin gömlu fræði íslenkra grasalækna, sem geymst hafa með ætt hennar í margar aldir. Þótt nafn Ástu heyrist eða sjáist sjaldan eða aldrei í hinum fyrirferðarmiklu fjöl- miðlum samtímans þá mun samt leitun að fóki sem ekki hefur heyrt getið um Ástu grasalækni eins og hún er nefnd manna á meðal. Hina „þöglu“ frægð þessarar ljúfu og lí- tillátu konu má rekja til heilladrúgra lækningastarfa í þágu fjöldans. í bók- inni gefur Ásta ráðleggingar og uppskriftir. Dulargáfur hafa löngum fylgt hennar fólki og hún rekur hér ýmsar frásagnir því til staðfestingar og ræð- ir um eigin andlega reynslu. Bókin um Ástu er filmusett hjá Alprenti, prentuð hjá Prentstofu G. Benediktssonar og bundin í Arnar- felli. Verð kr. 1790. Upp er boðið ísaland eftir dr. Gísla Gunnarsson Á þeim tíma sem danskir kaup- menn höfðu einokun á allri utanrík- isverslun landsins, á árunum 1602-1787, var hagur íslendinga bág- bornari en hann hefur verið fyrr og síðar. Þetta var ekki danskri einok- unarverslun einni að kenna. íslend- ingar voru íhaldssamir og héldu fast í fomfálega og úrelta siði. Með þessum orðum hefst kynning aftan á nýrri bók frá Erni og Örlygi eftir dr. Gísla Gunnarsson. Bók þessi er að meginstofni þýðing á bókinni og doktorsritgerðinni „Monopoly Trade and Economic Stagnation" sem kom út í Lundi í Svíþjóð 1983. Bókin er sett og prentuö hjá Prent- stofu G. Benediktssonar en bundin í Arnarfelli hf. Kápu geröi Sigurþór Jakobsson. Verð kr. 2290. j MINNISBLAÐ Muna eftir að fá mer eintak af

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.