Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1987, Side 39
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987.
%
Viðskipti
Gríðarieg mengun á fiskimiðum Dana
Bretland
Eins og í síöustu viku eru það Aust-
firðingar sem ráða ferðinni á breska
markaðinum. Verðið hefur verið í
meðallagi.
Bv. Hólmatindur landaði í Grimsby
12. nóv., alls 114'lestum, fyrir 7,2
millj. kr„ meðalverð 66,33 kr. Þorsk-
ur var á kr. 67,54 að meðaltali og
sama verð var á ýsu. Bv. Heiðrún
landaði 11. nóv., alls 87 lestum, fyrir
5.1 millj. kr„ meðalverð 58,96 kr.
Meðalverð á þorski var 60,90 kr. en
meðalverð á ýsu 67,09 kr. Bv. Garðey
landaði 16. nóv. aUs 7 lestum fyrir
4.2 millj. kr„ meðalverð 60,15 kr.
Þorskur fór á 64,39 kr. aö meðaltali
og ýsa 62,18 kr. Bv. Hafnarey seldi
77 lestir fyrir 5,4 millj. kr. og var
meðalverð 70,48, þorskur seldist á
68,26 kr. meðalverði og ýsa 79,35 kr.
Öll þessi skip hafa selt í Grimsby.
Bv. Snæfugl seldi 12. nóv. í Hull,
alls 125 lestir, fyrir 8,4 millj. kr. Með-
alverð var 66,65 kr. Verð á þorski var
70,20 kr. að meðaltali en meðalverð
á ýsu 71,82 kr. Bv. Hólmanes seldi
fyrir 7,1 millj., meðalverð var 68,73.
Meðalverð á þorski var 69,43 kr. og
ýsu 83,14 kr. kg.
Þýskaland
Bv. Vigri landaði í Bremerhaven
11. og 12. nóv. 227 tonnum fyrir 15,5
milljónir króna. Þorskur fór á 69,63
kr. kg. Meðalverð var kr. 68,11 kg.
Bv. Engey landaði einnig í Bremer-
haven 17. nóv„ alls 205 lestum, fyrir
13,5 millj. kr„ meðalverð 65,89 kr.
Gámasala
Frá 11. nóv. til 16. nóv. voru alls
seldar 1338 lestir af fiski úr gámum
fyrir 86 millj. kr. Meöalverð var kr.
65,88. Svipað verð var alla söludaga.
Dönsk útgerð á í vök
að verjast
Danskir útgerðarmenn eiga í mikl-
um erfiðleikum um þessar mundir
og kemur þar ýmislegt til. Eitt af því
sem hrjáir danska útgerð er hin
mikla mengun sem er víða á hefð-
bundnum fiskimiðum Dana. Af
þessum sökum hefur dregiö mjög
mikið úr t.d. humarveiðinni og segja
danskir fiskimenn ófagrar sögur af
því hvernig fiskurinn er á þeim
svæðum sem verst eru farin. Segjast
þeir fá í veiðarfæri sín dauðan hum-
Nýjar smásögur eftir Kjartan
Árnason
Út er komin hjá Örlaginu bókin
Frostmark eftir Kjartan Árnason.
Hér er á ferðinni safn smásagna með
5 nýjum sögum. Atburðir sagnanna,
sem eru allt í senn eru hlægilegir,
spennandi - og grátlegir, gerast á
hdnum ótrúlegustu stöðum i nútím-
anum og fjöldi hressilegra persóna
kemur við sögu, þar á meðal Afi úr
kafi, Hinn og Ég, að ógleymdum E.
Frostmark, þeim dularfulla upp-
vakningi úr Kyrrahafinu...
í Frostmarki feröast höfundur um
Reykjavíkurtogarinn Vigri fékk yfir 68 krónur fyrir kilóið i Bremerhaven.
einkunn
*
a
Bandaríkjamaikaði
- íslenskur lax fékk sla'
ar og_ flatfisk sem sé kaunum hlað-
inn. Á öðrum stöðum flýtur dauður
fiskur upp á yfirborð sjávar vegna
súrefnisskorts í hafinu.
Síðan eru það samskipti þeirra við
EBE en stjórn bandalagsins telur að
Danir hafi fengið alltof stóran hlut
úr sameiginlegum kvóta bandalags-
rikjanna. Mikil átök eru fram undan
um skiptingu þess afla sem leyfð
verður veiði á í framtíöinni.
USA
í blaðinu Fiskaren frá 13. nóv. seg-
ir meðal annars: Um þessar mundir
er verð á laxi mjög óstöðugt. 9. nóv.
var á markaðnum hjá Fulton lax frá
Kanada, Færeyjum og íslandi, fyrir
utan lax frá Noregi. í fréttinni segir
að laxinn frá Færeyjum og íslandi
hafi verið mjög meyr og hreisturs-
laus á pörtum og því verið lítið
áhugaverður, aftur á móti hafi laxinn
frá Noregi verið góður.
Fréttir frá vesturströnd Ameríku
herma að þar hafi verið miklir
þurrkar á hrygningarsvæðum laxins
og ekki séð fyrir endann á því hvaöa
áhrif þurrkarnir kunna að hafa á
hrygningu en vísindamenn hafi
miklar áhyggjur af þessu ástandi.
Frá Chile berast þær fréttir aö lax-
framleiðsla þar muni í ár verða 3800
lestir og framleiðslan sé öll seld am-
erískum innflytjendum á austur- og
vesturströndinni. Ekki er getið um
verðið sem greitt er fyrir laxinn.
Verð á rækju hefur haldist í dollur-
um talið en virðist ekki breytast þrátt
fyrir aukið framboð. Það er nú 380
kr. kg á rækju, 250/300 í kílóið.
Verð út af markaðnum hjá
Fulton 9. nóv. 1987:
Slægöur lax, 2/3 kg, kr. 388 til 400 kilóið.
Slægður lax, 3/4 kg, kr. 453 til 474 kilóið.
Slægður lax, 4/5 kg, kr. 495 til 503 kilóið.
olægöur lax, 5/6 kg, kr. 511 til 536 kílóiö.
Norskur silungur, '/2 kg, kr. 288 kilóið.
Norskur silungur, 21 kg, kr. 309 til 330 kílóið.
Fiskimjöl
Á fundi fiskimjölsframleiðenda,
sem haldinn var í Júgóslavíu nýlega,
voru ræddar horfur í fiskimjöls-
framleiðslunni. Talið var að fiski-
mjölsframleiðslan drægist nokkuð
saman á árinu. Framleiðslan er talin
munu veröa 2,7 milljónir lesta. Fram-
leiðslan var árið 1986 3,25 millj. lesta.
Innanlandsnotkun framleiðsluland-
anna er talin verða 425.000 lestir en
það er 100.000 lestum meira en var
síðastliðið ár. Birgðir verða, að talið
er, í árslok 300.000 lestir en npög litl-
ar birgðir eru hjá mörgum framleiö-
endum. Sumir hafa jafnvel selt meira
en þeir hafa getað staðið við afhend-
ingu á.
Veröið mun haldast eins og það er
nú nokkuð fram á næsta ár, þrátt
fyrir minnkandi framleiðslu. Aðal-
framleiðendur eru Chile, Perú og
Ecuador en Norðurlönd framleiða
um /3 af heimsframleiöslunni.
Murmansk
Á fundi, sem haldinn var í Mur-
mansk nýlega, var gert samkomulag
milli Rússa og Norðmanna um sam-
eiginlegar hafrannsóknir á norður-
hafsvæðum. Á fundinn mætti
forsætisráðherra Rússa, Gorbasmov.
Sjóhörpuskelfiskur á New England-markaði:
SjóskelUSA Kanada ísland Japan Noregur
20/30 íkg, kr. 367 400 364 379
30/40 i kg, kr. 360 340 340 400
40/60 í kg, kr. 272 297
60/80 íkg, kr. 264 264
Nýjarbækur
víðan völl bókmenntanna og stansar
gjarna þar sem útsýni er gott.
Bókin er 177 blaðsíður að stærð,
prentuð og bundin í Prentstofu G.
Benediktssonar. Kápu gerði Páll
Stefánsson. Verð kr. 1195.
Marblettir i regnbogans litum
Ljóð eiginkonu drykkjusjúks skálds
eftir Normu E. Samúelsdóttur.
Vegna vaxandi vandamála sem
drykkusýki og önnur vímuefna-
neysla veldur þjóðfélögum heims, og
þá ekki síst fjölskyldum þess sjúka,
hefur höfundur valið þessum ljóðum
þaö form að lýsa á raunsæjan hátt
lífi einnar fjölskyldu frá sjónarhóli
eiginkonunnar (sem vinnur í fiski til
að sjá fyrir sér og bömum sínum).
Eiginmaðurinn, skáldið, er ekki
lengur í myndinni, víðs fjarri. Ljóðin
lýsa kvíöanum, einmanaleikanum,
von sem aldrei hverfur alveg og að
endingu batavonum aðstandandans
sjálfs sem finnur lífi sínu nýjan far-
veg. Verð kr. 790.
MINNINGAR
HULDU Á.
STEFÁNSDÓTTUR
Móstreyia ( Húnaþlngi
Minningar Huldu Á.
Stefánsdóttur
- Húsfreyja í Húnaþingi -
Undirtitill bókarinnar er Húsfreyja í
Húnaþingi. Hulda varö húsfreyja á
Þingeyrum 1923 og átti þar heima
röska íjóra áratugi. Á bókarkápu
segir einnig: „Útsýni er mikið og fag-
urt af Þingeyrahlaði og sér þaöan
vítt um söguríkt hérað. Þangað leiðir
Hulda Á. Stefánsdóttir lesanda sinn
og svipast um með honum í Vatnsdal
og Þingi, bendir honum á bæina og
segir deili á þeim sem þar áttu heima
þegar eyfirska stúlkan kynntist fyrst
högum og háttum Húnvetninga. Hún
lýsir Blönduósi og íbúum hans fyrir
meira en sextíu árum. Verð kr. 1890.
Skírnir
Hausthefti Skírnis, tímarits Hins ís-
lenska bókmenntafélags, 161. ár-
gangur, er komið út. Efni heftisins
er afar fjölbreytt. Fimm ljóð eru eftir
Þóru Jónsdóttur sem er skáld Skírn-
is að þessu sinni. Guðrún Kváran
skrifar grein í minningu Rasmusar
Kristjáns Rask, en á þessu ári eru
liðin 200 ár frá fæðingu hans. Tvær
greinar eru um íslenskar fomsögur.
Jónas Kristjánsson skrifar ítarlega
grein um sannfærði fomsagnanna
og Helga Kress setur fram nýstárlega
kenningu um hetjuskap í fomsögum
í grein sem hún nefnir „Bróklindi
Falgeirs". Páll Skúlason á grein í
heftinu um Sigurö Nordal og tilvist-
arstefnuna og Kristján Arnason
fjallar um skylt efni í greininni „Arf-
ur Hegels“. Þá eru greinar eftir
Sigurbjörn Einarsson biskup og Jón
Þ. Þór sagnfræöing. Ritdómar em
um sjö nýlegar íslenskar bækur. Rit-
stjóri Skírnis er Vilhjálmur Árnason
lektor. Þessu heftir fylgir Bók-
menntaskrá Skímis sem nú birtist í
19. sinn. Höfundur Bókmenntaskrár-
innar er Einar Sigurðsson háskóla-
bókavörður.
og lýsti ánægju sinni með ákvörðun
um samvinnu þessara þjóða um
rannsóknir í norðurhöfum.
Vonandi verður skilningur þing-
manna okkar varðandi hafrann-
sóknir mjög svipaður þegar framlag
til Hafrannsóknastofnunar verður
ákveöið. Ekki er minni þörf á rann-
sóknum hjá okkur þar sem við
byggjum okkar aðalatvinnuveg á
sjávarútvegi.
Þær þjóðir, sem voru að sameinast
um rannsóknir, eiga ekki eins mikið
undir sjávarfangi og við íslendingar
og er ekki annaö sæmandi en veita
ríflegt fjármagn til hafrannsókna.
FRÁBÆRAR
PC - AT TÖLVUR
<SAMEIND>
Brautarholt 8 Sími 25833
FRÁBÆRIR
TÖLVUPRENTARAR
<SAMEINP>
Brautarholt 8 Sími 25833
0HITACHI
RYKSUGA
1000 vött
Kr. 5.900,-
Vilberg og Þorsteinn
Njálsgötu 49,
Reykjavík
Rönning hf.
Kringlunni,
Reyjavík
Rafland hf.
Akureyri