Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987.
3
Fréttir
Nær 9% launahækkun hjá sveitarfélögunum:
Hrein geggjun
Jón Baldvin
hrökklaðist út
með tolla-
- segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSI
„Ég hef ekki séð þessa samninga
en ef það er rétt að sveitarfélögin séu
að hækka laun um 8,8% þá er það
hrein geggjun. Ég lýsi furðu minni á
þessu dæmalausa ábyrgðarleysi.
Hafandi hlýtt á grátkór sveitarfélaga
síðustu vikurnar í útsvarsmálum,
þar sem niðurstaða félagsmálaráð-
herra er 6,7% útsvar, sem að vísu er
hækkun, sýnist mér að þessi 18 sveit-
arfélög hafi með ákvörðun sinni um
að hækka laun um 8,8% umfram það
sem er að gerast annars staðar, stað-
festi það, svo ekki verði um villst,
að þessi ákvörðun um útsvarspró-
sentu var út í hött,“ sagði Þórarinn
V. Þórarinsson framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambandsins, þegar
hann var spurður álits á launahækk-
unum sem starfsmenn 18 sveitarfé-
laga fá 1. desember og 1. janúar,
samtals 8,8%.
Hann sagði að það gæfi augaleiö
að þessi launahækkun myndi án vafa
torvelda gerð kjarasamninga á al-
mennum vinnumarkaöi, ekki síst
þegar horft væri til þess hvaða hækk-
anir opinberir starfsmenn, og þar á
meðal starfsmenn þessara sveitarfé-
laga, hafa fengið á árinu.
„Það er erfitt til þess að horfa að
þegar láglaunahópum í þjóðfélaginu
hefur, fyrir ákveðna stefnumörkun í
þjóðfélaginu, verið lyft upp í launa-
tölur, sem mörgum þykja ekki
merkilegar, skuli það verða sjálf-
krafa forsenda þess að opinberir
aðilar auki skattheimtu sína til að
hækka laun sinna starfsmanna.
Þetta þykja mér forkastanleg vinnu-
brögð,“ sagði Þórarinn V. Þórarins-
son. -S.dór
Borgaraflokksmenn með húsnæðisfrumvarp:
Húsbankar fyrir þá
sem þegar eiga íbúð
Guðrún Agnarsdóttir, Kvennalista, og borgaraflokksmennirnir Óli Þ. Guð-
bjartsson og Júlíus Sólnes rétta upp höndina á Alþingi. DV-mynd GVA
Tveir þingmenn Borgaraílokksins,
Júlíus Sólnes og Guðmundur
Ágústsson, hafa kynnt tillögur um
nýtt húsnæðislánakerfi. Leggja þeir
til að tekið verði upp tvöfalt hús-
næðislánakerfi í landinu.
Þeir hafa þegar lagt fram frumvarp
til laga um húsnaéðislánastofnanir
og húsbanka í þessu skyni. Eru þeir
jafnframt að undirbúa frumvarp um
breytingu á lögum um Húsnæðis-
stofnun ríkisins.
Borgaraflokksmenn leggja til í
fyrsta lagi að ríkið sjái aðeins um
lánveitingar til bygginga með félags-
leg markmið og til þeirra sem eru
að byggja eða kaupa sína fyrstu íbúð.
Byggingarsjóður ríkisins og Bygg-
ingarsjóður verkamanna verði þar
af leiðandi sameinaðir.
í öðru lagi leggja þeir til að komið
verði á fót sérstökum húsnæðislána-
stofnunum, húsbönkum, sem sinni
þeim sem ekki komi til með að eiga
aðgang að Húsnæðisstofnun. Það eru
þeir sem þegar eiga íbúð en hyggjast
stækka við sig eða minnka, breyta
eða lagfæra.
Þingmennirnir telja að bankakerf-
iö, eins og það er nú, geti ekki tekið
að sér húsnæðislánin. Því þurfi sér-'
staka húsbanka sem hafi það hlut-
verk eingöngu að veita slík lán. Telja
þeir eðlilegt að lífeyrissjóðirnir hafi
frumkvæði að stofnun húsbanka í
samvinnu við bankakerfið en trygg-
ingafélög og hagsmunasamtök
launþega verði þar einnig með.
„Það lagafrumvarp, sem hér er lagt
fram og skilgreinir starfsemi slíkra
húsbanka, er byggt á erlendum fyrir-
myndum. Slíkir húsbankar eru víða
starfandi í nágrannalöndum okkar
og hafa gefið góða raun,“ segja flutn-
ingsmenn í greinargerð og nefna
Danmörku sérstaklega í því sam-
bandi.
Húsbankarnir fjármagna útlán sín
með sölu sérstakra húsbréfa á frjáls-
um peningamörkuðum. Eru þetta í
rauninni venjuleg verðbréf eða
spariskírteini.
„Húsnæðislánakerfi nágranna-
þjóðanna virðist yfirleitt vera í
góðum farvegi og hinar örvæntingar-
fullu ráðstafanir. sem sífellt er verið
að gera á íslandi til þess að bjarga
gjörónýtu húsnæðislánakerfi okkar.
eru óþekktar með öllu." segja þeir
Júlíus og Guömundur. -KMU
Dómsmálaráðherra um krófii Pauls Watson:
Setur ekki stjómvöldum
„Ég ætla ekki að segja margt um
þetta mál,“ sagði Jón Sigurðsson
dómsmálaráðherra þegar hann var
spurður að því hvort Paul Watson,
aðalforsprakki Sea Shepard sam-
takanna, yrði ákærður vegna
skemmdarverka sem unnin voru á
skilyrði
H.valstöðinni í Hvalfirði og tveimur
hvalbátum í fyrra.
Krafa um ákæra eða afsökunar-
beiðni kom fram í bréfl sem Watson
sendi forseta íslands.
Jón Sigurðsson sagði að það væri
ekki Pauls Watson að setja íslensk-
um stjórnvöldum skilyrði. „Ég veit
ekkert um hans ferðir en komi
hann hingað koma viöbrögð ís-
lenskra stjórnvalda í ljós,“ sagöi
Jón Sigurðsson.
-ój
Umsagna leitað um bjórinn
„Nefndin tók málið fyrir daginn
eftir að því var vísað til hennar,“
sagði Ólafur G. Einarsson, formaður
allsherjarnefndar neðri deildar Al-
þingis, um bjórfrumvarpið.
Ólafur sagði að nefndin hefði sent
frumvarpið 10-15 aðilum til umsagn-
ar. Þeim aðilum hefði verið veittur
frestur til 15. desember til að skila
áliti.
Meðal umsagnaraðila eru áfengis-
varnaráð, Stórstúka íslands, félags-
málaráð Reykjavíkurborgar,
Alþýðusamband íslands, Vinnuveit-
endasambands íslands, íþróttasam-
band íslands og Ungmennafélag
íslands.
-KMU
fmmvarpið
frantsóknarráðherrar höfhuðu tollfrjálsu grænmeti
Stjómarfrumvarp til nýrra tolla-
laga hefur bæst í hóp ágreinings-
efna stjómarflokkanna. Jón
Baldvin Hannibalsson fjármála-
ráðherra fékk tollafrumvarp, sem
hann hugðist leggja fram, í hausinn
aftur á ríkisstjómarfundi á dögun-
um. Framsóknarráðherrar neituðu
að samþykkja þaö.
í tollaframvarpinu, sem Jón
Baldvin kynnti í ríkisstjóminni,
fólst meðal annars sú breyting að
tollur á innflutt matvæli félli niö-
ur, nema á sælgæti, kökur og þess
háttar. Önnur innflutt matvæli,
þar á meðal grænmeti, ávextir og
niðursuðuvara, áttu að verða toll-
fijáls.
Framsóknarráðherrar fóra í
vörn fyrir íslenskan landbúnað.
Gátu þeir ekki fallist á að innflutt
grænmeti og ávextir yrði tollfrjálst.
í fjármálaráðuneytinu keppast
menn þessa dagana við að endur-
skoða frumvarpið í samræmi við
óskir framsóknarmanna svo að
Jón Baldvin nái að koma því í gegn-
um Alþingi fyrir jól.
í tollafrumvarpinu er gert ráð
fyrir umfangsmikilli keríisbreyt-
ingu. Markmið ríkisstjórnarinnar
er að samræma og einfalda álagn-
ingu aðflutningsgjalda.
-KMU
CBT - 9225
Gold Star 20"
Nú bjóðum við þetta frábæra
litsjónvarp á sérstöku jólatilboðsverði.
Tækið er með þráðlausri fjarstýringu
og net rafeindastýrðum móttakara.
Auk þess er CBT - 9225 útbúið með
BNC-tengi fyrir tölvur. Síðast en ekki
síst þá er kassinn úr við, sem gefur
mun betri hljóm og er sterkari.
JÓIatilboö 29.980,
Eiirokreclit 0,-kr. 11 mán.
Visa raögreiöslur 0,- kr. 12 mán.
Skuldabréf 40% 6 mán.
Viö tökum vel á móti þér!
§ Jólatilbo