Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987.
9
Utlönd
Segir Waldheim
af sér í febrúar?
Kvikmyndatökumenn eru illa séöir af hermönnum. Þessi, sem er bílstjóri
kvikmyndatökuliðs, fékk í sig skot er teknar voru myndir af hermönnum
Simamynd Reuter
Harti
Loft lævi blandið
Gizur Helgason, DV, Þýskalandi:
Nú er talið sennilegt að hin al-
þjóðlega sagnfræðinganefnd, sem
rannsakar mál Kurts Waldheim,
forseta Auturríkis og fyrrum aðal-
ritara Sameinuðu þjóðanna, komist
að þeirri niðurstöðu að fordæma
beri hinn austurríska forseta.
Svo virðist sem einhver leki hafi
átt sér stað með niðurstöður nefnd-
arinnar en í henni eru sex stríðs-
sagnfræðingar frá Sviss, Bretlandi,
V-Þýskalandi, Bandaríkjunum,
ísrael og Belgíu. Talið er sennilegt
að niðurstööur sérfræðinganna
verði til þess að skapa gífurlega
ókyrrð varðandi setu Waldheims í
forsetaembætti. Táka sum vestur-
þýsk blöð svo djúpt í árinni að segja
að Waldheim veröi neyddur til að
segja af sér um miðjan janúar en
þá verða niðurstöður nefndarinnar
birtar.
Bretar hafa einhig fengið ein-
hverja nasasjón af gögnum frá
nefndinni. Dagblaðið The Daily
Telegraph heldur því fram í fyrra-
dag að austurríska ríkisstjórnin sé
þegar farin að undirbúa afsögn for-
setans.
Síðastliðinn laugardag birti aust-
urríska blaðið Kurier viðtal við
Waldheim en þar sagði hann aö
hann myndi verjast kröftuglega
öllum ásökunum um vitneskju um
stríðsglæpi Þjóðverja í Balkanlönd-
unum. Á sunnudaginn var segir
síðan dagblaðið Neue Kronen Zeit-
ung að Waldheim hafi tilkynnt að
hann líti svo á aö niðurstööum
nefndarinnar verði ekki haggað og
ef til vill kunni þær að orsaka að
bæði hann og austurríska ríkis-
stjórnin þurfi að líta á máliö að
nýju. Hins vegar segir Waldheim
orðrétt: „Aðeins dómsúrskurður er
bindandi en það sama er ekki hægt
að segja um niðurstöður nefndar-
innar sem ég setti raunar sjálfur á
laggirnar þar sem ég hef hreina
samvisku. En auðvitað kann svo
að fara að ég og ríkisstjórnin þurfi
að kanna stöðuna á ný eftir aö nið-
urstöður nefndarinnar eru ljós-
ar.“
Nefndin, sem um ræðir. hefur
haft með höndum þaö verkefni að
rannsaka hvort Waldheim hafi per-
sónulega haft afskipti af stríðs-
glæpum í síðari heimsstyrjöldinni.
Það virðist þegar ljóst að nefndin
muni birta ýmsar upplýsingar sem
verða óþægilegar fyrir Waldheim
og austurrísku ríkisstjórnina. Ljóst
er einnig að þeir tveir stjórnmála-
flokkar, sem standa að ríkisstjórn
Austurríkis, eru þegar byrjaðir að
taka aíleiðingunum af þessu.
Haitibúar segja að levnilögregla
einræðisstjórnar Duvalier, Tonton
Macoutes, sem var levst upp er Duv-
alier var flæmdur frá völdum hafi
farið fram á aðstoð stjórnarinnar vlð
uppþot í tengslum við kosningarnar
sem halda átti á sunnudaginn var.
Götur höfuðborgarinnar voru að
mestu mannlausar í gærkvöldi ef frá
eru taldir smáhópar óróaseggja Ton-
ton Macoutes sem gengu um götur
en þessir hópar urðu valdir aö þvi
að kosningunum var frestað.'
Landinu er nú stjórnað af herfor-
ingjaráði undir forystu Henri
Namphv hershöfðingja sem vinstri
menn ásaka um að vera lepp fyrir
Duvalier fyrrum einræðisherra.
Leiðtogi vinstri manna. Jean-
Claude Bajeux. sem stóð fyrir verk-
fóllum í fyrrasumar sagðist i gær
hafa varað Bandaríkjamenn við því
að kosningar gætu haft óróa í fór
með sér. Hann sagði að nú myndu
þúsundir manna flýja eyjuna og
verða þeir að gera það á bátum því
nágrannarikið. Dóminikanska lýð-
veldið hefur lokað landamærum
ríkjanna og hle\-pir engum yfir til
sín.
Bajeux sagði ennfremur að fram-
bjóðendur væru sem strengjabrúður
í höndum Duvalier og aö ekki yrði
langt að bíða þess að þess yrði hefnt
grimmilega að Duvalier skyldi hrak-
inn frá völdum.
Heldur er tekiö að hægjast um í
höfuðborginni Port au Prince og eru
búðir opnar á ný en þeim var flestum
lokað meðan að mestu óeirðirnar
gengu yfir.
Bandarikjastjórn fór þess á leit við
sjórnvöld á Haiti i gær að þau tækju
á málinu með festu og kærnu á friði
í landinu til að endurvekja traust
umheimsins á því að vilji væri til að
koma á lýðræði í landinu.
Kurt Waldheim, forseti Austurríkis, hefur staðfastlega neitað að hafa átt
hlut að striðsglæpum, þrátt fyrir sterkar vísbendingar í þá átt.
Simamynd Reuter
Sleppa gisl sem afmælisgjöf
Kúbönsku fangarnir í fangelsinu í
Atlanta slepptu í gær fanga, að því
er virðist til að halda upp á afmæli
félagsráðgjafa nokkurs sem hafði
reynst fóngunum vel. Gíslarnir eru
þvi alls 89 og halda fangarnir þeim
til að mótmæla samkomulagi Banda-
ríkjamanna við Kúbustjórn sem
gerir ráð fyrir að fangarnir verði
fluttir til Kúbu.
Skömmu áður en gíslinum var
sleppt hófust fyrstu eiginlegu samn-
ingaviðræðurnar viö fangana.
Gíslinn segist þó ekki vita um nein
tengsl milli afmælis félagsráðgjafans
og þess að honum var sleppt. Að sögn
hans var honum sleppt til að fan-
garnir gætu fengið tækifæri til að
ræöa við lögfræðinginn Gary Les-
haw en hann haföi stundu fyrr hvatt
fangana til aö sleppa einum gísl til
að halda upp á daginn.
Rétt áður en gíslinum var sleppt
söfnuðust fangarnir, sem eru meira
en eitt þúsund talsins, saman á þaki
fangelsisins og sungu afmælissöng-
inn. Söngurinn var tileinkaöur
félagsráðgjafanum Carla Dudeck en
hún varð 29 ára gömul í gær
Að sögn Dudeck var.hún djúpt
snortin yfir þessari sérstæðu af-
mælisgjöf, ekki hvað síst vegna þess
aö hún væri traustsyfirlýsing til
samtaka sem stofnuð voru til að
hjálpa, kúbönskum föngum og fjöl-
skyldum þeirra.
Pat Korten, talsmaður dómsmála-
ráðuneytisins, sagði að því færi fjarri
að nokkur skriður væri kominn á
samningaviðræður við fangana. Þær
væru þó orðnar mun jákvæðari en
áður og líkur á að ná mætti sam-
komulagi um nokkur atriði.
Fangarnir hafa lýst yfir áhuga sín-
um á að fá að ræða við kaþólska
biskupinn Augustine Roman en
hann var milligöngumaður í fanga-
uppreisn í Lousiana fyrir skömmu.
Biskupinn hefur hins vegar lýst því
yfir að hann vilji ekki vera samn-
ingamaður en hann sé hins vegar
reiðubúinn til að aðstoöa viö að auö-
velda samningaumleitanir.
Kúbönsku fangarnir krefjast þess að fá að ræða við kaþólska biskupinn
Augustin Roman. Simamynd Reuter
Sólbaðsstofa
Ástu B. Vilhjálms
Grettisgötu 18 - sími 28705
perur
24 tímar aðeins
1800 krónur.
Hvar annars staðar er
betra og ódýrara?
ATH!
Tilboðið stendur
í dag og á morgun
VISA OG EURO
VERIÐ VELKOMIN
ÁVALLT HEITT
Á KÖNNUNNI