Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987. Spumingin Gerir þú mikil bókakaup fyrir jólin? Kristján B.G. Jónsson: Já, þónokkur. Ég safna mikið gömlum bókum og kaupi þær frekar þegar fer að líða á árið. ÁsgeirM. Jónsson: Bara svona í með- allagi, kannski flmm til sex bækur. Alexander Jóhannsson: Ég veit ekki hvaö þið kallið mikið. Svona flmm eða sex. Sigurlaug Stefánsdóttir: Nei, ég myndi ekki telja það, kannski svo sem tvær eða þrjár. Sesselja Matthíasdóttir: Já, já, tals- verð. Alla vega svona fimm eða sex stykki. Björn Bjarnason: Það veit ég ekki,- alla vega eitthvert magn, kannski milli sex og tíu stykki. Lesendur I skýrslu iðnaðarráöuneytis kemur fram að rekstrarvandi í ullariðnaði sé slíkur að vart geti talist skynsamlegt að halda rekstrinum áfram við óbreyttar aðstæður, segir í bréfinu. - Álafoss og Sambandsverksmiðjur, stjórnin. Ullarrisinn Gefoss? L.J. skrifar: Nú verður brátt gengið formlega frá stofnun hins nýja ullarfyrirtækis sem myndað hefur verið með sam- einingu Álafoss og ullariðnaðar Sambandsins. Samkvæmt fréttum hefur ekki enn verið greint frá því hvað þetta nýja fyrirtæki eigi að heita en leitt getum að því að það muni verða nefnt Álafoss til þess að geta nýtt vörumerkið áfram erlendis. Ég vil nú leggja til að fyrirtækið fái nafnið „Gefoss" vegna þess að mér sýnist að það muni ætla að verða þungt á fóðrunum hjá hinu opinbera og þar af leiðandi munum við öll þurfa að gefa því nokkurn skerf úr sameiginlegum sjóði okkar. í grein i einu dagblaðanna í sl. viku er greint frá því að sá grunur manna að ullariðnaðurinn sé rekinn með stórfelldu tapi hafi nú fengist stað- Jóhanna skrifar: Þjóðviljinn getur nú verið skond- inn í skammdeginu. Undir mála- flokknum Þjóðmál sl. föstudag var eftirfarandi fyrirsögn: Suður-Afríka, viðskiptabann strax. Og þar undir stóð að Steingrímur J. Sigfússon al- þingismaður hefði daginn áður mælt fyrir þingsályktunartillögu sem hann og fleiri úr hans flokki flytja festur með skýrslu iðnaðarráðuneyt- isins. í þessari skýrslu kemur fram að rekstrarvandi fyrirtækja í ullar- iðnaði er slíkur að vart getur talist skynsamlegt aö halda starfseminni áfram við óbreyttar aðstæður. En þegar talað er hér á landi um „óbreyttar aöstæður" þýðir það venjulega að „breyttar" aðstæður séu þegar ríkið komi inn í myndina með fjármagnsfyrirgreiðslu. Bandarískt ráðgjafarfyrirtæki var fengið til að gera sérstaka úttekt á hagkvæmni sameiningarinnar sem nú er að verða að veruleika. Þetta er sama bandaríska ráðgjafarfyrir- tækið og er um þessar mundir að hefja könnun á markaðsmálum Flugleiða hf. og gera úttekt á Norð- ur-Atlantshafsflugi félagsins. En eins og fram hefur komið eru ekki horfur á bata þar á næstunni. um viðskiptabann á Suður-Afríku. Tilefnið hefur verið það að þing- maðurinn fann í verslun einni ávaxtadós sem innihélt niðursoðnar perur frá Del Monte fyrirtækinu og í áletrun á dósinni kom fram að hún var framleidd í Suður-Afríku! Þingmaðurinn hafði fengiö sér- stakt leyfi frá forseta Alþingis til að lesa áletrunina á dósinni í ræðustól. Það er auðvitað hagkvæmt að nota eitt og sama fyrirtækið til að gera könnun á flugstarfsemi okkar og ullariðnaði, nánast í sömu andránni, svo nátengdar og skyldar sem þessar atvinnugreinar eru, a.m.k. stjórnun- arlega! Vonandi verður niðurstaöa könn- unarinnar ekki sú að lítið sé annað til bjargar en að ríkiö taki á sig stór- ar skuldbindingar eins og stundum hefur orðið uppi á teningnum, eftir viðamiklar kannanir, jafnvel þekktra erlendra ráögjafarfyrir- tækja. En ef svo skyldi fara að íslenska ríkið reyndist eini finnanlegi bjarg- vættur íslensks ullariðnaðar er alveg gráupplagt að þessum nýja „risa“ í ullariðnaði verði gefið hið gullfallega nafn „Gefoss". Hvílík uppgötvun, og hvílík uppljóm- un! Síðan tók þingmaðurinn til máls og fordæmdi .sofandahátt okkar ís- lendinga og sagðist vonast til að þetta með dósina frá Suðúr-Afríku hefði verið „slys“. Dósin hefði samt verið auglýst á Stöð 2 og þeir hefðu sagt þar aðspurðir aö svo hefði verið. Og þessi dós hefur sem sé verið til- efni þess að þingmenn Alþýðubanda- lagsins drífa í að semja tillögu um „tafarlaust viðskiptabann" á Suður- Afríku. Minna mátti ekki gagn gera, nú á jólaföstunni. En þessi þingmað- ur er vanur auglýsingamennskunni, hann fékk góða þjálfun er hann aug- lýsti Act-skóna á sínum tíma. Þá minntist hann ekkert á aö þaö væri óviðkunnanlegt að nota erlent orð- skrípi á innlenda framleiðslu. „Það er ekki eftir neinu aö bíða,“ sagði þingmaðurinn í ræðustól, „að íslendingar feti í fótspor hinna Norö- urlandanna og setji viðskiptabann á Suður-Afríku.“ Nú jæja, Alþýðubandalagið er þó komið á flot aftur eftir formannsslag- inn og farið aö beita sér gegn afrísk- um perum. Þeir berjast þá alla vega gegn einhverju, þótt þeir láti verka- lýðsbaráttuna eíga sig. Hún hefur ekki verið þeim svo hugstæð hvort eö er. Það er gaman að fá svona uppá- komu á Alþingi i skammdeginu. En maður verður víst að flýta sér út í búð ef maður ætlar að krækja sér í nokkrar perudósir áður en þingmað-- urinn kaupir þær allar upp. Og það má Steingrímur þingmaður eiga að hann er áhrifamikill í auglýsingum og jafnvígur á skótau og niðursoðna ávexti. Hann ætti að drífa sig í „ávöxtunarbéfin" sem svo eru nefnd. Þáttur Hemma Gunn: Einn á landsbyggðinni skrifar: Nýlega heyröi ég IUuga Jökuls- son í útvarpi gagnrýna „skemmtiþátt", sem var undir stjórn Hermanns Gunnarssonar. Hlugi lýsti mjög opinskátt og eft- irminxiilega áliti sínu á þættinum og hitti svo sannarlega í mark. Flatneskja þáttarins var svo yfirþyrmandi og fannst manni til einskis annars aö jafna en þáttar sem fluttur var nokkru áður und- ir stjóm sama manns. Því miöur getur slæmt stundum orðið verra. Stjómandinn virðist álíta að aUt sé hægt að afgreiöa með upp- hrópunum, heimskulegum hlátr- um í tíma og ótíma eöa að gripa fram í fyrir viömælendum og reyna aö segja þeim aö þeir meini nú aUt annaö en þeir vom að segja og þeir séu bara „hressir"! Ef til vill er það að fara á móti straumnum aö andæfa gegn svona vitleysu. Ulugi hafði þó kjark til þess og geröi það á mark- vissan og eftirminnilegan hátt. - Sjónvarpsmenn ættu að hugsa sitt ráö. Einhver stjórnun hlýtur aö vera á svokallaðri skemmti- déild. Eða hvaö? Kona af Vesturlandi hringdi: Þegar ég fékk blaöiö mitt, DV, í hendur í dag og sá Spurningu dagsins um hvort viökomandi vildi láta auka valdssvið forset- ans okkar mundi ég aUt í einu eftir þvi aö forsetinn okkar hefur gefið kost á sér til endurkjörs. Það fmnst mér góðs viti. Fjölmiðlarnir oröa þetta nú ekki allir eins. Tíminn segir t.d. frá því í frétt um málið að forset- inn „sækist eftir“ endurkjöri. Þetta finnst mér ekki kurteislega oröaö. Forseti annað hvort „gefur kost á sér til endurkjörs" eða hann gefur ekki kost á sér. - Svona er nú hægt aö oröa sama hlutinn á mismunandi vegu. En ég hringdi nú einmitt í sam- bandi viö væntanlegt endurkjör forsetans okkar. í frétt um það segir að umboðsmenn hennar, sem tiheknir eru i fréttinni, séu báðir úr Reykjavík. Þar finnst mér skjóta skökku viö. Eftir allt það mikla tal um jafn- vægi í byggö landsins og byggða- stefnu yfirleitt ættu allir, sem með völd fara, aö fara meö lönd- um í ákvörðunum er lúta að sfjórnsýslu landsins og ákvarð- anatöku og forðast að móðga landsbyggðarfólk. Við úti á lands- byggðinni erum mjög viökvæm fyrir öUu er lýtur að æðstu stjóm landsins og viljum vera fullgildir aöilar að hverju þvi máli sem snertir breytingar á henni og eiga okkar fulltrúa. Það kom mér og fleirum sem ég hef talað viö á óvart að ekki skyldi annar umboðsmaður for- setans vegna endurkjörs hans vera valinn úr hópi landsbyggö- arfólks og eiga aðsetur utan Reykjavikur. Þótt þetta virðist ekki vera stórt mál þá er fólk ótrúlega næmt, einmitt fyrir svona hlutum. Ég vona bara aö fleiri umboðsmenn forseta verði tilnefndir og þá jafnmargir af landsbyggöinni. Nóg virðist vera á markaðinum af niðursoðnum ávöxtum, frá Suður-Afriku eður ei. Því miður verður það ekki upplýst hér. Hringið í síma 2 7 0 2 2 xruHi M. 13 og 15 eöa skrifiö Þingmaðurinn og dósin: Perurfrá Del Monte fordæmdar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.