Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987. 31 Sandkom Bókatíðindi Nú fer að líða að jólum og þá fara bækumar aö flæða yfir markaðinn eins og und- anfarin ár. Þó svo bókáútgef- endur hafi reynt að dreifa útgáfu sinni meira yfir árið en veriö hefur bresiur alltaf á bókaflóð í nóvember og des- ember. Bókin hefur haldið velli sem jólagjöf og að sjálf- sögðu stíla útgefendur inn á það. Fimmtugasta bókin í ritröö Halldórs Laxness er væntanleg hjá bókaút- gáfunni Vöku-Helgafelli í næstu viku. Þar verður birt dagbók sem skáldiö héit í Clervaux-klaustrinu fyrir 65 árum. Bókaauglýsingar hafa ver- ið yfirgnæfandi í blöðum og í sjónvarpi í desember og hef- ur stór hluti kostnaðar við margar bækur farið í auglýs- ingakostnaðinn. Bækur, sem gengið hafa illa, hafa jafnvel ekki selst fyrir auglýsinga- kostnaði. Nú hafa bókaútgef- endur tekið sig saman og látið gera glæsilegt rit sem nefnist Bókatíðindi. Tímarit þetta verður prentað í stærra upp- lagi en önnur tímarit sem komið hafa út á íslenska markaönum eða í hundrað þúsund eintökuum. Tímarit- inu verður dreift inn á öll heimili á landinu og auk þess í allar bókaverslanir. í blað- inu verður greint frá nýút- komnum bókum og verður það prentað á vandaðan pappír og allt {Mt. Með tíma- ritinu er ætlunin að draga úr almennum auglýsingakostn- aði sem hleypt hefur verði bóka upp á síðustu árum. Ætlunin er þ ví að Bókatíö- indi dragi úr auglýsingaher- ferðum forlaganna í sjónvarpi, blöðum og útvarpi og að væntanlegir bókakaup- endur geti ákveðið bókakaup sín heima í stofu í ró og næði. Klausturlíf Og talandi um j ólabækur. Nýjar bækur eftír Halldór Laxness vekja aMtaf athygM. Fyrir þessi jól er væntanleg bók frá klausturárum HaUd- órs Laxness en í gær voru einmitt liðin 65 ár frá því nóbelsskáldiö gekk inn um dyr klaustursins St. Maurice de Clervaux. Bókin er byggð á dagbókum sem skáldið hélt á þessum árum. Efni dag- bókanna hefur aldrei birst áður og voru þær löngu gleymdar bæði höfundi og öðrum þegar þær fundust fyrir skemmstu. Verið er að leggja síðustu hönd á bókina þessa dagana. Nóbelsskáldiö hefur nýlokið við að skrifa síðustu síðumar sem fylgja dagbókinni en HaUdór Lax- ness hefur ritað skýringar með dagbókarfærslunum. Gert er ráð fyrir að bókin komi út í næstu viku og verð- ur hún því með seinni skip- unum á jólabókamarkaðnum en sennilega með þeim sem vekja mesta athygli. Jólin koma Nýtt tímarit er komið á markaöinn. Blaðið nefnist VIÐ KARLMENN og bendir nafnið tíl þess að það eigi að fylla það tómarúm sem verið hefur í útgáfustarfsemi karl- rembusvína hér á landi um árabU. Við snöggan yfirlestur eins góðvina Sandkornsins, sem tUheyrir þeim flokki karlmanna sem nefnast karl- rembur, sagðist hann undr- ast það mjög að fyrir utan auglýsingamyndir væri bara ein mynd af konu í blaðinu en það væri af henni Victoriu sem sögð er vera í jólaskapi. Að öðru leyti prýddi blaðið myndir af stj ómmálamönn- um og Jóni PáM. Þá væri ágætis grein um snyrtivörur fyrir karlmenn en karlremb- an, vinur vor, sagði að karlar af sínu sauðahúsi væru ekki mikið fyrir að sminka sig. Þeirsemvonuðusteftírað • eignast með blaðinu VID KARLMENN íslenská útgáfu af Playboy eða Penthouse verða því sennilega fyrir von- brigöum þegar þeir fletta blaðinu laumulega í karla- deUdinni í bókabúðum fyrir jóMn. „Victoria, hún er svo sannarlega komin í jólaskap." Þetta er textinn sem fylgir þessari ágætu mynd í karlmannablaöinu „Viö karimenn“ sem er nýkomið út. Þaö er undirrit- uöum hulin ráögáta hvernig ráöa má af myndinni að Victoria sé kom- in í jólaskap en hitt er víst aö hún á eftir aö klæöa sig i jólafötin. ____________DV Múlinn hefur aðdráttarafl Síðumúlinn og Ármúlinn voru hálfgerðir hallærisstað- ir fyrir nokkrum árum. Þar var Síðumúlafangelsiö helsta menningarsetrið lengst af og þegar menn sögðust hafa far- ið í Síðumúlann merkti það að viðkomandi hefði lent á slæmu fylliríi og þurft að sofa úr sér verstu vímuna með aðstoð lögreglunnar. Svo fóru braggarnir í Múlanum aö hverfa og einstaka fyrirtæki holaöi sér þar niður. Vegur h verfisins óx þegar öll dag- blöð landsins fyrir utan Morgunblaðiö tóku sér ból- festu í Síðumúlanum þannig að þetta Fleet Street Reykja- víkur gekk gjarnan undir nafninu Blaö-Síðumúli. Nú er svo komið að þetta er með finni götum borgarinnar og í Síðu- og Ármúla eru mörg rótgróin og traust fyrirtæki þó svo blööum hafi fækkað þar. Þetta hefur gengið svo langt að ef fyrirtæki þurfa að stækka viö sig eða færa sig um set fara þau helst ekki út fyrirMúlahverfið. Síðasta dæmiö um þetta er að heMd- verslun Magnúsar Kjaran, sem var staðsett í Ármúlan- um, keyptí gamla Blaðprents- húsið í Síöumúla 14. Prentjmiðjan Korpus, sem var í Armúlanum við hliðina á Magnúsi Kjaran, hefur fest kaup á húsnæði heildversl- unarinnar. Nú er bara spurningin hvaða fyrirtæki í Múlanum.kaupir gamla hús- næðið sem Korpus var í. Umsjón: Axel Ammendrup Málmiðnaður í Fjölbraut í Breiðholti: Enginn fallið á sveinspröfi Vegna fréttar í DV miðvikudaginn 25. nóvember síðastliðinn hafði Þor- steinn Guðlaugsson, deildarstjóri á málmiðnaðarbraut Pjölbrautaskól- ans í Breiðholti samband við blaðið og vildi koma eftirfarandi athuga- semd á framfæri: í viðtali viö blaðamann DV 25. nóv- ember gagnrýnir Pétur Halldórsson, framkvæmdastjóri Iðnnemasam- bands íslands, að iðnnemar í vél- virkjun hafi ekki fengið nægjanlega kennslu í greininni til að öruggt sé að þeir standist sveinspróf. Rétt er að fram komi að frá því að málm- iðnaöarbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti byrjaði aö útskrifa sveina í vélvirkjun, hefur enginn nemandi af brautinni fallið á sveinsprófi. -ój LITLA GLASGOW GA-GA GÓRILLAN! Diskódans- apinn smo&éE Mjúk dúkka 50 cm, aðeins kr. 890,- Skríður, dettur, grætur. Verð kr. 3.890,- með rafhlöðum. LASER- BYSSUR Verð 2.600,- með rafhlöðum. Takmarkaðar birgðir. VtSA FÖT, SKARTGRIPIR, SMÁGJAFAVARA Qy’ Laugavegi 91 City91 HIN SÍVINSÆLA OG MYNDARLEGA JÓLAGJAFAHANDBÓK MEÐ 1000 GÓÐUM HUGMYNDUM UM JÓLAGJÖFINA í ÁR FYLGIR BLAÐINU ÁMORGUN.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.