Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987. Neytendur_________■ ___________ Ali í Hafnaifirði: Nýjar og full- komnar pókk- unarvélar „Þetta er framtíðin í pökkun. Filman, sem fer ofan á innihaldið, leggst alveg að því, það er auðvelt að opna og ef ekki er tekið allt úr pakkanum strax er hægt að loka honum alveg aftur. Þetta eru bestu fáanlegu umbúðirnar í dag enda þarf góðar umbúðir utan um góðar vör- ur,“ sagði Þorvaldur Guðmundsson er hann sýndi blm. DV nýju pökkun- arvélina hjá Ali í Hafnarfirðinum. Þetta eru orð að sönnu. í það minnsta er auðvelt að opna pakkann og þarf ekki til þess áhald eins og við ýmsar aðrar pakkningar sem á markaðinum eru. Aðra nýjung sáum við hjá Þorvaldi en það var tölvustýrð vog sem vigtar umbúðirnar frá innihaldinu. Það er mikið mál fyrir neytendur, sagði Þorvaldur, að þurfa ekki að greiða fyrir umbúðimar. Hjá Ali í Hafnarflrðinum er unnið úr kjötframleiðslu sem fýrirtækiö hefur á svínabúi sínu á Vatnsleysu- strönd. Þar er slátraö reglulega tvisvar til þrisvar í viku. Kjöt af þvi sem slátraö er fyrri hluta vikunnar er selt seinni hlutann, en kjötið fer aldrei í frost, selst allt jafnóðum. Á svínahúinu eru 350 gyltur sem eignast um tíu grísi tvisvar á ári. Grísirnir eru aldir þar til þeir eru sex mánaða, þegar þeim er slátrað. Það er því oft „fjölmennt" á svínabúinu. Þar geta verið samtímis um 4 þúsund hausar í húsi. Starfsmenn búsins eru átta talsins. „Við höfum ræktað okkar eigin stofn og veljum alltaf bestu dýrin til undaneldis. Nú er allt orðið tölvu- vætt á búinu þannig að við vitum nákvæmlega um alla blöndun, hve mikið fóður hver fær og allt eftir því. Við veljum eingöngu dýr sem éru vöðvamikil og fitusnauð. Við vitum nákvæmlega hvað neyt- endur vilja því við erum ekki bara svínabændur. Við seijum einnig beint til neytenda í gegnum kjöt- vinnsluna hjá okkur,“ sagði Þorvald- ur. í kjötiðnaðarstöðinni í Hafnar- firði vinna 35 manns við úrbeiningu og vinnslu á margs konar áleggi, pylsum og kæfum. Nýja pökkunarvélin sem tekin hefur verið í notkun hjá Ali. Þorvaldur Guðmundsson i Síld og fiski hefur framleitt svínakjöt ofan i íslend inga í meira en 40 ár. Hann hefur rutt brautina í íslenskri matvælafram leiðslu. Þorvaldur sagði að mikil áhersla væri lögð á hreinlæti í kjötiðnaðar- stöðinni. Einn liðurinn í þeim aðgerðum er að aldrei eru notaðar tuskur í stöðinni, eingöngu einnota bréftuskur og bréfhandþurrkur. Einnig er þess gætt að nota aldrei sömu áhöldin við meðhöndlun á hráum og soðnum mat og hreinlæti sífellt brýnt fyrir starfsfólkinu. 4 Um hollustu svínakjöts í afmælisbæklingi, sem Síld ogfisk- ur gaf út á 40 ára afmælinu, er grein DV-myndir GVA um hollustu svínakjöts eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson. Þar segir m.a. að svínakjöt hafi nokkra sérstöðu sem m.a. felist í því að þótt svínið virðist sjálft vera feit skepna sé lítil fita inn- an í kjötinu, auðvelt sé aö skera hana af og fá magrar afurðir. Einnig er fita í svínakjöti hlutfallslega auðug af fjölómettuðum fitusýrum, eða um 10%, og þess vegna tiltölulega mjúk. Við það bætist aö svínakjöt er ríkara af flestum B-vítamínum en nær allt annað kjöt. -A.Bj. Þorvaldur við nýju tölvuvogina sem dregur frá vigt umbúðanna þannig að nú kaupa neytendur ekki lengur plastumbúðir á kílóverði innihaldsins. Vantar verð í auglýsingar / Eiríka hringdi og vakti athygli á auglýsingunni og aldrei getiö um komum á framfáeri óskum um að í að margir auglýstu vörur sínar í sendingarkostnaðinn. framtiðinni verði hægt að átta sig blöðunum og aö hægt sé að kaupa Þama finnst Eiríku vanta upp á betur á auglýsingunum og að þar viðkomandivöruípóstkröfu.Oftar að góöir viðskiptahættir séu í megi einnig lesa allt um sendingar- en ekki er ekkert verð gefið upp í heiðri hafðir og biður um að við kostnaö. -A.Bj. Fleiri konur f kariastöifin Konur eru sífellt að sækja fram í ýmsum störfum sem fyrir fáum árum voru kölluð dæmigerð karla- störf. Við sáum könnun á aukningu kvenna í nokkrum starfsgreinum í Bandaríkjunum i þarlendu blaði. Talið er að þar í landi séu 45% bókhaldara og endurskoðenda séu konur, voru 34% árið 1979. 40% tölvufræðinganna eru konur, voru 28% árið 1979. í stjórnunarstörfum voru 29% konur, árið 1979 voru 22% kvenna í þeirri stétt. 15% lög- manna eru konur, voru 10% 1979. Fæstar reyndust konurnar í raf- eindatækni og raftæknifræðinga- stétt eða aðeins 9%. Hafði þó fjölgað frá árinu 1979 þegar þær vöru að- eins 4% af stéttinni. -A.Bj. GulKalleg blóma- bók fiá Iðunni Stofublóm og innigróður nefnist bók sem komin er út hjá bókaútgáf- unni Iöunni. Höfundur er John Brookes en þýðingu hafa • annast Anna Ólafsdóttir Björnsson og Nanna Rögnvaldsdóttir. Umsjón með útgáfunni hafði Óli Valur Hansson garðyrkjufræðingur. Bókin er í stóru A-4 broti upp á 286 blaðsíður. Hún er skreytt fjölda lit- mynda og er, skemmst frá að segja, einhver fallegasta blómabók sem undirritaður hefur séð. Þessi hók er í raun miklu meira en „blómabók". í henni er að finna mjög góðar leiðbeiningar um innanhúss- skreytingar hvers konar, auk þess sem í henni er að finna mjög greinar- góðar upplýsingar um pottablóm og umhirðu þeirra. Einnig er ítarleg umfjöllun í bókinni um. afskorin blóm og þurrkun blóma. Fjöldinn allur af góðum ráðum er í bókinni og leiðbeiningar sem auðvelt er að fara eftir. Þessi fallega bók er prentuð á Ítalíu Stofublóm og innigróður kostar en filmuvinna og setning er unnin 2.680 kr. með söluskatti. hjá Prenttækni. _ -A.Bj. Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur jjennan svarseðil. Þannig eruð j)ér orðinn virkur þátttak- | andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert Sé meðaltal heimiliskostnaðar | fjölskyldu af sömu stærð og yðar. I Nafn áskrifanda________________________________________ J i Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks____ | i Kostnaður í nóvember 1987: i Matur og hreinlætisvörur kr. __________________________ Annað kr. _______:____________ I I Alls kr. _____________________ [ I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.