Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987.
5
Viðtalid
Sturla Böðvarsson.
Stuiia Böðvarsson:
Vekring-
arog
tóttarar
„Ég tók sæti í fjárveitingar-
nefnd Alþingis nú í forfóllum
Friöjóns Þórðarsonar og komst
þá að því að ég þurfti að taka af-
stöðu til fjárbeiðna míns bæjarfé-
lags. Annars er ekki farið að deila
þeim fjármunum sem eru til skip-
tanna á næstu fjárlögum svo ég
slepp við úthlutunina. En maður
gleymir ekki sínu bæjarfélagi í
einu vetfangi,“ segir Sturla Böð-
varsson varamaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Vesturlands-
kjördæmi og bæjarstóri í
Stykkishólmi.
Hann er ekki alveg ókunnugur
þingstörfunum því þetta er í
fjórða sinn sem hann tekur sæti
á Alþingi.
Sturla er 42 ára gamall, fæddur
og uppalinn á Ólafsvík. Bygging-
artæknifræðingur að mennt og
starfaði að loknu námi hjá verk-
fræðiskrifstofu Sigurðar Thor-
oddsen, eða uns hann réðst sem
bæjarstjóri Stykkyshólms en því
starfi hefur hann gengt síðastlið-
in 13 ár.
Sturla er kvæntur Hallgerði
Gunnarsdóttur og eiga þau fjögur
börn, Gunnar sem leggur stund á
lögfræðinám við Háskóla íslands,
Elínborgu sem stundar nám við
Menntaskólann í Reykjavík, Ást-
hildi 13 ára grunnskólanema og
Böðvar 4ra ára.
„Það er afar lítill tími hjá mér
til að sinna áhugamálum. Fjöl-
skyldan hefur í gegnum árin átt
nokkra hesta. En við höfum gam-
an að stússa í kringum þá.
- Leggurðu áherslu á að eiga
hesta með einhverjar ákveðnar
gangtegundir?
„Við höfum bæði átt vekringa
og og klárhesta með tölti. En ég
legg mesta áherslu á að eiga góða
töltara.
Að frátöldu hestastússinu reyn-
ir maður að eyða þeim frístund-
um sem gefast frá bæjarstjóra-
starfinu heima við með
fjölskyldunni.“
- Er ekki mikil samkeppni milli
Hólmara og Ólsara?
„Ég held að hún sé ekki til
vandræða. Það er kannski einn
og einn maður sem er meö eitt-
hvert ofstæki, en ég verð ekki var
við neina samkeppni hjá fjöldan-
um. Samt er alltaf einhver
samkeppni og togstreita milli
sveitarstjómarmanna. En ég held
að við munum ná að vinna saman
af einingu um úrbætur í vegamál-
um, því allir eru sammála um að
úrbóta sé þörf í þeim efnum en
þær nást einungis með því að
menn vinni saman.“ -J.Mar
Fréttir
Fjórðungssamband Norðlendinga:
Sigtfirðingar á leið út?
Gylfi Kristjáiisson, DV, Aknreyri:
Bæjarráð Siglufjarðar liefur sam-
þykkt aö beina því til bæjarstjórnar
að á næsta fundi bæjarstjórnarinnar
verði samþykkt úrsögn úr Fjórð-
ungssambandi Norðlendinga.
„Þetta er sama mál og hefur komið
upp af og til undanfarin ár,“ segir
Valtýr Sigurbjarnarson, bæjarstjóri
á Ólafsfirði, en hann er jafnframt
formaður Fjóröungssambandsins. „í
sjálfu sér er ekkert óeðlilegt viö þaö
að menn skiptist á skoðunum um
þetta mál og heldur ekki aö breyting
verði á Fiórðungssambandinu í
tímans rás. Samstarf sveitarfélaga
er. að taka breytingum, en hvað
snertir Siglfirðingana þá hefur ekki
borist formlegt erindi um þetta og
ég hef ekki heyrt um málið frá þeim.“
Undanfarin ár hafa af og til komið
upp óánægjuraddir innan Fjórð-
ungssambandsins og hafa þær aðal-
lega verið í þá áttina að rekstur sé
of dýr og sveitarfélögin fái of lítið
fyrir það fjármagn sem þau leggja
fram. M.a. hefur launakostnaður
sambandsins verið gagnrýndur,
hann sé allt of hár, en Áskell Einars-
son, framkvæmdastjóri sambands-
ins, hefur borið það til baka og sagt
aö slík gagnrýni sé óréttmæt.
„Það má vel vera að fleiri sveitarfé-
lög komi í kjölfariö ef Siglfirðingarn-
ir hætta,“ segir Valtýr Sigurbjarnar-
son. „Það hafa komið fram í
viðræðum manna á milli vangavelt-
ur um aö breyta starfsemi sambands-
ins og í þvi sambandi hafa menn
velt því fyrir sér hvort ékki sé æski-
legt að hafa svona samtök tvö eöa
þrjú á Noröurlandi".
Rafmagn hækkaði um
16%-18% 1. desember
- þar með hefur rafmagn hækkað um 47,05% á þessu ári
Ragmagn hækkaði um 16 til 18% í
gær, 1. desember, hjá Rafmagnsveit-
um ríkisins og hefur þá hækkað um
47,05% frá áramótum. Niðurgreiðsla
á rafmagni til húshitunar verður
óbreytt en það hefur hún verið í
krónutölu í 2 ár. í flárlagafrumvarpi
því, sem nú er til umfjöllunar á AJ-
þingi, er þó gert ráð fyrir niðurskurði
á niðurgreiðslum á raforku á næsta
ári.
Að sögn Stefán Arngrímssonar hjá
Rafmagnsveitum ríkisins eru ástæð-
urnar fyrir hækkuninni að þessu
sinni þær að heildsöluverð frá
Landsvirkjun hækkar um 9% og þær
verðlagsbreytingar sem orðið hafa á
árinu. Eins benti hann á að Raf-
magnsveitur ríkisins hefðu ekki
fengið þá hækkun sem þær fóru fram
á um síðustu áramót. Þá var farið
fram á 10,5% hækkun en aðeins
fékkst 7% hækkun.
Hækkunin er mest á raforkuverði-
til húshitunar, um 18%. Fólk úti á
landi, sem notar raforku til húshit-
unar, kvartar mjög undan háu verði.
Verkalýðsfélagið Jökull á Höfn í
Hornafirði hefur látið reikna út
hækkun raforkuverðs á árinu og
kemst að þeirri niðurstöðu að hún
sé 47,05%, eins og meðfylgjandi súlu- _____
rit sýnir. -S.dór Þessa útreikninga hefur Verkalyðsfelagió Jökuli á Höfn látið gera um hækk-
un á verði raforku á árinu.
Gunnar Oddur Sigurðsson afhenti
Elínu Sigurðardóttur blóm og ávís-
un á farseðil við komuna til
Akureyrar. DV-mynd gk
Flugleiðir:
Hundrað
þúsundasti
farþeginn til
Akureyrar
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Flugleiðir hafa nú flutt yfir 100
þúsund farþega á flugleiðinni
Reykjavík-Akureyri-Reykjavík á ár-
inu og kom 100 þúsundasti farþeginn
á Akureyrarflugvöll frá Reykjavík
um helgina.
Það var Elín Sigurðardóttir, Akur-
eyringur sem var að koma úr helgar-
ferð til Reykjavíkur. Gunnar Oddur
Sigurðsson, umdæmisstjóri Flug-
leiða, tók á móti henni og afhenti
henni blómvönd, auk ávísunar á
flugmiða Akureyri-Reykjavík-
Akureyri.
Flugleiðir hafa aldrei áður flutt svo
marga farþega á einni flugleið innan-
lands áður. Gunnar Oddur sagöi að
í fyrra hefði félagið flutt um 96 þús-
und farþega til og frá Akureyri, sem
var met. „Við áttum von á því að
100.000 farþeginn í ár myndi koma
um miðjan desember en aukningin
er meiri en við reiknuöum með,“
sagði Gunnar Oddur.
IS5Í8
Bít’íB
METTLER hefur enn einu sinni sett nýjan mælikvaröa í vogarhönnum. Nýju METTLER
PM vogirnar með DeltaTrack og DeltaRange eru langt á undan öðrum vogum hvaö
snertir nákvæmni, hraða, styrkleika og fjölbreytni. DeltaTrack sýnir á mjög eðlilegan
og augljósan hátt gang vigtunar eða þá visst frávik. DeltaRange gerir úr einni vog
tvær vogir. PM vogirnar eru hlaðnar forritum sem gerir þær ótrúlega fjölbreyttar og
það við allar aðstæður. Auðvitað geta vogirnar talið og þær tengjast öllum tölvum og
prenturum. Góð og örugg þjónusta.
METTLER vog tryggir ykkur hámarksgæði og -endingu.
Mettler-Sauter. Frá míkrógrammi í 6 tonn.
Einkaumboó á íslandi,
SAUTFR KRISTINSSON HF.(
Langagerði 7,108 Reykjavík. Simi 30486.