Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987. Frjálst,óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 600 kr. Verð i lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr. Reykbomba kratanna Þingflokkur Alþýðuflokksins kastaði sprengju inn í stjórnarherbúðirnar þegar talsmenn hans boðuðu nýja og gjörbreytta fiskveiðistefnu um síðustu helgi. Þeir tóku stórt upp í sig og ekki var annað að heyra en mein- ingin væri að kollvarpa ríkjandi fiskveiðistefnu með því að færa aflakvótann frá skipunum. í gær lét þingflokkurinn frá sér fara formlegar tillög- ur um breytingar á fiskveiðifrumvarpi sjávarútvegsráð- herra. Margt er þar athyglisvert, en greinilega er dregið í land og ljóst að Alþýðuflokkurinn ætlar ekki að gera málið að frágangssök, að minnsta kosti ekki í þessari lotu. Hörð viðbrögð samstarfsflokkanna hafa eflaust haft sitt að segja og svo líka hitt, að þegar á hólminn kom voru þingmenn Alþýðuflokksins með skiptar skoð- anir í afstöðu sinni til kvótafyrirkomulagsins engu síður en aðrir. Af þeim atriðum, sem Alþýðuflokkurinn leggur áherslu á í tillögum sínum, ber hæst þá kröfu að tekin sé allur vafi af um að fiskurinn sé þjóðareign, ekki eign einstakra útgerða eða manna sem geta selt hann sín í milli sem einkeign. Þetta er eðlilegt grundvallarskilyrði sem hægt er taka undir. Hins vegar er hættan sú að eftir því sem kvótaskiptingin er lengur við lýði festist hún í sessi og erfiðara reynist að afnema hana. Tilgang- ur þeirra Alþýðuflokksmanna er sá að vinda ofan af þessu kerfi í áföngum og vonandi næst samkomulag um það í samráði við aðra flokka og hagsmunasamtökin. Hagsmunasamtökin í sjávarútveginum eiga ekki að ráða ferðinni en það væri mikil fífldirfska að hafa ráð þeirra að engu. Hugmyndin um nefndaskipan, sem ákveða skuli reglugerðir í stað ráðherravaldsins, er skiljanleg en vafasamari í framkvæmd. Tilgangurinn er augljóslega sá að draga úr valdi ráðherra og er að því leyti bein ögrun við núverandi sjávarútvegsráðherra sem hefur þótt fulleinráður og valdamikill reglugerðasmiður. Stjórnskipunarlega getur reynst erfitt að svipta fagráð- herra því valdi að semja reglugerðir og samþykkja í eigin nafni, auk þess sem hætt er við að sú póhtíska tortryggni, sem í þessari tillögu felst, spilli fyrir ærlegu samstarfi innan ríkisstjórnarinnar. Stofnun sérstaks sjóðs, sem sé til úthlutunar á kvóta til byggðarlaga, sem illa verða úti í flutningi skipa á milli héraða, er góðra gjalda verð en er uppgöf og flótti frá þeim fullyrðingum að kvótarnir eigi ekki að vera njörvaðir niður á skip. Þetta er nokkurs konar haltu mér, slepptu mér stefna, hvorki fugl né fiskur. Tillagan um endurskoðun á hveiju ári er til þess eins að drepa málinu á dreif og ber þess vott að Alþýðuflokk- urinn hafi runnið á rassinn af ótta við stjórnarsht ef lengra er gengið í uppstokkun á fiskveiðistefnunni. Enda þótt segja megi að Alþýðuflokkurinn hafi hent sprengju inn í stjórnarherbúðirnar, sem reyndist vera reykbomba, er niðurstaðan sú að Alþýðuflokkurinn hafi áttað sig á því að kúvending í fiskveiðistefnumálum í einu vetfangi hafi ekki verið skynsamleg. Undir það má taka. Breytingar þurfa aðlögun en breytingar eru óhjákvæmilegar fyrr en síðar. Kvótinn hefur leitt okkur í blindgötu sem tekur tíma að rata út úr að nýju. Alþýðuflokkurinn hefur reitt hátt til höggs. Ekki var það vindhögg en enginn féll við. Kratarnir heyktust á því að láta kné fylgja kviði. Ehert B. Schram Menning - rímorð á móti þrenning Ég var að lesa ágætt viðtal við Þórhildi Þorleifsdóttur alþingis- mann í Helgarpóstinum um menningu og menningarstefnu, þ. m.t. opinbera mennningarstefnu og þá í framhaldi af því spurninguna um opinbera stýringu menningar. Þar kveður hún upp úr með það að einu afskipti ríkisvalds og lög- gjafa af menningu eigi að vera veiting íjármagns og skipting þess. Um þá skiptingu og fyrirkomulag hennar fer hún svo ýmsum oröum og margt er þar ágætlega sagt svo sem vænta mátti. Ekki erallt menning Ég er nokkurn veginn alveg sam- mála. í viðtalinu gagnrýnir hún stefnuna sem nú ríkir eða þaö stefnuleysi sem hún nefnir stefnu, handahóf íjárveitinga, allt of naumt skammtaðra og niöurskor- inna. Um það hverjir skuli svo verðug- ir að njóta fer hún ágætum orðum og fagna ber því viöhorfi frjálslynd- is og aðhalds í senn sem þar birtist, ekki síst aðhaldsins. Menning er auðvitað ekki aöeins rímorð á móti þrenning, eins og gamla konan ku hafa sagt svo spaklega, en þó erfitt sé um alla skilgreiningu þá fer þó ekki hjá því að ekki er allt menn- ing, sem til hennar er þó talið, og ekki allir listamenn sem vilja vera það og vilja láta aðra viðurkenna það um leið. Ekki skal út á þann hála ís farið hér en aðeins varað við í leiðinni ofstæki og fordómum, sem oft hef- ur borið á í viöhorfum til menning- ar og listamanna, svo sem þaö birtist okkur skýrast á Hriflu- tímanum, og þá ekki síður hitt að gína ekki við hverju sem er og ska- pendur verka vilja kalla list án þess að það sé í minnstu snertingu við þá göfgu gyðju. Hér er ofur- skammt öfga á milli og auðvelt að misstíga sig og skal ekki frekar far- ið út í þá eldfimu sálma. í víðustu merkingu En viðtal þetta rifiar enn einu sinni upp fyrir mér veikburða til- raun sem var eitt sinn gerð af okkur Guðrúnu Helgadóttur á Al- þingi til að fá umræðu um menn- ingarmál í víöustu merkingu þar inn í sali, stefnu eða stefnu ekki - mörkun þeirrar stefnu og í hverju hún skyldi fólgin. Má vera að við höfum vanrækt að orða tillögu- greinina nógu vel og markvisst en tilganginn hefði átt að vera auðvelt að skilja og taka undir. Hins vegar tók einn ágætur þing- maður sig til, haíði allt á homum sér, tætti tillöguna niður og lagði allt út á versta veg. Útskýringar um raunverulegt markmið dugðu ekki og umræðan snerist upp í lág- kúm hina verstu og ekki hafði maður þar heldur hreinan skjöld. Viö flutningsmenn höföum farið í smiðju til færasta fólks sem vissu- lega var og er viðurkennt í þessum KjaUarinn Helgi Seljan fyrrverandi alþingismaður efnum og lagði okkur til vandaða greinargerð um málið sem enn á ærið erindi inn á Alþingi. Og eitt er alveg víst og var þá hverjum sanngjörnum manni: Ætl- an okkar var ekki sú að miðstýrð ríkismenning ætti að ríkja og hana ætti eina að styrkja. Slík firra og fiarstæða var þó nýtt og notuð til hins ýtrasta. Grannhugsunin var einmitt sú sem Þórhildur víkur beint að: auk- ið fiármagn til menningarstarfsemi þar sem handahófið réði ekki um útdeilingu og alla skiptingu. Höfundar greinargerðar, þau Helga Hjörvar, þáv. framkvæmda- stjóri Bandalags íslenskra leikfé- laga, og Njöröur P. Njarövík, þáv. formaður Rithöfundasambands ís- lands, voru enda fullfær um að koma þessari grunnhugsun vel og skýrt til skila. Og þau gerðu það svo að hver og einn átti að skUja. í þessa greinargerð mun ég vitna í lokin til áréttingar þeirri meginá- stæðu sem fyrir tillögugeröinni var. Stefnumörkun hins opinbera Sú meginástæða hefur áður verið nefnd, sem sé að hið opinbera taki á sig eðlilegar og sjálfsagðar skyld- ur viö listir og menningarstarfsemi almennt, veiti eðlilegt, ríflegt fiár- magn til hvors tveggja, atvinnu- sem áhugalistamanna og þeirra stofnana sem að listasköpun og menningu hvers konar vinna með einhverjum hætti. Stefnumörkun hins opinbera átti sem sé aö gera hvort tveggja: hlynna að nýgróðri og varðveita hið eldra í menningu okkar. Forsjá eða forskrift var fiarri okkur og útúrsnúningur á Alþingi skipti þar engu. Af tilefni þessa viötals við Þór- hildi þótti mér rétt að rifia það upp hversu þetta mál hefði verið flutt á þingi á sínum tíma, að minna á það að því hefði verið hreyft. „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjóminni að beita sér fyrir gerð almennrar stefnumörkunar í menningarmálum í því skyni að jafnt atvinnu- sem áhugamennska í þessum efnum hafi við ákveönari viðmiðun að styðjast frá hálfu rík- isvaldsins, ekki síst varðandi einstök menningarleg átök, viss forgangsverkefni, sem útundan hafa orðiö, og auka tryggingu fyrir eðlilegum, skipulegum fiárhags- stuðningi við alhliða menningar- starfsemi. í því efni þarf að kanna sem best allar mögulegar leiðir, beinar sem óbeinar, til aðstoðar áhugafélögum á hinum ýmsu svið- um listsköpunar. Sömuleiðis hvernig best megi auka stuðning hins opinbera við íslenska menn- ingarstarfsemi með berum fiár- framlögum, niðurfellingu ýmissa tolla og skatta og með öðrum ör- vandi áhrifum.“ Hætta af þrýstihópum Ég gríp hér tækifærið til að mega vitna til þeirra Helgu Hjörvar og Njarðar Njarövík og geri nokkrar setningar þeirra úr greinargerð að lokaorðum. Fyrst Helga: „íslensk menning er hornsteinn íslensks þjóðfélags, það sem gerir okkur, þessar rúmlega 200 þúsund sálir, að sérstakri þjóð, magnar okkur til öflugri átaka en værum við íbúar sæmilega stórs bæjar í milljónaþjóðfélagi. Þess vegna hlýtur að verða að búa vel að ís- lenskri menningu. En á þessu sviði hefur skort stefnumörkun, nema þá stefnumörkun sem felst í fiár- veitingum til hinna ýmsu þátta menningarlífsins og er þá hætt við að ýmsir þrýstihópar ráði í reynd meiru um stefnumótunina en æski- legt er. Þar sem ýmsir virðast álíta að með stefnumörkun sé átt við póli- tíska einstefnu eða einhverjar tilteknar stefnur í listum, er ástæða til að taka fram að hér er um að ræða heildarstefnumörkun, þar sem hugsanlega sé áhersla lögð á einhver forgangsverkefni hverju sinni." „Ekki má gleyma þvi, að með stefnumörkun á þessu sviði er lík- legt að þeir fiármunir, er til þessara verkefna er varið, muni nýtast mun betur en nú er.“ Þá er vitnað til Njarðar - lokaorð hans: „Það er í stuttu máh skoðun mín að gerbreyta þurfi afstööu ríkis- valdsins til menningarstarfsemi. íslensk menning er eitt lífsakkeri þessarar þjóðar sem brýnt er að efla stórlega frá því sem nú er gert. Menningarverðmæti verða ekki alltaf vegin og metin á fiárhags- grundvelli. En þau eru jafnan talin mælikvarði um andlega reisn hverrar þjóðar. Við íslendingar höfum löngum miklast af því að vera menningarþjóð, og það viljum við vera. íslensk menning má ekki verða minningin ein. Hún þarf að vera síung, og til þess að svo megi verða þarf að hlúa vel að henni. í raun og veru höfum við ekki efni á ööru sem þjóð en snúa við blaðinu og hefia íslenska menningu til vegs með myndarlegum stuðningi í stað þess að gera hana að hornreku í fiárlögum okkar eins og nú hefur verið of lengi.“ Aöeins það svo allra síðast að undirstrika að enn er hér óunnið verk sem Alþingi þarf að taka á af einurð og reisn. Vonandi þarf þess ekki lengi að bíða. Helgi Seljan „Ætlan okkar var ekki sú að miðstýrð ríkismenning ætti að ríkja og hana ætti eina að styrkja.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.