Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987.
17
Biðskýlið við Hlemm. - Bréfritari vill að salernin séu opin lengur á kvöldin.
Salerni á Hlemmi:
Hvers vegna lokuð á kvöldin?
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Mér finnst rétt að ég komi á fram-
færi og sendi frá mér nokkrar línur
vegna ástandsins á Hlemmi að því
er viðkemur salernisaðstöðu eöa
réttara sagt aöstöðuleysi.
Ég átti viðtal við vin minn, hann
Þorvald, um þetta mál fyrir tveimur
mánuðum og svo aftur í morgun, og
lofaði hann mér því að hann skyldi
ræða þetta við borgarstjóra. Málið
er að það er mikið kvartað yfir því
að salernin á Hlemmi skuli ekki vera
opin jafnlengi og önnur starfsemi þar
á staðnum eða þar til strætisvagnar
hætta að ganga.
Ég kom þarna í gærkvöldi og er ég
fór að ræða þetta mál við nokkra
starfsmenn á staðnum sögðu þeir að
þetta væri bara eins og framsóknar-
menn réöu hér, loforð á loforð ofan
en ekkert gerðist! Ég ætti að halda
meira upp á borgarstjóra! fékk ég svo
framan í mig.
Þeir sögðu einnig að þessu gæti
enginn breytt nema borgarstjóri. Og
aðrir sem ég hef rætt við segja aö hér
sé ekki nema um sanngirniskröfu að
ræöa. Þess vegna bið ég nú borgar-
stjóra að vera svo góðan að kippa
þessu í lag sem fyrst.
Skemmdi bfl og stakk af
Slgríður Guðmundsdóttir hringdi:
Þriðjudaginn 24. nóvember sl. var
ekið á bifreiö mína þar sem hún
stóð við Oddfellowhúsið austan-
vert. Bifreiðin er blár Escort fólks-
bíll og var ekið á vinstri framhurð
sem nú er gjörónýt.
Sá sem þetta gerði hefur veriö á
grænleitri bifreið þvi aö eftirstöðv-
ar af litnum sáust á lugtarbrotum
sem hafa dottið af þeim bíl við
ákeyrsluna.
Þar sem ég og lögregla hafa ekki
getað haft upp á tjónvaldinum vildi
ég biöja um aðstoö frá einhverjum
þeim er kynni að hafa orðið atviks
þessa var. - Vinsamlega hafið þá
samband við mig í síma 31073 eða
beint við lögreglu.
Svar til Guðrúnar Hansdóttur
B.S. skrifar:
Þaö kemur fram í athugasemdum
bréfritara að hann ber enga virðingu
fyrir sjálfum sér. Bréfritari er að tala
um að vinna að friði í heiminum.
Gerum viö það ekki fyrst og fremst
með því að líta á alla sem náunga
okkar, hvort heldur þeir eru svartir
eða hvítir?
Ef við viljum berjast fyrir friði
verðum við að kenna börnum okkar
að meta manninn að verðleikum án
þess að skírskota fyrst til litarháttar-
ins. Það er innrætið sem skiptir máli.
Þessu svaraði líka 10 ára barn í sjón-
varpsþætti nýlega.
Kvenfólkið frá Asíulöndum kemur
hingað vegna þess hve fátæktin er
mikil. Þetta fólk hefur aðra siði og
venjur, það er rétt, en með því að
mæta því á miðri leið og sýna því
skilning og umhyggju eflumst við að
þroska og virðum okkur sjálf.
Bréfritari segir, að við verðum að
halda við menningu okkar og tungu.
Þurfum við ekki frekar að framfylgja
samvisku okkar og hjartagæsku?
Vera manneskjulegri til að geta verið
þeim til stuðnings sem þurfa á okkur
aö halda.
Ég þekki hjón sem tóku barn frá
Sri Lanka. Maðurinn hafði mikið á
móti ættleiðingunni en sættist þó á
hana. Hann þroskaðist fljótlega og
nú lítur hann á alla kynþætti sem
jafningja sína.
Hvað erum við íslendingar að tala
um menningu okkar, og hreina þjóð?
Þaö er fásinna, svo ungt land sem
ísland er. - Asíulönd hafa af mun
meiru að státa, miklu eldri menn-
ingu, svo það er út í hött, bréfritari
góður, að nefna þetta á nafn.
Ef okkar eigin börn væru stödd í
einhverju Asíulandi þá þætti mér
sárt til þess að hugsa að það væri
litið á þau sem þriðja flokks fólk
vegna uppeldis eða litarháttar. Ef ég
eignaðist hörundsdökk tengdabörn
þá myndi ég elska þau jafnheitt og
hin hvítu og jafnvel heitara. til að
bæta þeim upp kalt viðmótið frá
mörgum íslendingum.
Sjálf er ég ekki mjög heittrúuð. En
sá mikli maður. Jesús frá Nasaret.
var í sannleika mikil persóna en kvn-
þættir skiptu hann ekki máli.
Hvernig leyfist þá okkur. dauðlegum
mönnum, að líta niður á þá sem eru
öðruvísi í háttum og útliti. og hver
segir að þaö sé verra að blanda blóði?
- Það er þvert á móti meiri hætta á
að afkvæmið verði þroskaheft eða
vanskapað, ættlið fram af ættlið. ef
blóðblöndun vantar. Segjum heldur:
vertu við náungann eins og við sjálf-
an þig.
ASEA Cylinda
þvottavélar*sænskar og sérstakar
Fá frábæra dóma í neytendaprófunum fyrir
þvott, skolun, vindingu (fjölhraða lotuvind-
ing upp í 1200 snúninga), taumeðferð, sápu-
og orkusparnað. Efnisgæði og öryggi ein-
kenna ASEA. Gerðar til að endast.
jFOmx
ábyrgd
í 3ár
/FQ nix
Hátúni 6A SlMI (91)24420
Heimilisaðstoð við
Sambýli aldraðra
Heimilisaðstoð óskast strax 4-6 tíma á dag við ný-
stofnað sambýli fyrir 3 ellilífeyrisþega í vesturbæ.
Nánari upplýsingar gefnar j síma 621595.
Anna eða Björn
TIL SÖLU
ER ALLT SEM ÞARF í GRILL,
s.s. kjúklingadjúpsteikingarpottur, hitaskápur fyrir
kjúklinga eða annað, 3 djúpsteikingarpottar, kæli-
skápur, 3 frystikistur, loftræstiháfur, kartöfluhitari og
steikingarpanna og annað sem þarf til grillreksturs.
Góð greiðslukjör.
Upplýsingar í síma 96-26866 eftir kl. 4 og 96-2491 3.
SÍMASKRÁIN 1988
TILKYNNING TIL SÍMNOTENDA
Breytingar í símaskrá 1988 þurfa að berast
fyrir 15. desember nk.
Nota má eyðublaðið á bls. 685 í núgildandi símaskrá.
Breytingar á heimilisfangi þarf ekki að
tilkynna sérstaklega.
Ritstjóri símaskrár
Erum flutt
í glæsilegt
húsnæði að
Þverholti 5
Mosfellsbæ.
Úrval af
fallegum
kven-
fatnaði.
Mosfellsbæ
Þverholti 5 - sími 666676
pgg|||
S mStm