Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Blaðsíða 20
FYRIRTÆKI Þ
SÍENDUR BETUR
ISTAÐGREÐ
- ef undirbúningurinn er c
Staðgreiðsla opinberra gjalda kemur
til framkvæmda 1. janúar 1988. Frá þeim
tíma er launagreiðendum skylt að reikna út
og halda eftir staðgreiðslu af launum
starfsmanna sinna svo og eigin launum og
skila mánaðarlega til innheimtumanna
ríkissjóðs ásamt skilagrein.
Vegna þessa lykilhlutverks launagreið-
enda er mikilvægt að þeir þekki skyldur sín-
ar í staðgreiðslu til hlítar. Launagreiðendur
munu fá sendan sérstakan bækling með
ítarlegum upplýsingum um hlutverk þeirra.
Er þess vænst að þeir kynni sér efni hans
vel. Góð þekking í upphafi kemur fyrirtæk-
inu til góða við framkvæmd staðgreiðslu.
HVERJIRERU
LAUNAGREBENDUR?
Launagreiðandi telst sá vera sem greiðir
einhveijum laun. Þeirsem eru með sjálfstæðan
rekstur teljast launagreiðendur, hvort sem þeir
greiða öðrum laun eða ekki, og þeim ber að
reikna sér endurgjald af starfseminni.
Allir launagreiðendur eru á launagreið-
endaskrá og nýjum launagreiðendum ber að
tilkynna sig þangað. Þar með er tryggt að þeir
fái sendar upplýsingar sem við koma skyldum
þeirra og auðvelda þeim hlutverk sitt í stað-
greiðslu.
ÖLL LAUNERU
STAÐGREIÐSLUSKYLD
Staðgreiðsla er reiknuð af öllum launum
og launatengdum greiðslum, svo og hvers
kynsfríðindum og hlunnindum.
Greiðslur til verktaka eru ekki stað-
greiðsluskyldar.
Af bílapeningum, dagpeningum og ferða-
peningum er ekki dregin staðgreiðsla ef
greiðslumar eru sundurgreindar með færslu
akstursskýrslna, akstursbókaog annarratilskil-
inna gagna, nema um sé að ræða fastar fjár-
hæðirá hverju launatímabili.
Athugið: Staðgreiðsla er dregin af
heildarlaunum að meðtöldu orlofsfé og í
hvert sinn sem laun eru greidd.
SJÁLFSTÆÐUR A TVINNUREKSTVR
Manni sem vinnur við eigin atvinnurekstur
ber að reikna sér endurgjald vegna starfsem-
innar og draga staðgreiðslu af því og skila
mánaðarlega. Sömuleiðis ef maki og böm inn-
an 16 ára aldurs vinna við starfsemina.
Ríkisskattstjóri ákveður lágmark reiknaðs
endurgjalds fyrir upphaf staðgreiðsluárs.
PERSÓNUAFSLÁTTUR
Sérhver launamaður fær árlegan persónu-
afslátt, sem kemur til frádráttar við útreikning
staðgreiðslu hans.
Persónuafslættinum er skipt jafnt á alla
mánuði ársins og á skattkortinu er þessi mán-
aðarlegi persónuafsláttur tiltekinn.
Ef launamaður afhendir launagreiðanda
skattkort maka síns ber launagreiðanda að
taka tillit til 80% þess persónuafsláttar sem
fram kemur á kortinu og draga frá staðgreiðslu.
Athugið: Persónuafslátt má launa-
greiðandi aðeins draga frá staðgreiðslu
hafi hann skattkort launamanns í vörslu
sinni.
Ef laun eru greidd oftar en einu sinni í
mánuði þarf að taka tillit til einhvers hluta per-
sónuafsláttar í hvert sinn sem greitt er, þó fari
heildarafsláttur mánaðarins aldrei fram úr mán-
aðarlegri heimild.
SJÓMANNAAFSLÁTTUR
Sjómannaafsláttur kemur til frádráttar
staðgreiðslu á sama hátt og persónuafsláttur.
Upphæðin kemur ekki fram á skattkorti. Það er
því á ábyrgð launagreiðanda að sjómanna-
afsláttur komi réttilega til frádráttar.
Kynnlu þérskyldurþfnarí staðgreiðslu
- það margborgar sig