Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987.
21
(77
SLU
yóður
ÚTREIKNINGUR STAÐGREÐSLU
Staðgreiðsla er reiknuð af heildarlaunum
jafnóðum og þau eru greidd. Launagreiðandi
reiknar staðgreiðslu út samkvæmt þeim upp-
lýsingum sem fram koma á skattkorti launa-
manns um skatthlutfall og persónuafslátt. Hafi
launamaður ekki afhent skattkort sitt skal
draga skatthlutfall af launum hans en ekki
tekið tillit til persónuafsláttar. Skatthlutfall er
fastur hundraðshluti og breytist ekki hver svo
sem launafjárhæðin verður.
SKIL Á STAÐGREIÐSLU
Launagreiðendum ber að gera skil á stað-
greiðslu mánaðarlega fyrir næsta mánuð á
undan. Þó svo að engin laun hafi verið greidd á
tímabilinu ber að senda inn skilagrein. Mánað-
arlega verða launagreiðendum sendar áritaðar
skilagreinar. Gjalddagi er 1. dagur hvers mán-
aðarog eindagi 14 dögum síðar.
Athugið: Launamaður getur ekki sjálf-
ur skilað staðgreiðslu vegna launa frá
launagreiðanda.
VANSKIL
Strangt eftirlit verður haft með skilum. Skili
launagreiðandi ekki á eindaga verða honum
reiknuðviðurlög.
LAUNABÓKHALD
STAÐGREIÐSLU
Öllum launagreiðendum er skylt að halda
sérstakt launabókhald, þar sem fram komi
launagreiðslur, starfstengdar greiðslur og
hlunnindi. Einnig skal koma fram afdregin stað-
greiðsla, svo og skatthlutfall staðgreiðslu og
persónuafsláttur hvers laanamanns.
LAUNASEÐLAR
Á launaseðlum skal auk annars sýna þá
fjárhæð sem haldið er eftir af launum launa-
manns. Einnig fjárhæð afdreginnar stað-
greiðslu launamanns fyrir næst liðið ár.
Athugið að á launamiðum skal frá og
með 1. janúar nk. tilgreina kennitölu iauna-
manns en ekki nafnnúmer.
SKATTKORT
Fyrir upphaf staðgreiðsluárs skal launa;
maður afhenda launagreiðanda skattkort sitt. Á
skattkortinu eru persónubundnar upplýsingar
ásamt skatthlutfalli staðgreiðslu og mánaðar-
legum persónuafslætti sem kortið veitir.
Hafi launagreiðandi ekki skattkort (eða
aukaskattkort) launamanns undir höndum má
hann ekki draga persónuafslátt frá staðgreiðslu.
Launamaður greiðir þá fullt skatthlutfall.
Launagreiðandi ber fulla ábyrgð á.
skattkortinu meðan það er í hans vörslu.
Launamaður getur afhent launagreið-
anda skattkort (eða aukaskattkort) maka síns
ef makinn nýtir ekki persónuafslátt sinn til fulls.
Þá tekur launagreiðandi tillit til 80% af þeim
persónuafslætti sem fram kemur á kortinu.
t-