Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Side 30
** 30
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987.
Fréttir
Vilhjálmur Rafnsson, yfirlæknir Vinnueftirlits rfkisins:
Hundruð árlega fyrir
heymartapi af hávaða
„Hávaði veldur heyrnartapi og
er streituvaldur. Hann veldur
auknum lijartslætti, stresshorm-
ónum fjölgar og blóðþrýstingur
hækkar en hvort sú blóðþrýstings-
hækkun er varanleg er hins vegar
ekki fullsannað," segir Vilhjálmur
Raíhsson, yfxrlæknir Vinnueftirlits
ríkisins.
„Það má svo velta því fyrir sér
hvort hægt sé aö líta á hávaöa sem
orsök hás blóðþrýstings sem síöan
veldur kransæða- og hjartasjúk-
dómum hjá fólki. Ef hægt væri að
sanna tengsl þar á milli væri það
mjög alvarlegur hlutur. Það hafa
ekki veriö gerðar neinar rannsókn-
ir á þessum hlutum hér á landi en
erlendar kannanir benda í þessa
átt.“
Vinnueftirliti ríkisins var komið
á fót 1981 og þá hófust hávaðamæl-
ingar hér á landi.
„Það er hins vegar ekki því að
leyna að þaö hefur einkum verið
mælt á þeim stöðum þar sem starfs-
fólk hefur kvartaö sjálft yfir
hávaðanum svo að það eru líkur á
að við höfum mælt á alverstu stöð-
unum. En ég held aö þaö sé hægt
að giska á að í dag séu á milli 12
og 15 þúsund manns hér á landi
sem vérða fyrir mikilli hávaðam-
engun, það er þurfa að vinna í
hávaða sem mæhst yfir 85 desibel.
Það er einkum í verksmiðjum, á
vélaverkstæöum og í vélarrúmum
á skipum sem hávaðinn mælist svo
mikill. En fólk getur varið sig gegn
þessum hávaöa með því að nota
heyrnarhlífar og eyrnatappa en
það verður að nota þessa hluti rétt
og að staðaldri svo að þeir komi aö
gagni.“
-Eru hávaðamörk hærri hér en i
nágrannalöndunum?
„Löggjöf okkar um hávaðamörk
byggir á meðaltali frá hinum Norð-
urlöndunum og þar stendur að
stefnt skuli að því að hávaði fari
ekki yfir 85 db á vinnustöðum. En
það hafa verið gefnar undanþágur
frá þessum reglum á eldri vinnu-
stöðum.“
Hvernig er eftírlitið?
- Hvernig getið þið fylgst meö þvi
að vinnuveitendur fari eftir reglu-
gerðum?
Það er sérstök eftirlitsdeild hér
við stofnunina sem fer mikið á
vinnustaði og mælir hávaða með
hraðamælum og með þeim geta
menn nokkum veginn gert sér
grein fyrir því hvort farið er eftir
reglugerðum. Ef atvinnurekandinn
fer ekki eftir reglugerðum gettun
við beitt sektum og hótað lokun.
Annars held ég að þessum ákvæð-
um hafi ekki verið beitt í sambandi
viö hávaða, þaö eru svo mörgfyrir-
tæki þar sem hávaði er yfir 90 db
aö það yrði aö loka fyrirtækjum
unnvörpum ef svo væri.“
- Nú segir í lögunum að hægt sé
að krefjast þess að vélar og vélbún-
aöur, sem gefur frá sér yfir 85 db
hávaða, sé merktur sérstaklega.
Hvað meö samkomustaöi, þar sem
hávaði fer iðulega yfir þessi mörk,
má ekki merkja þá sérstaklega?
„Þeir sem vinna á staönum eru
undir vemd Vinnueftirlitsins, mér
finnst sjálfsagt að fólki sem vinnur
á slíkum stöðum sé bent á aö það
geti hlotið skaða á heym ef það
þurfi að vinna lengi í einu í slíkum
hávaða."
- Hversu margir íslendingar
greinast árlega með heyrnartap af
völdum hávaða á vinnustöðum?
„Þaö hefur veriö nokkuð misjafnt
eftir ámm, allt írá 3-400 og upp í
5-600. En það er líklegt að við séum
að glíma þar við uppsafnaðan
vanda því að heyrnarmælingar á
vinnustöðum hafa ekki verið
stundaðar ýkja lengi hér á landi.
Það er hins vegar ómögulegt að
segja hvert steftúr í þessum mál-
um.“
-J.Mar
SKREYTINGAR Á BÍLUM AF ÖLLUM
STÆRÐUM OG GERÐUM; FÓLKSBÍL-
UM, FLUTNINGABÍLUM OG SENDIBÍL-
UM. SKILTAGERÐ OG MERKINGAR.
VERSLUNARGLUGGAR. SÝNINGAR-
BÁSAR. MERKINGAR FLUGVÉLA, EÐA
HVAÐ ANNAÐ SEM ÞÉR KANN AÐ
DETTA í HUG.
Uhctoaland
SÍMI666048
Soffía dregin á land
Júlia Imsland, DV, Höfn:
Soffía, dæluskip Hornfirðinga, hef-
ur dælt upp um 40.000 rúmmetrum
af sandi og leir úr höfninni á þessu
ári. Á næstu dögum verður Soffía
færö á land en dæling hefst aftur eft-
ir áramót. Soffia hefur reynst sérlega
vel eftir þær breytingar sem geröar
voru á henni á síðasta ári og upp-
gröftur og dæling gengið að óskum.
Akranes:
Bytting í öldninarmálum
Aisaell Amarson, DV, Akranesi:
Síðastliðinn sunnudag tók Guð-
mundur Bjamason heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra fyrstu skófl-
ustunguna að öðrum áfanga dvalar-
heimilisins Höföa á Akranesi. Annar
áfangi dvalarheimilisins er viðbygg-
ing til austurs frá heimilinu, tveggja
hæða. Á jaröhæð verða eldhús, sam-
eiginlegur matsalur, skrifstofur og
afgreiðsla, aðstaða fyrir iðju- og
sjúkraþjálfa, hár- og fótsnyrting og
hvíldarheimili fyrir þá sem sækja
dagvistun, svo og.rúmgóður salur
fyrir samkomuhald og félagsstarf
aldraðra. Framangreind aðstaða
mun þjóna öllum vistmönnum heim-
ilisins og er. um leið ætlað að verða
miðstöð öldrunarþjónustu á starfs-
svæði heimilisins sem er Akranes og
hreppamir fiórir sunnan Skarðs-
heiðar. Á efri hæð veröur viðbótar-
rými fyrir 25, bæöi einstaklinga og
hjón. Stærð hússins er samtals 2772
fermetrar. Heildarkostnaöur bygg-
ingarinnar á verðlagi í dag er áætlað-
ur um 153 milljónir kr.
Áætlað er að framkvæmdum við
grunn með steyptri plötu verði lokið
í apríl á næsta ári og húsið verði
uppsteypt með þaki sem næst ára-
mótum 1988- 89. Á árinu 1990 er
áætlað að lokið verði innréttingu á
jaröhæð og hún fullgerð og tekin í
notkun í árslok. Frágangi lóðar verði
síðan fulllokið á árinu 1991.
Leitað að stoinum tækjum sem voru í vörslu lögreglunnar:
Þetta var mér að kenna
- segir starfsmaður í óskilamunadeild lögreglunnar
Seint í vikunni sem leið var
myndavél og tilheyrandi búnaði sto-
lið úr bíl í miðbæ Reykajvíkur. Þýfið
var að verðmæti um 700 þúsund
krónur. Sá sem stal mununum
fleygöi þeim í nærliggjandi húsa-
sund. Þar fundu skilvísir menn þýfið
og komu því á útvarpsstöðina Stjörn-
una. Þaðan var mununum komið til
óskilamunadeildar lögreglunnar.
Á sama tíma leitaði lögreglan þjófs-
ins og stolnu munanna. Það var ekki
fyrr en klukkustundum síðar aö at-
hugulir menn sáu hvernig komið
var. Veriö var aö leita myndavélar
sem var í vörslu lögreglunnar.
„Þetta var mér að kenna. Ég vissi
ekki hve mikil verðmæti voru í þess-
um hlutum. Eigandinn er væntan-
lega búinn að fá hlutina sína aftur,“ .
sagði starfsmaöur í óskilamuna-
deildar lögreglunnar. -sme