Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987. Menning Ég geymi Ijóðin eins og vín - segir Steinunn Sigurðardóttir um Kartöfluprinsessuna Steinunn Sigurðardóttir. „Þetta eru árgangsljóð. Þau eru samin á síðustu 10 árum, hér um bil, nokkuð jafnt og þétt, en ég hef farið meö þau eins og vín; geymt þau í kjaUaranum og vonað að þau batni með árunum. Það er ekki nema eitt til tvö ljóð frá þessu ári,“ segir Steinunn Sigurðardóttir um Kartöfluprinsessuna, nýútkomna ljóðabók sína. „Það hefur þess vegna fylgt því skrítin tilfinning að hrekja þau út í dagsljósið," bætir hún við. „Ég hef geymt mörg þeirra svo lengi aö mér fannst að þau þyrftu helst að vera í friði, um'vafin bómull. Ég vona samt að þau bæti einhverju við þá mynd sem fyrri skáldverk mín hafa gefið.“ - Hvað er það sem rekur þig til að yrkja ljóð; hvað hefur ljóðið til dæmis fram yfir þau form sem þú hefur fengist mest við á síðustu árum; smásöguna, leikritsformið og nú síðast skáldsöguna? „Ég hef satt að segja ekki hug- mynd um það. Ég veit bara að ljóð eru það sem ég byrjaði á að skrifa, ljóðið er það form sem mér er ná- komnast og hefur veitt mér mesta ánægju.“ Smyglaði Ijóðabók inn á fólk í fyrra „Kannski er ég ljóðskáld frekar en nokkuö annað. Það sést vel á Timaþjófmum. Þar smyglaði ég ljóðabók inn á fólk undir því yfir- skini að bókin væri skáldsaga. Eftir á er ég mjög ánægð með að hafa nýtt mér ljóðið þar eins og ég gerði.“ - Er bilið milli ljóða- og skáld- sagnagerðar kannski aö minnka? „Það er alla vega einhver þróun að eiga sér stað; einhvers konar málamiðlun milli ljóðs og sögu. Það má sjá þessa söihu tilhneigingu í fleiri íslenskum samtímaverkum, til dæmis í nýjustu bók Gyrðis El- íassonar." - Stjórnast þetta kannski að ein- hvérju leyti af markaðslögmálum? „Það er hugsanlegt. Ljóðabækur eiga yfirleitt erfitt uppdráttar (það er reyndar leyndardómur sem ég skil ekki því að fólk virðist almennt vera mjög móttækilegt fyrir ljóð- um) og ljóðskáld snúa sér því að sagnaskáldskap. Það mætti þess vegna heimfæra það upp á mig. Á vissan hátt tel ég þetta merki- lega þróun, hún leiðir til spennandi nýjunga en á hinn bóginn hef ég áhyggjur af hinu hreinræktaða ljóði. Mér finnst ég til dæmis hepp- in aö byrja minn feril sem ljóð- skáld. í ljóðlistinni á maöur í erfiðari glímu við orðið en annars staðar og sú glíma agar mann.“ Svo snortin að ég keyrði út af „í gegnum ljóðið kemst maður líka í samband við sjálfan sig; ljóð eru ort á stóru stundunum í lífi manns og það er líka á þeim stund- um sem maður les ljóð annarra skálda.“ - Ef við snúum okkur að Kartöflu- prinsessunni, þá skipa náttúra, veðrátta og landslag stóran sess í bókinni. Hvemig víkur þessu við? „Ég hef með árunum orðið... ég vil ekki segja útilífsfrík (það minnir á Norðmenn)... eitthvað sem nefnt er náttúruunnandi. Ég hef þörf fyr- ir að komast út fyrir bæinn með vissu millibili, út í náttúruna, að minnsta kosti upp í Öskjuhlíö eða í Grasagarðinn í Laugardal. Ég endurnærist við svoleiðis labbit- úra. Ég get nefnt dæmi frá síðasta sumri þegar ég fór austur í Skafta- fell á einum fegursta degi ársins. Það fylgdi því sérstakur, ólýsanleg- ur fognuður. Ég var svo snortin að á heimleiðinni keyrði ég út af veg- inum á Skeiðarársandi þar sem ég var að horfa á Vatnajökul í baksýn- isspeglinum. (Systir mín heldur því að vísu fram að ég hafi bókstaflega snúið mér við undir stýri til aö virða fyrir mér jökulinn.)“ - En er ekki púkó að vera að yrkja um náttúruna nú á dögum? „Jú, en þú verður að athuga eitt: Ég er púkó; ég er alveg sérstaklega Bókmenntaviðtalið Jón Karl Helgason íhaldssöm og gamaldags á allan hátt. Ég fer bara vel með það.“ Yrkisefnin ekki púkó í sjálfu sér „Annars er Ijóst að leiðinleg nátt- úrulýrík hefur tröllriðið íslenskri ljóðagerð alltof lengi, en maður trú- ir því aldrei á sjálfan sig að maður sé leiðinlegur. Ég held annars að yrkisefnin séu ekki púkó í sjálfu sér, það eru bara til púkó skáld.“ - Svo við höldum áfram með nátt- úruna, þá er mikil þoka í þessum Ijóðum. „Já, mér finnst þokan heillandi. Mér finnst reyndar öll veður góð, en í þokunni er hægt að yrkja landslagið upp á nýtt, geta sér til um fjöllin sem felast í þokunni. Á sama hátt eru línur í lífinu og til- verunni sjaldnast mjög skýrar, en það gefur manni tækifæri á að skálda í eyðurnar. Þegar birtir kemur kannski eitthvað allt annað í Ijós, en þá er bara að taká því. Það er til dæmis merkilegt hvað mikil þoka umlykur fólk. Jafnvel þótt maður sé nákomin einhverri manneskju, getur maður aldrei vit- að hvað hún er aö hugsa. Það er í rauninni stór spuming hvort mað- ur geti nokkurn tíma skihð aðra manneskju; hvort maður sé ekki alltaf að yrkja í þokuna.“ - í annan stað eru ævintýraminni áberandi í Kartöfluprinsessunni. Ert þú ævintýraunnandi? „Ég yrki kannski um ævintýri á þeim stundum þegar mér finnst líf- ið vera ævintýri. En þær stundir eru fáar. Lífið er því miður ekki ævintýr. Oft grípur maður líka til pennans þegar ævintýrið snýst upp í andhverfu sína, martröð, sem á sinn hátt er auðvitað ævintýr." Ástin tilbúningur frekar en tilfinning? „Það er kannski undarlega ríkt í okkur að vilja að lífið gangi fyrir sig eins og ævintýri. Ástin er skýrt dæmi um þetta. Fólk ætlast til að ástin sé eitthvað annað en hún get- ur orðið. Sumir taka svo djúpt í árinni að fullyrða að ást milli manns og konu sé tilbúningur frek- ar en tilfinning." - Ert þú sammála því? „Ég á ennþá eftir að taka afstöðu í þessu efni. Hvaö sem öðru líður getur ástin verið góður tilbúning- ur. Annars finnst mér að við séum hér að tala um takmarkanir mann- eskjunnar. Hún vill meira en hún getur fengið. Þaö er á vissan hátt það stórkostlega viö manneskjuna en það er líka það sem stendur henni fyrir þrifum. Ég held að þann dag sem maður áttar sig á jafn- væginu milli þess sem maður getur og getur ekki fengið, milli þess sem maður á að sætta sig við og þess' sem maður á ekki að sætta sig við, þann dag er maður hamingjusam- ur.“ - Er Kartöfluprinsessan að leita að þessu jafnvægi? „Erum við ekki öll að því?“ JKH Valkyrja á rokkbuxum og fómarlamb eldhúsrómansins „Gillian Cross: A poppinn. Þýðandi: Guölaugur Bergmundsson. Mál og menning 1987. Liz Berry: Er þetla ást? Þýðandi: Jón Ásgeir Sigurðsson. Iðunn 1987. Bækurnar tvær, Á toppinn og Er þetta ast?, eiga það sameiginlegt að íjalla báðar um tónlistarmenn í poppheiminum. Fleira er tæpast hægt að segja aö sé líkt með þessum unglingabókum. Á toppinn er saga Janis Mary Finch, 16 ára stelpu sem er dugleg í söng og íþróttum í skóla, en er orðin leið á skólavistinni. Pabbi og mamma eru skilin og hún hýr hjá mömmu sinni og nýja manninum hennar. Þegar upp úr sýður strýk- ur Janis að heiman og fyrir tilvilj- un er hún orðin aðalstjarnan í hljómsveitinni Kelp. Raunar engin tilviljun, stelpan hefur mikla hæfi- leika. Gillian Cross lýsir hugarástandi stelpunnar snilldarvel, uppreisn unglings og vonbrigðum, fyrstu ástinni og sýnir vel hve harður dægurtónlistarheimurifin er í há- borginni London. Innskotskaflar, sem eiga að vera úr poppblöðunum Smash Hits, Sounds og Rockwise, eru bráðsniöugir og ná vel stíl þess- ara blaða. Og auövitað er það þýðandans að koma til skila and- blæ rokksins og hörku unglingsár- anna. Mál samtímans Málfar unglinganna er mjög sannfærandi, mál samtímans, án þess að detta niður í flatneskju og klisjur, enda kann aðalpersónan, Janis, sem sjálf segir söguna, svo sannarlega að koma fyrir sig orði. Hafi Guðlaugur Bergmundsson þökk fyrir góða þýðingu. Á toppinn er bók sem ég er viss um að höfðar beint til unglinga, rétt eins og rokktónlistin. Janis er stelpa sem er hörð, hæfileikarík og á í tilfinningalegum útistööum viö umhverfi sitt en nær að vinna sig út úr vandanum. Er þetta ást? er vellulegur og á köflum harla viðbjóðslegur eld- húsróman, ætlaður unglingum. Aðalhetjan er góð, listræn og aftur ■yndislega góð unglingsstúlka sem er svo hæfileikaríkur málari og svo gullíögur að undrum sætir. Ógæfa hennar í lífinu er að mála mynd úti í haga, verða þar fyrir aughti stórpoppara sem áður en langt um Bókmermtir Solveig K. Jónsdóttir líður er orðinn eins og bremsulaus bíll í brekku og gerir sér lítið fyrir og nauðgar stúlkunni. Til stuðnings fordómum Þetta væri svo sem nógu hörmu- legt ef hann tæki ekki upp á að leggja stúlkuna í einelti, gefið er í skyn að hún hafi nú æst hann upp, hún sé hrifin af honum og svo framvegis. Allt í samræmi við gamla og furðu gróna fordóma um nauðgun. Og til að kóróna allt tek- ur hún saman við goðið sem búið er að berjd hana, er fyllisvín og hefur verið í dópi. í einu orði sagt martröð og aðalpersónan alls ólík- leg til að vakna nokkurn tímann til fullrar meðvitundar. Þýðingin á Er þetta ást? er með afbrigðum fábreytileg og setning eins og „Ég hlakka svo til að hefj- ast handa“ (71) hljómar ekki sér- lega sennilega úr munni 17 ára stúlku. Eini tilgangurinn sem ég get séð með bókinni Er þetta ást? er að henni sé ætlað að styðja fordóma um samband kynjanna, karlinn drottnar, með ofbeldi ef ekki vill betur til, og stúlkan lætur undan, ekki síst undir lokin vegna þess aö hún er ófrísk. Stúlkur skulu láta í minni pokann þó ef til vill megi leyfa þeim að föndra við málverkið ef önnur kona fæst til að dilla barni þeirra. Má ég þá frekar biðja um hina kraftmiklu og stundum rudda- fengnu Janis úr Á toppinn, sem veit ef. til vill ekkí alltaf hvað hún vill en er harðákveðin í að komast að því. -SKJ Úr poppheiminum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.