Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Qupperneq 33
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987.
33
Fólk í fréttum
Magnús Jóhannesson
Magnús Jóhannesson siglinga-
málstjóri sagði við upphaf þings
Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands að mengun í fjörum
landsins væri komin á hættulegt
stig. Magnús er fæddur 23. mars
1949 og lauk BSc-Honours prófl í
éfnaverkfræði frá háskólanum í
Manchester 1973 og M.Sc. prófi
1975. Hann var verkfræðingur hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
1975 og Siglingamálastofnun ríkis-
ins 1975-1979 og frá 1980. Magnús
var verkfræðingur hjá Lofthreins-
un hf. 1979-1980 og var settur
siglingamálastjóri í mars 1984 og
skipaður frá 1. janúar 1985. Kona
Magnúsar er Ragnheiður Her-
mannsdóttir, f. 15. maí 1949,
kennari. Foreldrar hennar eru
Hermann Gunnarsson, prestur á
Skútustöðum, og kona hans, Sigur-
laug Þorsteinsdóttir. Fósturfor-
eldrar hennar eru Kjartan
Sveinsson, raffræðingur í Rvík, og
kona hans, Bergþóra Gunnarsdótt-
ir. Börn þeirra eru Bergþóra Svava,
f. 31. maí 1977, og Jóhannes, f. 30.
september 1978. Systkini Magnúsar
eru Þorsteinn, f. 11. maí 1951,
skurðlæknir, er í framhaldsnámi í
Þýskalandi, giftur Friðnýju Jó-
hannesdóttur, Þórir, f. 18. janúar
1956, tæknifræðingur í Rvík, giftur
Helgu Gunnarsdóttur, Hanna, f. 31.
mai 1959, læknir, gift Andrési
Kristjánssyni sjúkraþjálfara og
Laufey, f. 1. janúar 1966, nemi.
Foreldrar Magnúsar eru Jóhann-
es Þorsteinsson, verkstjóri á
ísafirði, og kona hans, Sjöfn Magn-
úsdóttir. Faðir Jóhannesar var
Þorsteinn, prófastur í Vatnsfirði,
Jóhannesson, b. á Ytra-Lóni á
Langanesi, Jóhannessonar, b. í
Saltvík við Skjálfanda, bróður Þor-
kels, afa Indriða Indriðasonar
ættfræðings. Bróðir Jóhannesar
var Jónas, langafi Gísla, föður Ax-
els, aðstoðarforstjóra SÍS. Jóhann-
es var sonur Guðmundar, b. á
Sílalæk, Stefánssonar, b. á Sílalæk,
Indriðasonar, bróður Hildar,
langömmu Björns, langafa Stein-
gríms Hermannssonar. Móðir
Jóhannesar á Ytra-Lóni var Þuríð-
ur Þorsteinsdóttir, prests á Þór-
oddsstað, Jónssonar, prests í
Reykjahlíð, Þorsteinssonar. Móðir
Þuríðar var Guðbjörg Aradóttir, b.
á Skútustöðum, Helgasonar, b. á
Skútustöðum, Ásmundssonar.
Móðir Jóhannesar var Jóhanna,
systir Sigurjóns, fóður Jóhanns
skálds. Jóhanna var dóttir Jóhann-
esar, b. á Laxamýri, bróður Jóns,
langafa Jónasar Jónssonar frá
Hriflu. Jóhannes var sonur Kristj-
áns, b. á Halldórsstöðum í Aðaldal,
Jósepssonar, b. í Kasthvammi,
Tómassonar, bróður Jónasar, afa
Jónasar Hallgrímssonar skálds.
Móðir Magnúsar var Laufey, hálf-
systir Nínu Tryggvadóttur listmál-
ara. Laufey er dóttir Tryggva,
gjaldkera í Rvík, Guðmundssonar,
b. í Efriseli í Ytrihreppi, Jónssonar,
b. á Efriseli, Halldórssonar, bróður
Ingibjargar, langömmu Guðmund-
ar, afa Magnúsar Kjartanssonar
ráðherra. Systir Jóns var Guð-
flnna, langamma Ólafs Þorgríms-
sonar hrl. Móðir Jóns var Guðrún
Snorradóttir, systir Guðlaugar,
langömmu Ásgríms Jónssonar,
listmálara. Bróðir Guðrúnar var
Magnús, langafi Guðmundar, fóður
Ásmundar biskups. Móðir Tryggva
var Valgerður, systir Jóns, föður
Einars myndhöggvara, afa Harðar
Bjarnasonar, húsameistara ríkis-
ins, og langafa Sveins Björnssonar
sendiherra. Systir Jóns var Guö-
finna, amma Einars Bjarnasonar
prófessors. Bróðir Valgerðar var
Helgi, langafi Alfreðs Flóka og
langafi Ásgeirs Friöjónssonar,
dómara í ávana- og fikniefnamál-
um. Valgerður var dóttir Bjarna,
b. í Bolafæti, Jónssonar og konu
hans, Helgu Halldórsdóttur, systur
Jóns í Efraseli. Móðir Laufeyjar
var Jónína, systir Sigurðar, fóður
Sveins, ritstjóra Eimreiðarinnar.
Jónína var dóttir Jóns, b. á Þórar-
insstöðum í Seyðisfirði, Jónssonar.
Sjöfn er dóttir Magnúsar, skip- -
stjóra á isafiröi, Jónssonar, fiski-
matsmanns á ísaflrði, Magnússon-
ar. Móðir Sjafnar var Hannesína,
systir Sveinbjargar, móður Bjarn-
héðins Elíassonar, skipstjóra í
Vestmannaeyjum. Bróðir Hannes-
ínu var Sighvatur, útgerðarmaður
í Vestmannaeyjum. Hannesína var
dóttir Bjarna, húsmanns á Stokks-
eyri, Jónassonar og konu hans,
Arnlaugar Sveinsdóttur, b. í
Nýjabæ undir Eyjafjöllum, Einars- '
sonar.
Afmæli
Andlát
Guðleifur Sigurðsson
Guðleifur Sigurðsson húsa-
smíðameistari,' Aðallandi 19,
Reykjavík, er fertugur í dag. Guð-
leifur fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í foreldrahúsum en var í
sveit í Kjósinni á sumrin. Hann
gekk í Iðnskólann í Reykjavík og
lærði trésmíði, en meistararéttindi
fékk hann 1971. Guðleifur hefur
unnið við smíðar síðan og þá eink-
um á Stór-Reykjavíkursvæðinu, en
hann hefur alltaf búið í Reykjavík.
Kona Guðleifs er Ingibjörg Bryn-
dís, f. 18.12. 1950, dóttir Frímanns
Jóhannssonar, sem starfar í Kassa-
gerð Reykjavíkur, og konu hans,
Guðrúnar Þórhallsdóttur.
Guðleifur og Ingibjörg eiga þrjá
syni. Þeir eru: Sigurður Orn,
menntaskólanemi í MH, f. 24.8.
1969; Frímann Þór nemi, f. 1.7.1971,
og Eiríkur Már, f. 23.7. 1980.
Guðleifur á fjórar systur. Þær
eru: Gíslína Kolbrún, sjúkraliði á
Borgarspítalanum í Reykjavík, f.
28.8.1949, gift Skafta Gíslasyni tré-
smið, en þau eiga tvær dætur;
Sigríður Erla, húsmóðir í Reykja-
vík, f. 21.1. 1951, gift Þórarni
Ingimar Sigvaldasyni búfræðingi
og eiga þau tvo syni; Gróa, húsmóð-
ir í Reykjavík, f. 27.2.1955, gift ísak
Sigurðssyni múrara, en þau eiga
tvo syni; Sólrún Alda húsmóðir, f.
22.5.1956, gift Gunnari Júlíussyni,
nema í tölvufræði, en þau eiga tvö
börn og eru búsett í Bandaríkjun-
um um þessar mundir.
Foreldrar Guðleifs eru Sigurður
trésmíðameistari, f. á Oddgeirs-
hólahöfða 16.3. 1917, af Galtarætt,
Guðleifsson og kona hans. Herdís
Sigrún frá Grindavík, f. 13.12.1918.
Jónsdóttir.
Ingvar Eyjólfsson, Hverfisgötu
102, Reykjavík, er sextugur í dag.
Ingvar fæddist að Gillastöðum í
Reykhólahreppi og ólst þar upp í
foreldrahúsum. Hann vann við
búskapinn hjá foreldrum sínum en
á Gillastöðum bjó hann til flmm-
tugsaldurs. Ingvar flutti þá til
Reykjavíkur þar sem hann vann í
nokkur ár í Blikksmiðjunni Gretti,
en hann starfar nú hjá Umbúða-
miðstööinni.
Ingvar EyjóHsson
Ingvar á fjögur systkini: Gyða er
húsfreyja í Reykjavík; Stella, tví-
burasystir Ingvars, býr í New York
og starfar þar við hárgreiðslu;
Ragna er búsett á Patreksfirði, gift
Hilmari Albertssyni sjómanni og
eiga þau flmm börn; Sverrir er
kokkur hjá Eimskip.
Foreldrar Ingvars eru Eyjólfur,
b. og smiður að Gillastöðum, f. 1893,
Sveinsson, en hann dvelur nú að
Hátúni 12 í Reykjavík,. og kona
hans, Hermína Ingvarsdóttir, f.
1903, en hún er látin fyrir nokkrum
árum. Eyjólfur er einn af ellefu
systkinum sem upp komust en for-
eldrar þeirra voru Sveinn. b. á
Gillastöðum, Sveinsson. og kona
hans, Valgerður. af Beruíjaröar-
ætt, Bjarnadóttir. Hermína átti
eina systur sem lést í barnæsku en
foreldrar þeirra voru Ingvar Hjart-
arson og kona,hans. Kristín Gísla-
dóttir. ættuð úr Miðflrði.
Sigurjón Jónsson
Sigurjón Jónsson, Ægissíðu 18
(Völlum), Grenivík, er sjötíu og
fimm ára í dag. Sigurjón fæddist
að Syðri-Tjörnum í Öngulsstaða-
hreppi í Eyjafirði og ólst þar upp
til átta ára aldurs en flutti þá með
foreldrum sínum fram í Æsustaða-
gerði í Saurbæjarhreppi. Hann var
í foreldrahúsum fram að fermingu
en fór þá vinnumaður að Hóls-
húsum, þar sem hann var í tvö ár,
og síðan að Munkaþverá í tvö ár.
Sigurjón flutti síðan til Akureyrar
og fór á sjóinn. Hann var í átta ár
til sjós á bátum frá Flatey á Skjálf-
anda, frá Önundarfirði og frá
Vestmannaeyjum. Eftir að Sigur-
jón hætti til sjós starfaði hann á
Hjalteyri í níu sumur en vann síðan
í fjölda ára í Frystihúsinu Hvalbak
á Grenivík.
Kona Sigurjóns var Elín Lísbet
Hjartardóttir, f. 1.7. 1916, d. 1986.
Sjgurjón og Elín Lísbet eignuðust
tvær dætur: Stefanía Steina er hús-
móðir á Grenivík. gift Erni Árna-
syni. starfsmanni hjá kaupfélag-
inu, en þau eiga þrjú börn; Sigríður
Kristbjörg. húsmóðir á Grenivík.
er gift Brynjari Sigurðssyni kart-
öflubónda og eiga þau tvö börn.
Sigurjón átti flögur systkini en á
nú einn bróður á lífi. Sá er Valtýr
Jónsson, leigubílstjóri á Akureyri,
Foreldrar Sigurjóns: Jón Jó-
hannsson og Ingibjörg Jónsdóttir.
75 ára
Bjarni Ólafsson, Langholtsvegi 190,
Reykjavík, er sjötíu og fimm ára i
dag.
70 ára
Valgerður Óskarsdóttir, Háengi 11,
Selfossi, er sjötug í dag.
60 ára
Guðgeir Magnússon, Reykjahlíð 8,
Reykjavík, er sextugur í dag.
Jón Gunnarsson, Álfheimum 28,
Reykjayík,.ei: sextugur i dag.
Kristín H. Kjartansdóttir, Stafholti
5, Akureyri, er sextug í dag. Hún
verður ekki heima í dag.
Símon Oddgeirsson, Dalsseli, Vest-
ur-Eyjafjallahreppi, Rangárvalla-
sýslu, er sextugur í dag. Hann
verður ekki heima í dag.
50 ára____________________
Jóna Guðrún Sveinsdóttir, Mið-
braut 13, Vopnafirði, Múlasýslu, er
fimmtug í dag.
40 ára__________________________
Björn Þorleifsson, Húsabakka,
. Svarfaðardal, er fertugiir í dag.
Björg G. Eiríksdóttir, Aðalbraut 48.
Raufarhöfn, er fertug í dag.
Elísabet Árnadóttir, Álfalandi 11,
Reykjavík, er fertug í dag.
Atli Gylfi Michelsen, Álfheimum
23, Reykjavík, er fertugur í dag.
Helga Guðmundsdóttir, Stekkjar-
holti 3, Akranesi, er fertug í dag.
Skúli Axel Sigurðsson, Hraunbæ
56, Reykjavík, er fertugur í dag.
Þóra Benediktsdóttir, Austurbraut
16, Hafnarhreppi, Skaftafellssýslu,
er fertug í dag.
Guðjón Bjarnason, Hænuvík innri,
1, Rauðasandshreppi, Barða-
strandarsýslu er fertugur í dag.
Þorður Bogason
Þórður Bogason, fyrrv. oddviti á maí 1938, gift Braga Gunnarssyni.
Hellu, lest 29. november sl. Þorður
fæddist í Varmadal á Rangárvöll-
um 31. mars 1902. Hann var við
nám í Flensborgarskóla í Hafnar-
firði og lauk gagnfræðaprófi 1923.
Hann var kennari á Rangárvöllum
1924-29. bjó í Varmadal 1931-41. á
Brekku í Holtum 1941^3 og að
Eystri-Kirkjubæ 1943-44. en þá
flutti hann að Hellu. Hann var
verkamaður til 1946 en gjaldkeri
Kaupfélagsins Þórs 1946-1966.
Þórður átti sæti í hreppsnefnd
Rangárvallahrepps 1946-66 og var
oddviti hennar 1950-66
Kona Þórðar var Kristín Sigfús-
dóttir. b. í Hróarsholti í Flóa.
Thorarensen og konu hans. Stef-
aníu Stefánsdóttur. Börn þeirra
eru Sigfús. f. 28. desember 1941.
bókari á Selfossi. giftur Þóru Björk
Þórarinsdóttur. Bogi Vignir. f. 16.
september 1936. loftskeytamaður í
Rvík. giftur jGunnhildi Svövu
Helgadóttur. Stefanía Unnur. f. 31.
Gunnhildur Árnadóttir andaðist í
Landspítalanum 29. nóvember.
Magnús Bjarnason, Norðurbraut
5. Höfn. Hornarfirði. andaðist
mánudaginn 30. nóvember að elli-
og hjúkrunarheimilinu Skjólgarði.
Hákon Einarsson frá Vík andaöist
í Landspítalanum i. desember.
Karl Bjarnason frá ísafirði andaö-
ist í Landakotsspítala 30. nóvemb-
er.
Laufey Eyvindsdóttir, Helgafells-
braut 21, Vestmannaeyjum, er
látin.
tresmið á Hellu, Ragnheiöur, f. 12.
október 1943. gift Jóni Ólafl Sig-
urðssyni, skólastjóra á Egilsstöð-
-um, Sigrún. f. 29. mars 1954. gift
Stefáni Ólafssyni. Systkini Þórðar:
Óskar Sveinbjörn, f. 15. nóvember
1896. b. í Varmadal. Þórhildur. f.
26. september 1898. d. 2. nóvember
s.á., Valgerður. f. 18. mars 1900. gift
Eyjólfi Bárðarsvni. b. í Eystri-
Kirkjubæ. Svanhildur. f. 21. sept-
ember 1903. d. 7. mars 1974. gift
Helga Gíslasyni. verkamanni í
Rvík. Bogi Viggó. f. 3. nóvember
1904. b. í Varmadal. Sigríður. f. 29.
júní 1907. iðnverkakona í Rvík. og
Sigurgeir. f. 19. ágúst 1908. d. 17.
maí 1978. verkamaður í Rvík. fyrr
giftur Margréti Helgadóttur en síð-
ar Huldu Magnúsdóttur. Hálfbróð-
ir Þórðar. sammæöra. er
Þorvarður. f. 13. ágúst 1889. b. á
Vindási.
Foreldrar Þórðar: Bogi Þórðar-
son. b. í Varmadal á Rangárvöllum.
og kona hans. Vigdís Þorvarðs-
dóttir. Bogi var sonur Þórðar. b. í
Ketilhúsahaga á Rangárvöllum.
Jónssonar. b. í Svínhaga. Þórðar-
sonar. b. í Svínhaga. Nikulássonar.
b. á Rauðnefsstöðum. Eyvindsson-
ar duggusmiðs Jónssonar. Móðir
Þórðar var Valgerður Loftsdóttir.
prests á Krossi. Rafnkelssonar.
Móðir Jóns var Rannveig Þorláks-
dóttir. sýslumanns í Teigi í Fljóts-
hlíð. Guðmundssonar. systir Jóns.
prests og skálds á Bægisá. Móöir
Þórðar var Valgerður. systir Guð-
mundar á Keldum. Valgerður var
dóttir Brvnjólfs. b. í Vestri-
Kirkjubæ. Stefánssonar. b. á Árbæ.
Bjarnasonar. b. og hreppstjóra á
Víkingslæk. Halldórssonar. Móðir
Boga var Valgerður Árnadóttir. b.
á Galtalæk á Landi. Finnbogason-
ar. b. á Reynifelli. Þorgilssonar.
Vigdís var dóttir Þorvarðar. b. í
Litlu-Sandvík í Flóa. Guðmunds-
sonar, b. í Litlu-Sandvík, Brynjólfs-
sonar. Móðir Vigdísar var
Svanhildur Þórðardóttir, b. í Sviðu-
göröum í Flóa, Guðmundssonar.
Sérverslun
með blóm og
skreytingar.
0j?Blóm
w05kíi:)'liiigar
Laugavegi 53, simi 20266
__ Sendum um land allL