Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1988, Side 16
16
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988.
Spumingin
Er þetta byrjunin á miklum
frostavetri?
Sigurjón Sigurðsson: Ég held ekki.
Það er ekkert óeðlilegt við þetta.
Guðmundur Pétur Bauer: Við skul-
um vona að svo sé ekki og þá byggi
ég á tíð sl. vetrar.
Ragna Pétursdóttir: Ég ætla að vona
að svo sé ekki, okkar allra vegna.
Tryggvi B. Bjarnason: Nei. Ég spái
því að hann fari aö hlýna aftur og
jafnvel að snjóa.
Anton Sigurðsson: Það var sagt hér
í gamla daga að það myndi kólna er
liði á öldina.
Steinþór Nygaard: Hef enga trú á
því, það er búiö að vera það góð tíð.
Lesendur
Staðgreiðslukerfið:
Eignaskattar ekki
„Skattar, sem tengjast húsum og öðrum fasteignum, eru óréttlátustu skatt-
ar hér á landi,“ segir bréfritari.
Pétur skrifar:
Ekki er allt gull sem glóir og ekki
eru öll kurl komin til grafar með
staðgreiðslukerfi skatta. Fáir munu
þó verða til þess að andmæla þessari
nýju tilhögun því að hún er tvímæla-
laust til bóta fyrir langflesta skatt-
greiðendur.
Þaö er samt ekki víst að allir hafi
gert sér ljóst að eignaskattarnir eru
ekki með í staðgreiðslukerfinu og
verða þeir reiknaðir á sama hátt og
áöur og á sama tíma, þ.e. eftir að
skaítskýrslu hefur verið skilað, og
síðan innheimtir á síðari hluta árs-
ins. Annaöhvort i einu lagi eða með
skiptingu á mánuðina sem eftir eru
og er það sennilegra.
Margir sem ég hef talað við vita
ekki einu sinni að eignaskattar hjá
flestum eru tveir, ef svo má segja:
annar heitir einfaldlega „eignar-
skattur" og er reiknaður eftir fyrstu
einu og hálfu milljónina (rúmlega) í
eignarskattsstofni, síðan greiðist
0,95% af þeim hluta sem eftir er. Hinn
heitir „sérstakur eignarskattur lög-
aðila“ og reiknast 0,25% af eignar-
skattsstofni.
Auðvitað verður þessi skattur allt-
af mishár eftir eignum manna. Hins
vegar má fullyrða að hann er veru-
legur hluti af skattgreiðslum jafnvel
almennra launþega og skattgreið-
enda. Hann getur auðveldlega verið
einhvers staðar á milli 25 og 35 þús-
und krónur hjá greiðanda sem á
sæmilega góða húseign eða annað
svipað sem telst til fasteigna.
Við þessu er náttúrlega lítið að
segja annað en það að vel hefði mátt
áætla þá prósentu fyrirfram sem
notuð er við eignarskattsálagningu,
á sama hátt og gert var við tekju-
skatt og útsvar og innheimta allt sem
einn skatt á einu bretti með stað-
greiðslu af launum.
með!
Þetta er því miður ekki raunin og
fólk á eftir að finna óþyrmilega fyrir
innheimtu eignarskatts á síðari hluta
ársins. Segja má að þeir skattar sem
tengjast húsum og öðrum fasteignum
séu óréttlátustu skattar hér á landi
þvi að þeir eru margir en í raun einn
og sami skatturinn, skattur af sama
húsinu eða sömu fasteignunum.
Hver er munurinn á fasteigna-
skatti, eignarskatti og sérstökum
eignarskatti? Nákvæmlega enginn.
Það er verið að greiða skatt með
mismunandi nöfnum af einni og
sömu eigninni. Fasteignaskatturinn
er þó skatta óréttlátastur og kemur
á alversta tíma ársins, rétt eftir ára-
mótin.
Vonandi verða þeir skattar sem
renna eiga til ríkisins, eignarskatt-
arnir báðir, sameinaðir í einn og
innheimtir ásamt öðrum sköttum
svo að allir geti vel unað við staö-
greiðalsukerfi skatta sem er þó
ekkert staðgreiðslukerfi þegar í
mörgum tilfellum meirihluti skatt-
anna er innheimtur sérstaklega eftir
álagningu og deilt niður á fimm mán-
uði ársins.
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir. Falleg framkoma, skynsamlegt ávarp, segir bréfritari.
Heill sé forseta vorum
4775-5891 skrifar:
Já, heill sé Vigdísi Finnbogadóttur,
ekki aðeins fyrir hennar fallegu
framkomu og skynsamlega ávarp í
sjónvarpinu á nýársdag heldur fyrir
það að hún er með sína ræðu á blöð-
um sem hún les af og lítur upp öðru
hvoru, í stað þess að gera eins og
hinir, bæði stjómmálamenn og aðrir,
sem koma fram í sjónvarpi.
Þeir horfa eins og stjarfir á ræðuna
sína sem rúllað er upp fyrir framan
þá og halda eflaust í sjálfumgleði
sinni að fólk hljóti að hrífast af snilli
þeirra.
Fæðingaroriof:
Breytt fyrirkomulag - ábending til ráðherra
H.Þ. skrifar:
Undanfarna daga hefiir staöiö
yfir kynning á breyttu fyrirkomu-
lagi fæöingarorlofs, þar á meöal
lenging um einn mánuð og aukin
réttindi maka bænda. Samt virðist
vera sem einn hópur hafi orðið út
undan eins og jafnan áöur, nefiti-
lega heimavinnandi húsmæður.
Heldur háttvirtur ráðherra aö
húsmæður nái ekki 1032 dagvinnu*
stundum á heilu heilu ári (þ.e.
tæplega 3 klst. á dag)? - Nei, greini-
lega eru heimilisstörf ómerkileg í
augum ráðamanna því húsmæöur
eiga eingöngu aö fá 1/3 af upphæð
þeirra sem eru útivinnandi.
Börn á skólaaldri, sem eru sífellt
að fara í skólann eða koma heim
úr hontun, vegna stundaskrár, sem
ekki er beinlínis hægt aö hrópa
húrra fyrir, krefjast mikillar aö-
gæslu og eftiriits. Yngri bömin
komast ekki í leikskóla fyrr en um
þriggja ára aldur og hvar eiga þau
að vera þangað til?
Sem betur fer erum við líka mörg
Guðmundur Bjarnason heilbrgðís- og tryggingaráðherra. - Bréfrltari
belnlr ábendigu sinni til hans.
(margar) sem viljum og langar til
að geta verið hjá bömum okkar
fyrstu árin (ekki bara 4 mánuði)
og ætlumst sannarlega ekki til aö
vera flokkaðar sem 3. flokks þjóö-
félagsþegnar vegna þess.
Hið nýja staögeiðslukerfi skatta
gerir okkur ekki einu sinni kleift
að nýta fullan persónuafslátt ef við
erum svo ósvífiiar að afla ekki
tekna til heimihsins í formi bein-
haröra peninga!
Auðvitað á fæðingarorlof að vera
jafnt fyrir ALLAR KONUR. Erekki
orðíð tímabært að leiðrétta þetta
misrétti?
Fasteigna-
skattur á
Akranesi
hækkar um
tæp 70%!
Akurnesingur skrifar:
Nú er Akranes komið í hóp
þeirra kaupstaða á íslandi sem
leggur mesta skatta á íbúa sína.
Á fundi í bæjarstjórn kaupstaðar-
ins um miðjan desember var
samþykkt að leggja 25% álag á
fasteignaskatta ársins 1988.
Einnig hækkaði fasteignamat
mjög umfram verðlagshækkanir
milli ára, að þvi er mér er tjáð,
um 34%, og á sama tíma hefur
lánskjaravísitalan hækkað um
22%. Þegar 25% álag er lagt ofan
á hina miklu hækkun fasteign-
mats verður hefidarhækkun tæp
70% eða um 67,5%.
Sjálfstæðismenn voru einir á
móti þessari hækkun og lögðu tíl
að álagsprósenta fasteignaskatta
yrði sú sama og á síðastliönum
árum. Þessi tillaga þeirra var
felld.
Segja má að þegar Alþýðu-
bandalagiö ræöur ferðinni í
bæjarmálum sé álagsheinúld nýtt
aö fuUu eins og sá flokkur hefur
viijaö gera. Hér er húshitunar-
kostnaöur með hæsta móti og
verður því þungi fasteignaskat-
tanna þití óbærilegri en þar sem
húshitun er margfalt ódýrari eins
og er í mörgum öðrum kaupstöð-
um.
Það er kannski ekki aö undra
þótt héma muni sumir fara að
hugsa til hreyfings og þá í eina
átt, til Reykjavíkur, þar sem vel-
sældin hefur mælst hvað mest og
þar sem fólk er í miklu betra sam-
bandi við opinberar stofnanir,
menningu og afþreyingu hvers
konar. - Var einhver að tala um
byggðastefnu?
Hrincrið
í síma
27022
milli kl.
13 og 15,
eða skrifið.