Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1988, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1988.
37
Tíðarandi
Herbert Pedersen, Arnar Þór Guðmundsson
björgunarsveitarinnar í Nauthólsvík.
og Þorkell Magnússon við fjarskiptatæki i félagsheimili Flug-
DV-mynd GVA
Sjáum ekki eftir
tímanum sem í
þetta fer
- segja þeir Herfoert, Amar Þór og Þorkell, nýliðar hjá Flugbjörgunarsvertinni
„Það er rosalega gaman að starfa
með Flugbjörgunarsveitinni. Við
höfum mikinn áhuga á útiveru og
það vantar félagsskap fyrir áhuga-
fólk um útivist á íslandi. Flugbjörg-
unarsveitin virtist okkur vera
langbesti kosturinn því að við höf-
um einnig mikinn áhuga á björgun-
arstarfsemi," sögðu Herbert
Pedersen, Arnar Þór Guðmunds-
son og Þorkell Magnússon, en þeir
eru í B-flokki eða byrjendaflokki
Flugbjörgunarsveitarinnar.
„Við byijuðum í B-flokki í haust.
Áður en við göngum í Flugbjörgun-
arsveitina sem fullgildir meðhmir
þurfum við að ganga í gegnum
næstum tveggja ára reynslutímabil
og ef við eftir þann tíma erum með
meira en 80% mætingu á fundum
og æfingum er tekið við okkur í
sveitina.
Það eru fundir vikulega, nám-
skeið í notkun áttavita, korta og
annarra hjálpar- og fjarskipta-
tækja. Þá hlaupum við reglulega
og fórum í þrekþjálfun, æfum okk-
ur á gönguskíðum og um helgar eru
oft björgunaræfingar og ferðalög
þar sem æfð er fjallganga og klifur
í klettum."
Það er greinilega nóg að gera hjá
nýhðum í Flugbjörgunarsveitinni
ekki síður en hjá fullgildum félög-
um. Strangar æfingar og mæting-
arskylda á reynslutímabilinu gefa
byrjendunum forsmekkinn af því
sem koma skal. Starf í Flugbjörg-
unarsveitinni er enginn leikur
heldur stíf vinna. En þessi vinna
veitir einnig mikla ánægju þeim
sem áhugann hafa, ánægjuna af
góðum félagsskap, útiveru og því
að hjálpa öðrum. Hörð mætingar-
skylda á líka að minna menn á að
þeir verða að hafa tíma fyrir Flug-
björgunarsveitina. ÚtköÚ og slys
gera ekki boð á undan sér og björg-
unarmenn verða að geta brugðist
hart við um leið og kallið kemur.
Það er líka svo að töluvert marg-
ir nýhðar heltast úr lestinni á
reynslutímahihnu. Það þýðir ekki
aö taka þátt í starfi Flugbjörgunar-
sveitarinnar með hálfum huga,
menn þurfa að gefa sig alla. í haust
hófu um flmmtíu ungir menn störf
meö byijunarflokknum en nú í
upphafi vorannar eru 35 eftir. Það
er nokkuð algengt að í lok reynslu-
tímabilsins hafi helmingur þeirra
sem byrjuðu í B-flokki gefist upp
enda eru kröfumar miklar.
„Það fer töluvert mikill tími í
starfiö með Flugbjörgunarsveitinni
en við sjáum ekki eftir þeim tíma.
Bæði er starfið skemmtilegt og fell-
ur að okkar áhugamálum, útiveru
og góðum félagsskap, og svo ekki
síður að geta látið eitthvað gott af
sér leiða með því að taka þátt í leit-
um og björgunaraðgerðum," sögðu
félagarnir Herbert, Arnar Þór og
Þorkeh.
-ATA
Fundur hjá nýliðum Flugbjörgunarsveitarinnar. Rúnar Sigurbjartsson gefur mönnum holl ráð i sambandi við
gönguskíði og nauðsynlegan búnaö í skíðagöngum.
DV-mynd GVA
NÝR UMBOÐSMAÐUR
Á SIGLUFIRÐI
Guðfinna Ingimarsdóttir
Hvanneyrarbraut 54, sími 96-71252
NÝR UMBOÐSMAÐUR
í SANDGERÐI
Sigfríður Sólmundsdóttir
Ásabraut 3, sími 92-37813
LITLA____
GLASGOW
STOR-
BUXUR, PEYSUR, TÖSKUR,
SKART, ÚLPUR, LEÐURLUXJAKKAR OG ÚLPUR
ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR
L
AUTOSIL
Rafgeymar
ALMENNA VARAHLUTASALAN SF . SKEIFAN 17. T? 83240 41
HELSTU UTSOLUSTAÐIR
Reykjavik
Sveinn Egilsson hf„ Skeifunni
17, Bílaverkstæði Gunnars Sig-
urgísla, Skeifunni 5, Bílmúli hf„
Síðumúla 3-5, Rafgeymaþjón-
ustan, Tryggvagötu.
Kópavogur
Bílastilling Birgis, Smiðjuvegi 62,
Borðinn hf., Smiðjuvegi 24, Bif-
reiðastilling, Smiðjuvegi 40.
Garðabær
Mótorstilling, Skeiðarási 4.
Akranes
Brautin hf., Dalbraut 14.
Borgarfjörður
Vélabær, Bæ, Bílaverkstæði
Ragnars, Borgarnesi.
Akureyri
Bílvirki sf„ Fjölnisgötu 10, Bíla-
salan hf. v/Kaldbaksgötu.
Reyðarfjöróur
Lykill hf.
Hvolsvöllur
Erlingur Ólafsson.
Keflavik
Aðalstöðin/smurstöð.