Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1988, Page 13
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1988.
13
Vanessa Redgrave samstarfskona Eyrúnar Hafsteinsdóttur:
Róttæklingur fjarri Broadway
„Ég held að hún fái aldrei hlutverk
á Broadway, þótt hún sé ein sú
besta,“ voru fleyg orð sem leik-
húsmaður lét falla um leikkonuna
Vanessu Redgrave. Ástæðan fyrir
þessu er að hún er afar róttæk í skoð-
unum og raunar fræg fyrir að vera
óstýrilát.
En þótt bið verði á að hún komist
að á Broadway, og allt eins víst aö
hún kæri sig ekkert um það, þá veld-
ur verkefnaskortur henni ekki
vandræðum. Eins og skýrt hefur ver-
ið frá í DV leikur hún nú í Young
Vic leikhúsinu í Lundúnum og þar
er Eyrún Hafsteinsdóttir sviðsstjóri.
Vanessa veit hvað hún er að
gera
Eyrún sagði í samtali við DV aö
gott væri að vinna með Vanessu og
hún kannaðist ekki við örðugleika í
samstaríi við þessa skapstóru leik-
konu. „Vanessa veit nákvæmlega
hvað hún er að gera og er búin að
skapa sína persónu áður en hún
mætir á fyrstu æfinguna," sagði Ey-
rún.
Vanessa hneykslaði marga þegar
hún tók á móti óskarsverðlaununum
fyrir leik í kvikmyndinni Júlíu. Þá
notaði hún tækifærið til að koma að
pólitískum skoðunum sínum og
bölvaði síonisma og annarri óáran í
hástert. Annars þykir Vanessa hafa
gott lag á að blanda afstöðu sinni til
heimsmálanna ekki um of inn í verk
sín á sviði og í kvikmyndum.
Hún neitar samt að viðurkenna að
vinnan sé ópólitísk. „Ég vel hlutverk
mín vandlega. Þegar ferli mínum
lýkur ætla ég mér að hafa tekist á
við allt sem viðkemur kúgun í heim-
inum.“
Pólitísk afskipti Vanessu í Eng-
landi eru bundin við flokk sem heitir
Byltingarflokkur verkamanna og er
lengst til vinstri eins og nafnið gefur
til kynna. Flokksstarfið hefur ekki
gengið hávaðalaust og Vanessa er
þar í .minnihluta. Hún studdi Gerry
Healey, sem eitt sinn var formaður
flokksins, en var rekinn fyrir að
stuðla að persónudýrkun á sjálfum
sér. Stöðu sína átti hann að hafa
notað sér til að stofna til ástarsam-
bands við 26 flokksfélaga.
Hjá Gaddafi
Þrátt fyrir innanflokkserjur hefur
Vanessa orðið þess heiðurs aðnjót-
andi að fara með sendinefnd flokks-
ins ’á fund Gaddafi Líbýuleiötoga.
Hún lagði sig einnig fram um aö
safna fé fyrir námamenn þegar þeir
voru í verkfalli hér um árið og sætti
þá ámæh fyrir tvískiryiungshátt því
hún var þó alltaf stjarna sem átti litla
samleið með verkamönnum í kola-
námum.
Þrátt fyrir sögur um skaphörku
kvartar samstarfsfólk hennar ekki.
„Ef ég missi út úr mér eitt orð í ó-
gáti er mér hent út,“ sagði Timothy
Dalton, sambýhsmaður hennar og
samleikari, eitt sinn þegar hann var
spurður um hvernig sambúðin gengi.
Dalton, sem frægastur er fyrir að
leika James Bond í siöustu mynd um
kappann, leikur nú á móti Vanessu
í Yong Vic.
Á unghngsárunum ætlaði Vanessa
4
ekki að leggja fyrir sig leiklist. Hún
lærði dans en hætti áöur en hún
náði umtalsverðum árangri. Sagt var
að hún hefði ekki hkamsbyggingu til
að ná langt sem dansari. Hún sneri
sér þá að leikhstinni og fékk fyrsta
hlutverkið árið 1959. Þá lék hún á
móti fóður sínum, Michael Redgrave.
Árið 1961 gekk hún til hðs við Kon-
unglega Shakespeare-leikhúsið enda
var hún þá tahn ein efnilegasta leik-
kona Breta. Hún hefur alltaf leikið
mikið á sviði þótt hún sé frægari fyr-
ir kvikmyndaleik. Hún fékk t.d. góða
dóma fyrir leik sinn í myndinni um
Mariu Skotadrottningu.
Stuðningur við PLO
CBS sjónvarpsstöðin bandaríska
bauð henni eitt aðalhlutverkið í
myndaflokknum Playing for Time
sem fjallar um örlög gyðinga í útrým-
ingarbúðum nasista. Minnstu
munaði að hún missti þetta hlutverk
því að gyöingar í Bandaríkjunum
vildu útiloka hana frá því vegna
stuðnings hennar við PLO. Það var
ekki fyrr en leikskáldið og gyðingur-
inn Arthur Miller skarst í leikinn að
samtök gyðinga gáfu eftir.
Vanessa lék í Djöflunum, um-
deildri mynd eftir Ken Russell. Þótt
áht manna á myndinni sé misjafnt
telur Vanessa hana stórgóða og hefur
hælt Russell mikið þótt algengara sé
að hann njóti lítiha vinsælda meöal
leikara vegna kröfuhörku.
Milh mynda leikur Vanessa ásviði.
Hún hefur leikið í mörgum leikrita
Shakespeares og þar hefur Timothy
Dalton verið meðal mótleikara henn-
Leikur Vanessu Redgrave vekur
alltaf athygli.
ar, t.d. í Skassið tamið sem þau léku
saman í árið 1986. Hún þykir mjög
vandvirk þrátt fyrir mikla vinnu.
„Mér finnst ég aldrei hafa tíma til
að gera það nógu vel sem ég vil gera.
Ráðið er að leggja hart að sér því að
á endanum verður það til að laða það
besta fram,“ segir Vanessa.
Leikaraættir
Foreldrar Vanessu voru báðir leik-
arar. Michael, faðir hennar, var í röð
fremstu leikara Breta og aölaður fyr-
ir afrek sín í leiklistinni. Á efri árum
átti hann viö erfiðan sjúkdóm að
stríða og gat htið leikið. „Ég hef eng-
an séð leika Hamlet betur en hann,“
segir Vanessa. „Ég held að nú geti
enginn leikari jafnast á viö hann í
þessu hlutverki.“
Vanessa hefur leikið á móti Christ-
opher Reeve, Superman, í tveim
myndum. Önnur þeirra, The Boston-
inans, var sýnd hér í sjónvarpinu
fyrir skömmu. Reeve er yfirleitt ekki
hátt skrifaður meðal leikara en Van-
essa er á öðru máli. „Hann er góður
leikari og hefur mikla reynslu. Ég
held að verk hans öh einkennist af
fagmennsku þótt þau teljist ekki til
hstrænna afreka. Það þarf atvinnu-
menn til að skila þetta.“
Yfirleitt velur Vanessa hlutverk
sín af kostgæfni. Þó eru þess dæmi
að hún hafi tekið hlutverk án um-
hugsunar. Þannig var það með
hlutverkiö í Júlíu, sem hún hlaut
óskarsverðlaun fyrir. Hún hafði inn-
an við sólarhring til að gera upp hug
sinn.
Vanessa á tvær dætur um tvítugt.
Það eru þær Natasha og Joley Ric-
hardson en faðir þeirra er Tony
Richardson. Þær hafa báðar leikið
nokkur hlutverk á sviöi og til stóð
að Joley léki með Vanessu nú í
Young Vic en hún veiktist áður en
af því gat orðið.
-GK
Timothy Dalton hvílir sig á James Bond:
Vill helst vinna í leikhúsi
myndinni um James Bond.
Hann var valinn í hlutverk stór-
spæjarans til þess að hægt væri að
ljá hlutverkinu meiri viröuleikablæ
en verið hefur í síðustu James Bond
myndum. Dalton er virtur Shake-
speare leikari og hefur fengist við
hlutverk í verkum meistarans sem
atvinnumaður frá árinu 1966.
Dalton hefur hafnað hlutverkum í
kvikmyndum vegna þess að honum
þótti lítið í þau spunnið og lét einu
sinni hafa eftir sér að hann léki ekki
í ruslmyndum vegna peninganna.
Eftir að hann tók að sér hlutverk
James Bond viðurkenndi hann þó að
peningarnir skiptu máli. Hann hefur
einnig sagt að hann hafi frá unga
aldri verið hrifinn af Bond- ímynd-
inni.
Dalton hefur að mestu tekist að
halda einkalífl sínu fyrir sig. Sam-
band hans við Vanessu Redgrave var
lengi meira og minna leynilegt þótt
þau hafi þekkst árum saman. „Það
er hræðilegt að vera stöðugt undir
smásjá almennings,“ segir Dalton.
Umtahð jókst þó stórum eftir aö
hann lék Bond. Álagið sem þessu
fylgir var ein af ástæðunum fyrir því
að Sean Connery hætti að leika Bond
þótt hann tæki upp þráðinn síðar í
einni mynd. Roger Moore lét sér
þetta hins vegar vel líka en hann
varð að hætta í hlutverki Bonds
vegna aldurs.
Dalton er fæddur í Wales árið 1944.
Hann byrjaði að leika ungur að árum
og tvítugur að aldri var hann ráðinn
að leikhúsi ungs fólks. Tveim árum
síðar var hann fastráöinn við Kon-
unglega Shakespeareleikhúsiö. Nú
vinnur hann hjá Young Vic sem
einkum er ætlað að höfða til ungs
fólks þannig að hann er kominn að
upphafmu aftur.
-GK
„Ég vil helst ekki vinna utan leik-
húsa,“ segir Timothy Dalton sem þó
hefur hlotið mesta frægð fyrir að
leika James Bond í myndinni Log-
andi hræddir. „Peningarnir eru í
kvikmyndunum en bestu viðfangs-
efnin eru í leikhúsunum."
Gróðavonin er enda lítil í Young
Vic leikhúsinu, þar sem Dalton leik-
ur núna á móti sambýliskonu sinni,
Vanessu Redgrave, þvi að þar eru
engir stjörnutaxtar. Allir leika þar
fyrir sama kaup. Þrátt fyrir dálæti
sitt á sviðsleik hefur Dalton leikið í
allmörgum kvikmyndum án þess þó
að hljóta verulega frægð fyrr en með
Timothy Dalton - Peningarnir eru f kvikmyndunum.
U'BÍX 120
Ljósritunarvélin
Stórfelld
verðlækkun!
Nú er rétti tíminn til
að kaupa
Verð kr.
48.960,-
stgr.
W
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33 — Sími