Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1988, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1988.
Fréttir
Þorhallur Pálsson og Hafberg Svansson, sem báðir eiga sæti í byggingarnefnd golfklúbbsins, virða fyrir sér
skemmdirnar sem urðu í brunanum. DV-mynd GK
Akureyri:
Stórbruni í golf-
skálanum
Átök í sölutumi:
Unglingsdrengur
stakk jafhaldra
sinn með hníf
Drengur innan við fermingu stakk
dreng á svipuðum aldri með hníf á
laugardagskvöldið. Drengimir höfðu
áður lent í deilu. Misklíð þeirra lauk
með því að annar þeirra vék sér að
hinum í söluturni við Langholtsveg
og stakk hann í lærið. Meiðslin, sem
drengurinn hlaut, munu ekki vera
alvarleg.
Drengurinn, sem varð valdur að
hnífstungunni, var með gerð af hníf
sem fæst í mörgum verslunum í
Reykjavík.
Að sögn rannsóknarlögreglunnar
er það algengt að unglingar, sem
hafa þarf afskipti af, séu vopnaðir
hnífum. Oftast er um vasahnífa að
ræða, en í sumum tilfellum eru ungl-
ingar með mun hættulegri vopn. Eru
það vinsamleg tilmæli lögreglunnar
til foreldra að þeir sjái til þess að
börn þeirra beri ekki vopn á sér.
-sme
Drengur innan við fermingu stakk jafnaldra sinn með hníf í lærið. Atburður
þessi varð í söluturni við Langholtsveg í Reykjavík og var myndin hér að
ofan tekin þegar lögreglan var komin á staðinn til að rannsaka málið.
DV-mynd S
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það er ekki búið að meta
skemmdimar til fulls, en það er ljóst
að um milljónatjón er að ræöa,“ sagði
Gunnar Sólnes, formaður Golfklúbbs
Akureyrar, i samtali við DV eftir að
skáli golfklúbbsins hafði gjöreyði-
lagst í eldi um helgina.
Eldurinn kom upp um klukkan 6 í
gærmorgun í íbúð húsvarðar. Mað-
ur, sem svaf frammi í skálanum,
varð eldsins var og gat bjargað hús-
verðinum út og tilkynnt um eldinn.
Húsvarðaríbúðin er gjörónýt, og
skemmdir af reyk eru þess eðlis að
allar klæðningar á veggjum og lofti
eru ónýtar, einnig öll húsgögn og
tæki eins og tölvukerfi klúbbsins.
„Nú þurfum við bara að bretta upp
ermarnar og koma þessu í lag aft-
ur,“ sagði Gunnar Sólnes. „Tæpt ár
er liðið síðan byggt var við golfskál-
ann, vel var vandað til þess verks
og tjón klúbbsins er geysilegt."
Þau létust í umferðarslysi
Maðurinn og konan, sem létust í Guörún Sigurðardóttir, fædd 9.
umferðarslysiíHraunsfiröiáSnæ- mars 1969. Þau voru .í sambúð og
fellsnesi á fóstudagsmorguninn, áttu heimili aö Grundarbraut 12 í
hétu Siguröur Steinar Sigurösson, Ólafsvík.
fæddur 1. janúar 1963, og Jónína _-sme
í dag mælir Dagfari____________
Taugastríðið
Aðilar vinnumarkaðarins hafa
haldið að sér höndum í samninga-
viðræðum til að bíða eftir efna-
hagsráðstöfunum ríkisstjómar-
innar. Ríkisstjómin hefur .haldið
að sér höndum til að bíða eftir
kjarasamningum vinnumarkaðar-
ins. Þetta hefur verið biðstaða þar
sem hvorugur þorir að leika næsta
leik af því að hann veit ekki hvað
hinn ætlar að leika. Menn hafa því
verið að hamast við taka hver ann-
an á taugum og viöræður um
samninga hafa mestmegnis gengið
út á það að segjast ekki viija seipja
og svo hafa menn samið um að
semja um að ekki skyldi semja
strax.
Nú er hins vegar nýjast að vinnu-
veitendur og launþegar geta
Rugsað sér að semja til stutts tíma.
Það em kallaðir skammtímasamn-
ingar. Manni skilst að það verði
samningar til næstu mánaðamóta
eða þá þamæstu en þá ætla þeir
að semja upp á nýtt. Ekki er gott
að vita hvemig ríkisstjómin bregst
við þessu útsþiR enda getur hún
ekki beöið endalaust með gengis-
fellinguna. Ráðherrarnir geta
auðvitað fellt gengið til bráða-
birgða með einhverskonar
skammtímagengisfellingu og beðið
svo átekta. Þá geta aðilar vinnu-
markaðarins bragðist við þeirri
gengisfelRngu og öðrum efna-
hagsráðstöfunum og samiö upp á
nýtt til skamms tíma til að vita
hvemig ríkisstjórnin tekur þeim
samningum. Og svo koll af kolh
fram eftir árinu. Fyrst verður þá
samið um kaup og kjör til eins
mánaðar í senn, síðan kemur ríkis-
stjórnin og gerir nýjar efnahagsr-
áðstafanir með hliðsjón af
kjaramálunum þann mánuðinn og
svo kemur vinnumarkaðurinn aft-
ur og semur upp á nýtt.
í raun og veru eru þetta miklu
sniðugri aðferðir við að taka á efna-
hags- og kjaramálum heldur en
sitja í þeirri vitleysú að vera að
semja til heils árs eða fella gengið
í eitt skipti fyrir öll. Þetta verður
líka svo spennandi því enginn veit
hvað hann fær útborgað og enginn
veit hvað gengið verður um næstu
mánaðamót það sem eftir er ársins.
Helst mætti Rkja þessu við lottóið
eða bingóið hjá SÁÁ og Stöð tvö
og spuming hvort ekki eigi að stílla
samningsaðRum upp í sjónvarpssal
svo allir geti fylgst með. Almenn-
ingur getur meira aö segja veðjað
á næstu niðurstöðu og ríkissjóður
gæti aflað sér fjár með því aö stofna
veðbanka um það hver kjörin verði
og gengið verði eftir hverja samn-
ingalotu. Af þessu yrðu rífandi
tekjur enda veitir ekki af þegar
meining er að lækka skattana til
að greiöa fyrir kjarasamningum.
Sú lausn hefur verið orðuð að
hækka megi skattleysismörkin og
grípa til annarra skattaívRnana tR
aö koma tR móts viö fólkiö í
landinu sem telur sig skattpínt um
þessar undir. Ekki er annað hægt
en að hrósa ríkisstjóminni fyrir
þann snjaRa leik. Fyrst hækkar
hún skattana upp úr öRu valdi,
matarskatta og aðra skatta og gerir
aRt vitlaust. Svo býðst hún til að
lækka skattana aftur ef launafóRúð
heldur sig á mottunni. Við hækk-
um á ykkur skattana, helvítin
ykkar, ef þið rífiö kjaft og heimtið
meira kaup en við skulum lækka
skattana niður í það sem þeir voru
ef þið hafið ykkur hæg. Niðurstað-
an verður sú aö enginn fær
kauphækkun og skattarnir veröa
óbreyttir og verkalýöshreyfmgin
telur sig geta hrósað sigri.
Eins er hægt að hafa þann hátt-
inn á þegar þeir fara að semja í
sjónvarpssai að einhver ráðher-
ranna mæti þar á staðnum og
hækki skatta og lækki viðstöðu-
laust eftir því hvemig tilboöin
ganga.fyrá sig á vinnumarkaðn-
um. Ráöherrann getur meira að
segja hótað aukinni gengisfelRngu
jafnskjótt og einhver opnar munn-
inn og þetta verður þá eins og
æsandi skákeinvígi í hraðskák þar
sem spumingin verður sú hver eigi
síðasta leikinn áöur en klukkan
feRur um hver mánaðamót.
ARt verður þetta mögulegt þegar
menn fara að gera skammtíma-
samninga. Skammtímasamninga
má jafnvel gera frá einni vikunni
til annarrar tR að auka tempóið og
spennuna og auk þess mætti taka
upp staðgreiðslukerfi skatta viku
fyrá viku til samræmis við
skammtímasamninga.
Aðalatriðið er að enginn leiki af
sér eða láti taka sig á taugum.
Dagfari