Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1988, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1988, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1988. ■ ■ a REYKJKJIKURBORG i i 0 Acuuan Sfödun GJALDHEIMTANj REYKJAVÍK TRYGGVAGÖTU 28 óskar eftir starfsmanni ti! að annast bókhald og dag- legt uppgjör. Upplýsingarveitir Hilmar Garðarsson ísíma 17940. RÉYKJMJÍKURBORG 4.CUC&VI Sfödwi BYGGINGADEILD BORGARVERKFRÆÐINGS óskar að ráða skrifstofumann. Starfið felst í tölvu- skráningu reikninga, ritvinnslu, móttöku skilaboða, skjalavörslu og fleira. Um heilsdagsstarf er að ræða. Upplýsingar gefur skrifstofustjóri Byggingadeildar, Skúlatúni 2, sími 18000. REYKJKIÍKURBORG Jíacucui Sfödíci ÞJÓNUSTUÍBÚÐIR ALDRAÐRA DALBRAUT 27 Starfsfólk vantar í eldhús, 75% starf. Vinnutími frá kl. 8-14, unnið aðra hverja helgi. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 685377. Frá menntamálaráðuneytinu Með tilvísun í bókun með kjarasamningum fjármála- ráðherra og kennarasamtakanna, sem undirritaðir voru á síðastliðnu ári, eru á fjárlögum fyrir árið 1988 veittar kr. 5.111.000 til viðbótar- eða endurmenntun- ar grunnskólakennara. Þeim starfandi kennurum sem gegnt hafa stöðu við skóla í a.m.k. 5 ár er gefinn kostur á að sækja um 2-4 mán. orlof, styrk eða kennsluafslátt á sérstökum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneytinu. Umsóknum skal skilað til menntamálaráðuneytisins fyrir 20. febrúar nk. og menningarráð Kópavogs AUGLÝSING um starfslaun bæjarlistamanns Kópavogs Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir um- sóknum um starfslaun til listamanna skv. reglum sem samþykktar voru 16.12 1986 í bæjarstjórn Kópa- vogs. Heimilt er að veita starfslaun fyrir 6-12 mánaða tímabil. Launin miðast við 8. þrep í 143. launaflokki skv. kjarasamningi Bandalags háskólamanna. Þeir einir listamenn koma til greina við úthlutun starfslauna, sem búsettir eru í Kópavogi. Listamenn skulu skuldbinda sig til þess að gegna ekki fastlaun- uðu starfi meðan þeir njóta starfslauna. Að gefnu tilefni skal tekið fram að listamenn úr öllum listgrein- um koma til greina. Umsóknarfrestur er til 20. febrúar nk. Listamaður, sem starfslauna nýtur, skal að loknu starfstímabili gera grein fyrir starfi sínu. Starfslaun verða veitt frá 1. júní nk. Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Umsóknir um starfslaun listamanns skv. framanskráðu sendist: Lista- og menningarráð Kópavogs Hamraborg 12 200 Kópavogi Menning Bíóin í Köben II: Dönsk kvikmyndagerð í uppsveiflu - efhi sött í veric Blixen barónessu og öreigaskáldsins Nexö Það er óhætt að óska Dönum til hamingju með tvær kvikmynda- gerðir af sígildum bókmenntaverk- um sem þessa dagana heilla til sín áhorfendur í Köben. Hér er um að ræða Pelle sigrar heiminn eftir Martin Andersen Nexö, leikstjóri Bille August, og Matarboð Babettu eftir Karen Blixen, leikstjóri Gabri- el Axel. Báðar eru tækniiega og Mstrænt í fremstu röð en byggja á eldri menningararfi. Þau Nexö og Blixen fæddust bæði fremur seint á 19. öld, hann árið 1869 og hún 1885. Bæði urðu þekkt langt út fyrir landamæri sinnar dönsku fósturjarðar og verk þeirra þýdd á margar þjóðtungur. Annars áttu þessi tvö skáld fátt sameigin- legt (nema ef vera kynni þung- lynda, drykkfellda feður). Tók skóverksmiðju fram yfir öreigaháskóla Nexö lýsti bágum kjörum alþýðu í frægum skálsögum, Pelle Erobr eren (1906-1910) og Ditte menn- skebam (1917-1921). Hann hafði mikla frásagnargáfu og kunni manna best að kveikja samúð með lítilmögnum og smælingjum hjá lesandanum. Pelle verður eftir erf- iða bemsku meðvitaður verklýðs- sinxú, ekki alls óskyldur Sölku Völku og bókinni um hann lýkur þar sem hann stofnar skóverk- smiðju á samvinnufélagsgrund- vefii. (Þetta þótti ýmsum vinstri mönnum of mikil tfislökun við auð- valdið og hörmuðu að Nexö skyldi hverfa frá eldri hugmynd um bók- arlok, sumsé að láta Pelle stofna öreigaháskóla, enda sé fáfræðin sterkasti fjötur um fót alþýðunn- ar.) Karen Blixen dró aftúr enga dul á að hún var barónessa og undi sér best með heldra fólki. Hún þekkti þó af eigin raun að gæfan er hverf- ul og velti mikiö fyrir sér hvemig hægt væri að bregðast við áfóllum án þess að glata reisn sinni. Taka skakkafóllum með hetjuskap og í tígulegum stíl, nota þau sem tæki- færi til að sýna hvað í mann er spunnið. Affjölmörgum smásögum hennar er sú um matarboð Babettu einna frægust. Kvikmyndir Inga Huld Hákonardóttir Kröpp kjör kúasmalans Bille August fjallar í myndum sínum gjama um oíbeldi sem ungl- ingar em beittir, ýmist hverjir af öömm eða af fifilorðnum. Með Zappa og Tro háb og kærlighed eignaðist hann marga aðdáendur. Myndin um Pelle er hans lengsta til þessa, tæpir þrír tímar, og nær þó aðeins yfir fyrsta bindi affjórum í sögunni, æsku Pelle. Hún hefst þegar hann kemur átta ára gamafi tfi Borgundarhólms í fangi fóður síns sem er slitinn erfiðis- og ekkju- maður, Lasse Karlson frá Tommel- illa á Skáni. (Nexö flutti sjálfur átta ára frá Kaupmannahöfn til Borg- undarhólms.) í augum sænsku feðganna er Borgundarhólmur fyr- irheitna landið þar sem allir fá álegg á brauðið og börnin fá að leika sér en þurfa ekki að vinna. Draumarnir bresta þegar þeir lenda í aumustu vist sem fjósa- menn á herragarði þar sem níska og vinnuharka er með afbrigðum. Það rifjast ónotalega upp fynr manni hvað vinnufólk, einnig á ís- landi, bjó við bág kjör og grimmi- legt réttleysi. Og táfin koma fram í augum yfir Lasse, fáfróða og lítil- siglda fjósakarlinum sem langar að vernda son sinn og þráir að hann beri viröingu fyrir sér, en þar er litlu tfi að tjalda. Bergman-leikar- inn Max von Sydow fer á kostum í þessu hlutverki en því miður man ég hvorki nafnið á brúneyga, fín- gerða pfltinum, sem lék Pelle, né myndatökumanninum sem var trúlega sænsku og óumdeilanlega frábær. Himneskur kvöldsnæðingur Gabriel Axel, stjómandi Blixen- myndarinnar, er íslendingum kunnur fyrir myndina Rauöu skikkjunna. Upptökur fóm fram í Kelduhverfi á einu mesta rigning- arsumri aldarinnar og allt gekk á afturfótunum og þótti hér lítið til myndarinnar koma. Hún náði þó vinsældum í Japan og Bandaríkj- unum. (Stutt klipp með Flosa, hálfnöktum að hrista jámkeðjur, hefði hugsanlega getað komið hon- um til Hollywood.) Eftir þetta vann Gabriel Axel lengi í Frakklandi en hefur nú sjö- tugur gert sína bestu mynd. Hann fylgir vandlega texta Blixen í sög- unni um Babette, frönsku elda- buskuna, sem er snillingur í sinni grein. í blóðugum átökum Parísar- kommúnunnar 1870 hrökklast hún á flótta og hafnar hjá frómum prestsdætmm í bláfátækri sókn í Noregi (samkv. sögunni) eða Dan- mörku (samkv. myndinni). Eftir að hafa í fjölmörg ár eldað saltfisk og brauðsúpu ofan í þessar guð- hræddu systur tekst henni að slá upp veislu með aðfóngum frá Frakklandi, lifandi skjaldbökum, sjaldgæfum vínum og öðru góö- gæti. Systurnar fyllast skelfmgu yfir þessu nautnasvalli en allt fer vel og gestirnir komast í svo fagurt sálarástand að engin guðsþjónusta mundi hafa kveikt hjá þeim meiri sáttfýsi og ást á náunganum. Allt er þetta bráðfyndiö og leikur- inn frábær. Hér hafa Danir einnig fengið Bergman-leikara til liðs við sig: Jarl Kulle er eini heimsmaður- inn í matarboðinu, hershöfðingi sem reynist búa yfir djúpum til- finningum. Bodil Kjær og Birgitte Federspiel túlka prestsdætumar nægjusömu og franska leikkonan Stephanie Chabrol (kunn úr mynd- um eiginmanns síns) hinn ógleym- anlega matreiðslusnfiling, Babettu. Þegar hún er snuprað fyrir að fleygja aleigu sinni í eina full- komna matarveislu ypptir hún öxlum og segir: „Listamaður leggur hvort sem er afitaf allt í sölum- ar...“ I.H.H. Max von Sydow fer á kostum í Pelle sigrar heiminn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.