Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1988, Page 6
6
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1988.
Viðskipti
DV skoðar skyrdæmið:
Skyr hækkaði ekki óeðlilega mikið
Skyr hækkaði ekki óeðlUega mikið
í kjölfar söluskattsins um áramót.
Það er niðurstaðan eftir að DV fór
ofan í málið vegna þess aö staðhæf-
ing stóð gegn staðhæfingu hjá þeim
Guðlaugi Björgvinssyni, forstjóra
Mjólkursamsölunnar í Reykjavik, og
Þóröi Ásgeirssyni, forstjóra jógúrt-
fyrirtækisins Baulu hf„ í DV síðast-
liðinn mánudag. Guðlaugur sagöi að
skyrið hefði ekki hækkað óeðlilega
mikið, Þórður hélt hinu gagnstæða
fram.
DV bað verðlagsstjóra að skera úr
því fyrir lesendur hvor forstjórinn
hefði haft rétt fyrir sér. Hann haföi
ekki tíma til þess en hann benti á
Vilhelm Andersen, annan fulltrúa
mjólkuriðnaðarins í fimm manna
nefndinni svonefndu, en hún ákveö-
ur verð á mjólkurvörum. Þess skal
getið að Vilhelm er starfsmaður hjá
Mjólkursamsölu Reykjavíkur.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 21-22 Allir nema Sb
Sparireikningar
3ja mán. uppsógn 22-25 Ab
6mán.uppsogn 23-27 Ab
12 mán. uppsogn 24-30.5 Úb
18mán. uppsogn 34 lb
Tékkareikningar, alm. 10-12 Sp.lb. Vb.Ab
Sértékkareikningar 12-24 Vb
Innlán verötry'ggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Lb.Vb
Innlán með sérkjörum 18-34 Sb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 6,25-7,25 Sp.lb. Ab.Sb,
Sterlingspund 7,25-9 Sb
Vestur-þýskmork 2,50-3,25 Ab.Sp
Danskar krónur 8,50-9,25 Úb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 34-35 Sp.Lb. Ub.Bb, Ib.
Viöskiptavíxlar(forv) (1) 36 eða kaupgengi
Almennskuldabréf 36-37 Lb.Bb. Ib.Sp
Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 36-39 Lb.lb, - Sp
Útlán verðtryggð
Skuldabréf 9,5-9,75 Allir nema Úb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 33-36 Úb.Lb, Bb
SDR 8,5-9 Lb.Bb. Sb
Ðandaríkjadalir 10,25-10,75 Lb.Bb, Sb.Sp
Sterlingspund 10,25-10,75 Úb.Bb. Sb.Sp
Vestur-þýskmörk 5,5-6,25 Úb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 51,6 4.3 á mán.
MEÐALVEXTIR
óverðtr.jan 88 36,2
Verðtr.jan.88 9.5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitalajan. 1913 stig
Byggingavisitalajan. 345,1 stig
Byggingavisitalajan. 107,9stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% 1 . jan
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Avoxtunarbréf 1,3927
Einingabréf 1 2,550
Einingabréf 2 1,489
Einingabréf 3 1,588
Fjölþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,572
Lífeyrisbréf 1.282
Markbréf 1,322
Sjóðsbréf 1 1,253
Sjóðsbréf 2 1,173
Tekjubréf 1,311
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 130kr.
Eimskip 365 kr.
Flugleiöir 252 kr.
Hampiðjan 136 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 141 kr.
Iðnaöarbankinn 154 kr.
Skagstrendingurhf. 186 kr.
Verslunarbankinn 133 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavixlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðaö við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaöarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viöskiptavlxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb=Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánarl upplýslngar um penlngamarkaö-
Inn blrtast I OV á flmmtudögum.
I viasidpii
Fráleitt að við notum skyrið
til að greiða niður jógúrtina
Itíi Sýnist Mjólkursamsalan nota
JSM?' f
Niðurgr.
Fyrir
söluskatt
0.93
Eftir
söluskatt
2.93
Heildsöluv.
23.42
21.33
Verð á skyri. Staðhæfing gegn staðhæfingu. Forstjóri Mjólkursamsölunnar
gegn forstjóra Baulu. Hvor haföi rétt fyrir sér? Svarið er forstjóri Mjólkursam-
sölunnar. Skyrið hækkaði ekki óeðlilega mikið.
Vilhelm lagði til gögn um verð á
ávaxtaskyri og bláberjaskyri, að ósk
blaðsins. DV hefur nú sannreynt þær
upplýsingar og eru þær réttar. Það
sem meira er, tekjur Mjólkursamsöl-
unnar af blábeijaskyri hafa frekar
lækkað en hitt.
Fyrir söluskattsbreytinguna var
hreint skyr niðurgreitt um alls 7,14
krónur kílóið. Þetta hefur viðskipta-
ráðuneytið staðfest. Bláberjaskyr er
selt í 150 gramma og 500 gramma
dósum. Lítum á 150 gramma dósina.
Ekki er nægilegt aö reikna út 150
grömm af einu kílói og fá niður-
greiðslu sem nemur 1,07 krónur því
hluti hreins skyrs í ávaxtaskyri er
87 prósent, afgangurinn, 13 prósent,
eru ávextimir. Niðurgreiðslan er því
93 aurar á hverja dós. Svona leit
dæmið út.
Eftir söluskattsbreytinguna voru
niðurgreiðslurnar á hreinu skyri
hækkaðar í 22,34 krónur. Það er stað-
fest af viðskiptaráöuneytinu. Það
gerir 2,93 krónur á hveija dós miðað
við 87 prósent hlut hreins skyrs í
ávaxtaskyri. Þar með er heildsölu-
verð á skyri frá Mjólkursamsölunni
orðið lægra sem aukningu á niður-
greiðslunni nemur og þar með fá
kaupmenn færri krónur í sinn hlut
þar sem álagning þeirra er bundin
við prósentur.
TEKJUR MJÓLKURSAMSÖLUNNAR
AF150 GRAMMA BLÁBERJADÓS
Súlurnar sýna tekjur Mjólkursamsölunnar af 150 gramma bláberjaskyri fyr-
ir og eftir söluskattsbreytingarnar um áramótin.
Bláberjaskyr, 150 grömm, fyr-
ir söluskattsbreytinguna
Niðurgreiðsla 0,93 kr.
Verð frá Mjólkursam. 23,42 kr.
Tekjur Mjólkursam. 24,35 kr.
Álagning smásala 20% eða 4,68 kr.
Söluskattur 0 kr.
Verð út úr búð 28,10 kr.
Tekjur Mjólkursamsölunnar eru
niðurgreiðslan 0,93 krónur plús
heildsöluverðið 23,42 krónur. Það
gerir samtals 24,35 krónur.
Bláberjaskyr, 150 grömm, eft-
ir söluskattsbreytinguna
Niðurgreiðsla 2,93 kr.
yerð frá Mjólkursam. 21,33 kr.
Álagning smásala 20% eða 4,27 kr.
Söluskattur 25% eða 6,40 kr.
Verð út úr búð 32,00 kr.
Tekjur Mjólkursamsölunnar í
þessu dæmi eru því 2,93 krónur nið-
urgreiðsla plús heildsöluverðið 21,33
krónur. Þetta gerir 24,26 krónur. Eða
örlítið lægra en áður.
Fasteignagjöldin:
Hafnfirðingar eru
ævareiðir
Ibúar Hafnarfjarðar eru, eins og
Kópavogsbúar, ævareiöir út af
háum fasteignagjöldum. Eftir aö
DV geröi samanburð á fasteigna-
gjöldum í Kópavogi og Reykjavík á
fóstudaginn hringdu bæði íbúar í
Kópavogi og Hafnarfirði f blaöið til
að lýsa reiði sinni vegna fasteigna-
gjaldanna.
Við höldum því umtjöllun okkar
um fasteignagjöld áfram. Einbýlis-
hús í Hafnarfiröi, valiö af handa-
hófi, sem greiða þurfti af í fyrra
22.923 krónur í fasteignagjöld er nú
komið í 36.771 krónu 1 fasteigna-
gjöld. Þetta er hækkun um 60
prósent.
Af ibúð í fjölbýlishúsi í Hafnar-
íbúar í Hafnarfirði eru, eins og Kópavogsbúar, ævareiöir yfir fasteigna-
gjöldunum.
firöi, sem af þurfti aö greiða 17.716
krónur í fasteignagjöld í fyrra, þarf
nú aö greiða 32.373 krónur. Engin
smáhækkun,*eða um 82 prósent.
Fasteignaskatturinn af íbúöum í
Hafnarflröi er nú 0,425 prósent af
fasteignamati. í fyrra var hann
0,375 prósent. Vatnsskatturinn hef-
ur líka hækkað. Kann var í fýrra
0,125 prósent af fasteignamati en
er nú 0,2 prósent. Hafnarfjarðar-
bær hefur líka hækkað holræsa-
gjaidiö. Þaö var í fyrra 0,04 prósent
en er nú 0,1 prósent af fasteigna-
mati.
-JGH
Obundnir sérkjarareikningar:
Ábótin best á síðasta ári
Ábótin gaf bestu ávöxtun á síðasta
ári af óbundnum reikningum. Miðað
er við að innstæður á reikningunum
hafi staðið óhreyföar allt árið. Þetta
er ekki reikningsdæmi heldur niður-
staða úr raunveruleikanum.
Lagðar voru 10 þúsund krónur
sama dag á árinu 1986 inn á Kjörbók,
Gullbók, Bónusreikning, Kaskó-
reikning, Hávaxtareikning, Sérbók,
Trompreikning og Ábót. Upphæðin
stóð óhreyfð allt síðasta ár. Ávöxtun
Ábótar Utvegsbankans reyndist á
árinu vera 28,22 prósent. í öðru sæti
kom Trompreikningur sparisjóð-
anna með 26,78 prósent og Kjörbók
Landsbankans lenti í þriðja sæti með
26,64 prósent ávöxtun.
Næstu reikningar voru þessir: í
fjórða sæti Kaskóreikningur Versl-
unarbankans með 26,53 prósent
ávöxtun, í fimmta sæti Gullbók Bún-
aðarbankans með 26,41 prósent
ávöxtun, í sjötta sæti Hávaxtareikn-
ingur Samvinnubankans 25,88
prósent, í sjöunda sæti Bónusreikn-
ingur Iðnaðarbankans 25,41 prósent
og í áttunda sæti Sérbók Alþýðu-
bankans.
Peningarnir voru lagðir inn á bæk-
urnar 31. janúar 1986 og stóðu
óhreyfðir síðan. Tíu þúsund krón-
umar á Ábótinni voru í árslok 1987
orðnar 15.046 krónur. Aðrir reikn-
ingar náðu ekki 15 þúsund króna
markinu. -JGH
Fasteignaskattar
ern ærið misháir
Fasteignaskattar sveitarfélaga eru
mjög misháir samkvæmt lauslegri
könnun DV á fóstudaginn. Þannig
eru fasteignaskattar á Seltjamarnesi
um 0,375 prósent af fasteignamati
íbúðarhúsnæðis én á Akranesi er
talan 0,626 prósent. En skoðum fast-
eignaskattana í nokkrum sveitarfé-
lögum á suðvesturhorninu og
Akureyri:
Selljamames 0,375%
ReyKjavík 0,421%
Hafnarfjörður 0,425%
Keflavík
Kópavogur
Akureyri
Akranes
0,500%
0,500%
0,550%
0,625%
Fasteignaskattarnir segja ekki alla
söguna í fasteignagjöldunum vegna
þess að vatnsskattur og holræsa-
gjald, sem reiknast líka af fasteigna-
mati, em líka mjög mishá eftir
sveitarfélögum. Þessir skattar koma
lika inn í fasteignagjöldin hjá flest-
um. -JGH
Stjóraskipti í
Kringlunni
Einar Halldórsson, lögfræðingur
og fyrrum bæjarstjóri í Hafnar-
firði, hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Kringlunnar, en
Ragnar Atli Guðmundsson gegndi
áöur því starfi. Einar starfaði að
loknu námi í fimm ár hjá Trygg-
ingu hf. en þá varö hann bæjar-
stjóri í Hafnarfirði tvö kjörtímabil.
Undanfarið hefur Einar unnið að
ýmsum verkefnum, aðallega fyrir
fjármálaráðuneytið. Eiginkona
Einars er Ásta B. Jónasdóttir og
eiga þau tvö börn.
Einar Halldórsson, sem um árabil
var bæjarstjóri í Hafnarfirði, er nú
nýráðinn framkvæmdastjóri
Kringlunnar.