Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1988, Page 8
8
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1988.
ÞÉR FYRIR BESTU!
RAUÐUR GINSENG!
Canon
Rétti tíminn til
■ reiknivélakaupa.
Mikið úrval.
Lækkað verð.
krifvélin hf
Suðurlandsbraut 12,
S: 685277 - 685275
FYRIRTÆKITILSÖLU
• Fiskverkun með útfl. ásamt eign-
um - mikil velta - góð kjör.
• Matvöruverslun í Breiðholti -
mánaðarvelta 6,0 millj. - mögul.
á láni til lengri tíma.
• Veitingastaður í hjarta borgarinn-
ar - mikil velta - fallegar innrétt-
ingar.
• Heildverslun með snyrtivörur -
góð kjör.
• Byggingavöruverslun í
Reykjavík - góð umboð.
• Lítil matvöruverslun ásamt sölu-
turni, verð 1,7 miilj.
• Litil heildverslun með vefnaðar-
vörur - góð kjör.
• Tískuvöruverslun með 35 millj. kr.
veltu á ári - góð staðsetning.
Uppl. á skrifst.
• Billjardstofa í Breiðholti í eigin
húsnæði - góð kjör.
• Sólbaðsstofa í Reykjavík - góð
kjör.
• Tískufataverslanir í Breiðholti -
ýmsir greiðslumöguleikar.
• Snyrtivöruverslun í vesturbæ -
miklir mögul.
• Sportvöruverslun í Reykjavík -
góð velta, fallegar innréttingar.
• Tískuvöruverslun við Laugaveg, -
gott húsnæði. - Góð kjör.
• Sælgætisgerð með nýjum áhöld-
um. Miklir möguleikar.
• Unglingaskemmtistaður í Reykja-
vik. Sanngjarnt verð.
• Leikfangaverslun i miðbænum -
eigin innflutn. - góð kjör.
• Matvælaframleiðsla - sósugerð -
arðbært fyrirtæki með mikla
möguleika.
• Söluturn í Reykjavík - við mikla
umferðargötu - mikil velta - góðar
innréttingar.
• Barnafataverslanir i miðbænum -
Góð kjör.
• 15 söluturnar víðs vegar i
Reykjavik, Kóp. og Hafnarfirði,
ýmsir greiðslumöguleikar eru i
boði.
Höfum kaupendur að góðum heild-
verslunum og söluturnum með mikla
veltu. Um er að ræða mjög fjársterka
kaupendur.
Við aðstoðum kaupendur og seljend-
ur fyrirtækja.
Vmsir fjármögnunarmöguleikar.
VIÐSKIPTAÞJONUSTAN
Skeifunni 17
108 Reykjavik
Sími:
(91J-689299
Viðskiptafræðingur:
Kristinn B. Ragnarsson.
Lögmenn:
Jónatan Sveinsson hrl.
Hróbjartur Jónatansson hdl.
★ Ráðgjöf ★ Bókhald ★ Inn-
heimtur ★ Skattaaðstoð ★ Kaup
og sala
Útlönd
Um þrjátíu þúsund Palestinumenn söfnuðust saman i Tel Aviv í Israel á laugardaginn til þess að mótmæla ofbeldi Israelsmanna á herteknu svæðunum.
Simamynd Reuter
Lerta stuðnings
vestrænna nkja
Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, hélt af stað í morgun áleiðis
til Vesturlanda þar sem hann mun
reyna að fá stuðning ráðamanna við
friðarráðstefnu um Miðausturlönd.
Mubarak mun fyrst koma við í
Bonn í Vestur-Þýskalandi en eftir
skamma viðdvöl flýgur hann til Lon-
don. Á morgun heldur hann síðan til
Washington. Þar mun hann reyna
að fá Bandaríkjamenn til þess að
skipta sér meira af deilum araba og
ísraelsmanna.
Egyptar eru eina arabaþjóðin sem
gert hafa friðarsamning við ísraels-
menn og vonast embættismenn til
að sú aðstaöa þeirra geti brúað bilið.
í farteskinu er Mubarak með nýtt
friðarfrumkvæði þar sem hvatt er til
að engin ofbeldisverk veröi framin
næstu sex mánuöina og að gyðingar
hætti að búsetja sig á herteknu svæð-
unum. Einnig eru ísraelsmenn
hvattir til að að taka þátt í alþjóð-
legri friöarráðstefnu á vegum
Sameinuðu þjóðanna. ísraelska
stjórnin er klofin varðandi afstööuna
til friðarráðstefnu.
Á tveggja daga fundi Bandalags
arabaríkja í Túnis fyrir helgi hlaut
leiðtogi Frelsishreyfmgar Palestínu-
manna, Yasser Arafat, fullan stuðn-
ing við tillöguna um sameinaðar
diplómatískar aðgerðir gegn ísraels-
mönnum í þeim tilgangi að fá þá til
að fara frá herteknu svæðunum.
Hvatt var til skipan nefndar utan-
ríkisráðherra bandalagsríkjanna til
að vinna að skipulagningu aðgerð-
anna ásamt frelsishreyfingunni.
Efnt hefur verið til daglegra mót-
mælagangna aö undanfórnu meðal
Palestínumanna á herteknu svæðun-
um og í Tel Aviv söfnuðust þrjátíu
þúsund Palestínumenn saman á
laugardaginn til þess að mótmæla
ofbeldi ísraelsmanna á Vesturbakk-
anum og á Gazasvæðinu. Eru það
viðamestu mótmælin í ísrael gegn
hernáminu frá því 1967.
Leiðtogi Frelsishreyfingar Palestinumanna, Yasser Arafat, sat fund utanrik-
isráðherra Bandalags arabaríkja fyrir helgi. Þar var samþykkt tillaga hans
um diplómatískar aðgerðir gegn ísraelsmönnum. Símamynd Reuter
Skotið á mótmælendur
Stjórnarandstöðuflokkarnir í
Bangladesh sökuðu í morgun lög-
regluna um að hafa skotið til bana
tólf stjórnarandstæðinga og sært að
minnsta kosti þrjú hundruð þegar
þeir undirbjuggu hópfund um helg-
ina í Chittagong.
Talsmenn innanríkisráðuneytisins
segja að til óeirða hafi komið þegar
hópur manna hafi haft að engu bann
við útifundum. Að sögn yfirvalda
biðu fimm menn bana og hundrað
særðust, þar á meðal nokkrir lög-
reglumenn. Dagblöðum í Dakka og
Chittagong ber ekki saman um fjölda
fallinna og særöra.
Aöal leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar hafa hvatt almenning til þess
að taka ekki þátt í þingkosningunum,
sem fram eiga að fara þann 3. mars
næstkomandi, nema að forseti lands-
ins, Hossain Mohammed Ershad,
segi af sér og afhendi bráðabirgða-
stjórn völdin.
Ástandið í Chittagong er enn
spennu þrungiö og hefur lögreglunni
þar borist liðsauki. Hvatt hefur verið
til átta klukkustundar vinnustöðv-
unar í Chittagong í dag og verkfalls
um allt land á morgun.
Óeirðalögreglumenn i Chittagong í
Bangladesh bera á brott særðan
félaga sinn eftir að til átaka kom
milli lögreglu og stjórnarandstæð-
inga. Simamynd Reuter
Lofar lýðræði
Hinn nýkjörni forseti Haiti,
Leslie Manigat, lofaði í gærkvöldi
lýðræðislegri stjórn og hvatti til
einingar þjóðarinnar í viðleitninni
til að binda enda á þrjátíu ára ein-
ræði í landinu.
Manigat var' í gær lýstur sigur-
vegari kosninganna og er hann
sagður hafa hlotiö 50,27 prósent
atkvæðanna. Innan við tíu prósent
þeirra sem atkvæðisrétt höföu
gengu að kjörborði og hafa margir
frambjóðendur og erlendir aðilar
haldið því fram að kosningasvindl
hafi átt sér stað.
Vestrænir stjórnarerindrekar
fullyrða að Manigat sé í nánum
tengslum við Bandaríkjastjórn og
haft er eftir honum að ekkert sé
hægt að gera í landinu án stuðn-
ings hersins sem er best skipulagða
aflið á Haiti. Reyndar hefur Mani-
gat sagt að herinn hafi lokið því
hlutverki sínu að leiða þjóðina til
kosninga og að herforingjarnir
muni fljótlega snúa aftur til her-
búðanna.
Leslie Manigat ásamt Mirlande, konu sinni, og Beatrice, dóttur þeirra
hjóna. Manigat var í gær iýstur sigurvegari kosninganna á Haiti.
Símamynd Reuter