Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1988, Page 27
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1988.
39
Þœr eru ekki einar um þaó, þessar heióurskonur, aó bióta þorrann á
Fróni um þessar mundir.
„Svofara allir
að æla“
Þá hefur þorri gengiö í garö
og menn sjálfsagt farnir að
blóta þorra víða um land með
tilheyrandi áti og drykkju.
Það er staðreynd að vinsæld-
ir þorramatar hafa farið mjög
vaxandi undanfarin ár, og
þorrablótin eru jafnan með
vinsælustu skemmtunum
viða, a.m.k. úti á landsbyggð-
inni. Sá sem skrifar „Sand-
kom“ Dags á Akureyri er þó
ekki mjög hrifinn af þessum
„Poppuð"
síld gerir
lukku
Það hefur varla farið fram-
hjá neinum að Leikfélag
samkomum og talar þar
eflaust af eigin reynslu er
hann segir um þær: „Af ein-
hverjum óskiljanlegum
ástæðum vekur þorrinn allt-
afjafn mikla eftirvæntingu
hjá fólki. Það dreymir um
fiörng þorrablót þar sem mis-
úldnir afgangar og innyfli em
höfð á borðum ásamt ís-
lensku brennivíni, allir
syngja og dansa, glaumur og
gleði fram eftir nóttu uns all-
ir fara aö æla...“ - Já, það
er ekki ofsögum sagt að menn
eiga misgóðar minningar frá
þorrablótum.
Reykjavíkur hóf á dögunum
sýningar á leikritinu „Síldin
er komin“, þvi leikritið fékk
óvenjugóða umfiöllun bæði
fyrir og eftir frumsýningu.
Var verkið lofað í bak og fyr-
ir og e.t.v. að verðleikum.
Hitt vita sennilega færri að
Leikfélag Húsavíkur frum-
sýndi þetta leikrit á síðasta
ári og hét það þá reyndar
„Síldin kemur og síldin fer“.
Þá þögðu fi ölmiðlar þunnu
hlj óði og fór þaö í skapið á
Húsvíkingum, sem er eðli-
legt, enda var um frumsýn-
ingu á íslensku verki að
ræða. Jóhannes Sigurjóns-
son, ritstjóri Víkurblaðsins á
Húsavík, settist við á dögun-
um og skrifaði smápistil í
blað sitt vegna þessa máls og
sagði þá m.a.: „Sú uppsetning
(Leikfélags Húsavíkur) vakti
vægast sagt htla athygli fiöl-
miðla afira landsmanna, sem
sendu enga gagnrýnendur á
vettvang og komu ekki einu
sinni að sjá verkið þegar
Leikfélag Húsavíkur kom
suður með það. Nema gagn-
rýnandi Moggans sem vann
sér það til ævarandi háðung-
ar að skrifa að leikritiö væri
greinilega skrifað fyrir
áhugaleikhús og alltof
langt..." - Síöar segir rit-
stjórinn að það sem þurft
hafi til að áhugi gagnrýnenda
vaknaði hafi verið aö poppa
síldina upp og fá hana í hend-
ur atvinnuleikurum í Reykja-
vik.
„Éq hef ekki
tíma..."
Guðmundur J. Guðmunds-
son ræddi um verðþækkanir
þær sem orðið hafa að und-
anfómu á ftmdi sínum með
Einingarfélögum á Akureyri
í síðustu viku. Guðmundur
minntist á hækkun á afnota-
gjaldi síma, á hækkun afnota-
gjalds útvarps, hækkun
fasteignagjalda, á matar-
skattinn ogfleira. Upptaln-
ingin var orðin nokkuð löng
þegar hann hækkaði róminn
eins og honum einum er lagið
og sagði brúnaþungur: „Ann-
ars hef ég ekki ræðutíma hér
til þess að telj a allar þessar
helvítis hækkanir upp.“
Sandkom
Innleióa Guómundur J. og Þórarlnn
fjölkvæni I næatu kjarasamningum?
Fleiri konur
Guðmundur ræddi einnig
um það á Akureyrarfundin-
um að nú dygði það ekki
lengur að bæði hjónin ynnu
úti myrkranna á milli, endar
vildu ekki nást saman. Hann
vitnaði í einn kunningja sinn
sem Guðmundur sagði að
hefði sagt við sig að hann
þyrfti helst aö eiga tvær kon-
ur sem ynnu úti, þótt hann
ynni fullan vinnudag sj áifur.
Það skyldi þó aldrei vera
lausnin, að leyfa fiölkvæni
innan verkalýðshreyfmgar- '
innar?
Talið í
súluritum
Guðrún Benediktsdóttir
var einn þeirra Einingarfé-
laga sem tóku til máls á
fundinum með jakanum og
Karvel á Akureyri. Ekki tal-
aði hún neina tæpitungu við
þá félaga og sagði m.a.: „En
hvemig er það eiginlega með
ykkur, hvenær ætlið þið að
fara að tala við okkur ís-
lensku? Þið talið bara í
súluritum, línuritum og pýr-
amídum. Reynið að tala
íslensku þegar þið eruð að
ræða við okkur um kj aramál-
in.“
Umsjón:
Gylfi Kristjánsson
Vafalaust vekur sýning LR Ijúfar minningar hjó mörgum um sildarárin
góóu, þegar fólk stóó i slori upp fyrir haus, daga jafnt sem nætur, Ijóm-
andi af lífshamingju.
OFFSET - SKEYTINGAMENN
Við erum að leita að skeytingamanni sem getur unn-
ið sjálfstætt að fjölbreyttum skeytingarverkefnum.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar gefur prentsmiðjustjóri í síma 27022
milli kl. 14 og 17 næstu daga.
Prentsmiðja Frjálsrar fjölmiðlunar
GRENIVÍK
DV óskar eftir að ráða umboðsmann á Grenivík frá 1. febr.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 96-33279 og hjá af-
greiðslunni í Réykjavík í síma 91 -27022.
Gabriel
HðSGDEYFAR
Amerísk JU
úrvalsvara ÆÆ
LÆKKAÐ VERÐ!
SKEIFUNNI5A, SIMI: 91-8 47 88
HÓLSHRAUNI2, HAFNARFIRÐI, (v/Reykjanesbraut gegnt Fjarðarkaupum)
Sími: 52866
U-BÍX120
Ljósritunarvélin
Stórfelld
verðlækkun!
Nú er rétti tíminn til
aðkaupa
Verð kr.
48.960,- stgr.