Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1988, Page 30
42
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1988.
Meiming
Píanótónleikar í Langholtskiikju
Þótt íslenskir einleikaratónleikar
séu ekki eins sjaldgæfir og áöur
heyrir það enn til undantekninga
aö menn slíti sig frá lýjandi kennsl-
unni og trommi upp á tónleikasvið.
Þaö er því alltaf mikið gleöiefni
þegar slíkir tónleikar eru á dagskrá
hjá Tónlistarfélaginu.
Gísh Magnússon píanóleikari
hefur oft komið fram á vegum fé-
lagsins og alltaf hefur hann vakið
mikla hrifningu með tónleikum
sínum. Það var þó orðið býsna
langt síðan Gísli lék fyrir félagið
þegar hann tróð upp á vegum þess
í fyrradag. Þetta var í Langholts-
kirkju sem er reyndar ekki ákjósn-
legur staður fyrir píanótónleika.
En það var víst ekki í annað hús
að venda.
Ég er reyndar ekki í vafa um að
hljóman kirkjunnar hefur truflað
leik Gísla og olli því að sumt var
ekki alveg á hreinu á þessum tón-
leikum. Þeir hófust á Bach, sjöttu
ensku svítunni í D-moll, þá kom
Tónlist
Leifur Þórarinsson
sónatan op 110 í As-dúr eftir Beet-
hoven og síðast voru Hándeltil-
brigðin eftir Brahms. Sumsé stóru
Béin þrjú á einu bretti.
En þar sem ég sat í kirkjunni
(framarlega uppi) var erfitt að
greina línuskil í Bach og verð ég
að játa að svítan hljómaði undar-
lega sviplaus og óspennandi. Hins
vegar voru góðir glampar í Beetho-
ven þótt skersóið væri lúshægt og
lífvana og inngangurinn hægi að
lokafúgunni eins og út úr hól. En
í Brahms lifnaði spilið jafnt og þétt
og þó þetta sé aldeilis ekkert uppá-
haldsverk kannaðist maður viö
gamla Gísla með sinn heita fram-
sóknarvilja í tjáningunni. En í
heild var þettá ekki í eins góðu lagi
St' •
Gisli Magnússon lék verk eftir Bach, Beethoven og Brahms á vegurn
Tónlisiarfélagsins.
og maður hafði vonað, og búist við
reyndar, hvort sem má skrifa það
að mestu á reikning hússins eða
hreinlega að of langt líður á milli
tónleika íslenskra einleikara, tæki-
færin eru of fá. Þá vantar uppörvun
og samhengi í tilveruna. Hvernig
má bæta úr þvi? LÞ
Fréttir
Verðlagssfofnun:
Brauðið óeðli
lega dyrt
Jarðarfarir
Ingvar Árnason, Deildartúni 5,
Akranesi, verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju miðvikudaginn 27.
janúar kl. 11.30.
Brynjólfur Guðmundsson, SÓl-
heimum, Hrunamannahreppi, sem
andaðist 20. janúar, verður jarðsett-
ur frá Hrunakirkju 27. janúar kl. 14.
Svanfríður G. Vigfúsdóttir verður
jarðsett frá Fossvogskapellu þriðju-
daginn 26. janúar kl. 13.30.
Gréta Birgisdóttir, Klapparstíg 11,
lést af slysförum 10. janúar. Jarðar-
forin hefur farið fram í kyrrþey.
Geir Herbertsson prentsmiöjustjóri,
sem lést 17. janúar sl„ verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni þriðju-
daginn 26. janúar kl. 13.30.
Frimann Á. Jónasson lést 16. janúar
sl. Hann var fæddur 30. nóvember
1901 að Fremri-Kotum í Norðurárdal
í Skagafirði, sonur Jónasar Hall-
grímssonar og Þóreyjar Magnús-
dóttur. Hann lauk prófi frá
Kennaraskóla íslands 1923. Síðan
kenndi hann tvo vetur á Melgraseyri
við ísafjarðardjúp og var kennari við
barnaskólann á Akranesi í átta ár.
Áriö 1933 tók hann við nýreistum
heimarvistarskóla á Strönd á Rang-
árvöllum og stýrði honum í 16 ár en
1949 gerðist hann skólastjóri við
Kópavogsskóla (barnaskóla) og
gegndi því starfi tU 1964. Síðan fékkst
hann við bókband um hríð. Kona
hans var Málfríður Björnsdóttir en
hún lést árið 1977. Þau hjónin eignuð-
ust þrjú börn. Útfór Frímanns veröur
gerð frá Kópavogskirkju í dag kl.
13.30.
Tilkyimingar
Háskólafyrirlestur
Dr. Michel Décaudin, prófessor í bók-
menntafræði við háskólann París III,
flytur opinberan fyrirlestur í boði heim-
spekideildar Háskóla íslands fimmtudag-
inn 28. janúar 1988 kl, 17.15 í stofu 101 í
Lögbergi. Fyrirlesturinn nefnist „Lire
Rimbaud aujourd’hui", og fjallar um
ljóðaskáldið Rimbaud og hvem skilning
menn leggja í verk hans nú á dögum.
Michael Décaudin hefur verið prófessor
í bókmenntafræði við París III síðan árið
1972 en var áður prófessor við háskólann
í Toulouse (1957-1969) og við Nantere
háskóla í París (1969-1972). Hann er
þekktastur fyrir rannsóknir sinar á
franskri ljóðagerð, einkum á verkum
symbólista og verkum skáldsins Guil-
laume Apollinaire, en um það skáld
fjallaði doktorsritgerð hans. Hann hefur
gefið út mörg rit um fyrrnefnd skáld og
telst einn helsti sérfræöingur í Frakk-
landi á sínu sviði.
Veggspjaldasýning
Mánudaginn 18. janúar hófst í tilefni af
norrænu tækniári, sýning veggjspjalda í
verslunar- og þjónustumiðstöðinni
Kringlunni í Reykjavík. Hér er um að
ræða um 50 veggspjöld sem kynna starf-
semi rannsóknastofnana atvinnuveg-
anna, en þær áttu 50 ára afmæli á sl.
ári. Þær stofnanir sem hér er um að ræða
eru: Hafrannsóknastofnun, Iðntækni-
stofnun íslands, Orkustofnun, Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins,
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins,
Rannsóknastofnun landbúnaðarins,
Rannsóknaráð ríkisins, Tilraunastöð
Háskólans í meinafræði að Keldum og
Veiðimálastofnun. Sýningin verður opin
í hálfan mánuð. Síðar standa vonir til að
hægt verði að senda hana út á land.
Mataræði og krabbamein
Náttúrulækningafélag Reykjavikur held-
ur fræðslufund um áhrif umhverfis og
mataræðis á krabbámein, i Templara-
höllinni við Skólavörðuholt mánudaginn
25. janúar kl. 20.30. Á fundinum verða
tveir frummælendur, Sigurður Árnason
læknir, sem hefur krabbameinslækning-
ar að sérgrein og Hrönn Jónsdóttir,
hjúkrunarforstjóri á Heilsuhæli NLFÍ.
Sigurður Árnason talar um áhrif um-
hverfis á krabbamein, með sérstakri
áherslu á áhrif mataræðis og tengsl
áfengis og tíðni bijóstakrabbameins.
Hrönn Jónsdóttir segir frá kynnisferð á
náttúrulækningahæli og skóla í Dan-
mörku og Svíþjóð og skýrir frá kenning-
um Juliu Voldan um tengsl milli
mataræðis og sjúkdóma, t.d. krabba-
meins. Allir áhugamenn eru velkomnir
á meðan húsrúm leyfir.
Jarðfræði sigdalsins
mikla í Kenýa
í kvöld, 25. janúar, segir Helgi Torfason
jarðfræðingur frá sigdalnum mikla og
rannsóknum sinum á jarðhita í Kenýa.
Kenýa er eitt af hinum virku eldfjalla-
löndum Afriku. Mikill sigdalur liggur um
þvert landið og er hann römaður fyrir
sérstæða náttúrufegurð. Eldvirkni í
Kenýa er um .margt lík eldvirkni á ís-
landi en margt er harla ólíkt. í erindinu
fiallar Helgi í máli og myndum um ýmsar
hliðar eldvirkni og jarðhita í Kenýa. Fyr-
irlesturinn, sem er öllum opinn, verður
í stofu 101 í Odda, hugvísindahúsi Há-
skólans, og hefst kl. 20.30.
Fimdir
Aðalfundur Framkvenna
Aðalfundur Framkvenna verður í
Framheimilinu við Safamýri mánudag-
inn 1. febrúar kl. 20.00 Að loknum
venjulegum aðalfundarstörfum mun Örn
Jónsson halda fyrirlestur um líkams-
rækt.
Stjórnin.
Fræðslufundur um meðferð
og hirðingu hófa
Fræðslufundur verður haldinn í félags-
heimili Fáks, Víðivöllum, þriðjudaginn
26. janúar kl. 20.30. Fundurinn flallar um
meöferð og hirðingu hófa. Þorvaldur
Þórðarson dýralæknir Qg Ali'reö Jörgens-
en járningamaður munu flytja erindi.
Teknir verða fyrir kvillar í hófum. Or-
sakir, einkenni og meðferð. Síðan mun
dýralæknir sitja fyrir svörum. Að lokum
verður úallað um mikilvægi réttrar járn-
ingar. Félagsmenn erubvattir til þess að
mæta á þennan fund.
Málfreyjudeildin Kvistur
heldur fund í Brautarholti 60 í kvöld,
mánudagskvöld 24. janúar, kl. 20.30. Allir
velkomnir.
Tapað - Fundið
Grímurer týndur
Grábröndóttur högni með hvíta bringu,
hvítar lappir og hvítt trýni tapaöist frá
Lækjarási 6 í Selási sl. þriðjudag.
Finnandi vinsamlegast hafi samband í
síma 73867.
Verðlagsstofnun gerði fyrir
nokkru verðkönnun í 19 bakaríum á
höfuðborgarsvæðinu til að kanna
hversu mikið brauð og kökur hækk-
uðu í kjölfar söluskattshækkunar-
innar í byrjun þessa mánaðar og
niðurfellingar vörugjalds á sama
tíma. Með þessum breytingum hefðu
brauð og kökur átt að hækka að jafn-
aði um 10,3% en stofnunin kannaði
hversu mikið verð á þessum vörum
breyttist raunverulega frá desember
1987 til janúar 1988. í könnuninni
kemur fram að algeng verðhækkun
„Bakarar munu ekki lækka verð á
brauði og kökum eins og Verðlags-
stofnun hefur farið fram á. Þetta var
einróma samþykkt á fundi Landsam-
bands bakarameistara á Akureyri
um helgina. Þaö er ekki raunhæft
að fara fram á verðlækkun því við
þurfum á þessu verði að halda til að
geta haldið rekstrinum áfram.
„Könnun Verðlagsstofnunar sýnir
fyrst og fremst fram á þá miklu
hækkun sem orðið hefur á brauði og
kökum eftir áramótin í kjölfar sölu-
skattshækkunarinnar og niðurfell-'
ingar á vörugjaldi. Aðgerðinar fela í
sér að vörumar ættu ekki að hækka
meira en um 10,3% en könnunin gef-
ur þá vísbendingu að hækkunin sé
Happdrætti
Happdrætti Samtaka gegn
astma og ofnæmi
Dregið var í 2000 miða happdrætti Sam-
taka gegn astma og ofnæmi 24. desember
sl. Vinningar komu á eftirtalin númer:
543 Fiat Uno bifreiö.
1959 Útsýnarferð.
1330 Ferðaútvarpstæki.
Vinninga skal vitjað á skrifstofu Sam-
taka gegn astma og ofnæmi, Suðurgötu
10, sími 22153.
á þessum vörum er 10%-25%.
Tvö bakarí hækkuðu vörur sínar
mest og eru það Sveinn bakari í
Reykjavík og Kökubankinn í Hafnar-
firði. Sem dæmi um hækkanimar
samkvæmt könnuninni má nefna að
hjá Sveini bakara hækkaði form-
brauð úr 53 kr. í 76 kr„ eða um 43,4%,
og snúðar hækkuðu hjá honum úr
38 kr. í 47 kr„ eða um 23,7%. Hjá
Kökubankanum hækkaði þriggja
koma brauð úr 78 kr. í 102 kr„ eða
um 30,8%. Jólakaka hækkaði úr 265
kr. í 315 kr„ eða um 18,9%.
Astæða hækkunarinnar eftir áramót
er í stuttu máli uppsafnaður vandi.
Brauð og kökur hækkuðu á síðasta
ári um 15-20% en allur tilkostnaður
viö rekstur bakaría hefur hækkað
margfalt meira. Þá get ég nefht
launakostnað sem hefur hækkað
mikiö, eggjaverö hækkaði margfalt
fyrir skömmu og fleira mætti nefna.
töluvert mikiö meiri,“ sagði Georg
Ólafsson verðlagsstjóri í samtali við
DV í morgun.
„Verðlagstofnun mælist því til þess
við bakara að þeir lækki verðið. í
miðri þessari viku ætlum við svo að
gera nýja og sams konar könnun tíi
að sjá hvort bakarar hafi farið að til-
mælum okkar. Ef þeir hafa ekki gert
Þau bakarí, sem hækkuðu vörur
sínar minnst, vora Þórsbakarí í
Kópavogi og Bakarí H. Bridde í
Reykjavík. I Þórsbakaríi hækkuðu
rúnstykki/kringlur úr 20 kr. í 22 kr.
en pylsubrauð/hamborgarabrauð
hækkuðu aftur á móti um 37,5%, eða
úr 12 kr. í 16,50 kr. í Bakaríi H. Bridde
hækkuðu snúðar úr 40 kr. í 44 kr„
eða um 10%. Maltbrauð hækkaði þar
úr 60 kr. í 65 kr„ eða um 8,3%.
-JBj
Þess vegna eru bakarar ósáttir við
ummæli verðlagsstjóra um að bakar-
ar hafi hækkað vörur sínar meira en
aðrir og vefengjum við þessar tölur
í könnuninni," sagði Haraldur Frið-
riksson, formaöur Landssambands
bakarameistara, í samtali við DV í
morgun.
vikunni
það munum við grípa til einhverra
aðgerða en afstaða hefur ekki verið
tekin til þess hvað verður gert. Til-
laga um að lækka verðið til fyrra
verðs og hækka það svo aftur um
10,3% kom frá fulltrúa launþega á
fundi Verðlagsráðs um daginn en
eins og ég sagði hefur engin ákvörð-
un hefur verið tekin ennþá.“ -JBj
Bflvelta setti
síma úr sambandi
Ölvaður ökumaður velti bíl sín-
um á Sandgerðisheiði aöfaranótt
sunnudags. Ökumaðurinn meid-
dist lítið en bíllinn er mikið
skemmdur.
Bíllinn fór af veginum og í vel-
tunni lenti bíllinn á símakassa. Við
það fór símasamband af Sandgerði
og var símasambandslaust viö
Sandgerði í nærri hálfan sólar-
hring.
-sme
Bakarar lækka ekki brauðverð
-JBj
Hátt brauðverð:
Ný verðkönnun í