Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1988, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1988.
Sviðsljós
Verðlækkun
á eftirtöldum
varahlutum:
Olíusíur
■ Loftsíur;';
Höggdeyfar
Hljóðkútar
Púströr
Rafkerti
Hemlaklossar
Viðurkenndar vörur
með ábyrgð
Kynntu þér
okkar verð
«8?
áhrifs,rfl*
HEKLAHF
Laugavegi 170 -172 Simi 695500
Stefán Ólafsson, fyrrverandi formaður Samtaka gegn
astma og ofnæmi, ræöir hér við afmælisbarnið Kjartan,
forseta Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúkl-
inga.
Steindór Hjörleifsson leikari, Steinþór Slgurðsson leik-
myndateiknari og Unnur Jónasdóttir, formaður Mæöra-
styrksnefndar, spjalla hér saman í afmælisveislunni.
75 ára unglingnr
Þann 21. janúar sl. varð Kjartan Guðnason,
forseti SÍBS og fyrrverandi deildarstjóri hjá
Tryggingastofnun ríkisins, 75 ára.
Kjartan er fæddur og uppaiinn í Reykjavík.
Hann hóf störf hjá Tryggingastofnun ríkisins
árið 1951 og var lengst af deildarstjóri þar.
Hann hefur alla tíö starfað mikið að hags-
munamálum öryrkja, átt sæti í stjórnum
Reykjalundar, Múlalundar, Múlabæjar,
Hhðabæjar og fleiri stofnana öryrkja og verið
forseti Sambands íslenskra berkla- og bijóst-
holssjúklinga frá 1974.
Þrátt fyrir aldurinn starfar Kjartan enn af
fullum krafti að meginmarkmiðum SÍBS, að
styöja sjúka til sjálfsbjargar.
Gífurlegur tjöldi samherja og samstarfs-
manna heiðruðu afmæhsbarnið, Kjartan
Guðnason, og konu hans, Jónu Jónasdóttur,
er þau tóku á móti gestum í Tannlæknasaln-
um í Síðumúla. Ljósmyndari DV festi nokkra
þeirra á filmu.
Meðal gesta voru Davíð Gíslason læknir, Björn Astmundsson, framkvæmdastjóri Reykjalund-
ar, Björn Ólafur Hallgrímsson, stjórnarformaður vöruhappdrættis SÍBS, og kona hans, Helga
Bjarnadóttir. DV-myndir KAE
Eitthvað á þessa leið litur Michael
Jackson út eftlr allar plastísku að-
gerðirnar...
Eins og alhr vita hefur Michael
Jackson farið í íjölda plastískra
skurðaðgerða. Til eru svo margar
myndir af þeim ferh að nokkuð auð-
velt er að rekja þær aðgeröir í gegn
um tíðina.
Yfirleitt er það tahð nokkuð hættu-
laust og í hæsta máta eðlilegt nú til
dags að láta lagfæra andlitsgalla, eins
og ljótt nef, laga mimn, hækka kinn-
bein eða eitthvað slíkt. En að láta
gerbreyta andhti sínu er ekki eins
eðlilegt, eða það sem verra er, það
er stórhættulegt.
Stórvinur Michaels úr poppbrans-
anum er Jermaine Jackson. Hann
segir, eftir að hafa fylgst með Jack-
son í gegn um tíðina, að hann þjáist
sífellt af kvölum í andhtinu eftir allar
þessar aðgerðir. í nærmynd séð er
hann orðinn eins og leikari í verstu
hryllingsmynd, jafnvel hrylhngs-
leikarinn Boris Karloff mætti öfunda
hann af. En Michael Jackson hleypir
yflrleitt engum mjög nálægt sér til
þess að taka mynd sem sýnir hversu
illa andht hans er í raun farið og
hversu þjáður hann er orðinn.
Það skyldi þó aldrei vera að í stað
þess að öðlast eilífa æsku, eins og
Michael eltist sífeht við, eldist hann
mim fljótar en hann annars hefði
gert ef hann hefði látið andhtið á sér
í friði eða látið nægja htils háttar
aðgerðir.
... en gæti litið svona út ef hann
hættir ekki að láta gera á sér þess-
ar aðgerðir. Þarna er hann að leika
í myndbandinu Thriller.
Litli gamanleikarinn George Burns var eldhress á 92 ára afmælisdegi sínum. Hér sést hann fagna með öðrum
úr stéttinni, talið frá vinstri: Carol Channing, Danny Thomas, Sid Caesar, afmælisbarnið sjálft, Jack Carter og
Charlie Slatter. Símamynd Reuter
Einn af alendingarbestu leikurun-
um í HoUywood er grínleikarinn
George Bums sem nýlega hélt upp á
92 ára afmæh sitt.
George Bums, sem var skírður
Nathan Birnbaum, fæddist í New
York 21. janúar árið 1895. Hann
reyndi fyrir sér sem söngvari í
bamakvartett á unga aldri og sem
sýningarmaður á hjólaskautum áður
en hann lagði fyrir sig gamanleikinn.
Árið 1925 hitti hann Gracie AUen og
þó tóku höndum saman sem
skemmtikraftar. Ári síðar giftust þau
en héldu áfram gamanleik fram tíl
ársins 1940 og náðu töluverðum vin-
sældum.
Síðan dró George Burns sig að
mestu út úr leiklistarlífinu, en 35
ámm síðar, árið 1975, sló hann í gegn
í kvikmyndinni The Sunshine Boys.
Fyrir hlutverk sitt í þeirri mynd fékk
hann óskarsverðlaun. Síðan lék
hann í mörgum myndum eftir það,
Oh God frá 1977, Just You and Me
Kid, Sergeant Peppers Lonely Heart
Club Band og fleiri.
George Bums er frægur fyrir að
vera aUtaf með stóran vindil í hend-
inni og hefur reykt aUa sína tíð. Það
viröist ekki hafa áhrif á ævUengd
hans og var hann mættur eldhress í
afmælisveislu sína með enn einn
vindihnn.
Eldhress öldungur