Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1988, Síða 33
MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 1988.
45
Sviðsljós
Eddie Murphy
hefur verið orðaður við mikinn
fjölda kvenna. Þær hafa flestar
verið af yngra taginu, en nú
herma fréttir að hann sé búinn
að vera nokkuð lengi með þeirri
sömu, konu sem er 39 ára, eða
13 árum eldri en hann. Hún
er grísk að ætterni, heitir Alexis
Eliopulos, rekur hótel ( Beverly
Hills og á sand af seðlum.
„Arthur on the rocks“ er nafnið á myndinni sem nýkomin er á markað i
Bandarikjunum með Dudley Moore og Lizu Minnelli í aðalhlutverkum.
Um þessar mundir er mikið af
áhugaverðum bandarískum kvik-
myndum að koma fram. Tvær af
þeim markverðari eru myndirnar
„Ironweed“ með Jack Nicholson og
Meryl Streep, og „Arthur on the
rocks“ með Dudley Moore og Lizu
Minnelli.
Sú fyrrnefnda, Ironweed, fjallar
um líf tveggja róna, karls og konu,
og er því ekki ósvipuð annarri mynd
sem nýlega var frumsýnd í Banda-
ríkjunum og heitir „Barfly". Aðal-
leikarar í þeirri mynd voru Mickey
Rourke og Faye Dunaway. Bæði Jack
Nicholson og Meryl Streep hafa látið
hafa eftir sér að þau telji þessi hlut-
verk vera óskahlutverk, þar sem það
sé svo ólíkt því sem þau hafa áður
gert og sé mjög krefjandi i leik. Þau
eru reyndar bæöi þekkt fyrir að fara
ekki troðnar slóðir í hlutverkavali.
Hin myndin, Arthur on the rocks,
á að vera ákveöið framhald af mynd-
inni Arthur sem sömu leikarar léku
í árið 1981. Fyrir þá mynd fékk Dud-
ley Moore tilnefningu til óskarsverð-
launa. Annar leikari fékk þó
óskarsverðlaun í fyrri myndinni en
það var Sir John Gielgud, í hlutverki
hins óborganlega bryta, milljóna-
mæringsins Arthurs. Til allrar
ólukku var hann látinn týna lífi í
fyrri myndinni og því erfitt um vik
fyrir framleiðendur. Þeir leystu mál-
ið með því að láta hann leika aftur-
göngu í síðari myndinni.
Búist er viö því að þessar tvær
myndir verði meðal þeirra sem
mesta aðsókn fá á árinu. Nöfn þess-
ara leikara hafa allavega oft dugað
til þess að draga að áhorfendur, og
þeir hafa sjaldan oröið fyrir von-
brigðum.
hlutverki sinu i myndinni Ironweed.
Skemmtilegra
Það er ekki nauðsynlegt, en
alltaf heldur skemmtilegra
þegar það eru tveir um það
að afklæðast.
Ólyginn
ði...
Mikki mús
og félagar hafa gert víðreist um
flesta heimshluta. Ein er þó sú
þjóð sem ekki hefur fengið að
kynnast þeim félögum í teikni-
myndasögublöðum, en það eru
Rússar. Nú verður þó líklega
breyting þar á, vegna slökunar-
stefnu stjórnvalda þar á bæ.
Walt Disney fyrirtækið stendur
nú í viðræðum við sovéska
ráðamenn um birtingu teikni-
myndasagna um Mikka mús
og félaga á rússnesku.
Danny DeVito
leikarinn litli, sem slegið hefur
í gegn í myndum eins og Ro-
mancing The Stone, Jewel of
The Nile og Tin Man er kvænt-
ur leikkonunni Rhea Perlman
sem leikur dökkhærðu af-
greiðslustúlkuna í Staupasteini.
Danny DeVito er barngóður
maður, og um daginn, þegar
hann fór út að borða á veitinga-
stað, tók hann eftir því að kona
hélt á barni við annað borð.
Hann labbaði að borðinu og
ætlaði að gantast við barnið,
en sneri við kafrjóður í framan
þegar hann kom nær þvl konan
var með barnið á brjósti.
Lairy bamafés slær í gegn
Að margra áhti voru framhalds-
þættirnir MASH með því albesta sem
sjónvarpsáhorfendum hefur verið
boðið upp á á skjánum. Þar var Alan
Alda einna vinsælastur en mörgum
fannst náunginn sem lék Radar
O’Reilly einna skemmtilegasta týpan
af þeim.
Margir leikaramir í þáttunum eru
horfnir af sjónarsviðinu og hættir aö
leika. Alan Alda hefur spjarað sig vel
sem leikari og Loretta Swift, sem lék
„Hotlips", einnig sæmilega. En um
þessar mundir ber mest á léikaran-
um sem lék Radar en hann heitir.
Larry Burghoff. Hann hefur oft verið
kallaður Larry barnafés manna á
milli vegna barnslegs og sakleysis-
legs andlits síns, en þaö þótti hæfa
vel í uppfærslu leikrits á Broadway.
Það ber heitið „Nerds“ og hefur sleg-
ið í gegn eftir að byrjað var að sýna
það fyrir skömmu. Fram að þessari
uppfærslu hafði Burghoff ekki leikið
á sviði síðan árið 1968, og þykir því
með ólíkindum hve vel hann stóð
sig. Væntanlega munu opnast fleiri
dyr fyrir Larry eftir þessa góðu Larry Burghoff, sem lék Radar O'Reilly í gamanþáttunum MASH, hefur sleg-
frammistööu hans. ið í gegn á sviöi i leikritinu Nerds á Broadway. Simamynd Reuter