Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1988, Side 5
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988.
5
Viðskipti
Mikið framboð af íslenskum
fiski á Bretlandsmarkaði
Tegundir Hráefnisv. Viðbót T.L.mjöl
• kr. á hl. ísl. kr. isl. kr.
Vetrarloðna ísl. kr. 254,56 41,33 60,43
Sumarloðna kr. 296,03 40,13 . 49,00
íshafsþorskur kr. 145,13 41,59 58,56
Kolmunni kr. 207,94 44,00 69,77
Sandsíli kr. 266,10 52,52 72,96
Trönusili kr. 254,14 49,35 60,30
Sild kr. 357,10 48,94 19,65
Makríll fyrir 1/7 kr. 352,58 49,94 75,48
Makríll eftir 1/7 kr. 356,12 45,18 63,64
Hestamakrill kr. 275,84 41,15 52,91
Mikið framboð hefur verið í Bret-
landi af íslenskum fiski í þessari viku
og hafa verið seld alls 860 tonn á
mánudag og þriðjudag. Meðalverð
kr. 57,70. Mb. Garðey landaði 25. jan-
úar alls 74,5 lestum fyrir 5,644 millj.
kr., meðalverð kr. 75,80. Bv. Ögri
seldi afla sirtn í Bremerhaven, alls
158,8 lestir fyrir 10,451 millj., meðal-
verð kr. 65,86. Fimmtudaginn 28.
janúar seldi bv. Snorri Sturluson í
Þýskalandi en bv, Guðmundur Krist-
inn og mb. Þorri selja afla sinn í
Englandi á fimmtudag og fóstudag.
Noregur
í Fiskaren 22. janúar 1988.
Samkomulag hefur tekist milli kaup-
enda á bræðslufiski og norskra
sjómanna um eftirfarandi verð:
Hækkun n.kr. 11,93 á loðnu og n.kr.
11,61 á síld.
Sérstök hækkun til sjómahna n.kr.
0,43 og til T.L.mjöl n.kr. 0,60. Fitu-
og þurrefnisprósent eru þau sömu
og verið hefur.
Hamborg
Síðan um áramót hefur verð á
norskum laxi verið ágætt og mun það
að hluta til vera vegna þess að fyrir
jólahátíðina tæmdust birgðastöðvar
algjörlega. Það verð, sem nú hefur
verið allsráðandi, hefur verið sem
hér segir: 2-3 kílóa lax kr. 327 kg, lax
3-4 kílóa kr. 339 kílóið, lax 4-5 kílóa
kr. 367 kg, 5-6 kílóa lax kr. 413 kíló-
ið, 6-9 kílóa lax kr. 456 kílóið. Búist
er við að þetta verð haldist fyrst um
sinn.
Noregur
Norðmenn ræða nú mjög innflutn-
ing Dana á fiskimjöli til Noregs.
Norömenn segja að ótækt sé að Dan-
ir fái að flytja inn fiskimjöl án þess
að greiða toll með sama hætti og
Norðmenn verða að gera þegar þeir
flytja fiskimjöl til landa Efnahags-
bandalagsins. Tollur á fiskimjöli til
Efnahagsbandalagslanda er 2%.
Madrid
Spánverjar eru nú farnir að glíma
við hinn gráa hversdagsleika með
tóma vasa og tómar bankabækur og
útborgun launa ekki fyrr en um
mánaðamót. Þrátt fyrir allt þetta
hefur fiskverð verið gott að undan-
fömu og má kannski þakka það hve
lítið hefur borist á markaðinn af
fiski. Á laxmarkaðnum hefur norsk-
ur lax verið allsráðaridi þrátt fyrir
að einstaka kassi sé ekki eins vel frá-
Fiskmarkaðirnir
Ingólfur Stefánsson
genginn og nauðsynlegt er þegar á
þeim stendur að um úrvalsvöru sé
um að ræða. Auðvitað þurfa allir útflytjendur fisks að hafa hugfast að gæðin tryggja gott verð, fyrst og
fremst. Mercantmadrid: kg kr.
Norskur óslægður lax: 2-3 377
Norskur lax 3-4 418
Norskurlax 4-5 426
Norskurlax 5-6 460
Norskur lax 6-9 492
Þorskflök kr. 262 kílóið, skötusels-
halar kr. 720 kg, smárækja kr. 425
kílóið, humar kr. 1575 kílóið.
TECHNICS SYSTEM X-800 HÁÞRÓUÐ
I EKJAS/l ■ f 5 OA
iiEÐ ÞRÁÐLAUSRI FJARSTÝRINC
og hljómgæðin sem skipta öllu máli,
þá koma yfirburðir Technics hljóm-
tækjanna í Ijós. Það er engin tilviljun
að Technics eru mestu hljómtækja-
framleiðendur heims, þeim árangri
nær aðeins sá sem getur boðið upp á
framúrskarandi vöru í öllum verð-
flokkum. Takið ekki óþarfa
áhættu, látið ekki skrumið
drekkja ykkur, þið eruð örugg
með tækin frá Technics.
Án geislaspilara
||
I Liann leynir sér ekki glæsileikinn
þegar Technics hljómtækin eiga í
hlut. Útlitið eitt segir ekki nema hálfa
söguna, það er innihaldið, endingin
JAPIS8
BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN • SÍMI 27133
I