Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1988, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988.
37
Mario González, leiðbeinandi á námskeiðinu, segir hér til nokkrum leikurum sem bera svipbrigðalausar grimur.
Námskeid í grímuleiklist
í Miðbæjarskólanum fór nýlega
fram allsérstætt námskeið fyrir ís-
lenska atvinnuleikara. Þetta var
námskeið í grímuleiklist fyrir leikara
á vegum fyrirtækisins Leikskeiðs sf.
Það var Frakkinn Mario González
sem var leiðbeinandi á námskeiðinu,
en hann hefur starfað hjá Sólarleik-
húsinu (Theatre du Soleil) í París.
Mario er franskur ríkisborgari og
hefur verið það í hartnær tvo áratugi
en er upprunninn frá Guatemala.
Námskeiðið styrktu níu fyrirtæki.
Grímumar, sem notaðar voru á
námskeiðinu, kom Mario með sjálfur
og eru þær úr leðri. Þaö mun vera
mikið verk að gera eina svona grímu,
enda er hver þeirra metin á um 30
þúsund krónur. Ljósmyndari DV brá
sér á námskeiðið og festi æfingamar
á filmu.
Með aðstoð grima af þessu tagi er
hægt að ná fram ansi kostulegum
svipbrigðum.
DV-myndir GVA
Sumar af þessum grimum hæfa gleði, aðrar sorg eöa ýmsum öðrum svipbrigðum.
Fnunsýning á Svörtu
og hvítu
f Þórscafé er nú nýhafinn Þórs-
kabarett ársins. Ber hann heitið
Svart og hvítt. Að þessu sinni er
Saga Jónsdóttir leikstjóri sýning-
arinnar. Aðalleikarar í sýningunni
eru með Sögu þeir Jörundur Guö-
mundsson og Magnús Ólafsson.
Inn í kabarettinn er fléttað dansat-
riðum sex stúlkna úr dansstúdíói
Dísu, auk þess sem hljómsveitin
Burgeisar spilarundir. Söngvarinn
Tommy Hunt tekur bráðskemmti-
leg lög inn á milli atriöa í kabarett-
inum.
Bryddað hefur verið upp á þeirri
nýjung að láta ítalska listamann-
inn Leone Tinganelli syngja og
leika létta tónlist fyrir matargesti.
Ljósmyndari DV brá sér á frum-
sýninguna og tók nokkrar myndir.
Söngvarinn Tommy Hunt tekur nokkur bráðhress lög fyrir gesti staðar-
fns og fær þá til þess að syngja með. DV-myndir KAE
1ij| « \ aE rr
\ w
'' v . I
Jörundur Guðmundsson ætti að kunna til verka þegar hann tekur Magn-
ús Ólafsson í rakstur, en þetta er byrjunaratriðið i Þórskabarettinum.
Svidsljós
Ólyginn
sagði...
Pat Cash
Jane Seymour
- breska leikkonan þekkta -
hefur nú fengið hlutverk í
breskum myndaflokki sem
vekur mikla athygli. Hann
fjallar um ævi Wallis Simpson
og Eðvarðs áttunda sem af-
salaði sér bresku krúnunni til
þess að geta kvænst Wallis.
Jane Seymour þykir alveg
ótrúlega lík Wallis Simpson
og þykir leika hlutverkið al-
veg sérstaklega vel.
- sem öðlaðist heimsfrægð á
svipstundu þegar hann sigr-
aði á Wimbledonmótinu í
tennis - er kvæntur norskri
fyrirsætu sem heitir Anne
Britt Kristiansen. Þau hjóna-
kornin kynntust í veislu hjá
öðrum tennisleikara, Vitas
Gerulaitis. Hjónaband þeirra
er allsérkennilegt því að hún
býr í Noregi og hann í Lon-
don. Þó er þess getið að
hjónaband þeirra sé sérdeilis
gott. Þetta er kannski besta
hjónabandsformið; að búa í
hvort í sínu landinu.
Paulina
Porizkova
er nafn sem gæti átt eftir að
heyrast mikið á næstunni,
það er að segja ef því verður
ekki breytt. Hún er orðin ein
af hæst Iaunuðu fyrirsætum
í heiminum í dag og hefur
nýlega hafið leik í kvikmynd-
um. Hún er tékknesk að
ætterni og hjólin fóru fyrst að
snúast hjá henni þegar hún
fékk leyfi til þess að flytja frá
ættjörðinni því að tækifærin
eru ekki mörg í Tékkóslóvak-
íu.