Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1988, Blaðsíða 36
36
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988.
Sviðsljós
Bestir í
poppheiminum
Ólyginn
sagði...
Eftir hver áramót fer fram verö-
launaafhending í Los Angeles fyrir
afrek á tónlistarsviðinu á árinu
sem nýliðið er. Á þessu ári fékk
fjöldi listamanna Amerísku tónlist-
arverðlaunin en þetta er í fimmt-
ánda sinn sem þessi verðlaun eru
veitt.
Söngkonan Whitney Houston var
áberandi við þessa verðlaunaaf-
hendingu en platan I Wanna Dance
with Somebody kom út á árinu
1987. Einnig var hljómsveitin Bon
Jovi í sviðsljósinu, var kosin hijóm-
sveit ársins þar í landi. Þetta var
mikil stjörnusamkoma þar sem
margar þekktar stjörnur voru
Whitney Houston tékk bæði verðlaunin fyrir bestu kvenröddina og bestu fengnar til þess að afhenda verð-
plötu ársins á samkomunni. Símamyndir Reuter launin.
Söng- og leikkonan Cher afhenti
Jon Bon Jovi, forsprakka hljóm-
sveitarinnar Bon Jovi, verðlaun
bestu hljómsveitar ársins.
Myndin Beverly Hills Cop II skilaði mestum ágóða á síðasta ári eða 4,6
milljörðum króna.
Ira Furstenberg
- sem er með prinsessutitil,
er talin koma til greina sem
eiginkona Rainiers fursta af
Mónakó. Rainier var lengi að
jafna sig eftir að Grace Kelly
lét lífið en hin síðari ár hefur
hann oft sést í fylgd með
hinni 48 ára gömlu Iri* Furst-
enberg. Hún þykir hafa til að
bera mikið af þeim glæsileik
sem einkenndi Grace og gæti
”* því öðlast viðurkenningu
meðal þegna furstadæmisins
sem eiginkona Rainiers. Þó
er alls óvist að Rainier festi
ráð sitt nokkurn tíma.
Mesta tap af einni kvikmynd á síðasta ári varð af myndinni Ishtar með
Warren Beatty, Dustin Hoffman og Isabelle Adjani í aðalhlutverkum.
Elísabet Taylor
er mjög reið þessa dagana út
í Sally Burton sem Richard
Burton var kvæntur þegar
hann dó. Sally Burton er vist
ekki hrifin af öllum sögunum
um að Richard Burton hafi
enga elskað nema Elísabetu.
Því á Sally að hafa keypt graf-
reitinn við hlióina á Richard
látnum í Sviss í þeim eina til-
gangi að koma í veg fyrir að
Elísabet verði grafin við hlið-
ina á honum. Sjálf ætlar Sally
að láta grafa sig í heimalandi
sínu, Englandi.
Gary Hart
- sem varð að hætta við fram-
boð sitt til forseta er upp
komst um samband hans við
Donnu Rice, verður nú fyrir
mun víðtækari ásökunum en
áður. Hann er aftur kominn í
kosningabaráttu, sem gengur
illa, og ekki á hún eftir að
ganga betur ef nýjustu sögu-
sagnirnar eru réttar. Þær
herma að hann hafi verið með
fjölda kvenna utan hjóna-
bands síns og eru þar fræg-
astar leikkonurnar Shirley
MacLaine og Debra Winger.
Uppgjör ársins hjá
kvikmyndaframleiðendum
Víetnam-myndin Platoon gæti markað tímamót í gerð mynda um það efni en hagnaður af henni varð ófáar milljónir.
Framleiðendur kvikmynda í
Bandaríkjunum eru flestir ákaflega
ánægðir með uppgjör kvikmynda
ársins í fyrra. Innkoma af kvikmynd-
um á árinu 1987 jókst um tólf af
hundraði frá árinu áður sem er mjög
mikið. í peningum tahð þýðir það
aukningu upp á rúma 157 milljarða
króna. Sú upphæð er hátt í þreföld
fjárlög islenska ríkisins fyrir árið
1988.
Það sem hefur vakið athygli fram-
leiðenda er að myndir sem höfða
mikið til eldra fólks hafa skilað einna
mestum ágóöa en myndir fyrir ungl-
inga miklu síður. Framleiðendur
höfðu lengi aðallega veitt fjármuni í
myndir fyrir ungt fólk en virðast nú
óðum vera að breyta til í átt til hinna
eldri. Má vænta þess á næsta ári að
framleiðslan taki eitthvert mið af því.
Meðal þeirra mynda sem gengu
hvað best eru Fatal Attraction með
Michael Douglas í aðalhlutverki,
peningamyndin Wall street, Baby
Boom og Three Man and a Baby með
Tom Selleck og Diane Keaton, The
Dead sem var síðasta mynd leikstjór-
ans John Houston, og mynd sem
tilnefnd hefur verið til óskarsverð-
launa, Broadcast News. Eddie
Murphy átti metið með mynd sinni
Beverly HiUs Cop II sem halaði inn
4,6 milljarða króna. Af myndum, sem
kostuðu ekki mikið í framleiðslu,
gerði myndin La Bamba það gott og
halaði inn 1,9 milljarða króna og
búist er einnig við miklu af mynd-
inni Hope and Glory. Einnig virðast
Víetnam-myndir aftur vera að ná sér
á strik en þær voru nánast bannvara
á tímabili. Myndirnar Platoon og
Full Metal Jacket bera gott vitni um
það.
Samtals framleiddu stóru kvik-
myndaverin 578 myndir og er það
mesti fjöldi í heil 20 ár. Ein af ástæð-
um þessa mikla gróða kvikmynda-
veranna eru myndböndin en
framleiðendur ráðgera nú að setja
myndböndin mun fyrr á markað en
áður, það er að segja sex mánuðum
eftir að myndin hefur verið markaðs-
sett.
Eins og alltaf gerist voru myndir
sem reyndust mistök og koma aldrei
til'með að skila ágóða. Þar er fremst
í flokki rándýra myndin Ishtar með
Warren Beatty, Dustin Hoffman og
Isabelle Adjani í aðalhlutverkum.
Hún kostaði 1,8 milljarð. Mynd Ste-
vens Spielberg, Empire of the Sun,
er líka í mínus svo ekki sé minnst á
mynd Bill Cosbys, Leonard, Part VI
sem er gjörsamlega misheppnuð.