Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1988, Side 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988.
Fréttir
n
Margrét Guðnadóttír, prófessor í veirufræði:
Evðnivamir standa miöd vel
ekkert upp á stjómvöid að klaga
„Eyðnlvamir standa mjög vel
hér á landi núna. Viö höfum fengið
þau tæki og aðstöðu sem við þurf-
ura og getum nú gert það sem þarf
til að greina sjúMóminn,“ sagði
Margrét Guönadóttir, prófessor í
veirufræði hjá Rannsóknastofu
Háskólans. Margrét taldi að við ís-
lendingar værum búnir aö koma
ár okkar vei fyrir borð hvaö rann-
sóknastarf á eyðni varðaði. „Þaö
er ekkert upp á stjórnvöld að klaga
í þessu sambandi. Þau hafa veitt
þessu máli forgang og nú ættum
við að vera vel í stakk búin til að
sinna þessura rannsóknum."
Margrét sagði aö rannsóknastof-
an í Ármúlanum ætti eftir að koma
sér vel fyrir þessar rannsóknir og
reyndar allar veirurannsóknir. Þar
hefur verið unnið síöan í septemb-
er. „Þetta er aðstaða sem þjóöin á
eftir aö búa aö í langan tíma.“
Þá sagði Margrét aö það væri með
ólikindum hvað gert heföi verið í
eyðnirannsóknura í heirainum frá
því eyðniveiran kom fram 1983.
Sagði hún að nú væri jafnmikið
vitað um þessa veiru og aðrar sera
hefðu verið rannsakaðar í raarga
áratugi.
„Það nýjasta í iyfjameðferö við
eyðni er að nú er verið aö reyna
alls kyns efni til að stöðva út-
breiðslu veirunnar í þeim sjukling-
um sem búnir eru að fá sjúkdóra-
inn, að hindra fjöigun veirunnar í
sjúklingunum. Þetta er auövitað
risavaxið skrefþví að þetta hindrar
aö mestu að fólk verði meira veikt
en orðið er.“ Margrét sagði hins
vegar að bóluefnisrannsóknir ættu
ennþá nokkuð langt i land. Þaö
væri í fyrsta lagi eftir 5 til 7 ár sera
búast mætti við árangri af þeim.
Nýtt afbrigði eyöniveirunnar hef-
ur nú verið staðfest og er það kallaö
HIV-2. Sú veira, sem er skyld HIV-1
en þó ekki sprottin af henni, hefur
aðailega stungiö sér niður i V-
Afríku og ekki náð mikilli út-
breiðslu annars staðar.
-SM.J ■
Ætía ekki að
græða á Jóhanni
- segir Kari Hjelm sem gaf Jóhanni lukkusteininn
„Ég hefði ekkert haft á móti því
að Kortsnoj hefði skammað mig í
geðvonskukastinu eins og Friðrik,"
sagði Karl Hjelm, verkamaður á Nes-
kaupsstað, sem gaf Jóhanni Hjartar-
syni lukkusteininn sem Jóhann var
með í vasanum á meðan á einvíginu
stóð, í samtali við DV. Karl gaf Jó-
hanni steininn á IBM-skákmótinu í
fyrra áður en hann tefldi við
Kortsnoj. Þá hafði Jóhann enn ekki
unnið skák á mótinu. Jóhann lagði
Kortsnoj með steininn í vasanum.
Jóhann er ekki eini skákmaðurinn
sem hefur fengið stein frá Karli. „Ég
gaf Timman lukkustein þegar hann
var á ferð hér á Austfjöðrum árið
1976. Sá steinn var jaspis, eins og sá
sem ég gaf Jóhanni, en kannski full-
stór til þess að bera á sér við taflborð-
ið. Ég gaf honum síðan annan eins
en minni á Reykjavíkurskákmótinu
í fyrra. Timman hefur skrifað mér
og sagt að þessir lukkusteinar hafi
hjálpað sér og gefið sér styrk.
Kannski hefur hann haft stein í vas-
anum þegar honum tókst að vinna
Salov í síöustu skákinni,“ sagði Karl.
Karl hefur safnað steinum um ára-
bil og á fjölbreytt steinasafn. „Maður,
sem er vanur að umgangast steina,
fmnur frá þeim kraftinn. Sumir gefa
frá sér styrk, aðrir lukku og það eru
líka til heilsusteinar. Margir sem
hafa fengið steina hjá mér hafa þakk-
að mér fyrir. Einn skipsstjóri sagði
mér að þegar hann stæði einn uppi
í brú og heföi engan til að ráðfæra
sig við gæfl það honum styrk að
halda þétt um steininn. Það væri eins
og snerting góðs vinar.“
í sumar seldi Karl slípaöa lukku-
steina sem hver kostaði 150 krónur.
Hann sagði að lítið hefði selst og fólk
sagt þá of dýra. Þegar Karl var spurð-
ur hvort viðskiptin mundu ekki
blómstra eftir velgengni Jóhanns
sagði hann: yÉg hef ákveðið að hætta
að selja þá. Ég vil ekki græða á nafni
Jóhanns.“ -gse
Vandræðá-
ástand í
húsnæðismál-
um á Höfh
1 r -■ Jí'5
-•>nc
O V _
Twin Otter vél, sömu gerðar og Flugfélagið Ernir hefur nú fest kaup á.
Ný flugvél í flug-
flota Vestfirðinga
Sigui]'án J. Sigurðsson, ísafirði:
Flugfélagið Emir hefur fest kaup
á mun stærri flugvél en það hefur
áður haft á sínum vegum. Hér er um
að ræða Twin Otter vél sem tekur
19 farþega í sæti. Hörður Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Emis, hefur
veriö erlendis um hríð og gekk frá
kaupunum á vélinni fyrst í vikunni.
Nýja flugvélin, sem er með aílmeiri
hreyfla en flestar vélar af þessari
gerð hér á landi, kemur til með að
verða notuð í áætlunarflug félagsins
innan Vestfjarða, svo og í póstflugið
og í áætlunarflugið til Reykjavíkur.
Með komu hennar verður nýting
flugflota félagsins mun hagkvæmari
en verið hefur. Reiknað er með að
flugvélin komi fljótlega hingað til
lands eða upp úr næstu mánaðamót-
um. Þegar er búið að mála hana í
litum Ernis.
Júlía Imsland, DV, Höfii:
Mikill skortur hefur verið á íbúðar-
húsnæöi á Höfn og umsetið ef eitt-
hvað losnar. í vetur hefur farið fram
könnun hjá Hafnarhreppi á hversu
mikið vantaði af íbúðarhúsnæði og
að sögn Hallgríms Guðmundssonar
sveitarstjóra, eru sex fjölskyldur sem
þurfa að flytja úr núverandi húsnæði
og 18 fjölskyldur sem búa við lélegt
og óöruggt húsnæði. Hallgrímur
sagði að mikið væri hringt víðs vegar
af landinu og spurst fyrir um atvinnu
og húsnæði en svarið það sama: Nóg
atvinna en ekkert húsnæði.
Hafnarhreppur auglýsti einnig eft-
ir þeim sem áhuga hefðu á að byggja
atvinnuhúsnæði eða vildu tryggja
sér lóð í þeim tilgangi. Þar reyndust
undirtektir frekar litlar en þessar
athuganir voru gerðar með tilliti til
skipulagningar fyrir slíkar bygging-
ar. Hallgrímur sveitarstjóri sagði aö
athugað yröi hvaö hagkvæmast væri
til úrræöa í húsnæðismálum svo að
hægt væri að bæta úr því vandræða-
ástandi sem ríkti á staönum.
I dag mælir Dagfari
Fegurðardrottningar hafa það fyrir
sið að bresta í grát þá þeim er til-
kynnt aö þær hafl unniö titilinn
þetta eða hitt. Fegurðarkóngur ís-
lands felldi hins vegar ekki tár
þegar hann var krýndur á Akur-
eyri um síðustu helgi en lýsti því
yfir i blaðaviðtah að helst hefði
hann langað til að öskra. Þetta sýn-
ir auðvitað, svo ekki verður um
villst, að hvað_ sem öllu jafnréttis-
tah líður þá “bregðast karlmenn
öðruvísi og karlmannlegar við tíð-
indum af þessu tagi heldur en
konur. Það er bara verst að kóng-
urinn skyldi bæla niður Tarzan-
öskrið sem var að bijótast fram.
Það hefði verið tilkomumikið að sjá
og heyra.
Sjö yngissveinar sýndu fegurð
sína á veitingastaðnum Zebra á
Akureyri fyrir troðfuhu húsi. Ung-
píuhjörtun á staðnum slógu svo ört
þá kappamir birtust á sundskýlum
einum klæða aö rafmagnið brann
yfir og grúfði myrkur yfir salnum
í hálfa klukkustund meðan dóm-
nefnd sat að störfum. Ekki hefur
það komið fram að ungpíur hafi
nýtt sér myrkvunina til að fara
höndum um kroppana en hins veg-
ar torveldaði ljósleysið dómnefnd-
inni störfin því hún var mun lengur
Kóngur úr Breiðhotti
að komast að niðurstöðu þar sem
nefndarmenn sáu ekki handa sinna
skh.
Eiginkona fjármálaráðherra
kynnti keppendur og lýsti úrsht-
um. Hún tók fram að fegurðar-
kóngurinn væri búsettur í
Breiðholti í Reykjavík. Það væri
eitthvert hverfi uppi í hæðrnn eða
fjöllum þaðan sem alhr vilhngarnir
kæmu. Þessu náðu sjónvarpsmenn
á filmu og sendu út til landsmanna.
Kratar í Reykjavík gripu um höfuð
sér þegar þeir heyrðu ummæhn um
villingana í Breiðholti og telja ein-
sýnt að þeir fái ekki mörg atkvæði
úr þeim byggðum í næstu borgar-
stjórnarkosningum. En þetta var
ein eftirminnhegasta séna kvölds-
ins fyrir þá sem láta sig htlu varða
sjálfa keppnina. En hvað varðar
feguröarkónginn þá var það nátt-
úrlega „ólýsanleg tilfinning" sem
greip hann þegar ljóst var að hann
er karla fegurstur. Og eins og ann-
að kóngafólk fegurðar stundar
hann dans og líkamsrækt og hefur
fengist viö fyrirsætustörf. Segist
ekki slá hendinni á móti fyrirsætu-
störfum erlendis ef þau byöust. Það
var hins vegar margtekið fram að
sveinninn ungi væri heitbundinn
þótt ekki þætti ástæða th að draga
konuefnið fram í sviðsljósið. Hins
vegar var það víst alveg hrikalega
erfitt aö koma fram á sundskýlu
og skal engan undra með ahar
þessar stelpur á fremstu bekkjum,
hverja annarri gfrnilegri.
Kaupfélag Eyfirðinga á Akureyri
sýndi keppninni þann heiður að
gefa fegurðarkónginum hatt og svo
fékk hann líka gjafakort fyrir ljósa-
tímum og getur fengið að éta
ókeypis á Akureyri og í Reykjavík
í heilt ár á thteknum vertshúsum.
Þaö ætti því ekki að væsa um pilt-
inn á ' næstunni. Akureyringar
voru að vonum himinlifandi aö fá
þennan viðburð í sinn heimabæ og
telja sig nú hafa skákað Laufdaln-
um svo um munar sem hefur slegið
sér og sínum stöðum upp með feg-
urðarsamkeppni kvenna undan-
farin ár. Hins vegar hefur Óh verið
svo sniöugur að bjóða Davíð borg-
arstjóra að vera við þær athafnir
og þar hefur borgarstjóri orðið svo
dolfahinn yfir hinni kvenlegu feg-
urð að kvennahstakonur hafa séð
ástæðu th að mótmæla. En Sigfús,
bæjarstjóri á Akureyri, var svo
durtslegur að láta ekki sjá sig á
karlakeppninni norður þar sem
sýnir bara að maðurinn kann sig
ekki í mannlegum samskiptum.
Sennhega stafar fiarvera Sigfúsar
af því að hann er ekki kosinn
beinni póhtískri kosningu eins og
kollegi hans fyrir sunnan en hann
heföi engu að síður getað gaukað
árskorti aö skíðasvæðinu í Hlíðar-
fialh að sigurvegaranum, bara
svona til aö auglýsa flallið. Þess í
stað stendur KEA með pálmann í
höndunum fyrir að hafa gefið hatt-
inn. Kannski er það hka svo að
landsmenn þekki betur KEA en
fflíðarfiah.
Dagfari.