Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1988, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988.
17
Lesendur
w —71~jj
j J
III ■I $
m } u
„Miðbærinn fyllist af lífi og allir i góðu skapi... “ segir meðal annars i bréfinu, þegar þegnarnir koma saman til
þess að sinna skattamálum sinum.
Mannfagnaður
í miðbænum
Ormar Þór Guðmundsson skrifar:
Endur fyrir löngu lærði ég til arki-
tekts. Það gerði ég til þess að byggja
eitt og annað og ætlaði raunar að
hafa af því fulla atvinnu. Lengi vel
gekk þaö líka eftir. En sennilega hef-
ur feðrum míns góða lands ekki líkað
þetta ráöslag aUs kostar því smátt
og smátt hafa þeir verið að fá mér
annan starfa og nú má segja að ég
hafi orðið annað aðalstarf; sem sé að
vera skattheimtumaður. Nú er svo
komið að varla kemur svo maður
nálægt mér að ég heimti ekki af hon-
um skatt til þess að geta skilað okkar
ágæta ríkissjóði.
En af því ég er fremur ófimur við
þennan starfa ræð ég mér fólk til
þess að annast þetta fyrir mig og
streitist sjálfur við að teikna enn
meira.
Þetta er mjög hagkvæmt. Fleiri
menn fá nokkuö að starfa og umsetn-
ingin og hagvöxturinn eykst - og svo
get ég líka heimt skatt af þessu fólki
og skilaö sjóðnum góða.
Allt er þetta gott og blessað, en þó
finnst mér af bera sú umhyggja sem
landsfeðumir sýna okkur í sambandi
við skil á síðasta skattinum - til þessa
- sem ég fæ að innheimta. Það er
skýrt tekið fram aö við skil hans
gangi ekki að nota svo ópersónulega
hluti sem gíróseðla. Nei - ég og allir
hinir skattheimtumennirnir skulum
koma og hitta fulltrúa okkar ágæta
sjóðs og afhenda þeim augliti til aug-
litis það sem við höfum getað reytt
saman.
Augljóslega er þetta gert til þess
að vinna gegn þeirri firringu sem
hætt er við að plagi borgarbörn, því
sýnilega verður af þessu mikill
mannfagnaður. Miðbærinn fylhst af
lífi og allir í góöu skapi þar sem þeir
sjá í anda hvernig sjóöurinn okkar •
allra gildnar.
Þá er ekki heldur gleymt mannlega
þættinum í starfi gjaldheimtumanna.
I staðinn fyrir að hggja lon og don
yfir pappírum fá þeir nú í nokkra
daga aö heilsa upp á fólk og taka við
tíundinni. Hlýtur þetta að vera góð
tilbreyting. Sennilegt er líka, vegna
þess tíma sem tapast frá skjalaúr-
vinnslunni - og síst ber að telja eftir
- að þurfi að fjölga gjaldheimtu-
mönnum og enn eykst hagvöxturinn.
Sem sagt gott.
Patreksfjörður
Blaðbera vantar á Patreksfirði.
Uppl. hjá umboðsmanni í síma 94-1503.
íI BLAÐ
í BUROARFÓLK
1 Í
K
i ejti/CtáÉiyv ■
Skúlagötu 50-80
Borgartún 1-7
Hátún
*******************************
Akurgerði
Búðargerði
Grundargerði
*********************************
Austurgerði
Byggðarenda
*********************************
Hraunbæ 50-100
*********************************
AFGREIÐSLA
4»
A
i
i
n n ' . n
ÞVERHOLTI 11 SÍMI 27022
Hjukrunar-
fraðingar
óskast til starfa
Geðdeild Landspítalans
Hjúkrunarfræðingar óskast nú þegar á göngudeild
áfengissjúklinga. Vinnutími 8.00-16.00 og 12.00-
20.00. Ekki unnið á sunnudögum.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
38160.
RÍKISSPÍTAIAR
STARFSMANNAHALD
Sundurliðaðir símareikningar
Jón Stefánsson hringdi:
Ég er hér með fyrirspum til Pósts
og síma um hvenær staðið verði við
loforð um sundurliðaða símareikn-
inga. Ég veit ekki betur en þessu
hafi oft veriö lofað áður en aldrei
verið staðiö viö það. Á síðasta hausti
birtist grein í DV þar sem Hreinn
Loftsson, aðstoðarmaður samgöngu-
ráðherra, lofaði því að teknir yrðu
upp sundurliðaðir símareikningar
hjá Pósti og síma, en mér er til efs
að staðið verði við það.
Mér hefur borist í hendur síma-
reikningur, eins og bandaríska
símaþjónustan býður neytendum
upp á, og það verður ekki annað séð
en að þar sé vel staðið að málum.
Aht er þar sundurliöað, verð hvers
símtals, hringt hvert, dagsetning,
nákvæm tímasetning og númerið
sem hringt var í. Þess verður eflaust
langt að bíöa að íslensk símaþjónusta
nái svipuðu stigi.
Allir eiga að vera í beltum
hvar sem þeir sitja
í bílnum!
yUMFERÐAR
RÁÐ
a
tvx/C
Uppsetn-
ing á sjón-
varpsloftnet-
um hefur fólki
ekki þótt neitt
tiltökumál til
þessa. Þó sýna
dæmin að neytend-
ur þurfa aö gæta
fyllstu varúóar þegar
þeir fá menn til aö setja
þessi tól upp fyrir sig þvi
verðmunurinn getur verið
verulegur. í Lifsstil á morg-
un fjallar DV um uppsetningu
loftneta og magnara fyrir fjöl-
býlishús. í öóru tilvikinu kostaði
uppsetningin innan við tiu þúsund
krónur en i hinu nálægt áttatiu
þúsund krónum.
DV
Margir velta vöngum
yfir nafni sínu, merk-
ingu þess, uppruna
og jafnvel út-
breiðslu. Nú eru þau
Guðrún Kvaran og
Sigurður Jónsson
málfræðingar aö
vinna að rannsókn á
islenskum manna-
nöfnum. Þar kemur
m.a. fram að karl-
mannsnafnið Þór er
vinsælast hér á
landi, sem annað
nafn, um þessar
mundir. Margt fleira
forvitnilegt kemur
fram í spjalli við
Guðrúnu, sem birt-
ist í Lifsstil á
morgun.
í DV á mprgun verða kynnt kúluhús heima og erlendis. Á ísafirði hefur ris-
ið kúluhús sem vakið hefur mikla athygli íslendinga og erlendra, m.a. fyrir
garðhýsi sem talið er það stærsta hér á landi. Eigendur hússins og hönnuð-
ur, Einar Þorsteinn Ásgeirsson, lýsa fyrir lesendum kostum þess að byggja
kúluhús - hvað það kostar og hve mikið sparast á ári i kyndingarkostnað.