Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1988.
Fréttir
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar:
Erlent skuldamet eða atvinnuleysi
ef fjármagna á viðskiptahallann
Skattahækkanir, niðurskurður á
„Þaö er í sjálfu sér ekki fullljóst
hvernig viöskiptahallinn verður
fjármagnaöur. Eins og íjárlög og
lánsfjárlög eru nú er ekki gert ráð
fyrir erlendum lántökum fyrir
þeim viðskiptahalla sem gert er ráö
fyrir. í fyrra gerðist þetta einfald-
lega þannig aö erlendar lántökur
fóru fram úr áætlunum,“ sagöi
Þóröur Friðjónsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar, þegar DV innti
hann eftir því hvemig fjármagna
bæri þann 11-12 milljarða viö-
skiptahalla sem spáö væri.
„Við á Þjóðhagsstofnun höfum
gefiö okkur þá forsendu að viö-
skiptahallinn verði íjármagnaður
með erlendum lántökum. Gjaldeyr-
isforðinn er orðinn það lítill að það
er ekki hægt að ganga á hann frek-
ar. Þó allir séu sammála um'að
draga úr erlendum lántökum er
ekki gott aö sjá hvemig það er
hægt. í fyrsta lagi eru þær fijálsar
að hluta og í öðra lagi myndu að-
gerðir til þess að draga úr þeim
fyrst og fremst bitna á þeim fyrir-
tækjum sem mest þurfa á erlendu
ijármagni aö halda. Það myndi
leiða til minnkandi atvinnutekna
og atvinnuleysis. Það gæti því orðið
árekstur á milli markmiða í úr-
lausn þessa vanda.
Það er alveg ljóst að viðskipta-
samneyslu eða höft á
hallinn ásamt slæmri stöðu út-
flutnings- og samkeppnisatvinnu-
veganna em þau vandamál sem
eru brýnust úrlausnar í efnahags-
stjórnun. Viðskiptahallinn er of
mikill og vex hraðar en við verður
unað. En það er jafnframt ljóst að
því meira sem við skuldum erlend-
is því verr erum við í stakk búin
til þess að hafa hér viðskiptahalla
ár eftir ár. Erlendar skuldir hafa
vaxið ár frá ári í erlendri mynt.
, Ef 11-12 milljarða viðskiptahalli
verður fjármagnaður með erlend-
um lántökum í ár verður skuld
okkar um næstu áramót mjög há.
Um síðustu áramót voru erlendar
innflutning koma einnig tíl greina
skuldir um 41 prósent af lands-
framleiðslu. Auk nýrra lántaka
vegna viðskiptahallans verður að
taka tillit til þróunar hagvaxtar og
gengisbreytinga. Ef gengið verður
fellt hækka skuldir þjóðarbúsins
að sama skapi og ef hagvöxturinn
fer niður á við minnkar lands-
framleiðslan. Ef þetta helst allt í
hendur við auknar lántökur getur
hlutfall erlenda skulda af lands-.
framleiðslu vaxið umtalsvert.
Eru þá engar leiðir aðrar færar
en met í erlendum skuldum eða
atvinnuleysi?
„Það hafa svo sem veriö nefndar
lausnir sem spanna allt litrófið. Ef
ég nefni nokkrar af handahófi þá
kemur til greina að hækka skatta,
skera niður ríkisútgjöld eða beinar
ráðstafanir til að draga úr innflutn-
ingi.“
Þetta eru allt óvinsælar aðgerðir;
skattahækkun, stórfelldur niður-
skurður á samneyslunni og hafta-
stefna í viðskiptum.
„Það er alveg ljóst að allar að-
gerðir, sem eru til þess fallnar aö
draga úr þjóðarútgjöldum, eru
óvinsælar, á sama hátt og þegar
íjölskylda þarf að draga saman í
sínum útgjöldum,“ sagði Þórður
Friðjónsson.
-gse
Breytingartillogum um bjórfmmvarpið rignir inn:
Þjóðaratkvæði
um bjórinn
- verður bjórinn svæfður á sama hátt og síðast?
BreytingartUlögum um bjórinn
rignir nú inn á þing og em nú þegar
komnar tvær breytingartillögur og
Karel Karelsson og Ingvi Einarsson úr sjómannadagsráði virða fyrir sér eyðilegginguna. Með þeim á myndinni
er Ingvi Már Karelsson. DV-mynd BG
íkveikja í Hafriarfirði:
Kappróðrarbátar eyðilögðust í eldi
sú þriðja á leiðinni. Öruggt var talið
að í dag kæmi tillaga um að þjóðarat-
kvæðagreiðsla verði áður en lögin
taki gildi. Er þá rætt um 27. ágúst.
Það er Steingrímur J. Sigfússon, sem
telst í flokki bjórandstæðinga, sem
líklega flytur þessa tillögu en Jón
Sigurðsson dómsmálaráöherra mun
vera hugmyndinni hlynntur og
reyndar fleiri þingmenn þannig aö
vel er hugsanlegt að þessi tillaga
verði samþykkt. Þá flutti Steingrím-
■ ur aðra breytingartillögu um aö ekki
megi selja annan bjór en 3,25%^4%
að styrkleika og að veita skuli 75
milljónum kr. á hveiju ári næstu 10
árin til forvamarstarfs.
Ekki náðist að klára þriðju um-
ræöu um bjórmállð í gær og verður
málið aftur á dagskrá í dag. Það var
Ólafur Þ. Þórðarson sem hóf umræð-
una í gær og byijaði hann á því að
lesa upp nöfn þeirra 138 lækna sem
sent höfðu ályktun gegn bjómum.
Þar með hefur Ólafur fært inn nöfn
271 lækna í fundarbækur alþingis.
Síðar reyndi Ólafur að slá þagnarmet
Hreggviðs Jónssonar þegar hann
beið eftir að heilbrigðisráðherra
gengi í salinn. Náði Ólafur að þegja í
6 mínútur. -SMJ
Kappróðrarbátar sjómannadagsr-
áðs í Hafnarfirði gjöreyöilögðust
þegar eldur varð laus í bragga þar
sem þeir eru geymdir. Bátarnir eru
tveggja ára gamlir og er aætlað tjón
um ein milljón króna. Auk bátanna
brunnu árar og kermr undir bátana.
í sumar verður haldið upp á fimm-
tíu ára afmæli sjómannadagsins og
ljóst er að hátíðarhöldin í Hafnarfirði
verða með öðru sniði en gert hafði
verið ráð fyrir. Bátarnir voru keyptir
fyrir samskot meðal sjómanna, út-
gerðarmanna og bæjarsjóðs.
Talið er að kveikt hafi verið í
bragganum. Ekkert rafmagn er tengt
í braggann.
-sme
Jökull, Hellissandi:
Ágæti:
Hækkar kaitöflur um 120 prósent
Forráðamenn Ágætis hafa til-
kynnt öðmm kartöfludreifingar-
fyrirtækjum að þeir hyggist hækka
lieildsöluverð á kartöflum um allt
að 120 prósent, úr 20 krónum þegar
verðið var lægst og í 44 krónur kíló-
ið. Ágætismenn leituðu eftir
. samstöðu annarra dreifingaraðila
um að halda verðinu uppi.
-gse
Skúli stefnir sjávarútvegsráðherra
Skúli Alexandersson alþingismað-
ur, framkvæmdastjóri Jökuls hf. á
Hellissandi, hefur stefnt Halldóri
Ásgrímssyni sjávarútvegsráðherra
vegna úrskurðar ráðuneytisins frá
7. ágúst í fyrra um aö Jökull hf. hafi
selt meiri fisk en það keypti eða með
öðmm orðum svindlað á kvóta. Var
Skúla gert að greiða ráðuneytinu
andvirði meints ólöglegs afla, sam-
tals 1,5 milljónir króna.
Skúli Alexandersson gerir þá kröfu
að þessi úrskurður verði talinn rang-
ur efnislega þar sem ráðuneytið gefi
sér rangar forsendur um nýtingu
aflans. Hann bendir á að ráðuneyt-
inu hafi verið gefnar fullnægjandi
upplýsingar og gerð grein fyrir öllum
þeim fiski sem inn kom í fýrirtækið.
Ráðuneytið hafi engar sannanir lagt
fram og ekki rætt við útgerðaraðila
þeirra báta sem lögðu upp hjá Jökli
hf:
Þá byggir Skúli málsókn sína á að
lögin númer 32 frá 1976 bijóti gegn
stjórnarskránni um þrískiptingu
valds en í þessu tilfelli sé sjávarút-
vegsráðuneytið bæði framkvæmda-
aðili, rannsóknaraðili og dómsvald.
-S.dór
Skývsla um Dags Tangen málíð lögð fram á Alþingi:
Harður áfellisdómur yfir fréttastofunni
Skýrsla menntamálaráðherra um
fréttaflutning Ríkisútvarpsins í Dags
Tangen málinu var lögð fram á Al-
þingj í gær og út úr henni má lesa
þungan áfellisdóm yfir fréttastofu
Ríkisútvarpsins. Er þar álitsgerð dr.
Þórs Whitehead sagnfræðings lögð
til grundvallar.
„Eg hef skrifað útvarpsstjóra bréf
þar sem ég óska þess að skýrslan
verði ítarlega rædd á fréttastofum
útvarps og sjónvarps þannig aö hún
megi verða víti til vamaðar," sagði
Birgir ísleifur Gunnarsson mennta-
málaráðherra um innihald skýrsl-
unnar.. Hann sagðist ekki ætla að
hafa frekari afskipti af málinu enda
væri það útvarpsstjóra að reka og
ráða menn hjá Ríkisútvarpinu. Sagði
ráðherra aö skýrslan yröi líklega
rædd í sameinuðu þingi næstkom-
andi mánudag en ekki er að búast
við frekari álitsgerð frá Alþingi."
„Fræðimennska“ Dags Tang-
en dregin í efa
í skýrslu sinni dregur dr. Þór
Whitehead mjög í efa fræðimennsku
og háskólaferil Norðmannsins Dags
Tangen sem var einmitt talið ein
ástæða fyrir því af hveiju hann var
talinn jafnáreiðanleg heimild í upp-
hafi málsins. Segir Þór að samkvæmt
hans fyrirspumum sé hæpið að
Tangen geti kallaö sig sagnfræðing
enda nám hans og fræðimennska
ákaflega takmörkuð.
Þór segir þó aö miðað viö aöstæður
í upphafi málsins hafi fréttastjóri,
Friðrik Páll Jónsson, haft gildar
ástæður til að útvarpa málinu. Þegar
hins vegar kom að því að fá staö-
festingu fréttarinnar hafi hlutimir
farið úr skorðum. í niðursstöðu Þórs
kemur eftirfarandi fram:
„Röng ákvörðun fréttastofunnar
10. nóvember og meðferð málsins
upp frá því vitnar einkum um tvennt:
ofurkapp á aö halda ásökunum
Tangens að hlustendum og blinda trú
á sannleiksgildi þeirra. I þættinum
DagSkrá sannaðist að útvarpsmenn
litu málið aðeins frá einu pólitísku
sjónarhorni." - Og síðar segir Þór:
....að þeir útvarpsmenn sem hér
eiga hliit að máli reyni framvegis aö
líta á umdeild sagnfræðileg viöfangs-
efni frá fleiri en einni hlið og finni
stjómmálaskoðunum sínum vett-
vang utan fréttatíma." -SMJ
Verslunamtenn:
I gærkveldi vora haldnir fundir
um nýgerða kjarasamninga
verslunarmanna á fimm stööum
á landinu. Á Akranesi voru
samningamir felldir meö 26 at-
kvæðum gegn 10, á Akureyri
voru þeir feUdir með 129 atkvæð-
um gegn 58 og í Ámessýslu með
53 atkvæðum gegn 48.
Aftur á móti voru þeir sam-
þykktir á Austurlandi með 133
atkvæðum gegn 93 og þeir voru
einnig samþykktir í verslunar-
deild Verkalýðsfélagsins Jökuls á
Hellissandi.
Eins og skýrt var frá í DV í gær
voru samningamir feUdir hjá
verslunarmönnum 1 Hafnarfirði
og í kvöld iýkur aUsheijarat-
kvæöagreiðslu • hjá Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur um
samningana. -S.dór