Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Blaðsíða 40
62*25 R E T T A S I Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- þá I síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augfýsingar - Áskrift - Oreifing: Sími 27022 MIÐVIKUDAGUR 13. APRIL 1988. Albert Guðmundsson: „Notaðir sem grýla“ ^ - á Alþýðuflokkinn „Þaö getur verið að sjálfstæðis- og framsóknarmenn noti Borgaraflokk- inn bara til að hræða kratana, við séum notaðir sem grýla,“ sagði Al- bert Guðmundsson þegar hann var spurður um hugsanlegar þreifingar bak við tjöldin milli stjórnarflokka og Borgaraflokksins. Albert sagðist geta staðfest að einhverjar viðræður heíðu átt sér stað þó það hefði ekki komið inn á hans borð. Enn hefði aðeins verið rætt við aðra þingmenn Borgaraflokksins, s.s. Inga Bjöm, son hans. „Þessi ríkisstjórn, sem nú starfar, hefur í raun afdrei veriö til. Hvert —einasta stjórnarfrumvarp, sem kem- ur inn á þing, verður að ágreinings- máli milli ráðherra og stjómarþing- manna." Albert sagði að ef sú staða kæmi upp að Borgaraflokkurinn færi í stjórn þá myndi hann ekki skorast undan fjármálaráðherraembættinu. -SMJ Forstjóri Flugleiða: Engin ákvörðun liggur fyrir Sigurður Helgason, forstjóri Flug- leiða, verður í dag á fundum með starfsfólki félagsins þar sem hann kynnir niöurstöður Bolton Consult- ing Group varðandi Norður-Atlants- hafsflugið. í samtah við DV sagði Sigurður að ekkert hefði enn verið ákveðið um til hvaða aðgerða fyrir- tækið myndi grípa tfl að rétta við mikinn taprekstur á þessum leiöum. Hann sagði alls ekki víst að grípa ^iyrfti til uppsagna starfsfólks. Það væri heldur ekki víst að ferðum á Norður-Atlandshafsleiðinni yrði fækkað þó það kæmi einnig til greina. Útkoma næsta sumars réði miklu um til hvaða ráðstafana yrði gripið. Samkvæmt þessu geta nokkrir mánuðir liðið áöur en gripið verður til þess að láta fólk fara frá fyrirtæk- inu, ef af því verður. -gse Bílstjórarnir aðstoða mS£JlDIBíLHSTÖÐin LOKI Er Þorsteinn þá Leppalúði? Á annað hundrað björgunarsvertamianna levtuðu flugvélar í alla nétt: Flugmaðurinn fannst í vélinni á hafsbotni - sökum veðurs komst þyrlan ekki til leitar fyrr en í morgun Seltjarharnes Alftanes r Flugvélin, sem leitað var aö í alla nótt fannst snemma í morgun. Vél- in fannst í sjónum um eina sjómflu frá brautarenda á Reykjavíkur- flugvelli og um 700 metra suður af Lambastöðum á Seltjamamesi. Flugmaðurinn, sem er frá Flórída í Bandaríkjunum, var í vélinni og var hann látinn. Flugvélin fannst á mjög htlu dýpi, eða fjórum tfl sex metmm. Kafarar hafa náö að losa hkið úr vélinni og hefur því verið komið í land. Brak flugvélarinnar náðist úr sjónum í morgun og var komið með brakið í Kópavogshöfn skömmu síðar. Það var klukkan rúmlega tíu í gærkvöld sem véhn hvarf af ratsjá flugstjómar. Hún átti þá aðeins eft- ir að fljúga um eina sjómflu aö brautarenda á vestur-austur braut- inni á Reykjavíkurfugvelh. Andar- taki áöur en véhn hvarf af ratsj ánni hafði flugmaðurinn samband við flugstjóm og virtist ekkert há hon- um eða véhnni. Búið var að gefa honum heimfld til lendingar. Veð- ur var orðið slæmt á þessum tíma og einhver ísing mun hafa verið byijuð að myndast. Þegar vél hvarf af ratsjánni hófst þegar víðtæk leit björgunarsveita og lögreglu. Björgunarbátar leit- uðu á sjó og fjörur voru gengnar, allt frá Álftanesi og út Seltjamar- nes. Veður var afar slæmt, bhnd- bylur var með norðaustan hvössum vindi. Þyrla Landhelgis- Slysstaðurinív'f Skerjafjörður Flugvöllur Veður til leitar var afarslæmt fram eftir nóttu. Hvass vindur og gekk á meö blindbyljum. Fjöldi björgunar- báta leitaði í alla nótt á Skerjafirði og fjörur voru gengnar. Þyrlan komst ekki til leitar fyrr en i morgun. DV-mynd KAE A kortinu sést slysstaðurinn. Eins og sjá má átti flugvélin skamma leið ófarna að flugvellinum. Flug- vélin fannst á aðeins fjögurra til sex metra dýpi. DV-kort JR gæslunnar komst ekki tfl leitarinn- ar fyrr en í morgun sökum veðursins. Skömmu eför að þyrlan var kom- in á loft fannst vélin. Menn á litlum björgunarbáti höfðu séð olíubrák á sjónum og þegar þyrlan flaug yfir sá áhöfn hennar vélina þar sem hún lá á botninum. Annar vængur vélarinnar er brotin af henni. Flugvélin er af gerðinni PA-44 Seminole, tveggja hreyfla. Véhn var á leið frá Bandaríkjunum til Evrópu. Síðasti viðkomustaöur var á Narssarssuaq á Grænlandi. Það- an fór vélin klukkan 16.53 í gær. Flugmaðurinn var frá Flórída í Bandaríkjunum. AUs tóku á annað hundrað manns þátt í leitinni sem var erfið sökum óveðursins. Veðrið á morgun: Breytileg áttog hlýnandi Á morgun verður norðan- eða norðaustanátt vestan til á landinu en suöaustlæg eða breytfleg átt austanlands. A Suður- og Austurl- andi verða skúrir eða slydduél og snjóél á Vestfjörðum og á annesjum norðanlands. Hiti verður nálægt frostmarki um norðvestanvert landið en 2ja til 4ra stiga hiti suð- austanlands. Margrét Jónsdóttir „Sá Ijós og hétt það vera eldingu" „Ég sá nokkuð bjart ljós í loftinu. Ég hélt það vera eldingu og sagöi gestrnn mínum frá þessu. Við áttum von á að heyra þrumu í kjölfarið en heyrðum ekkert. Þetta var eins og örsnöggur glampi. Það sást ekki vel sökum veðursins. Þegar ég heyrði síöar að flugvélar væri saknað lét ég björgunarsveitar- menn vita af því sem ég hafði séð. Ég sá Ijósið klukkan rúmlega tíu og þaö virðist hafa verið á þeim tíma sem vélin var í aðfluginu,“ sagði Margrét Jónsdóttir sem býr vestar- lega á Seltjamarnesi. ■sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.