Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1988. Jarðarfarir Gunnar Guðmundssonfrá Víðinesi verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 14. apríl kl. 13.30. Sveinjóna Vigfúsdóttir, Hringbraut 92a, Keflavík, verður jarösett frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. apríl kl. 10.30. Guðrún Helga JÓnsdóttir, Dalbraut 27, áöur Bergþórugötu 18, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. apríl kl. 13.30. Hallbera Hallsdóttir frá Neskaupstað verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 13. apríl kl. 13.30. Kristjana Jónsdóttir frá Bergi, Kefla- vík, verður jarðsungin frá Keflavík- urkirkju fóstudaginn 15. apríl kl. 14.00 Ragnar Jónsson skipstjóri, Smyrla- hrauni 2, Hafnarfirði, verður jarð- sunginn fimmtudaginn 14. apríl kl. 1S.00 frá Hafnarijarðarkirkju. Ásgrímur Sigurðsson verður jarð- sunginn frá Sigluíjarðarkirkju fimmtudaginn 14. apríl kl. 14.00. Helgi K. Gíslason lést 1. apríl síðast- liðinn. Hann fæddist 24. apríl 1909, sonur hjónanna Gisla H. Gíslasonar og Kristbjargar H. Helgadóttur. Þann 5. júlí 1941 giftist hann Ingunni Jón- asdóttur og eignuðust þau fjögur börn. Útför Helga verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15.00. Sigtryggur Jónasson lést 28. mars síðastliðinn. Uann var fæddur 19. janúar 1917 á Siglufirði, sonur hjón- anna Jónatans Guömundssonar og Vilhelmínu Norðfjörð. Hann bjó lengst af á Akranesi og eignaðist átta börn. Andlát Guðrún S. Jónsdóttir lést á Héraðs- hæli Austur-Húnvetninga 10. april síðastliðinn. Guðfmna Magnea Árnadóttir lést í Borgarspítalanum 11. april síöastlið- inn. Bækur Ný Ijóðabók Út er komin ljóðabókin „með byssuleyfi á eilíföina" eftir Jón Stefánsson. Er þetta fyrsta ljóðabók höfundar en hann hefur áður birt ljóð í blöðum og tímaritum. Bókin er 44 blaðsíður og inniheldur 33 ljóð. Höfundur er útgefandi en setningu, prentun og bókband annaðist Prentstofa G. Benediktssonar. Tilkyiiningar Áfengisvarnir Aöalfundur Félags áfengisvamanefnda á Austurlandi, haidinn í Verkalýðshúsinu á Fáskrúðsfirði, laugardaginn 2. apríl, 1988: Skorar á alþingismenn að fresta afgreiðslu á fyrirliggjandi bjórfrumvarpi þar til heilbrigðisáætiun hefui- veriö rædd og afgreidd á Alþingi. Iðnskólinn í Reykajvík Um það bil 5600 manns komu á myndlist- arsýnigu Iðnskólans í Reykjavik á Iðnskóladaginn. Er þetta sennilega stysta sýning sem Haldin hefur verið á myndlist á íslandi. Sýningin stóð yfir í 9 klst. og var stanslaus straumur fólks allan þann tíma. Samstarfsnefnd Náms- mannahreyfinganna Forráðamenn Laugarásbíós hafa ákveðið að bjóða námsmönnum framhaldsskóla sérstakt kynningarverð á sýningar myndar Richards Attenboroughs, “Cry freedom" (Hrópað á frelsi), sem er nú til sýningar í Laugarásbíói, munu sýningar þessar verða dagana 11.-15. apríl klukkan 14:00. Til að auðvelda námsmönnum að nýta sér þetta tilboð hefur samstarfs- nefnd námsmannahreyfmganna skipu- lagt ókeypis strætisvagnaferðir frá öllum helstu skólum í Reykjavík. Fréttir Sjómannasambandið og uppsögn samninga: Komið með umboð fyrir 30 félög og deildir - nauðsynlegt að hafa þetta í höndunum við næstu fiskverðsákvörðun, segir Óskar Vigfússon „Það eru aðeins tvö félög sem ekki hafa veitt okkur umboð til að segja upp gildandi kjarasamning- um en við erum komnir með umboð 30 félaga og deilda," sagði Óskar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambands íslands, í samtali við DV. Óskar sagði að þessi tvö félög, sem ekki hefðu enn sent inn umboð, myndu gera það fyrir mán- aðamótin. Aðspurður hvort Sjómannasam- bandið myndi segja samningunum upp um leið og öll félögin hefðu veitt því umboð til þess sagöist hann ekkert geta um það sagt á þessu stigi. „Þaö er aftur á móti ljóst aö það er nauðsynlegt fyrir okkur aö hafa þetta umboð í höndunum ef aftur verður vegið að sjómannastéttinni við fiskverðsákvörðun 1. júní næst- komandi eins og gert var um áramótin,“ sagði Oskar Vigfússon. Þar sem verð á fiskafurðum hefur lækkað verulega erlendis í vetur, bæði á frystum fiski og saltfiski, má gera ráð fyrir gífúrlegum átök- um, þegar nýtt fiskverð verður ákveðið, en núverandi fiskverð gildir til 1. júní. Sumir halda þvi fram að þá muni eiga sér stað mestu átök um fiskverð sem nokkru sinni hafi átt sér stað. -S.dór . t Vestmannaeyjar: Snótarkonumar mættu í morgun Ómar Gardarsson, DV, Vestmannaeyjum: í morgun var eðlileg mæting hjá fiskvinnslukonum hér í Eyjum, þær mættu til vinnu sinnar en í gærmorg- un sátu þær flestar heima. Þegar blaðamaður kannaði mætingu þeirra þá í fjórum stærstu frystihúsunum kom i ljós að í ísfélaginu hafði engin mætt, tvær voru mættar í Hraðfrysti- stöðinni en í þessum stöðvum er venjulega 50-60 konur að störfum á morgnana. Hjá Vinnslustöðinni var heldur betri mæting en flestar konur voru mættar í Fiskiðjuna eða 15. í báðum þessum stöövum eru konur yfirleitt um sextíu. Þær mættu hins vegar í flestar stöðvarnar eftir hádegiö en lökust var mæting í Vinnslustöðinni. Þar héldu konur áfram mótmælum sínum og hittust nokkrar á veitinga- stað eftir hádegi í gær. Vilborg Þorsteinsdóttir, formaður Verka- kvennafélagsins Snótar, segir að þessar aðgerðir hafi verið félaginu óviðkomandi en greinilegt að með þessu séu konurnar að reka á eftir í samningamálunum. Þá má geta þess að í dag verður sameiginlegur fundur verkalýðsfélaganna í Vestmannaeyj- um þar sem Akureyrarsamningur- inn verður borinn undir atkvæði. Ráðstefna um uppeldi og menntun forskólabarna verður haldin á Holiday Inn dagana 14.-16. apríl. Það er Fóstrufélag íslands sem gengst fyrir ráðstefnunni og er markmið hennar að vekja athygli á, og koma af stað umræðu um gildi dagvistar- heimila fyrir börn og þjóðfélagið í heild. Ráðstefnan verður sett fimmtudaginn 14. apríl klukkan 14:00. nánari upplýsingar veita Selma Dóra Þorsteinsdóttir hs. 72337, vs 27610 og Guðrún Alda Harðar- dóttir, hs. 45672, vs. 641112. Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði heldur sínar árlegu söng- skemmtanir fyrir styrktarfélaga og aðra velunnara. Að þessu sinni verður sungið í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði dagana 13. og 14. apríl klukkan 20:30 og 16. apríl kl. 17:00. Á efnisskrá er bæði innlent og er- lent efni. Má þar nefna verk eftir höfunda svo sem Jón Þórarinsson, Áma Björns- son, Pál ísólfsson, Pál Halldórsson, P.E. Lange Múller, R. Schumann og Emst Fisher. Stjómandi kórsins er Kjartan Sig- urjónsson. Fundir Digranesprestakall Kirkjufélagsfundur verður í safnaðar- heimilinu við Bjamhólastíg, fimmtudag- inn 14. apríl kl. 20:30. Doktor Sigurbjöm Einarsson biskup verður gestur fundar- ins, kaffiveitingar. Safnaðarfélag Ásprestakalls heldur fund í safnaðarheimilinu mánu- daginn 18. apríl n.k. á fundinn kemur Samúel Ólafsson og segir frá starfmu í Afríku og sýnir myndir þaðan. Mætum öll. Lyftingadeild KR Aðalfundur lyftingadeildar KR verður miðvikudaginn 20. apríl kl. 20:00 í félags- miðstöðinni við Frostaskjól. Fundarefni venjuleg aðalfundarstörf. Ómar Garðaxsson, DV, Veatmannaeyjum: Yfirvinnubann Verkalýðsfélags Vestmannaeyja kom til fram- til þess að nokkrum fiskverkunar- kvæmda kl. 17 í gær þegar félags- húsum var lokaö, meðal annars menn lögðu niður vinnu. Þaö varð ísfélaginu. —• Kvikmyndir Bíóborgin/Fullt tungl: AF hverju elta karlar konur? Bandarisk MGM mynd frá 1987 Framleiðendur: Pafrick Palmer og Nor- man Jewison Leikstjóri: Norman Jewison Kvikmyndataka: David Watkin Handrit: John Patrick Shanley Aðalhlutverk: Cher, Nicholas Cage, Vincent Gardena, Olympia Dukakis ...af því þeir eru hræddir við dauðann...“ Þetta er ein skýringin á framhjáhaldi karlmanna í kvik- myndinni Fullt tungl (Moonstruck) sem aldeilis fékk lof á Óskarshátíð- inni á dögunum, en hún var útefnd til 6 verölauna og hreppti tvö; Cher fyrir aðalhlutverk og Olympia Dukakis fyrir aukahlutverk. Sú gamla þjóötrú, aö fullt tungl hafi áhrif á hita tilfinninganna, fær byr undir báða vængi í kvikmynd- inni Fullt tungl. Efnislega er þetta tímaþær mynd, í allri umræðunni að undanförnu um framhjáhald karla og kvenna í kjölfar kvik- myndarinnar Fatal Attraction. Kannski að'skýringanna sé einmitt að leita í gangi himintunglanna? En hvað sem því líður segir sagan frá 37 ára gamalli ekkju sem ætlar að ganga í það heilaga á nýjan leik (ekki af ást). Fyrir valinu varð 42ja ára mömmustrákur sem ætlar að bíða dauða móður sinnar áður en hann gengur í hnapphelduna. Hann biður sína tilvonandi í milli- tíðinni um að bjóða bróður sínum í veisluna og þar með að ljúka nokkurra ára óvinsemd á milli bræðranna. En sú ákvörðun dreg- ur dilk á eftir sér, ekki síst vegna þess að fullt tungl er á næsta leiti (sönn ást eða losti nær yfirhönd- inni). Áhrifa tunglsins gætir ekki bara þar, heldur meira og minna innan íjölskyldunnar (sem er af ít- ölskum uppruna og blóðheit að auki) og eykur líf í limum flestra. Fullt tungl er bráðskemmtileg ástarsaga þar sem mikið er „nostr- að“ við smáatriðalýsingar. Hún er mannleg og hnyttin, og á allt lof skilið. Óskarsverðlaunahafarnir tveir sýna bráðgóðan leik sem og aðrir sem í henni leika, Nicholas Cage þar manna bestur. Handrit og leikstjórn eru einnig eins og best verður á kosið. Að þessari mynd ólastaðri verð ég aö leyfa mér að efast um faglegt gildi Óskarsverðlaunanna nú sem oft áður. Þau báru óneitanlega keim af mikilli gleymsku í garð þeirra mynda sem fyrr litu dagsins Íjós á árinu. Og þær raddir verða æ háværari að peningafnyk leggi af. Því veröur að segjast að Fullt tungl hafi verið rétt mynd á réttum tíma. -GKr Frönsk kvikmyndavika ’88 Ógöngur/Le lieu du crime Frönsk 1986 Leikstjóri: André Téchiné Tónlist: Philippe Sarde Aöalhlutverk: Catherine Deneuve, Vict- or Lanoux, Danielle Darrieux, Wadec Stanczac Kvikmyndin Ógöngur, sem sýnd er á franskri kvikmyndaviku í Regnboganum um þessar mundir, er ágætt dæmi um „sálfræðiþrill- er“. Myndin gerist í smáþorpi í nágrenni Toulouse og fjallar um Tómas, 14 ára gamlan ungling. Tómas kemst í kynni við tvo strokufanga og er annar þeirra helst á því að drepa hann til aö hann segi ekki til þeirra. Svo fara leikar aö föngunum sinnast og end- ar með því að annar þeirra, Martin að nafni, myrðir hinn og bjargar þar með lífi Tómasar. Þar meö upphefst mikill darrað- ardans og endar með því aö Lili, móðir Tómasar ákveður að hlaup- ast á brott með Martin. Áður en til þess kemur myrðir fyrrum unn- usta Martins hann. Eins og sjá má af framansögðu er nóg að gerast í þessari mynd, og snerta þessir atburðir sálarlíf Catherine Deneuve. persónanna djúpt. Leikstjórinn leitast við að lýsa þessum.áhrifum með sérkennilegri lýsingu, t.d. er eitt atriði myndarinnar öðru minnisstæðara, en eina lýsingin er 8 millimetra kvikmynd sem verið er að sýna, og eru andlit leikenda lýst upp með þessari kvikmynd. Einnig er óspart farið aftur í tím- ann og liönir atburðir notaðir til að skýra atburðarás. André Téchiné, sem raunar er gestur kvikmyndavikunnar, tekst þarna að skapa spennandi „þrill- er“ og með því að færa sér í nyt sálarangist persónanna skapast heldur nöturlegt umhverfi. Sér- staklega tekst vel upp með hlutverk hinnar ógæfusömu unnustu, sem fremur að lokum sjálfsmorð. Því miður tókst ekki að útvega textað eintak af þessari mynd, þannig að menn verða að vera slarkfærir í frönsku til aö níóta hennar. En það er alveg óhætt að hvetja þá til að fara aö sjá myndina. -PLP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.