Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 13. APRlL 1988. LffsstOl Eigin pökkun: Neytandinn þarf ekki að greiða auglýsingakostnað DV hefur sagt frá því hvernig Hagkaup lækkar vöruverð með því að flytja inn vörur beint, án þess að fara í gegn um heildsala. Þannig sparast umboðslaun og verðið lækkar eftir því. Mikligarður sinnir eigin inn- flutningi lítið um þessar mundir, þótt alltaf slæðist inn ein og ein vörutegund sem verslunin flytur inn sjálf. Skemmst er að minnast Neytendur frönsku páskaeggjana sem voru á mun lægra verði en önnur sam- bærileg páskaegg á markaðnum. Þess í stað lætur verslunin pakka fyrir sig ýmsum vörum undir eigin nafni. Þannig tekst að lækka vöru- verð, því með þessu sparast stórfé sem annars færi í þann kostnað að auglýsa upp ákveðin vörumerki. Og dæmin hér á síðunni sýna að þessi munur er í mörgum tilfellum verulegur. Með því að leita uppi slíka vöru sparar neytandinn sér því stórar fjárhæðir, því oft er hann ekki að borga fyrir neitt annað en þekkt vörumerki og htríkar umbúðir, þótt stundum geti verið um ein- hvem gæðamun að ræða. “'Sb l| n.. wá !f. E| # ^2 Ur Miklagarði Pakki með 250 grömmum af döðlum frá Eureka kostar 112 kr., en jafn- stór pakki merktur Miklagarði kostar kr. 53,50. Mikligarður hefur til þessa ein- beitt sér að því að pakka á þennan hátt ýmsum bökunar- og hreinlæt- isvörum, en ekki er ólíklegt að slíkt fari vaxandi, enda sýnir þróun er- lendis að þetta getur verið mjög raunhæf leið til að lækka vöruverð. Má í þessu sambandi geta þess að í Þýskalandi er starfandi verslun- arkeðja sem byggir sín viðskipti eingöngu á slíkri vöru, allt sem sú verslun selur er í eigin pökkun, og býður engin verslun jafnlágt verð og þessi. Mikil samkeppni er nú í verslun með matvörur hér á landi og hart bitist um kúnnann. Þetta hefur aðallega komið fram í síminnkandi álagningu verslana, en á meðan hafa heildsalar lítið þurft að minnka sína álagningu. Þessi sam- keppni hefur einnig leitt til aukins auglýsingakostnaðar og er ekki ólíklegt að neytendur borgi þann kostnað áður en yfir líkur, þótt aukin sala minnki hann að sjálf- sögðu. Það er því greinilegt að eigin ekki óvarlegt að ætla að slíkt skili innflutningur, og/eða eigin pökk- sér til neytenda í lægra vöruyerði un, kemur til með að fara vaxandi í framtíðinni. í framtiðinni hjá stórmörkuðum og -PLP Fleiri hreinlætisvörur. Lítri af mýk- Lítrinn af hreingerningalegi frá ingarefni frá Miklagarði kostar kr. Miklagarði kostar kr. 66,90, meðan 58,80, meðan Plús mýkingarefni i 500 ml frá Ajax kosta kr. 59,50. sama magni kostar kr. 74,80. Munurinn er áþreifanlegur á klósettrúllum. Pakki með fjórum slíkum, merktur Miklagarði, kostar kr. 69,90, meðan fjórar Leni-rúllur kosta 112 kr. Kókosmjöl frá Flóru kostar 84,40, en frá Miklagarði kostar það 32,70 kr. DV-myndir BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.