Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1988. 19 Skotglaðir unglingar Sviðsljós Ólyginn sagði... Hinn frægi djassgítarleikari Larry Carlton varð fyrir skotárás tveggja unglinga fyrir utan heimili sitt fyrir skönunu og liggur talsvert slasaður á spítala. Hann var að koma að heimili sínu í Hollywood þegar tveir ungir menn hófu skot- hríð að honum, að því er virðist gersamlega að ástæðulausu. Þegar síöast fréttist höfðu þeir ekki náðst og ekkert er vitað um ástæðu verknaðarins. Larry Carlton, sem er fertugur að aldri, fékk nú nýlega grammy- verðlaun fyrir útsetningu sína á lagi Doobie Brothers, „Minute By Minute“. Hann hafði áður hlotiö grammy-verðlaun fyrir aðra út- setningu sína. Carlton hefur starf- að með mörgum frægum lista- mönnum eins og Barbru Streisand og Joni Mitchell. Djassgitarlelkarinn Larry Carlton liggur þungt haldinn á spítala eftir tilefnislausa skotárás tveggja unglinga í Los Angeles fyrir skömmu. Michael Jackson og Jackie Onassis hafa lengi verið góðir kunningjar en þó aldrei meira en það. Michael hefur und- anfarið verið önnum kafinn við aö skrifa endurminningar sínar og minnist þar heilmikið á sam- band sitt við Jackie. Þar gefur hann sterklega í skyn að sam- band þeirra hafi verið mjög náið, en það líkar Jackie Onassis ekki alls kostar vel og yrðir ekki á þennan fyrrum vin sinn þessá dagana. Aldraðir föndra á Djúpavogi Elisabeth Manley Siguröur Ægissan, DV, Djúpavogi Á Djúpavogi vantar tilfmnanlega dvalarheimih fyrir aldraða. Er nú mikill hugur í fólki að reyna að bæta úr þessu og er í gangi undirskrifta- Usti sem stuðningsmenn dvalar- heimihs á staðnum eru beðnir að rita nöfn sín á. Er sagt aö allir íbúar Beruneshrepps hafi skrifað sig á Ust- ann en það segir betur en mörg orð hver áhugi fyrir þessu er. Þá hefur mikhl fjöldi Djúpavogsbúa ritað nöfn sín þar á. Einn kennara grunnskólans hér á Djúpavogi, Erla Ingimundardóttir, hefur verið með kvöld fyrir aldraða hálfsmánaðarlega í vetur og þar hef- ur ýmislegt verið gert til skemmtun- ar, föndrað ýmislegt og lesið. Sama mun hafa verið uppi á teningnum í fyrravetur. Er látið vel af þessu fram- taki. Unnið við keramik. DV-myndir Sigurður Ægisson. Fyrrverandi hreppstjóri, Elis Þórarinsson, er einn af þeim sem mætt hafa á þessi kvöld fyrir aldraða hjá Erlu Ingi- mundardóttur. Flaug yfir þver Banda- ríkin Þeir gerast sífeht yngri flugmennirnir í heimin- um, en hætt er við að flugmaöurinn, sem hér sést á myndinni, fái ekki að fljúga farþegaflugvél fyrr en eftir nokkur ár. HæfUeikana vantar þó ekki heldur frekar nokkur ár því hann er einung- is níu ára gamah. Hann vann þó það afrek fyrir skömmu að fljúga þvert yfir Bandaríkin og er þar með yngsti flugmaðurinn sem það hefur gert. Hann heitir Tony Ahengena og er þarna staddur á Santa Ana flugvellinum í Kalifomíu að lokinni vel heppnaðri flugferö. - kanadíska stúlkan sem fékk silfurverðlaun á vetrarólympíu- leikunum í hstdansi á skautum - hefur lengi ahö með sér draum. Hann er sá að leika mestu skauta- drottningu allra tíma, Sonju Henie hina norsku, í kvikmynd um ævi hennar. Eftir frammi- stöðu sína á ólympíuleikunum hafa möguleikar hennar aukist talsvert og eru nú viðræður í gangi um hvort það sé mögulegt. Katarina Witt - sem fékk gulhð í hstdansi á skautum í Calgary - á sér aödá- anda. Það er söngvarinn Michael Jackson sem er svo hrifinn af henni að hann vih semja lag fyrir hana og gera myndband með henni þar sem hún sýnir kúnstir á skautum. Þjálfarar hinnar aust- ur-þýsku Katarinu; sem annars eru rpjög strangir, eru að velta þessu tilboði alvarlega fyrir sér þar sem mikhr peningar eru í boði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.