Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1988.
5
Fréttir
Þykkvabæjarkartóflur:
/
Beita bændur
refsiaðgerðum
Fimm bændur fá ekki uppgert fyrir desember og engin dreifing
Þykkvabæjarkartöflur hf. hafa
ekki enn gert upp desembersölu
sína upp við þá fimm bændur sem
neituðu að auka hlutafé sitt í fyrir-
tækinu um síðustu áramót. Þeir
bændur, sem keyptu aukið hlutafé,
hafa hins vegar fengið uppgert.
Fyrirtækið virðist því vera að beita
þá bændur, sem ekki höfðu trú á
hlutafjáraukningunni, hefndarað-
gerðum.
Magnús Ársælsson, bóndi í Há-
koti, sagði í samtali við DV að hann
hefði, ásamt fjórum bændum öðr-
um, fengið endurskoðanda til þess
að meta reikninga fyrirtækisins
fyrir árið 1987. í þeim kom fram
að eigið fé fyrirtækisins væri neik-
vætt um 17 milljónir króna. Stuttu
áður hefði Jón Magnússon, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, sent
frá sér bráðabirgðatölur þar sem
eigið fé var talið neikvætt um 1,2
milljónir króna. Endurskoðandinn
hafði talið að fyrirhuguð 12 milijón
króna hlutafjáraukning væri allt
of lítil. Hún myndi ekki nægja til
þess að rétta við fyrirtækið. Bænd-
urnir hefðu því ákveðið að hætta
ekki sínu fé í þessa tilraun.
Viðbrögð framkvæmdastjórans
viö þessari ákvörðun var að rifta
sölusamningum við bænduma.
Þeir vora til fimm ára og enn langt
þar til þeir rynnu út. Vegna þessa
geta bændurnir ekki dreift kartöfl-
um sínum. Bæði er að dýrt er að
kaupa sig inn í annað dreifingar-
fyrirtæki og eins er allt of mikið
af kartöflum í landinu og því vart
rúm fyrir nýja félagsmenn í öðrum
fyrirtækjum.
Þann 15. mars var síðan gjalddagi
á skuld Þykkvabæjarkartaflna við
bændur vegna sölu í desember. Þá
bar svo viö að fyrirtækið lét víxla
þessara fimm bænda falla, þótt það
stæði í skilum við þá sem keyptu
hlutafé. Samtals nemur skuld fyr-
irtækisins við bænduma um 500
þúsund krónum. -gse
Beltagrafan vinnur að dýpkun hafnarinnar. DV-mynd Sig. Ægisson
Djúpivogur
Smábátahöfnin dýpkuð
Sigurður Ægissan, DV, Djúpavogi:
Verið er að dýpka smábátahöfnina
hér á Djúpavogi og er það verk unn-
ið með beltagröfu. Var orðin full
nauðsyn að stækka viöleguláss smá-
bátanna því að um 35 trillur munu
hafa landað afla hér í fyrrasumar og
gert er ráö fyrir einhverri fjölgun
þessara báta nú í sumar.
Að sögn Ólafs Ragnarssonar þarf
einnig nauðsynlega að dýpka við
hafskipabryggjuna. Er höfnin þar nú
svo grunn orðin að togari staðarins
þurfti að bíða flóðs um daginn til að
komast að bryggju.
Poppinnflytjendumir Splrt:
Skulda borginni
rúrna milljón
vegna Boy George
Úrskurður BHMR
er okkur í hag
,JÉg hef sagt mina skoðun í
þessu máli og ef framkvæmda-
stjórn Sjónvarpsins á að koma
saman á sérstökura fundi á
fimmtudaginn út af þessu máli
þá vona ég að hún komist að nið-
urstöðu í samræmi við dóm
Iaganefhdar BHMR sem er búin
að úrskurða að aðgerðir frétta-
manna séu sanngjamar,“ sagði
Ingvi Hrafn Jónsson, fréttastióri
Sjónvarpsins. Ingvi Hrafn sagði
að þessi úrskurður væri sigur
fyrir sig og fréttamenn og með
honum væru aðgerðir aöstoðar-
framkvæmdastjórans gerðar
ógildar.
Um afstöðu útvarpsstjóra í
þessu máli sagöi Ingvi Hrafn að
hann hefði fengið bréf frá Mark-
úsi Emi fyrir páska þar sem
innihald viðtalsins í Nýju lífi
hefði verið rætt. Annaö vissi
hann ekki um afstöðu útvarps-
stjóra. -SMJ
Fyrirtækið Split, sem flutt hefur
inn erlendar poppstjörnur, skuldar
æskulýösráði eina milijón króna.
Það er vegna húsaleigu fyrir Laugar-
dalshöli vegna tónleika Boy George
og vegna tækjaleigu fyrir sömu tón-
leika en einnig vegna leigu á tækjum
í tengslum við tónleika Cocks Robin.
„Það er búið að sýna þeim alltof
mikla biðlund, þolinmæði og sam-
starfsvilja. Þeir skulda ennþá húsa-
leigu upp í Reiðhöll. Þeir virðast telja
sig geta labbað á milli húsa og skilið
eftir sig skuldahalann," sagði Ómar
Einarsson, framkvæmdastjóri
Æskulýðsráðs, um forráðamenn
Spht.
Ómar sagði að þessi skuld yrði inn-
heimt með þeirri hörku sem þyrfti.
Þegar hann var spurður hvort þeim
yrði ekki sýnd velvild vegna menn-
ingargildis starfseminnar sagði
Ómar: „Ég er ekki þeirrar skoðunar
að hægt sé aö flokka það sem þeir
fluttu inn í Laugardalshöll nú síðast
sem menningu, þótt margir popptón-
listarmenn geti fíokkast undir slikt.“
Aöstandendur Split eru tveir Eng-
lendingar, sem búsettir eru hér,
Bobby Harrison og Tony Sandy.
-gse
Tilkynning til söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að gjald-
dagi söluskatts fyrir marsmánuð er 15. apríl. Ber þá
að skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs
ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
FÓTAAÐGERÐARSTOFA
KRISTÍNAR
er flutt úr Hjallabrekku 2 að snyrtstofunni Hrund,
Grænatúni 1 Kóp. Opið frá kl. 13-18 virka daga.
SNYRTISTOFAN HRUND
Öll almenn snyrting. Vorum að byrja með líkams-
nudd og sogæðanudd. Erum með 20% afslátt af
ilmvötnum, rakspírum o.fl.
FÚTAAÐGERÐARSTOFA SNYRTISTOFAN
KRISTÍNAR HRUND
SÍMI 43434 SiMI 44025
Aðalfundur
Samvinnubankans
Aðalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður hald-
inri að Hótel Sögu, Átthagasal, Reykjavík, á morgun
fimmtudaginn 14. apríl 1988 og hefst kl. 14.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð fram til-
laga um heimild til bankaráðs um útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða
afhentir á fundarstað.
Bankaráð Samvinnubanka íslands hf
Tilboð óskast í neðanskráðar bifreiðar sem hafa
skemmst í umferðaróhöppum.
Toyota Corolla 1987
Peugeot 205 1987
Citroen BX 14E 1987
Skoda 120L 1986
Skoda 130 1986
Honda Quintet 1982
Citroen Axel 1986
Citroen GSA Pallas 1982
Citroen GSA Pallas 1982
Fiat 127 1982
Daihatsu Charade 1981
Fiat 131 1980
Lada 1979
Yamaha C540 snjósleði 1984
Bifreiðarnar verða til sýnis fimmtudaginn 14. apríl í
Skipholti 35 (kjallara) frá kl. 10-16. Tilboðum ósk-
ast skilað fyrir kl. 17.00 sama dag til bifreiðadeildar
Tryggingar hf„ Laugavegi 178, Reykjavík, sími
621110.
VERNDGEGNVÁ
TRYGGING HF
LAUGAVEG1178 SIMI621110