Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1988.
9
lSHHAD
iKÝPUR
p/ALGEIRSBORG
Wrokkó n
TEHERAN
KUVVAIT
Útlönd
Amerísk pitsa í Moskvu
Moskvubúar gæða sér þessa
dagana á bandarískum skyndi-
bitum, meðal annars á pitsu sem
seld er úr vagni á strætum Lenin
hæðanna.
Matsala þessi er liður í sameig-
inlegu viðskiptaátaki Sovét-
manna og Bandaríkjamanna.
Átak þetta á að aðstoða við að
auka samskipti þjóðanna tveggja,
en hvort það verður til þess að
auðvelda samskipti ráðamanna
þeirra skal ósagt látið.
Tuttugu og þrír fórust
Taliö er að tuttugu og þrír hafi
farist þegar DC-3 flugvél fórst
skammt suður af Jóhannesar-
borg í Suður-Afríku í gær.
Vélin, sem var í leiguflugi,
hrapaði nálægt gullnámum en
hún var á leið frá Bloemfontein
til Jóhannesarborgar.
Tuttugu og
sjö myrtir
Lík átján landbúnaðarveVka-
manna, sem rænt var í Kolumbíu
nýverið, fundust í gær í norður-
hluta landsins. Þar með er Ijóst
að tuttugu og sjö manns hafa lát-
ið lífið í árás þeirri sem vopnaðir
menn gerðu á bananaplantekrur
í norðurhluta Kolumbíu á mánu-
dag.
Árásin var gerð síðdegis á
mánudag og myrtu árásarmenn-
irnir þegar í stað niu manns.
Átján voru bundnir og fluttir á
brott.
Þegar likin fundust í gær voru
hendur þeirra bundnar, ljóst var
að mennirnir höfðu verið pyntað-
ir og síðan skotnir í bakið.
Skotinn af
félögum sínum
Svo virðist sem varðmaðurinn
úr landgönguliði bandaríska flot-
ans, sem skotinn var til bana í
Panama á mánudagskvöld, hafi
orðið fyrir skoti úr byssu eins af
félögum sínum.
Landgönguliðinn var ásamt
öðrum bandarískum landgöngu-
liðum að leita að fólki sem komist
hafði inn á svæði þar sem banda- *
ríski herinn í Panama geymir
miklar birgðir af eldsneyti. Tals-
maður bandaríska flotans sagði í
gær að svo virtist sem maöurinn
hefði látið lífið fyrir slysni.
Talsmaður stjórnvalda í Pan-
ama sagði í gær að ljóst væri að
maöurinn hefði látið lífiö vegna
þess að bandarískir hermenn
kynnu ekki til verka. Sagði hann
að kunnáttuskortur þeirra ætti
eftir að kosta fleiri mannslíf.
Kyrrahaf
Venezuala
Brasilía
Flugvélin lenti fyrst í Mashhad i íran, þaðan var haldið áleiðis til Beirút, en þegar heimild til lendingar fékkst ekki var flogið til Larnaca á Kýpur. í gærkvöld
fór þotan svo þaðan til Aisir og er nú á flugvellinum í Algeirsborg.
Telja lausn flug-
ránsins í sjónmáli
Embættismenn í Alsír eru nú von-
góðir um að þeim takist að ná
samningum við flugræningjana sem
í síðustu viku rændu Boeing 747 far-
þegaþotu frá flugfélaginu í Kuwait.
Einn af ráðherrum ríkisstjómar
Kuwait fór í morgun um borð í þot-
una, eftir að hún kom til Algeirs-
borgar, og átti fjörutíu og átta
mínútna langan fund með flugræn-
ingjunum. Eftir fundinn sagöi als-
írskur embættismaður að fréttir af
fundinum væra mjög góðar. Útvarp-
ið í Alsír sagði einnig í morgun að á
flugvellinum væri fastlega búist við
að eitthvað’gerðist í samningamálum
áður en langt um liði.
Flugræningjarnir fcngu í gær kröf-
um sínum um að eldsneyti yrði sett
á þotuna framgengt, eftir að þeir
höfðu sleppt tólf farþegum þotunnar
úr gíslingu. Eftir eldsneytistökuna.
hélt þotan frá Larnaca áleiðis til Als-
ír, þar sem hún lenti á flugvellinum
í Algeirsborg í nótt.
Stjómvöld í Alsír sendu þegar
Talsmaður frelsissamtaka Palest-
inu, PLO, ræðir við flugræningja í
dyrum þotunnar í gær.
Simamynd Reuter
Þrír gíslanna, sem látnir voru lausir
í Larnaca í gær, ánægðir með frels-
ið. Simamynd Reuter
■
■
mmm
m
Flugvélin lendir i Algeirsborg í nótt með þrjátíu og tvo gísla innanborðs.
Einn gíslanna, sem sleppt var úr haldi á Kýpur, fluttur á brott frá flugvellin-
um í Larnaca. Simamynd Reuter
samninganefnd á vettvang, undir
forystu El-Hadi Khediri innanríkis-
ráðherra. Að sögn sjónarvotta ók
innanríkisráðherrann í skjóli myrk-
urs upp að þotunni, þar sem hún stóð
á hliðarbraut á flugvellinum.
Skömmu síðar kom innanrikisráð-
herrann til baka ásamt tveim
óþekktum mönnum sem fóru um
borð í flugvél forseta Alsír og flugu
á brott í henni.
Ekki var Ijóst í morgun hvort
mennimir tveir voru úr þotunni sem
rænt var né heldur hvert þeir voru
að fara.
Sem kunnugt er hafa flugræningj-
arnir krafist þess að sautján arabísk-
ir fangar i Kuwait verði látnir lausir,
þar á meöal þrír menn sem hafa ve-
rið dæmdir til dauða. Stjórnvöld í
Kuwait hafa alfariö hafnað öllum
samningum um lausn fanganna.
Samninganefnd sú frá Kuwait, sem
undanfama daga hefur reynt að ná
sambandi við flugræningjana um
borð í þotunni á Larnaca-flugvelli á
Kýpur, hélt í gær áleiðis á eftir þot-
unni til Algeirsborgar.
Einn af helstu aöstoðarmönnum
forseta Alsír hét því á fundi með
fréttamönnum í morgun að lausn
myndi finnast á flugráninu. Samn-
ingaumleitanir hófust um talstöð,
milli alsírskra stjórnvalda og flug-
ræningjanna, um leið og þotan var
lent í Algeirsborg. Skömmu síöar fór
innanríkisráðfierrann, sem fyrr seg-
ir, út á flugbrautina að þotunni, og
var hon’um leiðbeint af aðila í stjórn-
klefa þotunnar, sem gaf ráðherran-
um ljósmerki þaðan.
Að sögn fréttamanna ríkir engin
spenna á flugvellinum í Algeirsborg.
Fréttamenn og stjórnarerindrekar
Simamynd Reuter
bíða þar í setustofu sem ætluö er
mikilvægum farþegum flugfélaga og
fáir öryggisverðir eru sjáanlegir.
Haft er eftir breskum stjómarerind-
reka þar að alsírsk stjómvöld hafi
greinilega komist að einhveiju sam-
komulagi við flugræningjana þótt
ekki sé vitað hvert það samkomulag
er.
. Sem kunnugt er var farþegaþot-
unni frá flugfélagi Kuwait rænt á
þriðjudaginn fyrir viku þegar hún
var á leið frá Bangkok til Kuwait.
Hundrað og tólf manns voru í þot-
unni.
Flugræningjarnir neyddu flug-
stjórann til þess að fljúga til Mash-
had í norð-austanverðu Iran. Þar var
lent og dvalist í nær fjóra sólar-
hringa. í Mashhad slepptu flugræn-
ingjarnir fimmtíu og sjö farþegum
úr gíslihgu og fengu sett eldsneýti á
þotuna til áframhaldandi flugs.
Síðastliðinn fóstudag fóru flugræn-
ingjamir síðan frá Mashhad, áleiðis
til Beirút í Líbanon. Þar neituðu Sýr-
lendingar þeim um heimild til lend-
ingar og eftir nokkurt taugastríð, þar
sem flugræningjamir hótuðu að
brotlenda þotunni og Sýrlendingar
hótuðu á móti að skjóta hana niður,
var snúið áleiðis til Kýpur, þar sem
lent var í Larnaca á fóstudagskvöld.
Á Lamaca kröfðust flugræningj-
amir þess að fá eldsneyti á þotuna
til þess að geta flogið áleiðis til Kuwa-
it. Þeir myrtu tvo af farþegmn
þotunnar meðan á dvölinni á flug-
vellinum stóð, þann fyrri á laugardag
en hipn síðari á mánudag.
í gær fengu flugræningjamir svo
sett eldsneyti á þotuna, eftir að hafa
látið lausa tólf gísla. Um tíuleytiö að
staðartíma í gærkvöld hóf þotah sig
síðan á loft frá Larnaca og hélt áleið-
is til Algeirsborgar.