Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Qupperneq 16
16
Spumingin
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1988.
Spumingin
Ert þú hlynnt(ur) því að
hafa einvígi Jóhanns
Hjartarsonar og Karpovs
hér á landi?
Marta Hrafnsdóttir: Já.ég er hlynnt
því ef Jóhann hefur ekkert á móti
því.
Ólafur Th: Auðvitað er maður
hlynntur því en lokaorðið ætti að
koma frá þeim sjálfum. Helst vildi
ég hafa einvígið á Fáskrúðsfirði.
Erla Jónsdóttir: Eigum við ekki að
segja já til tilbreytingar.
Páll Svavarsson: Mér finnst að Jó-
hann Hjartarson eigi fyrst og fremst
að svara þessari spurningu.
Sigurður Gunnarsson: Já, auðvitað
er ég hlynntur því.
Guðrún Magnúsdóttir: Já, það yrði
góð auglýsing fyrir landið.
Lesendur
Fá tryggingariðgjöld af dráttarvélum bænda sérstaka meðferö?:
Slysahætta á túnum jafht og götum
Sighvatur skrifar:
Margir eru saltvondir þessa dag-
ana vegna trygginga af bifreiðum og
öðrum farartækjum. Allar öku-
tækjatryggingar hafa hækkað ótæpi-
lega og það með samþykki hins
opinbera, sem alltaf er að stæra sig
afþví að nú verði að halda í hækkan-
ir og spenna ekki bogann of hátt.
Og það lætur ekki aðeins hátt í bif-
reiðaeigendum, sem verða að greiða
stórfúlgur til tryggingafélaganna,
bændur eru einnig komnir í hópinn,
eftir að hafa fengið tryggingarið-
gjaldaseðla senda heim fyrir dráttar-
vélar sínar. Af þeim (dráttarvélun-
um) er slysahætta metin til jafns við
áhættu af bifreiðum og eru bændur
auk þess krafðir um framrúðutrygg-
ingu af dráttarvélum sínum.
Eg er nú í sjálfu sér ekki undrandi
þótt áhætta sé metin mikil af notkun
dráttarvéla, svo mörg slys sem hlot-
ist hafa af notkun þeirra undanfarin
ár. Hlutfallslega og miðað við fjölda
dráttarvéla og bifreiða hugsa ég að
slys hafl orðið meiri og alvarlegri,
t.d. á sl. tíu árum eða svo, af völdum
dráttarvéla en bifreiða.
En eftir að bændur fóru að kvarta
undan þessu, hefur Tryggingaeftirlit
ríkisins nú fengið málið til meðferðar
og fundar nú stíft um málið, sam-
kvæmt fréttum, með fulltrúum frá
Búnaðarfélaginu. - Ekki var tekið
jafnrösklega við sér hjá neinum aðil-
um, þrátt fyrir mótmæli bifreiðaeig-
enda á hækkun iðgjalda bifreiðanna.
Þaö skyldi þó aldrei verða, að bænd-
ur fái sérstaka meðferð í þessu máh
eins og á flestum öðrum sviðum!
Það yrði þó engan veginn réttlátt,
að bændur fengju einhvem sér-
stakan afslátt af tryggingum dráttar-
véla sinna, því slysahættan á
„túninu heima“, eins og einhvers
staðar var komist að orði, er ekkert
minni en á Hringbrautinni í Reykja-
vík, og venjulega verður dráttarvéla-
slys mun afdrífaríkara en minni
háttar árekstur á götum útí.
íslandsmeistarakeppni í samkvæmisdönsum:
umfjöllun
Guðný Isaksen hringdi:
Mér finnst furðulítíð hafa farið fyr-
ir umfjöllun íjölmiðla um meistara-
keppni hér á landi í samkvæmis-
dönsum sem haldin var í síðasta
mánuði. Flestir fjölmiðlar hafa alveg
látíð undir höfuð leggjast að segja
fréttir af þessari keppni. Eitthvað lít-
ils háttar var sýnt frá keppninni á
Stöð 2 og eitthvað sagt frá henni í
RÚV og annað hef ég ekki heyrt.
Þama er um að ræða fyrsta flokks
og viðurkennda dansara og er ekki
svo lítið fjallaö um dans í heiminum
nú á tímum að ekki hefði verið rétt-
lætanlegt að segja frá þessari keppni
í samkvæmisdönsum. Mikið hefur
verið fjallað um keppni í svokölluð-
um „free style" dansi og ekkert nema
gott um þaö að segja.
Ég skora á fjölmiðlana að vera bet-
ur vakandi yfir þessum þættí dans-
listar í framtíðinni og ekki væri
verra ef sjónvarpsstöðvamar sýndu
frá þessari keppni eða annarri svip-
aðri, því mjög margir em einmitt
hrifnir af þeim dansi sem flokkast
undir samkvæmisdansa.
Bréfritari skorar á fjölmiðla að vera betur vakandi yfir keppni í samkvæmis-
dönsum. - Frá alþjóðlegri keppni fyrir nokkrum árum.
Hvar fást gleðiperur?
Sighvatur hringdi:
Eg hringi til að koma á framfæri
og leita effir upplýsingum um
merkilegan hlut, sem kvað vera
kominn í umferð hér á landi, þótt
kannski sé ekki um almenna eign
að ræða enn sem komið er. - Hér
er um að ræða svokallaöar gleði-
perur sem eru notaðar á sama hátt
og aðrar perur, þ.e. í ljósastæði og
lampa, eöa annars stáðar þar sem
við verður komið.
Þannig frétti ég af þessu, að
kunningjahjón mín, sem voru í
fermingarveislu nú fyrir stuttu,
heyrðu konu eina segja frá því að
á heimili hennar væru þessar per-
ur í notkun í nokkrum lömpum og
Ijósastæðum og eru þær þeirri nátt-
úru gæddar, ef svo má að orði
komast, að við að horfa í perurnar
eða vera nálægt ljósinu frá þeim,
veröa þeir sem þaö gera svo léttir
í skapi og finnst allt svo undur létt
og þægilegt, að jafnvel hið geðstírð-
asta og aðskotaversta fólk verður
sem lömb í umgengni.
Var kunningjahjónum mínum
sagt að t.d. væri gott að hafa ljósin
kveikt þegar maðurinn kemur
heim úr vinnu á kvöldin eða kon-
an, þar sem þannig er ástatt að
bæði vinna utan heimilis, því þá
veittist þeim mun léttara aö sinna
þeim verkefnum sem framundan
eru. Einnig hefðu þau ávallt ljós á
náttborðslömpunum, þótt ekki
væri nema tíl þess aö geta liöið inn
í svefninn með sælubros á vör.
Nú heldur kannski einhver að
hér sé um einhvers konar gabb að
ræöa, en ég treysti kunningjum
mínum fullkomlega og veit að þau
fara ekki með fleipur að fyrra
bragði og því fyndist mér afar fróð-
legt að fá frekari upplýsingar um
þessar gleðiperur, t.d. hvar þær
fást og hvort nokkrar aukaverkan-
ir séu af notkun þeirra, o.s.frv.
Lesendasíða DV getur staðfest, að
orðrómurinn um þessar gleðiperur
er ekki bundinn við eina eða tvær
persónur, þær eru mikið ræddar í
boðum þessa dagana, og annars
staöar þar sem fólk kemur saman.
Mun verða reynt að fylgjast með
þessu máli, t.d. á vettvangi mann-
fagnaða, t.d. í fermingar-, skírnar-
og giftíngarveislum eða þar sem
búast má við að menn reifi þessa
nýlundu í tækni- og velferðarmál-
um.
Dýrt
rækju-
salat
G.K. hringdi:
Ég fer oft í verslunina Kaupstaö
til að versla og þar sem ég er nú
dálítill sælkeri þá kaupi ég stund-
um rækjusalat. í þessari verslun
kostar rækjusalatið 787 kr. kílóið.
í Hagkaupi kostar það hins vegar
498 kr. kg.
í flestum verslunum kostar
kílóið í krlngum 500 kr. Ég hef
spurt um ástæðuna fyrir því að
þetta er svona dýrt í Kaupstað og
verður svo sem ekki mikið um
svör við því, önnur en þau aö
rækjur séu bara orðnar svona
dýrar. En þar sem mér þykir
þetta mikill verðmunur finnst
mér ég ekki geta látið hjá liöa að
koma þessu á framfæri.