Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 13. APRlL 1988.
17
Lesendur
Hvað er orðið af heiðarieika og orðheldni?
Ein saga úr sveitinni
Guðmundur Jónsson, Bjamastöð-
um, Hvitársíðu, skrifar:
Það var niödimm nóvembemótt,
ein þeirra þegar svefninn er sætastnr
þeim er á honum þarf aö halda og
fátt eitt getm- raskað rónni. Þá er
barið aö dyrum, fyrst hógværlega en
síðan með vaxandi hávaða, líkt og
þegar leðurklæddum skófatnaði er
beitt á hurðina. Nú þýddi ekki lengur
að draga sæng yfir höfuð og látast
sofa.
Úti fyrir dyrum stóðu fjórir vask-
legir kaupstaðardrengir, kuldalegir
nokkuð, því það var norðannæðing-
ur með vaxandi frosti. - „Við erum
á leið á ijúpnaveiðar á Holtavörðu-
heiðinni og gistum í sumarbústaða-
hverfi hér fyrir innan. Það sprakk á
Land Rovemum okkar og varadekk-
ið er bilað. Geturðu lánað okkur
dekk?“
Hvað gerir maöur ekki fyrir ná-
ungann þegar vandræði steðja að?
Tæki og tól vom tínd saman í myr-
krinu, annað dekkið skrúfaö undan
heyvagninum því þaö virtist passa
undir farkost þeirra félaga. Ekki var
boðin greiösla og lítið fór fyrir þakk-
læti fyrir fyrirhöfnina, en einn þeirra
félaga sagði þó er þeir renndu úr
hlaði: „Við verðum áreiðanlega á
ferðinni um næstu helgi, þá komum
við með dekkiö til þín.“
Síðan þetta gerðist hafa liðið marg-
ar helgar og ekki koma félagamir
úr ijúpnaleiðangrinum, né heldur
dekkið. Úti í hlaðvarpanum stendur
heyvagninn eins og haltur hani og
minnir óþægilega á þetta atvik í
hvert sinn sem gengið er þar fram-
hjá.
Nú hef ég skrifað hjá mér skrásetn-
ingarnúmer á Land Rovemum, auk
þess veit ég nokkur deili á sumum
þeirra félaga er koma hér við sögu.
Enn ætla ég aö gefa þeim kost á aö
skila dekkinu. - Þaö mætti líka
hringja í síma 93-51426.
Pall Petursson og PLO:
Harðlvfi hjá íhaldinu
Norðlendingur skrifar:
Páll Pétursson, formaður þing-
flokks framsóknarmanna, kemst
oft skemmtilega að orði, er ómyrk-
ur í máli og virðist koma til
dyranna eins og hann er klæddur.
Páll hefur stundum ýtt ailmyndar-
lega við steinrunnum kaldastríðs-
mönnum, sem viðhalda ofstækinu
með aöstoð norskra sértrúar-
manna, raunar ofsatrúarmanna,
eins og Norðmönnum er einum lag-
iö, sbr. alla söfnuöina þar í landi.
Trúlega væri þaö mjög skynsam-
legt að hætta að kalla á þessa
pólitísku ofsatrúarmenn fbá Noregi
til þess aö æsa fólk hér upp og
hraeöa það með einhverri grýlu,
sem er ekki lengur nein grýla. Hins
vegar er þaö „Grýlan“ í Evrópu-
bandalaginu, sem menn ættu að
varast, og þá ekki síst Norðmenn.
Þeir ættu að þekkja gripinn.
Já, hann Páll hafði ekki áhyggjur
af því, þótt utanrikisráðherra tal-
aði við einhvem fulltrúa PLO, enda
væri það fjandi hart ef ráðherra
mætti ekki taka um þaö ákvarðan-
ir yálfur við hveija hann taiar.
Páll kvað þetta vera harðlífi hjá
íhaldinu og sagði, að Moggi hefði
haldið áfram að beijast í Víet-Nam,
löngu efdr aö Ameríkanar vora
farnir þaðan.
En nú bar svo við að Norðmenn
töluðu við PLO, þá var ekki vitnaö
til þessara ,.,frænda“ okkar um all-
ar jaröir. Þeir eru „frændur og
vinir“ í sálsjúkri pólitík og rússa-
hatri, og það er nóg. - Trúlega
væri best að láta „Nossarann" lönd
og leiö, hann er ekkert nema öfg-
arnar, og svo peningurinn.
^ „Kjaftfull fangelsi“ og „poppfígúran“ Boy George!:
Óvandað orðbragð í 19:19
Sig. Björnsson hringdi:
Eg hef orið þess var, að fréttaflutn-
ingur á Stöð 2 er með talsvert öðrum
hætti en hjá þeim á RÚV. Mér finnst
þessi mismunur felast í því, að þeir
hjá Stöð 2 eru oftast nær með meiri
og líflegri fréttir en gerist hjá RÚV
og eins talsvert lengri, þannig að
maður freistast til að sitja við, þar
til allt er búið, á kostnað „áhorfun-
ar“ hjá RÚV.
Það var rétt hjá Ingva Hrafni er
hann sagði á sínum tíma að sú stöð
sem væri með fréttir fyrr myndi hafa
talsveröa yfirburði á fréttasviðinu. -
Hins vegar er málfar, framsetning
og orðaval talsvert slakara hjá Stöð
2 en hjá RÚV og kannski einkum
vegna orðavals sem stundum er ekki
bjóðandi.
Nýlega var ég að hlusta á fréttir
Stöðvar 2 og voru þá tvö atriði sem
slógu mig dálítið. Annaö var er
fréttaþulur nefndi „poppfigúruna"
Boy George, í byijun fréttalesturs af
komu háns hingað til lands. Hitt var
frétt um fangelsismál í iandinu og
var sagt, að fangelsin væru nú öll
„kjaftfulT. Þetta er hvorugt bjóðandi
hjá almennri, opinni fréttastöð, sem
vill láta taka sig alvarlega.
Vonandi lagast þetta með tíð og
tíma og varla trúi ég öðru en forstjór-
inn sjálfur, sem er mikill kúltúrmað-
ur og að hluta til á franska vísu, sjái
ekki að svona orðaval er ekki til vin-
sældaauka. Það er skaöi með jafn-
góða sjónvarpsstöð að öðru leyti.
tmm • ngið x sima
2 7 0 2 2
milli Id. .4 % 13 ocr 15 eða skrifið
KYNNINGARSTÖRF
Við leitum að snyrtilegu og frambærilegu fólki til
- kynningarstarfa.
Um er að ræða hlutastörf. I boði eru góð laun og
gott samstarfsfólk.
Upplýsingar í síma 21518 á milli kl. 2 og 5 í dag og
á morgun.
Vörukynning og markaðssetning
VERKAMANNAFÉLAGIÐ DAGSBRÚN
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Dagsbrúnar verður haldinn í kvöld,
miðvikudaginn 13. apríl, kl. 20.30 í Átthagasal
Hótel Sögu.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffiveitingar.
Félggar fjölmennið.
Stjórn Dagsbrúnar.
\ ■&*
\ / llj ÍSLENSKAR GETRAUNIR
V H | Iþróttamiðstððinni v/Sigtún • 104 Reykjavik ■ Island • Sími 84590
GETRAUNAVINNINGAR!
21. LEIKVIKA 08.04.1988
VINNINGSRÖÐ 221 - XXI - 1X1 - 12X
1. VINNINGUR, 12 RÉTTIR, KR. 579.200,-
249471 (7/11)
2. VINNINGUR, 11. RÉTTIR, KR. 13.790,-
2303 42866+ 240180+249479+641216
40273 44005 232944* T01903 T01910 * = 2/11
Kærufrestur er til mánudagsíns 02.05.1988 kl. 12.00 á hádegi.
STARTARAR - ALTERNATORAR
ÞYRILL HF.
Skemmuvegl 6, Kópavogi.
Sími641266
DV hefur staðið í áralangri baráttu
við að fá Póst og síma til að sund-
urliða símareikninga. Það hefur
reynst torsótt en þó hillir undir
lausn á því máli einhvern tímann í
náinni framtíð.
Bandaríkjamenn láta ekki bjóða
sér símareikninga sem ekki eru
sundurliðaðir og eru þessi mál til
fyrirmyndar þar í landi. Fréttaritari
okkar í Bandaríkjunum segir les-
endum DV allt um sundurliðaða
símareikninga í Lífsstíl á morgun.
Silki er eitt af dýrari náttúruefnum
sem fyrirfinnst. Hægt er að rekja
notkun þess aftur til ársi-ns 2.640
f. Kr. þegar ung kínversk keisara-
ynja uppgötvaði hvernig mætti
rækta silkiorma og vefja örfínan
þráðinn utan af lirfuhýðinu.
(Lífsstíl á morgun verður fjallað
um sögu silkisins og litið inn hjá
ungum, innlendumfatahönnuði
sem handmálar silkiflíkur.