Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Qupperneq 33
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1988.
33
Lifsstm
Flísar hafa lækkað verulega
■
Nú er algengt að hol og eldhús séu sameinuð með flísum á gólfi. Gæta verður þess að ekki séu hafðar flísar
sem kvarnast upp úr þar sem hætta er á að hlutir detta í gólfið.
Um langan aldur hefur verið vin-
sælt og hagkvæmt að klæða herbergi
í hólf og gólf með flísum. Flísar eru
yfirleitt þannig úr garði gerðar að
gott er að reiða sig á endingu þeirra.
Steinefni eru jú alltaf þannig að erfið-
ara er að vinna á þeim heldur en
tréefnum eða öðru sem mýkra er.
Hér á landi hafa um margra ára
skeið gilt reglur þess eöhs að yfir-
valdið hefur talið flísar lúxus-vöru
og sett á flísamar tilheyrandi lúxu-
stoUa. Verð á flísum hefur því verið
langt umfram innkaupsverð þeirra
frá útlöndum eöa svokaUað fob verð.
Oft hefur verið talað um að fob verð
hafi 3-4 faldast þegar útsöluverö úr
verslun er komið á vöruna.
Tollar felldir niður
Nú hafa þessi formerki breyst að
aUverulegu leyti. LúxustoUar hafa
nú að miklu leyti verið feUdir niður
af fUsum. Þannig hefur verðið lækk-
að um 20-30%. 25% verðlækkun
heyrðist víða þegar DV fór á stúfana
og kannaði hve flísar hafa lækkað
mikið.
Flísar hvar sem er í íbúðinni
Þegar hugsað er til þess aö leggja
flísar, má segja að möguleikar hvað
það snertir séu allmargir. FUsar
passa á marga staði í híbýlum og
annars staðar að sjálfsögðu, s.s. í
verslunarhúsnæði, sundlaugar og á
óteljandi aðra staöi þar sem fólk hefst
við.
Að öðru leyti má segja að flísar
passi hvar sem er inni á heinúlum
fólks. Algengast hefur þó verið að
leggja þær á baöherbergi, hvort held-
ur er á veggi eða gólf. EðU flísanna
er þannig að þær þola vel bleytu og
gott er að þrífa þær. Slitþol þeirra
er einnig, eins og áður sagöi, gott.
Seljendur hafa margir talað um ei-
Ufðarendingu, þótt kannske sé nú
einum of djúpt tékið þar í árina. Þótt
flisar endist vel er enginn neyddur
til að hafa þær í híbýlum sínum tíl
ævUoka. Það mun ekki vera sérlega
erfitt að brjóta þær upp og setja eitt-
hvað annað í staðinn.
Flísar að verða áreiðanlegri
Sumir hafa rekið sig á, þegar þeir
hafa meðhöndlað flísar, að þeim hef-
ur veriö selt rangt Um með þeim.
Þetta atriði ber að athuga vel þegar
fólk ræðst í að fjárfesta í flísum.
Þá eru framleiðsluhættir að breyt-
ast og má segja aö meiri áreiðanleika
gæti nú varðandi endingu flísanna
en áður gerði. FUsar er hægt að fá
með marga eiginleika, svo sem frost-
heldar, hálkufríar og annað slíkt.
Þess ber að geta áð flísar eru í mörg-
um tiIfeUum framleiddar þannig að
þær fara í gegnum mikinn hita, 1200
gráður er t.d. algengt, þegar þær eru
framleiddar. Umfram aUt verður að
kanna vel hvað hentar viðkomandi
best þegar flísar eru valdar á gólf.
Áður en flísar eru lagðar
Ýmis atriði ber að hafa í huga þeg-
ar lagt er í flísalagningu. Fyrst og
fremst er gott aö leita sér eins fag-
legrar þekkingar og kostur er á.
Sölumenn hjá þeim fyrirtækjum sem
hafa flísar á boðstólum eru nokkuð
sérhæfðir, enda annaö ómögulegt
þar sem starfssvið þeirra spannar
ekki aðeins sölu á vörunni, heldur
einnig ráðleggingar til viöskiptavina.
Bæklingar hvers konar eru fáanlegir
þar sem gott er að fara eftir teikning-
um eða öðru slíku.
Talsvert hefur borið á því aö röng
Um hafi veriö notuð þegar flísar hafa
verið lagðar, eins og áöur sagði. Ekki
skal um það segja hvort það er vegna
þess að flísar og lím er keypt á sitt-
hvoram staðnum. Hins vegar er
ástæða til þess að vera vel á verði
þegar Um er vahð meö flísum.
Hver sem er getur lagt flísar
Hafir þú áhuga og smá lag, ert þú
á grænni grein hvað flísalögn snert-
ir. Einhverjum ákveðnum reglum
verður aUtaf að fylgja. Þær er alltaf
hægt að fá hjá sölumönnum. Það
getur nefnUega verið býsna dýrt að
fá fagmenn til þess að leggja flísar
fyrir sig. Kunnugir segja að þaö geti
náð flísaverðinu sjálfu, þannig að hér
er um tugi þúsunda að ræða hvað
vinnu snertir. Heyrst hafa tölur eins
og þaö kosti vel á annað þúsund
krónur aö leggja hvern fermetra af
veggflísum, en eitthvað minna sé um
gólf að ræöa. Þetta mun einnig vera
háð skurði á flísunum, hvort hann
Uggi beint fyrir eða hvort um flókna
skurði sé að ræða.
Þess má geta að þar sem flísaskerar
eru dýr tæki, sem sjaldan eru notuð,
getur varla borgað sig að kaupa slíkt.
Þetta hafa fyrirtæki komið auga á
og géfa sum þeirra kost á því að leigja
kaupendum sínum flísaskera á sann-
gjörnu verði sem enginn fmnur fyrir
miðað viö að kaupa sér einn slíkann.
Verðið
Um verð á flísum má styðjast við
tölur frá um 1.200 kr. og upp í um
2.000 kr. fyrir fermetrann. Hér er um
að ræða mismunandi gerðir flísa sem
henta á ólíka gólf- eöa veggfleti. Sum-
ir hafa borið verð flísa saman við
parket, sem auðvitaö er af allt öðrum
toga spunnið. Hins vegar eru þessi
tvö efni vinsæl til þess að leggja á
gólf. FUsar voru ívið og í mörgum
tilfeUum talsvert dýrari en parket.
Nú má hins vegar segja aö verð þess-
ara tveggja byggingarefna sé orðið
nokkuö svipað. Hins vegar má segja
það flísum í hag að þær ættu að end-
ast betur.
Flísar í eldhús
Á síðustu mánuöum hefur notkun
flísa aukist vegna hagstæðara vöra-
verðs. Það er því ástæða tfl að brýna
fyrir þeim, sem ætla að leggja flísar,
að vanda til vöruvals og innkaupa.
Talsvert hefur færst i vöxt að eld-
hús séu flísalögð. Þar sem yflrleitt
þykir gott að þrífa flísar hentar vel
að hafa þær í eldhúsi þar sem þó
nokkuð er um að óhreinindi setjist á
gólf. En það verður að gæta þess þeg-
ar flísamar era keyptar aö þær þoli
þaö álag sem þeim er ætlaö. Dæmi
eru um að flísar hafi verið lagöar á
eldhús og að fljótlega hafi farið að
kvarnast upp úr þeim og sár orðið
eftir. Það á ekki aö vera flóknara að
koma í veg fyrir slíkt en með einni
spurningu tii sölumanns. Alltaf verð-
ur að gera ráð fyrir að hlutir detti í
gólf í eldhúsum. Þær flísar sehi passa
fyrir slíkt eru auðvitað tfl og sérstak-
lega styrktar fyrir hvers konar
hnjask. -ÓTT.
Nýr 10 raða Lottómiöi
Leikurinn er óbreyttur, en nú eru 10 raöir á sama miöanum til hagræðingar fyrir alla Lottóleikendur.
. Eftir sem áöur er þér í sjálfsvald sett hve margar raðir þú notar hverju sinni.
Hærri vinningar!
Stórar fisar, 30x30 cm, er handhægt að leggja og auövelt aö þrífa.
Hærri vinningar!
Meö leiöréttingu (samræmi viö
verðlagsþróun munu vinningar
hækka aö meöaltali um 20% og er
þaö fyrsta veröbreyting frá því
Lottóið hóf göngu sína í nóvember
1986.
Hver leikröð kostar nú 30 krónur!
Nældu þér í nýjan miöa á næsta sölustað!