Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Síða 35
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1988.
35
Ingimar Ingimarsson
Ingimar Ingimarsson hefur verið í
fréttum DV vegna umræðna um
málefni fréttastofu Sjónvarpsins.
Ingimar er fæddur 7. ágúst 1952 á
Akureyri, var einn stofnenda og
fyrsti forseti Félags áhugamanna
um heimspeki 1975-1977 og lauk
BA prófi í heimspeki frá HÍ 1977.
Hann var við nám í Kaþólska há-
skólanum í Leuven í Belgíu
1977-1983, var stundakennari þar
1981-1982 og tók þar magisterpróf
í heimspeki. Ingimar var fréttarit-
ari Ríkisútvarpsins í Amsterdam i
Hollandi 1983-1984 og upplýsinga-
fidltrýi Eimskipafélagsins
1984-1985. Hann var fréttamaður
Ríkisútvarpsins 1985-1987 og hefur
verið aðstoðarframkvæmdastjóri
Sjónvarpsins frá 1. júní 1987.
Ingimar kvæntist 24. ágúst 1973
Hólmfríði Svavarsdóttur, f. 10. jan-
úar 1953, heimspekingi. Foreldrar
Hólmfríðar eru Svavar Júlíusson,
kaupmaður í Hafnarfirði, og kona
hans, Unnur Kr. Sveinsdóttir,
rannsóknarmaður á Rannsóknar-
stofnun iðnaðarins. Böm Ingimars
og Hólmfríðar eru Ingimar, f. 26.
september 1973, Brynhildur, f. 21.
janúar 1984, og Róbert, f. 4. janúar
1986. Systkini Ingimars eru Þor-
kell, f. 5. nóvember 1953, deildar-
stjóri á raftækjadeild Sambands-
ins, kvæntur Gunnþóru
Önundardóttur, deildarstjóra Toll-
stjóraembættisins; Björn, f. 30.
desember 1954, hagfræðingur, for-
stöðumaður íjárhagsdeildar SÍS,
sambýliskona hans er Helga Rolfs-
dóttir, félagsráðgjafi á Landspítal-
anum; Sigurgísh, f. 10. júní 1956,
tannlæknir í Garðabæ, sambýlis-
kona hans er Kristín Guðjónsdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur á
Landspítalanum, og Hrafnhildur,
f. 28. júní 1957; fóstra í Mosfellsbæ,
gift Bjama Oskarssyni veitinga-
manni.
Foreldrar Ingimars em Ingimar
Ingimarsson, prestur á Þórshöfn,
og kona hans, Sigríður Sigurgísla-
dóttir. Föðursystir Ingimars er
Arnþrúður,' móðir Arnars Jóns-
sonar leikara. Ingimar er sonur
Ingimars, b. og útgerðarmanns á
Þórshöfn, Baldvinssonar, b. á
Fagranesi á Langanesi, Metúsal-
emssonar, b. í Hamragerði Sigurðs-
sonar, umboðsmanns á Eyjólfs-
stöðum á Völlum, Guömundsson-
ar, bróður Páls, langafa Móeiðar,
ömmu Helga Skúlasonar leikara.
Móðir Ingimars Baldvinssonar var
Hólmfríður, systir Ingunnar,
ömmu Gylfa Þ. Gíslasonar og
Gunnlaugs Schevings listmálara.
Hólmfríður var dóttir Stefáns, um-
boðsmanns á Snartarstöðum,
Jónssonar, prests á Helgastöðum,
Stefánssonar. Móðir Jóns var Þur-
íður Jónsdóttir, systir Þorgríms,
langafa Gríms Thomsens. Bróðir
Þuríðar var Benedikt, langafi Jóns,
langafa Ingva Hrafns Jónssonar
fréttastjóra. Móðir Baldvins var
Guðrún Skúladóttir, systir Sveins,
langafa Kristjönu, móður Brynjólfs
Bjamasonar, forstjóra Granda.
Móðir Ingimars Ingimarssonar
var Oddný Árnadóttir, pósts á
Vopnafirði, Sigbjarnarsonar,
prests á Kálfafellsstað, Sigfússon-
ar. Móðir Sigbjarnar var Ingveldur
Jónsdóttir, prests í Þingmúlá, Hall-
grímssonar, bróður Þorsteins, afa
Jónasar Hallgrímssonar skálds.
Móðir Áma var Oddný Pálsdóttir
Thorarensen, prófasts í SandfeUi,
Magnússonar, klausturhaldara á
Munkaþverá, Þórarinssonar,
sýslumanns á Gmnd, Jónssonar,
ættfóður Thorarensenættarinnar.
Móðir Oddnýjar Pálsdóttur var
Anna Benediktsdóttir, systir
Sveins, afa Einars Benediktssonar
skálds.
Móðir Oddnýjar Árnadóttur var
Þórdís, systir Stefáns, afa Stefáns
Benediktssonar, þjóðgarðsvarðar í
Skaftafelli. Systir Þórdísar var
Guðný, amma Einars Braga rithöf-
undar. Þórdís var dóttir Benedikts,
b. á Brannum í Suöursveit, bróður
Guðnýjar, ömmu Þórbergs Þóröar-
sonar. Bróðir Benedikts var Sig-
uröur, afi Gunnars Benediktssonar
rithöfundar. Móðir Þórdísar var
Ragnhildur Þorsteinsdóttir. Móðir
Ragnhildar var Guðný Einarsdótt-
ir. Móðir Guðnýjar var Ragnhildur
Sigurðardóttir. Móðir Ragnhildar
Sigurðardóttur var Sigríöur Jóns-
dóttir eldprests, Steingrímssonar.
Sigríður er dóttir Sigurgísla, skó-
smiðs og síðar sjómanns í Rvík,
Fólk í fréttum
Ingimar Ingimarsson.
Jónssonar, b. á Skaganesi í Mýr-
dal, bróður Eldeyjar-Hjalta. Jón
var sonur Jóns, b. á Fossi í Mýr-
dal, Einarssonar, b. í Þórisholti í
Mýrdal, Jóhannssonar, fóður
Gísla, langafa Erlends Einarsson-
ar, fv. forstjóra SÍS, og Jóns Þórs
Þórhallssonar, forstjóra Skýrslu-
véla ríkisns og Reykjavíkurborgar.
Móðir Sigríöar var Hólmfríður,
móðir Jóns G. Sólness alþingis-
manns. Hólmfríður var dóttir Jóns,
pósts á ísafirði, Þorkelssonar, próf-
asts á Staðastað, Eyjólfssonar.
Móðir Jóns var Ragnheiður Páls-
dóttir, prófasts í Hörgsdal, Pálsson-
ar, bróður Karítasar, langömmu
Guðfmns, föður Péturs, fram-
kvæmdastjóra Sjónvarpsins.
Afmæli
Hl hamingju með daginn!
85 ára 50 ára
Björg Ólafsdóttir, Vanabyggð 6D, Ákureyri, er áttatíu og fimm ára í dag. Sigríður Þorláksdóttir, Hraunbæ 26, Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í dag Hreinn Sveinsson, Freyvangi 24, Rangárvallahreppi, er fimmtugur í dag. Guðbjörg Þórðardóttir, Markholti 7, Mosfellsbæ, er fimmtug í dag. Vilhjálmur Jónasson, Vallarbraut 15, Seltjarnarnesi, er fimmtugur í dag.
70 ára 40 ára
Karl Karlsson sjómaöur, Fellsmúla 16, Reykjavík, er sjötugur í dag. Járnbrá Einarsdóttir, Hraungerði, Skeggjastaöahreppi, er sjötug í dag. Margrét Þórarinsdóttir, Efsta-Dal 1A, Laugardalshreppi, er fertug í dag. Hörður Guðleifsson, Eskihlíö 26, Reykjavík, er fertugur í dag. Sjöfn Sóley Sveinsdóttir, Jóraseli 2, Reykjavík, er fertug í dag. Stefán B. Sigurðsson, Álfatúni 25, Kópavogi, er fertugur í dag.
60 ára
Hjörtur Guðmundsson, Barmahlíð 39, Reykjavík, er sextugur í dag. Gísli Konráð Geirsson, Kálfsstöð- um, Vestur-Landeyjum, er sextug- ur í dag. Helga Ólafsdóttir, Engihjalla 19, Kópavogi, er sextug í dag. Einar Jóhann Jónsson, Dvergholti 1, Mosfellsbæ, er sextugur í dag. Gunnar Guðmundsson, Lambhaga 8, Selfossi, er fertugur í dag. Guðmundur B. Kjartansson, Silf- urgötu 2, Stykkishólmi, er fertugur í dag. Inga Lilja Snorradóttir, Ásgarðs- vegi 16, Húsavík, er fertug í dag. ■ Elínborg Ragnarsdóttir, Ljósabergi 10, Hafnarfiröi, er fertug í dag.
Lárus Kr. Jónsson
Lárus Kr. Jónsson klæðskera-
meistari, Höíðagötu 21 í Stykkis-
hólmi, er sjötíu og fimm ára í dag.
Hann fæddist í Stykkishólmi og
ólst þar upp en veiktist af berklum
sjö ára og dvaldi því langdvölum á
sjúkrahúsi í bernsku.
Láras lærði klæðskeraiðn og
starfaöi við þá iðn í tuttugu ár en
gerðist síðan húsvörður við Grunn-
skólann í Stykkishólmi og hefur
nú stafað þar í þrjátíu og sex ár.
Þar að auki stundaði hann búskap
um skeið og var lengi matsveinn
til sjós.
Lárus hefur starfað mikið að fé-
lagsmálum. Hann starfaði lengi í
Iðnaðarmannafélagi Stykkishólms
og er heiðursfélagi þess. Þá hefur
hann starfað í Rotaryklúbb Stykk-
ishólms í þrjátíu og eitt ár og í
Samtökum fatlaðra í átján ár.
Hann hefur verið meðhjálpari og
hringjari í Stykkishólmskirkju í
tuttugu og sex ár.
Láras kvæntist 11.6. 1939 Guð-
mundu frá Hellissandi, dóttur
Hansínu Hansdóttur og Jónasar
Jónssonar sjómanns.
Láras og Guðmunda eignuðust
sjö böm og eru fjögur þeirra á lífi.
Þau era: Anna Huld, f. 22.3. 1944,
gift Sveinbirni Hafliöasyni, hdl. við
Seðlabankann, f. 20.6. 1939; Björk,
f. 19.5.1941, ekkja eftir Svavar Ann-
elsson,- f. 11.9. 1939, d. 22.3. 1984;
Jón, húsasmíðameistari í Stykkis-
hólmi, f. 2.12. 1939, kvæntur
Fanneyju Ingvarsdóttur, f. 5.11.
1943; og Ósk, f. 16.9.1946, gift Char-
les Fulbright, f. 14.2. 1947, en þau
búa í Bandaríkjunum.
Anna Huld og Sveinbjöm eiga
þrjár dætur. Þær eru: Eydís hjúkr-
unarfræðingur, f. 24.6. 1961, en
sonur hennar er Sveinbjörn
Bjömsson, f. 26.11. 1984; Þórunn,
nemi í stjórnmálafræðum við HÍ,
f. 22.11.1965; og Anna, nemi í bók-
menntafræði við HÍ, f. 6.6. 1967.
Björk og Svavar eignuðust eina
dóttur, Söndra, f. 7.6. 1961, en hún
á tvo syni, Rúnar Bjarkar, f. 16.8.
1978, og Svavar Inga, f. 27.6. 1982,
Ríkardssyni.
Jón og Fanney eiga þrjá syni:
Ingvar Gísla íþróttakennara, sem
er kvæntur Önnu Svanlaugsdóttur,
Lárus Kr. Jónsson.
f. 21.9.1963, en dóttir þeirra er Inga
Rún, f. 21.8. 1983; Lárus, nema í
læknisfræöi við HÍ, f. 20.5.1964; og
Kristján, f. 21.1. 1968, en hann er
nemi við ML.
Ósk og Charles eiga tvö böm:
Yvonne Kristínu Fulbright, f. 20.8.
1975, og Xavier Þór Fulbright, f.
24.5. 1978.
Foreldrar Lárasar eru bæði látin
en þau voru Björnína Sigurðardótt-
ir frá Harastöðum á Fellströnd í
Dalasýslu, f. 1891, og Jón Lárusson,
f. í Stykkishólmi 1891.
Haraldur Skjóldal
Haraldur Skjóldal, veiðimaður
og starfsmaður hjá Kaupfélagi Ey-
firðinga, Rauðumýri 1, Akureyri,
er sextugur í dag.
Haraldur fæddist að Ytra-Gih í
Hrafnagilshreppi og ólst þar upp í
foreldrahúsum. Hann stundaði al-
menn sveitastörf á búi foreldra
sinna en flutti til Akureyrar er
hann kvæntist 1955 og hefur búið
þar síðan.
Kona Haraldar er Björg, f. í
Reykjavík, 1932, dóttir Benedikts
verkstjóra Jónssonar og Elínar
Þorsteinssdóttur.
Haraldur og Björg eiga íjögur
börn. Þau eru: Svala, hjúkrunar-
fræðingur í Svíþjóð, Kristján,
bifvélavirki á Akureyri, Þorsteinn
Jónas, námsmaður í Verkmennta-
skólanum á Akureyri og Anna
Kristín, nemi.
Haraldur á sjö systkini sem öll
eru á lífi.
Foreldrar Haralds era báðir látn-
ir en þeir voru Kristján Skjóldal,
málari og b. á Ytra-Gili, Pálsson og
kona hans, Kristín frá Eyri í Skötu-
firði, Gunnarsdóttir, systir Salóme,
móöur Sverris Hermannssonar, al-
þingismanns og fyrrv. ráðherra.
Faðir Kristínar, Gunnar, b. á Eyri
og garðyrkjumaður á Bessastöð-
um, var bróðir Halldóru, móður
Jóns Baldvinssonar, forseta ASÍ og
formanns Alþýðuflokksins. Gunn-
ar var einnig bróðir Kristínar,
langömmu Þorsteins Pálssonar
forsætisráðherra. Gunnar var son-
ur Sigurðar, b. í Hörgshlíð, Hafliða-
sonar, b. á Borg, en Hafliði var
langafi Hannibals Valdimarssonar,
fyrrv. ráðherra, fóður Jóns Bald-
vins fjármálaráöherra. Móðir
Salóme var Anna Haraldsdóttir,
járnsmiðs og skyttu á Eyri í Skötu-
firði, Halldórssonar.
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur
þeirra til að senda því myndir og upplýsingar
um frændgarð og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi
tveimur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
Hallgrímur Konráðsson
Hallgrímur Konráðsson, sjómaður
og verkamaður, Furugerði 1,
Reykjavík, er áttræður í dag.
Hallgrímur fæddist að Selhaga á
Skörðum í Skagafirði. Hann var
um fermingu þegar hann fyrst fór
að stunda sjóinn með fóður sínum
á trillubát. Hallgrímur flutti síðan
suður og var þá á bátum frá Suður-
nesjum. Hann stundaði svo far-
mennsku og var þá m.a. tíu ár á
Kötlunni. Eftir að Hallgrímur kom
í land starfaði hann lengi hjá Tog-
araafgreiðslunni, eða þar til hann
hætti að vinna um sjötugt.
Kona Hallgríms er Ingibjörg, f. í
Laxárdal í Skagafirði 22.3.1915, en
þau giftu sig 9.7. 1933. Foreldrar
Ingibjargar voru Páll Jóhannsson
og Ágústa Runólfsdóttir.
Hallgrimur og Ingibjörg eignuð-
ust átta börn sem öll eru á lífi og
uppkomin
Foreldrar Hallgríms voru Konráð
Bjarnason, vinnumaöur og b., f.
30.6.1861, d. 9.7.1931, og kona hans,
Rósa Magnúsdóttir, f. að Leyningi
í Eyjafirði 29.8. 1867, d. á Sauðár-
króki 22.8.1940.
Foreldrar Konráðs vora Bjarni
Bjarnason, vinnumaöur í Brekku
Hallgrimur Konráðsson.
hjá Víðimýri, og Karólína Jóhann-
esdóttir. Foreldrar Rósu voru
Magnús Jónasson og Sigurrós Sig-
uröardóttir sem vora búandi hjón
í Leyningi og seinna á Torfumýri í
Blönduhlíð.
Hallgrímur dvelur á sjúkrahúsi
þessa dagana.