Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1988, Page 23
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988.
23
Kvikmyndir
Norman Jewison
Leikstjórinn Norman Jewison.
Nýlegavarfrum-
sýnd hérlendis
myndinMoon-
struck sem
Kanadamaður-
inn Norman
Jewison leikstýr-
ir. Moonstruck
vartilnefndtil
óskarsverðlauna
og m.a. fékk
Cher óskarinn
fyrirleiksinní
lessari mynd. En
ívererþessiNor-
man Jewison?
Hér er Jewison að störfum við MOONSTRUCK.
ótt lítið haíi farið fyrir Nor-
man Jewison hefur hann
verið einstaklega afkasta-
mikill leikstjóri. Það vita
líklega fæstir að hann var
maðurinn á bak við hina
stórkostlegu gamanmynd, THE
RUSSIANS ARE COMING, THE
RUSSIANS ARE COMING, sem sýnd
var við fádæma góða aðsókn á sínum
tíma í Tónabíói. Hver gleymir heldur
myndinni IN THE HEAT OF THE
NIGHT, sem hefur séð hana, og frá-
bærri samvinnu Jewison og Sidney
Poiter sem fór með annaö aðalhlut-
verkið? Einnig má nefna kvikmynda-
útgáfuna af FIDDLER ON THE
ROOF og svo mætti lengi télja.
Allt eru þetta myndir sem Norman
hefur leikstýrt og einnig í sumum
tilvikum framleitt. Hann virðist
einnig hafa gaman af gerð kvik-
mynda sem byggja á eða fjalla um
tónlist. Fyrir utan FIÐLARANN Á
ÞAKINU gerði hann á sínum tíma
JESUS CHRIST SUPERSTAR. Naut
bæöi myndin, hljómplatan og söng-
leikurinn eindæma vinsælda um
allanheim.
Bakgrunnur
Margir hafa líkt myndum Nor-
man Jewison við hrynjandi í tónlist.
Þetta er ekki svo út bláinn ef litið er
á bakgrunn hans. Á sínum tíma vann
Norman við gerö skemmtiþátta fyrir
sjónvarp sem byggðust mikið á tón-
list.
„í fyrstu vann éghjá BBC sem
handritahöfundur og leikari," var
nýlega haft eftir Jewison í blaðavið-
tali. „Síðan sneri ég aftur til Kanada
og fór að vinna hjá CBC'við gerð
gaman- og tónlistarþátta. Síðan lá
leiðin til New York þar sem ég vann
við THE ANDY WILLIAMS SHOW.
Einnig gerði ég THE HIT PARADE
og í gegnum vinnuna kynntist ég tón-
hstarfólki og skemmtikröftum eins
og Judy Garland, Harry Belafonte
og Danny Kaye.
Ég skellti mér nú ekki út í kvik-
myndaleikstjórn fyrr en 1963 og var
frumraun mín mynd með Tony Curt-
is sem bar heitið 40 POUNDS OF
TROUBLE. Tony Curtis rak þá sitt
eigið fyrirtæki með aðstöðu hjá Uni-
versal kvikmyndaverinu og það var
einmitt hann sem gaf mér fyrsta
tækifærið til að setjast í leikstjóra-
stólinn.“
Boltinn rúllar
Eins og tíðkaðist á þessum tíma
neyddist Norman Jewison til að und-
irrita samning við Unversal kvik-
myndaverið. Þar með var hann
orðinn bundinn einum aðila. Univer-
sal lét hann fá hveija gamanmyndina
á fætur annnarri til að leikstýra og
það var ekki fyrr en 1965, þegar Jewi-
son gerði THE CINCINNATIKID
með Steve McQueen í aðalhlutverki,
að hann komst undan þessum samn-
ingi. Hann ákvað að færa sig um set
og fór til MGM kvikmyndaversins.
En þá fóru líka hjólin að snúast og
síðast en ekki síst gat Norman Jewi-
son nú gert þær myndir sem hann
langaði sjálfan að leikstýra.
Þótt Jewison sé Kanadabúi hefur
hann ekki enn gert kvikmynd í
heimalandi sínu. „Þetta er nú sann-
ast sagna hálfsorglegt,“ voru athuga-
semdir hans við þessari spumingu.
„Ég er að vinna að einu handriti
þessa dagana sem fjallar um inn-
fædda kanadíska indíána í Alberta.
Vinnuheitið er DANCE ME
OUTSIDE. Ég vildi upphaflega gera
mynd eftir bókinni hans Robertson
Davies, sem heitir FIFTH BUSI-
NESS, vegna þess að ég tel hann einn
besta núlifandi rithöfund á enska
tungu sem völ er á. Því miður var
búiö að selja kvikmyndaréttinn aö
bókinni. Þaö var bandarískur fram-
leiðandi sem tryggði sér réttinn.“
Fleiraframundan
En Jewison er með fleira í poka-
hominu. Hann ætlar að halda áfram
að styðja við bakið á höfundinum aö
MOÖNSTRUCK sem er John Patrick
Shanley. „Næsta mynd hans ber
heitið THE JANUARY MAN og er
eins konar gamanmynd með háðsku
ívafi. Hún gerist í New York og fjall-
ar um morðingja sem gengur laus í
borginni. Hann skrifaði handritið
meöan við vorum að kvikmynda
MOONSTRUCK og lét mig síðan fá
það. Vegna fyrri skuldbindinga get
ég ekki leikstýrt THE JANUARY
MAN en írski leikstjórinn Patrick
O’Connor sló til. Leikendurnir em
ekki heldur af verri endanum, þau
Kevin Kline, Susan Sarandon, Harv-
ey Keitel og Roger Steiger.”
Það sem liggur hins vegar fyrir
núna er mynd fyrir Warner Brothers
sem heitir IN COUNTRY. Hvað segir
Jewison um myndina. „Þegar ég
yflrgaf Bandaríkin árið 1970 og flutti
til Bretlands var ég búinn að fá mig
fullsaddan af bandarísku þjóöfélagi.
Stóran þátt í þessu áttu stjómmálin
og ég var búinn að gera of margar
vandamálamyndir. Eitt af því sem
ég hét sjálfum mér var að gera aldrei
mynd um Víetnam. Coppola var bú-
inn aö gera það, Kubrick var búinn
að gera það, Oliver Stone var búinn
að gera það og John Irvin var búinn
að gera það ásamt að minnsta kosti
20 öðrum leikstjórum.
Aíleiðingar
Síðan fór ég velta fyrir mér hvort
ég ætti ekki að gera mynd um afleið-
ingar og áhrif Víetnamstríðsins.
Þetta leiddi til þess aö handritahöf-
undurinn Frank Pierson skrifaði
handrit sem fjallar um unga stúlku
sem finnur föður sinn sem hún hafði
aldrei þekkt. Myndin fjallar um þetta
efni gegnum dagbækur og bréf. Þetta
er í lagi í mínum augum svo framar-
lega sem ég þarf ekki aö endursýna
hörmungar stríðsins þarna suður
frá.“
MOONSTRUCK virðist ganga vel
og var mikilvægur kafli í lífi Norman
Jewison. Hann hafði ekki leikstýrt
kvikmynd í tæp tvö ár þegar hann
gerði AGNES OF GOD árið 1985 og
svo hina magnþrungnu mynd, A
SOLDIERS STORY árið þar á undan.
Eins og vanalega hefur Jewison úr-
vals fólk með sér og gildir það jafnt
um tæknimenn og leikara. Hann
ákvað að gefa Cher kost á aðalhlut-
verkinu og hún hefur ábyggilega
ekki séð eftir að taka því boöi því nú
er hún óskarnum'ríkari fyrir leik
sinn.
Cher
„Cher var eiginlega sú leikkona
sem mér datt fyrst í hug fyrir þetta
hlutverk. Hún er frábær leikkona og
hefur sérstakt yfirbragð sem gerir
það að verkum aö hún fellur mjög
vel inn í hlutverk persóna sem end-
urspegla hina dæmigerðu hvers-
dagslegu konu. Ef til vill er ástæðan
sú hve tilgerðarlaus og blátt áfram
húner."
Einn af leikurum í myndinni er
hinn 82 ára gamli Feodor Chaliapin
sem leikur afa sem er orðinn dálítið
viðutan. „Þvílíkurpersónuleiki,"
hefur verið haft eftir Norman Jewi-
son. „Þótt hann sé orðinn þetta
gamall talar hann fimm tungumál
og býr í Róm. Ég sá hann í myndinni
THE NAME OF THE ROSE og hreifst
mjög af leik hans. Ég hringdi því í
Sean Connery til að spyijast nánar
um Chaliapin. Ég vildi sérstaklega
fá að vita hvort hann talaði og skildi
ensku.. Svarið frá Connery var á
þessa leið. „Norman, hann heyrir
ekkert og hann sér ekkert orðið leng-
ur en fyrir utan þetta er maðurinn
snillingur." Hann er sonur óperu-
söngvara og hefur sjálfur hitt Puccini
og Tchaikovsky og getur einnig rætt
við þig um Stanislavsky. Hann kann
óteljandi sögur og er hafsjór af fróð-
leik um liöna atburði.
Chaliapin varð steinhissa þegar
hann komst aö því að MOON-
STRUCK var gamanmynd. Ég held
að hann hafi haldið að myndin væri
byggð á leikriti eftir Chekov eða Gol-
doni. En ef til vill varð myndin
fyndnari en handritið gefur til kynna
samkvæmt oröanna hljóðan.
Eins og Connery var búinn að vara
mig við heyrir Chaliapin illa en það
kom ekki að sök. Hann læröi allt
handritið utan að svo þegar hann var
aö leika var nóg fyrir hann að fylgj-
ast með hvenær samleikarar hans
hættu að tala þá vissi hann að röðin
var komin að sér.“
Það er ekki að efa að MOON-
STRUCK mun veröa vinsæl hérlend-
is. En fyrir þá sem vilja meira er
ekkert annað að gera en aö bíöa eftir
næstu mynd frá Norman Jewison.
Baldur Hjaltason
Helstu heimildir: Films and Filming
Film Comment