Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988. Fréttir Hér sést er unnið var að lagningu Ijósleiðarans á Hegranesi i Skagafirði. DV-mynd gk, Akureyri. BLAÐ / BURDARFOLK t, /weAsjjL: Reykjavík Skúlagötu 52-80 Laugaveg 120-170 Borgartún 1-7 Skúlatún Skúlagötu 57, 61, 63 k f # % 1 n ft ft ÞVERHOLTI 11 SÍMI 27022 DV Reykjavík - Akureyri: Stafrænt síma- samband í sjónmáli Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyii Nú er hafin lagning ljósleiðara á milli Sauðárkróks og Akureyrar en heimild fyrir slíkri framkvæmd er á íjárlögum 1988. Heildarkostnaður við lagningu ljósleiðarans er áætlaður 64,4 milljónir króna sem skiptist þannig að strengir og lagnir kosta 48,2 milljónir en búnaður 16,2 millj- ónir. Þessi lögn er hluti af þeirri áætlun Pósts og síma að koma á stafrænu sambandi milli Akureyrar og Reykjavíkur. Nú þegar er búið aö leggja ljósleiðara milli Akraness og Borgarness og milh Blönduóss og Sauðárkróks, ennfremur er stafrænt radíósamband milli Reykjavíkur og Akraness. Á næsta sumri standa vonir til að hægt verði að ljúka tengingu á staf- rænum samböndum milli Akureyrar og Reykjavíkur með lagningu ljós- leiðara milli Borgamess og Blöndu- óss um Búðardal. Forsvarsmenn Pósts og síma fóru með blaðamönnum í Skagafjörðinn en þar hófst nýlega vinna við lagn- ingu strengsins milli Sauðárkróks og Akureyrar. Þeir sögðu að það sem fyrst og fremst ynnist með tilkomu stafræna sambandsins væri mjög aukin flutningsgeta og ýmsir mögu- leikar á aukinni og bættri þjónustu á annan hátt. Sem dæmi aukast möguleikar á að senda sjónvarps- og útvarpsefni milli landshluta, annað- hvort fyrir almenning eða milli einkaaðila. Leiðin milh Akureyrar og Sauðár- króks hggur frá Akureyri í átt að Björgum og þaðan til Dalvíkur. Frá Dalvík mun strengurinn liggja um Svarfaðardal og yfir Heljardalsheiði, út Heljardal og Kolbeinsdal, Viðvík- ursveit og yfir Hegranes til Sauðár- króks. Við leiðarval hefur verið haft samráð við þá aðila sem málið varð- ar, s.s. landeigendur, bæjaryfirvöld og Náttúruvemdarráð, og hefur samvinna milh þessara aðila verið mjög góð. Sú ákvörðun var tekin að lögnin skyldi vera sem mest utan þeirra svæða sem ætla má aö fram- kvæmdir verði á í framtíðinni. Aðalverktaki viö framkvæmdina er Grafan hf. í Reykjavík. Þá mun Ýtan sf. á Dalvík sjá um aö vinna Heljardalsheiði undir plægingu. Við lagningu strengsins er að mestu unn- ið á tveimur jarðýtum og á annarri þeirra er útbúnaður sem plægir jörð- ina tæplega metra djúpt og leggur strenginn þar í um leíð. Lagningu strengsins milh Sauðárkróks og Ak- ureyrar lýkur í haust. Ganga Leifs Leópoldssonar: 10 dagar til leiðarloka „Það er alveg ótrúleg hvað drengurinn getur gengið. Hann er rokfljótur og ekki fyrir nokkum mann að hafa viö honum. Nú hefur hann gengið töluvert lengra en áætlað var þar sem hann hefur þurft að fara fyrir ár og eftir ráðum staðkunnugra manna. Samt kom hann degi á undan áætlun í Forna- hvamm,“ sagði Snorri Velding hjá Krýsuvíkursamtökunum um göngu Leifs Leópoldssonar frá Reyðarfirði th Arnarstapa. Leifur á nú ekki langt eftir í Am- arstapa. Lagði hann upp frá Hreða- vatni, þar sem hann á heima, í gærmorgun. Þar hafði hann hvílst frá því á mánudag og því ekki orð- iö fyrir barðinu á veðrinu sem gengið hefur yfir. Hefur hundurinn Vaskur nú slegist með í fórina á ný en þeir félagar urðu viðskila í Herðubreiðarlindum. Lá leiðin frá Miödalsbrún í Bröttubrekku, suð- ur fyrir Þrúðufell og að Höfða við Rauðamelsölkeldu. Reiknar Leifur með að ná th Heggstaða í Hnappa- dal á morgun. Hefur hann nú geng- ið hátt í 600 khómetra en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir 560 kílómetr- um í allt. Má segja að nú sé beinn og breiður vegur eftir að jökli þar sem göngunni lýkur eftir um 10 daga. Gangan er, eins og áður hefur komið fram, th styrktar Krýsuvík- ursamtökunum. Að sögn Snorra Velding eru einstaklingarj hópar og fyrirtæki að taka við sér og senda samtökunum peninga og gjafir. Hefur mikið af húsgögnum borist til samtakanna, þannig að innrétting fyrsta áfanga Krýsuvík- urhússins er langt komin. Upphaf- lega var áætlað að safna mihi 5 og 6 milljónum. -hlh rwtyiéjwyv Sendiherrahjónin Ástríður og Hans G. Andersen hafa gegnt starfi í Washington um áraraðir en voru nýlega flutt til New York. Þá var Hans orð- inn næstelsti sendiherrann í Washington eða „vicedean" eins og |Dað kallast og er mikil virð- ingarstaða. Hansereinn helsti hafréttarsérfræð- ingur heims og hefur unnið mikið verk fyrir ís- lensku þjóðina í hafréttarmálum. I viðtali við DV á morgun rekur'hann sögu landhelgisstækk- unar og segir frá ferli sínum. Ástríður, kona hans, hefur einnig frá heilmörgu að segja enda kunn- ur myndlistarmaður. Fróðlegt viðtal við þessi hjón sem hafa kynnst þremur forsetum Banda- ríkjanna í starfi sínu aukfjölda annarra merkra manna. Hvað er að gerast um helgina? Hvernig á að komast? Hvað kostar það? Þessum áleitnu spurningum og mörgum fleiri verð- ur hægt að fá svör við í DV- Um helgina - á morgun. Það skiptir ekki máli hvort þú hyggur á x flakk eða heimasetu, þú færð upplýsingar um viðburði helgarinnar heima og heiman í þessu sextán síðna aukablaði inni í blað- inu. Gríptu það með þér eða gluggaðu í það heima. Upplýsingar um útimótin, ferðirnar, dansleikina, sýningarnar, bíóhúsin, veit- ingahúsin og margt fleira í DV- Um helg- ina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.