Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988. 19 Fréttir Upprisa Lazarasar í íslensku hrauni - á altaristöflu í Húsavíkurkirkju Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; Húsavík hefur veriö kirkjustaöur frá fomu fari og er kirkjunnar fyrst getið í Auöunarmáldaga áriö 1318. Núverandi kirkja, sem er sannkölluð bæjarprýði á Húsavík, var hins vegar byggö árin 1906 og 1907 og vigö 2. júní 1907. Ýmislegt er óvenjulegt við þessa kirkju. Nefna má aö kirkjuturninn er á einu horni hennar og inngangur- inn þar. Þá vekur mikla athygh aö í byrjun aldarinnar skuh hafa verið byggð kirkja sem rúmar um 450 manns í sæti. Kirkjan er því nógu stór enn í dag, nema e.t.v. á stór- hátíðum eins og jólum. Þaö er líka óvenjulegt aö enginn prédikunarstóll skuh vera í kirkj- unni og mun sennilega vera eins- dæmi hér á landi. Mönnum ber ekki saman um ástæður þess, sumir telja aö gleymst hafi aö gera ráö fyrir stólnum, en fleiri telja þó aö Rögn- valdur Ólafsson, sem teiknaöi kirkj- una, hafi ekki viljaö slíkan stól í kirkjubygginguna. Altaristafla kirkjunnar er einnig óvenjuleg. Hún er máluð af Sverri Þórarinssyni áriö 1930 og sýnir upp- risu Lazarusar í íslensku hrauni. „Jökulsárgljúfur er í baksýn, fjöllin em íslensk og fólkið íslenskt,“ sagði Ingvar Þórarinsson á Húsavík, sem fræddi DV um kirkjuna. Mikill fjöldi ferðamanna kemur í kirkjuna á hverju sumri. Erlendir ferðamenn vora í yfirgnæfandi meirihluta er DV var þar á ferö fyrir skömmu, mest Þjóðveijar, og var greinilegt á málrómi þeirra og sam- ræðum aö þeim fannst mikiö til koma, enda kirkján sérstaklega fah- egt mannvirki, eins og áður er getiö. Altaristaflan í Húsavíkurkirkju: Lazarus rís upp úr íslensku hrauni. DV- mynd, GK Húsavíkurkirkja er glæsilegt mannvirki. Nokkrir rallbílanna áöur en Nes-rallið hófst. DV-mynd ÁEA Sterkasti maður landsbyggðarinnar: Torfi vann á hlutkesti Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Torfi Ólafsson, Akureyri, telst vera sterkasti maöur landsbyggö- arinnar en keppni um þann titil var háð á Akureyri um síðustu helgi og var keppt í 8 greinum aflrauna, bæði í miðbæ Akureyrar og á íþróttavelhnum. Keppnin var einvígi á milli Torfa og Magnúsar Vers Magnússonar frá Seyöisfiröi og unnu þeir ailar greinar keppninnar nema þá síð- ustu sem þeir tóku ekki þátt í. Vakti þaö mikla furöu manna aö kapp- amir, sem vora jafnir fyrir þá grein, skyldu báöir hætta viö aö ljúka keppninni en þeir sömdu um það. Var svo varpað hlutkesti um hvor þeirra teldist sigurvegari og vann Torfi hlutkestið. Torfi sigraði í fjórum greinum, varð í öðra sæti í þremur og í þriðja sæti í einni. Magnús Ver varð sig- urvegari í þremur greinum og í 2. sæti í fjórum greinum. Hlutu þeir báðir 46,5 stig. í þriðja sæti varö Flosi Sigurðsson sem háöi haröa keppni um þaö sæti við Magnús Hauksson frá Keflavík. Magnús haföi 5 stiga forskot á Flosa eftir fyrri daginn en Flosi vann þann mun upp síðari daginn og hlaut 36 stig en Magnús 33.1 næsta sæti kom Jón Gunnarsson frá Þorlákshöfn meö 25 stig, Örn Traustason frá Hauganesi hlaut 21 stig og Njáll Torfason frá Tálknafirði hlaut 16 stig. Frammistaða kappanna vakti at- hygli þeirra sem fylgdust með keppninni. Tilþrif Torfa í „fanga- nýlenduþrautinni" vakti t.d. mikla athygli. Þar hljóp hann á fleygiferð með þungan lóðabelg í fanginu og með annan slíkan belg hlekkjaðan um ökklann. Fékk hann tímann 12,60 sek. en Magnús Ver, sem varö annar, hlaut tímann 23,32 sek. Fyrir sigursætiö hlaut Torfi 30 þúsund krónur, Magnús Ver hlaut 20 þúsund fyrir annaö sætiö og Flosi 10 þúsund fyrir 3. sætiö. Þá fengu efstu menn verðlaunaplatta frá Radíónausti að verðmæti um 100 þúsund krónur. Olafsvík: Fjölskrúðugt götulrf fyrir Nes-rallið Ánú E. Albertsson, DV, Ólafsvík: Það var engu hkara en að Lauga- vegurinn hefði verið fluttur í heilu lagi hingað til Ólafsvíkur síðasta fóstudag. Eindæma veðurbhða var og fátt gat haldið Ólsuram, ungum sem gömlum, frá því að leggja leið sína í miðbæinn til að kíkja á öku- menn og aðstoðarökumenn 18 rall- bíla sem voru að leggja lokahönd á undirbúning harðrar keppni um helgina. Eldri menn klóruðu sér í höfðinu og skildu ekkert í þessum ósköpum en yngri kynslóðin kunni vel að meta þessar hetjur óveganna og hef- ur eflaust verið búin að fara nokkra hringi um nesið í huganum þegar fyrstu bílamir vora ræstir um kl. 17.00. Þrír teknir fyriraðstela úr bílum Þrír ungir raenn voru hand- teknir í fyrrinótt fyrir að stela úr bílum 1 Vökuportinu. Hafði eftirhtsmaður portsins orðiö var við þá og kallaöi á lögreglu. { bö, sem mennimir vora á, fannst eitthvaö af tækjum og fleira bíldóti. -hlh VEIÐIMENN! MIKIÐ ÚRVAL AF FYRIR >.......... Verslunin eióiv Langholtsvegi 111 \ 104 Réykjavík Q> 687Ö'90

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.