Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Side 33
FIMMTUDAGUR 28. JÚLl 1988.
33
Lífsstm
Karlmenn:
Njota trausts
í samræmi
við
klæðaburð
Afstaða karltnanna til tísku er mun
íhaldssamari en kvenna. Þó hefur
karlmannafatatískan þokast í átt
til meira frjálsræðis á síðustu árum
og oft hefur mátt sjá líflega spretti
i hönnun karlmannafatnaðar þótt
þeirra gæti sjaldnast í daglegum
klæðaburði.
Gráu fötin
Ákveðnar stéttir karlmanna hafa
eignaö sér ákveðinn klæðaburð, til
dæmis þeir sem stunda verslun og
viðskipti. „Bisnessmennirnir" svo-
kölluðu halda sig viö gráu jakkafót-
in hvað sem öilum tískusveiflum
liður. í þeirra huga er það aö vera
vel klæddur að klæöast gráum
jakkafótUm, skyrtu í hlutlausum lit
og nota röndótt bindi. En það eru
margir karlmenn úr öllum stéttum
sem taka „bisnessmennina" sér til
fyrirmyndar og fara í slíkan fatnaði
þegar þeir klæða sig upp á.
Fötin skapa manninn
Það hefUr lengi veriö haft á orði
að fotin skapi manninn. Bæði karl-
menn og konur ryóti trausts í sam-
ræmi viö klæðaburð. Vel kiæddu
fólki gangi betur að koma sér áfram
en því sem temji sér ákveðið frjáls-
lyndi f klæöaburöi. Hvaö hæft er í
þessu skal látið ósagt. En á dögun-
um var gerð í Bandaríkjunum
Röndótt bómull-
arskyrta og bindi
með blóma-
munstri.
Klæðnaður unga mannsins sem
leggur fyrir sig verstun og við-
skipti, köflótt skyrta, bindi með iíf-
legu munstri, buxurnar eru úr fín-
riffiuðu flaueli og mælt er með að
nota jakka úr finni ull við.
könnun á því hversu vel mönnum
gekk að fá 5000 dollara lán í
ákveðnum bönkum. Örtakið var
208 karlmenn og var hópnum skipt
í þrennt og fór hver hópur í einn
Brún og rauðkóflótt-
ur jakki, viö hann er
notuð röndótt skyrta
og munstrað bindi.
Dálitið óhefðbundnari fatn-
aður, bindinu er sleppt,
skyrtan er köflótt úr bómutl
en jakkinn er grábrúnn uil-
arjakki.
Tískan
Stakur jakki og buxur, hvoru-
tveggja úrgrábrúnu ullarefni,
skyrtan er hins vegar híminblá og
bindið dökkblátt.
ákveöinn banka.
Fatahönnuðir voru fengnir tii aö
sjá um klæðnaö karlanna. Þriðj-
ungur þeirra átti aö klæðast jakka-
fótum, fallegri skyrtu og nota rönd-
ótt bindi og vera í vel burstuðum
skóm. Annar hópurinn átti að vera
öilu ftjálslegri í klæðaburði, klæö-
ast stökum jökkum og buxum,
mokkasínum og vera án bindanna.
Þriöji hópurinn klæddist gallafatn-
aði, bómullarbolura og fþróttas-
kóm.
í bankanum
Síðan örkuðu mennirnir í bank-
ana og báöu um lánið. Niöurstaðan
kom ekkert sérstaklega á óvart.
Um 85% jakkafatamannanna fékk
lánið án mikilla erfiöleika. Tæplega
60% þeirra sem voru í stöku bux-
unum og jökkunum gátu fengið
lán, en með meiri eftirgangsmun-
um en fyrsti hópurinn. Hins vegar
voru einungis 18% þeirra sera
klæddust gallafatnaöinum og bó-
muilarbolunum taldir lánshæfir.
Samt sera áður eru Bandaríkja-
menn taldii' mjögfrjálslyndir þegar
fatnaöur er annars vegar.
Hvort sem þessi skoðanakönnun
er marktæk eður ei gefur hún samt
sem áður ákveðnar vísbendingar
um hvað kallast að vera vel klædd-
ur og trausts verður miðað við
ákveðnar aðstæður. Hins vegar er
óvíst aö niðurstaðan hefði verið sú
sama ef meta hefði átt mennina
eftir öðrum forsemdum. Hverjum
hefðu til að mynda þótt þeir vel
klæddir hefðu þeir mætt í jakkafót-
unum sínum á hlöðuball? Afstaða
manna til þess hvað er að vera vel
klæddur mótast þannig oftast af
tilefninu og kringumstæðunum.
italir framarlega
italir hafa löngum þótt bera af í
hönnun á karlmannafatnaði og þaö
ekki aö ófyrirsynju. Karlmanna-
famaöur, sem þeir hafa sent á
markaöinn í ár, er hvorutveggja í
senn, einfaldur og glæsilegur.
Hér á síöunni má sjá sýnishorn
af itölskum karlmannafatnaði. Við
völdmn eingöngu fatnað sem hæfir
vel hinum önnum kafna manni
sem er á kafl í verslun og viöskipt-
ura.
Köflóttir jakkar og
röndóttbindl
Litimir eru jarðlitir, mikiö ber á
gráum og brúnum tónum svo og
köflóttum jökkum. Axlimar eru
ávalar og jakkarnir oft nokkuö
þröngir yfir mjaðmirnar, ýmist
einhnepptir eða tvíhneppir. Mest
ber á ullarjökkum og verða þeir
vinsælh eftir því sem líður á suma-
rið. Viö köflótta jakka eru gjaman
notaðar röndóttar skyrtur en
munstruð bindi. Skyrtukraginn er
hefðbundinn, ýmist laus eða festur
niður með töium. Boðungarnir eru
hvorki breiðir né áberandi mjóir.
Og þegar á heildina er litið má segja
að fótunum sé ætlað aö vera glæsi-
legur fuiltrúi eigandans.
-J.Mai-
Glæsilegur
tvíhnepptur
jakkí hannaó-
urafCornei-
Iflni