Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Page 37
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988.
37
LífsstOI
Á erfiðum gönguleiðum má maturinn ekki þyngja bakpokann um of.
Að vera létt-
ur og mettur
- matur í langar gönguferðir
Þó nokkuð margir fara í langar
gönguferðir um óbyggðir íslands.
Margir eru vel vanir og vita hvað
er hentugast að taka meö sér.
Aðrir eru að fara í fyrsta sinn og
eru í vafa hvað sé hentugast. Við
fengum vanan göngugarp til að
gefa okkur ráð varðandi útbúnað
ámat.
Þegar farið er í nokkurra daga
gönguferð er frumskilyrði aö
maturinn sé léttur í poka en sað-
samur.
Hrísgrjón eru léttavara en ótrú-
lega saðsöm. Hrísgrjónin eru soð-
in og bragðbætt meö kryddi. Gott
er t.d. að krydda grjónin með
karríi.
Þurrkaðar baunir eru léttar en
matarmiklar. Þær þurfa að vísu
töluvert langa suðu en ef þær eru
lagðar í bleyti nóttina áður þurfa
þær styttri suðu.
Hafragrjón eru hentug og fljót-
legt að sjóða hafragraut. Mjög
gott er að fá sér hafragraut að
morgni áður en lagt er af stað því
hann gefur mikla magafylli.
Niðursuðuvörur, eins og loðna
og sardínur, koma sér vel og fer
ekki mikið fyrir þeim. Með því
að hita upp innihaldið úr dósinni
Útlendingar eru sniðugir að út-
búa sig á einfaldan og ódýran
hátt áður en þeir leggja af stað
fótgangandi um óbyggðir ís-
lands.
er kominn herramannsmatur.
Brauð geymist lengur og heldur
betur bragði ef þaö er ristað áður
en lagt er af stað. Tekex og hrökk-
brauð eru létt, saösöm og fyrir-
ferðarlítil. Sulta eða marmelaði
er gott álegg á brauð og kex.
Stundum langar mann nefnilega
í eitthvað sætt að maula.
Þurrkaðir ávextir eru góðir og
næringarríkir. Aprikósur og rús-
ínur eru dæmi um slíkt. Svo má
líka setja rúsinur saman við
soðnu hrísgrjónin.
Drykkjarvörureru vatn og te.
Lágmarksneysla vökva á dag er
3 htrar. Þægilegt er að hafa með
sér 1 'h lítra tóma plastflösku.
Með því móti er hægt aö fylgjast
með vatnsneyslunni.
Ýmislegtannað matarkyns er
hægt að hafa með sér ef farið er
í langar göngur. Má þar nefna
kæfu, sem hita má í potti, súkku-
laði, hnetur og pakkasúpur.
Reyktur matur, eins og bjúgu,
geymist vel. Ef bjúgun eru orðin
slepjuleg að utan eftir geymsluna
má skola af þeim í næstu á. Til
að halda vítamínum í kroppnum
er þjóðráð að borða hundasúrur.
Tvennt verður alltaf að hafa í
huga: í fyrsta lagi að fylla mag-
ann vel og vera vel mettur þegar
göngu er haldið áfram. í ööru lagi
verður einstaka sinnum að gleðja
bragðlaukana og þar koma sulta
og krydd í góðar þarfir.
-JJ
Sjálfhitandi niöursuöudósirnar fást með fems konar innihaldi.
Matur
og síðan pakkað í þétta hitaþolna
álpoka. Aðeins þarf að opna pok-
ann og hella sjóöandi vatni i hann,
hræra í og maturinn er tilbúinn.
Út úr þessu fæst u.þ.b. hálft kíló
af mat. Einnig fást þurrkaðir ávext-
ir unnir á sama hátt Hver pakki
kostar frá 200 krónum.
Sjálfhitandi niöursuöudósir eru
nýjung á markaði hér. Dósimar
eru tvöfaldar með einangrun og
þurfa enga upphitun með gastækj-
um.
Innst er venjuleg niðursuðudós
með matnum í. Utan um er önnur
dós og einangrun til aö varna því
að maöur brenni sig. í botninum
er efni sem hitar innri dósina upp
þegar það kemst í samband við
súrefni. Til að opna fyrir súrefnið
fylgir pinni sem stungið er niður
með innri dósinni. Maturinn verð-
ur sjóðandi heitur á skammri
stundu. Dósirnar fást víöa i stór-
mörkuðum og bensínstöövum.
Hver dós inniheldur 'h kíló af mat
og kostar 360 krónur. Leiðbeining-
ar um meðhöndlun eru á íslensku
á öllum dósunum. Um ferns konar
rétti er aö ræöa.
-JJ
Innri dósin er venjuleg níðursuðudós með maf í.
Þurrkaður matur og sjálf-
hitandi niðursuðudósir
Fyrir þá sem vilja feröast létt en
hafa góðan raat geta fengið þurrk-
aðan mat í Skátabúðinni. Tegund-
irnar eru tíu og má nefna nautakjöt
og hrísgrjón og kjúkhng og hrís-
grjón. Maturinn er frostþurrkaður
L'ORÉAL
NÝJAR ANDLITSSNYRTIVÖRUR SEM VIÐ-
HALDA EIGINLEIKUM UNGRAR HÚÐAR.
PLÉNITUDE línan er afrakstur 10 ára rannsóknar-
starfs og sérstaklega framleidd til þess að koma í veg
fyrir ótímabærar aldursbreytingar húðarinnar.
PLENITUDE snyrtivörur verða kynntar í
versluninni STARMÝRI Starmýri 2
Notið tækifærið og þiggið góð ráð um rétta umhirðu húð-
arinnar.
Dreiflngaraðili:
m mmjLw wmwMwmww m mm.uw.
Skútuvogi lOa, 104 Reykjavík, simi 686700