Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Síða 38
38
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988.
Lífsstfll
Fataverslanir þriðjungi of margar
Fatasalan brást í sumar
, ,Þaö er einkum tvennt sem
veldur því hversu sumarútsöl-
urnar byrjuðu snemma í ár; veðr-
ið í júní og júlí olli því að sumar-
fatnaðurinn seldist mun verr en
undangengin ár og svo hitt að
íslenskir verslunareigendur eru
að aðlaga sig því sem gerist er-
lendis en þar byrja útsölumar
mun fyrr en tiðkast hefur hér á
Islandi," segir Hrafn Hauksson,
eigandi verslananna Tango viö
Laugaveginn og Jazz í Kringl-
unni.
Útsölur eru árstíðabundið fyr-
irbæri þó svo að lögum um útsöl-
ur hafi verið breytt fyrir nokkr-
um árum og nú megi halda þær
hvenær sem er ársins. í sumar
byrjuðu útsölurnar venju fremur
snemma og hafa menn leitt getum
aö því að orsökin sé einkum lítil
sala í sumar og versnandi staða
fataverslana.
Allir kostnaðarliðir hækkað
■ „Veröbólganhefuraukistmjög
á árinu og allir kostnaðarliðir
innanlands hafa hækkað. Hins
vggar er samkeppnin í verslunar-
rekstri svo mikil á íslandi að
verslunareigendur geta ekki leyft
sér að hækka vöruna eins og þeir
þurfa því að þá veröur fatnaður-
inn of dýr. Þetta veldur því að sú
álagningarprósenta, sem kemur í
hlut verslunarinnar, minnkar
stöðugt,"segirHrafn.
Tískan
í V,"
i
■*.
Utsölur standa yfir þessa dagana og víða er hægt að gera góð kaup.
DV-myndir JAK.
„Eftir að staðgreiðsla skatta var
tekin upp fær fólk minna í launa-
umslaginu en áður. Samt heldur
það áfram að kaupa, það lætur
bara vaða á kreditkortin. Það eru
heilu dagarnir þar sem ekkert
selst hjá okkur nema út á kort,“
segir Björk Aðalsteinsdóttir, eig-
andi Össu.
„Ég get ekki kvartað yfir söl-
unni í sumar þótt ekki hafi
kannski verið sama aukning í
henni og undanfarin ár. Veörið
hefur veriö slæmt og það hefur
mikil áhrif á sölu á sumarfatn-
aði. Maður hefur oröið var við
að þaö er ákveöinn fatnaður sem
lítö hefur hreyfst, til dæmis hef
ég nánast ekkert selt af hvítum
fatnaði. Þess í stað bara verið
meiri sala í öðrum fatnaði.“
Fækkar verslunum í haust?
Samfara versnandi stöðu fata-
verslana ætti þeim að fækka nú
í haust. Hrafn er ekki á því. „Ætii
fólk reyni ekki að þrauka fram
að jólum í von um að eitthvað
rakni úr.“
Guölaugur Bergmann, eigandi
Kamabæjar, segir hins vegar að
þaö séu þriðjungi of margar
verslanir sem selji fatnað. „Það
er offramboö af fatnaði í öllum
hinum vestræna heimi, ekki bara
hér á íslandi. Svo má ekki gleyma
því að minnkandi verslun er ekk-
ert bundin viö fataverslanir. Það
eru margir sem telja að það hafi
aldrei orðið annar eins samdrátt-
ur í verslun og síðan í apríl og
við sjáum ekki fyrir endann á því
ástandi ennþá. Það er ýmislegt
sem hefur hjálpast að; verkfall
verslunarmanna í endaöan apríl
og byrjun maí. í kjölfar þess var
stór hópur fólks launalaus í
nokkuð langan tíma. Síðan var
leiöinlegt veður í júní. Auknar
skattaálögur og hrikaleg láns-
kjaravísitala veldur því að nú
hefur fólk minna á milli hand-
anna en áður. Þetta hefur hrein-
lega gert það að verkum að það
er miklu minna að gera en áður
í verslunum. Þaö hljóta því aö
verða einhveijar breytingar á
næstunni," segir Guðlaugur.
Ekki grundvöllur fyrir
tveimur verslunum
„Það er ekki grundvöllur fyrir
því að reka tvær fataverslanir við
Laugaveginn í dag,“ segir Jónína
Lárusdóttir eigandi verslunar-
innar Viktoríu. En nýlega lokaði
hún annarri verslun sinni að
Laugavegi 66. „Það verður að
auka hagkvæmni í rekstrinum
og það er ein af ástæðunum fyrir
þvi að við minnkum við okkur,
það gengur ekki síðan Kringlan
kom til sögunnar að vera með
tvær verslanir við Laugaveginn.
„Útsalan hjá mér byijar ekkert
fyrr í ár en önnur ár. Maöur þarf
einfaldlega að losa sig við sumar-
fatnaðinn því að haustfatnaður-
inn liggur á hafnarbakkanum og
það þarf að rýma fyrir honum."
Vextir, lögfræðingar,
fjármögnunarfyrirtæki
„Helstu vandamál, sem fata-
verslanir glíma við, eru allt of
háir vextir á lánamörkuðunum.
Fjármögnunarfyrirtækin eru
heldur ekki nein lömb að leika
sér við. Þau kaupa kreditnótur
af þeim sem eru í erfiðleikum
með 7-10 prósent afföllum.
Það verður æ erfiðara að fá lán
í bönkunum, ekki síst fyrir þá
sem standa illa, og vextir af
bankalánum eru allt of háir. Ef
i mennlendaívanskilumermjög
erfitt að semja um greiðslur og
oft er það ekki hægt. Gjaldfallnir
víxlar og lán fara um leið í inn-
heimtu hjá lögfræðingum og áöur
en maður getur snúið sér við er
búið að gera fjárnám. Það sér það
hvert mannsbam að það er ekki
hægt að reka verslun undir þess-
um kringumstæðum. Því held ég
að menn muni unnvörpum fara
á hausinn nú í haust. Það eru
allir að drepast," segir verslunar-
eigandi í Kringlunni sem ekki
vill láta birta nafn sitt.
„Menn hafa brugið á það ráð
aö setja allt á útsölur með þá von
aö geta losað eitthvert fjármagn
til að leysa út haustvörur. En
gróðinn af útsölunum verður
harla lítill ef menn þurfa að leita
til fjármögnunarfyrirtækja með
kaup á kreditnótum og selja þær
með miklum afiollum.
Því tel ég að það sé hægt að fá
mikið af verslunarhúsnæði á
• ipjög góðum kjömm núna ef ein-
hver vill kaupa því það eru flestir
sem vilja losa sig út úr þessari
vitleysu. Þeir einu sem koma til
með að standa þetta af sér eru
þeir sem eiga skuldlaust húsnæði
og gamalgrónar verslanir," segir
þessisamimaður.
Það er samdóma álit flestra
þeirra sem DV leitaði til að staðan
sé slæm þó að fæstir telji sig til
þess hóps sem á í kröggum. Það
er því ákveðin þversögn í svörum
manna sem hægt er að draga
saman í orðunum: Það eru allir
að fara á hausinn nema ég.
í DV er ekki alls fyrir löngu
haft eftir Herluf Clausen heild-
sala. „Ég hef heyrt að það sé mik-
ið af fyrirtækjum til sölu en það
eru ekki bara fataverslanir. Það
er almennt þungt undir fæti hjá
fyrirtækjum og það er ekki bund-
iö við heina ákveðna vöru-
flokka.“
Neytendur hafa
síðasta orðið
Það verða neytendur sem skera
Guðvarður Birgisson og Sigurður
Karlsson voru sammála um að verð
á fatnaði væri of hátt hér á landi.
„Viö erum bara að skoöa og i leiðinni erum við að
kfkja eftir buxum og peysum sem við gætum notað í
skólann f vetur,“ sögðu þær Hjördis Jónsdóttir og Jó-
hanna Þórisdóttir.
„Þaö er allt of dýrt að kaupa fatnað á íslandi miðað
við aö kaupa hann erlendis og útsölur hér standast
útsölum erlendis ekki snúning," segja þeir Guðmundur
Pálmason og Þórður Kolbeinsson.