Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988. Lífsstm Ekki sama hvar naglalakkið er keypt □ Christian Dior kr. 1000-1 800 600-- 400' 200' X Q c H 03 C *< OQ o •o ^<_ dq" 35* O C =r 3 •o C p r r 35' ?r E ctq C < O > ■C c c OQ c < c p > X c 3 cg. t/i c o OQ > o* E- 3 cr On A* s "1 L-n CA r » o OQ £ Langmesti verömunurinn er á nagiaiakki frá Christian Dior en ódýrast er það á 630 krónur en dýrast á 873 krónur. Munurinn er þvi 38,6% milli hæsta og lægsta verðs. Litlu munar á hæsta og lægsta verði á naglalakki frá Margaret Astor. Ódýrast er það á 303 krónur en dýrast á 337 kónur. Mismunur á milli hæsta og lægsta verðs er því 11,2%. Það er ekki ýkja mikill verðmunur á milli snyrtivöruverslana á nagla- lakki í ódýrari kantinum en mjög miklu getur munað á verði þegar dýrari tegundir eru keyptar. DV kannaöi verð á þremur algeng- um tegundum naglalakks í nokkrum snyrtivöruverslunum á höfuðborg- arsvæðinu og kom niðurstaðan nokkuð á óvart, því þegar borið er saman verð á ódýrustu tegundinni og þeirri á miðjuverðinu reyndist ekki ýkja mikill verðmunur á milli verslana. Minnstu munaði í verði á nagla- lakki frá Margaret Astor. Ódýrast var það í snyrtivöruversluninni Lólý við Hringbraut, þar kostaði glasið 303 krónur, en dýrast var það í Cossu, Engihjalla 8,337 krónur glasið. Með- alverð reyndist 322 krónur. Það mun- ar því 11,2% á því hvort lakkið er keypt þar sem það reyndist ódýrast eða þar sem það reyndist dýrast. Það borgar sig vissulega að bera saman verð á dýrari tegundum af nagla- lakki. DV-mynd JAK glasið, en dýrast var það í Holtsapó- teki og Árbæjarapóteki, kostaði á báðum stöðum 470 krónur. Meðalverð reyndist vera 449,75 krónur og 11,4% munaði á milli hæsta og lægsta verðs. Langmestur verðmunur reyndist vera á naglalakki frá Christian Dior. Glasið kostaði 630 krónur í Háaleit- isapóteki, 872 krónur kostaði það í Topptískunni Aðalstræti og Bylgj- unni Hamraborg og krónu dýrara reyndist það í Evitu Nýjabæ. Það munar því hvorki meira né minna en 38,6% á þvi á hvorum staðnum það er keypt, hjá snyrtivöruverslun- inni Evitu eða Háaleitisapóteki. -J.Mar kr. 400' □ Margaret Astor 300- 200 100' Tískan Örlítið meiri verðmunur reyndist vera á naglalakki frá Lancome. Ódýrast reyndist það hjá Ársól í Grímsbæ, þar kostaði það 422 krónur Neytendasamtökin: Kaupmenn oft ókurteisir í garð viðskiptavina Það kemur oft fyrir að fólk telji að það hafi keypt gallaðan fatnað þegar hann endist ekki eins og það telur æskilegt eða hann eyðileggst í fyrsta þvotti. Kemur þá oft til kasta Neytendasamtakanna að annast milligöngu milli viðskipta- vina og verslana í slíkum tilfellum. „Þegar kvörtun er lögð fram ræð- um við við eiganda verslunarinnar og þann sem leggur fram kvörtun- ina og reynum aö miðla málum,“ segir Elva Björk Benediktsdóttir þjá Neytendasamtökunum. Tíu kvartanir á mánuöi „Oftar en ekki fær fólk hálfhryss- ingsleg svör hjá verslunum þegar það kemur og kvartar yfir fatnaði sem það telur að sé gallaður. Ég held að mikið af þeim málum sem koma upp væri hægt að leysa á þægilegri hátt ef verslunareigend- ur sýndu meiri kurteisi og lipurð í garð viðskiptavina sinna þegar þeir kæmu og kvörtuðu. Það kemur mismikið af kvörtun- armálum inn á borð til okkar en ætli það komi ekki að meðaltali tíu á mánuði. Því er ekki að leyna að nöfn ájcveðinna verslana skjóta upp kollinum oftar en önnur. Leður og viscoseefni „Það sem fólk kvartar aðallega um þessa dagana eru leðurvörur og fatnaður úr viscoseefnum. Það er mikið af fatnaði úr leðri sem þolir til dæmis ekki að blotna því þá verður hann doppóttur eða leðriö reynist ekki gott af einhveijum öðrum ástæðum. Viscoseefnin virðast vera hálfgerð vandræðaefni því þau eiga það til að hlaupa mik- ið eða þá þau hnökra við notkun. Við fáum einnig mikið af kvört- unum vegna ullarpeysa. Oft er nýög erfitt að skera úr um hverjum það er að kenna ef flíkin aflagast, hvort það er framleiðslugalli eða röng þvottameðferð. Til dæmis þola ullarpeysur ekki að vera lagð- ar í bleyti því þau þvottaefni sem eru á markaðnum eru yfirleitt svo klórblönduð að þau geta gert flík- ina blettótta á örskotsstund. Dýrt aö senda í rannsókn Hvað kallast að leggja í bleyti er svo misjafht. í blaði norsku neyt- endasamtakanna gefa þeir þá þum- alputtareglu að flikin hafi verið lögð í bleytí. hafi hún legið óhreyfð í þvottavatninu í 10 mínútur. Það er mjög algengt að fólk átti sig ekki á þessu og þegar farið er að spyija það út í hlutina kemur í ijós að það hefur oft og einatt lagt flíkina í bleyti en ekki gert sér grein fyrir afleiðingunum. í slíkum tilfellum er það viðskiptavinurinn sem ber ábyrgðina en ekki verslunin sem seldi flíkina. í vafatilfellum er hægt að senda fatnað til rannsóknar hjá Iðn- tæknistofnun en það er dýrt og fáir sem senda flíkur í 5000 króna rann- sókn sem kannski kostaöi ekki nema 2000 krónur út úr búð. Við- komandi verður einnig að vera nokkuð viss í sinni sök því að sá borgar sem reynist hafa rangt fyrir sér. Kvörtúnarnefndin Það er einnig til kvörtunarnefnd sem Kaupmannasamtökin, SÍS og Neytendasamtökin standa saman að. Sú nefnd fær ekki mjög mikið af málum til meðferðar því aö yfir- leitt sér kaupmaðurinn aö sér og bætir skaðann áður en kvörtunin nær að ganga til nefndarinnar." Fyrir nokkrum árum gáfu Neyt- endasamtökin út svokallaðan svartan lista yfir verslanir sem neituðu að bæta tjón viðskiptavina eða sinna kvörtunum. Þessi listi hefur verið í endurskoðun upp á síðkastið og nú er unnið að því að setja reglur um hvað þurfi til að verslun fari á þennan lista. En sam- kvæmt upplýsingum Elvu mun listinn líta dagsins ljós innan skamms. -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.