Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Side 41

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1988, Side 41
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988. 41 . Afmæli Bivgir Thoriacius Birgir Thorlacius, fyrrv. ráöu- neytisstjóri, Bólstaöarhlíö 16, Reykjavík, er sjötíu og funm ára í dag. Birgir fæddist að Búlandsnesi og tók próf frá Samvinnuskólanum 1932, var þingskrifari 1931-1935, starfsmaöur fjármálaráöuneytis- ins 1935-1938, ritari í forsætisráðu- neytinu 1939 og fulltrúi þar 1941, ráðuneytisstjóri í forsætis- og menntamálaráöuneytinu 1947-1970 og í menntamálaráðuneytinu 1947-1983. Birgir var forsetaritari og oröuritari 1951-1952, ríkisráðs- ritari 1951-1970, formaður orðu- nefndar 1952-1957, í stjórn Menn- ingarsjóðs Norðurlanda frá 1966 og formaður 1974 og 1975. Birgir hefur verið fulltrúi í, og gjarnan veitt for- stöðu, miklum fjölda stjómskip- aðra nefnda sem m.a. hafa haft það hlutverk að semja lög um stofnun eða breytingar á ýmsum helstu menntastofnunum landsins. Birgir kvæntist 13. maí 1939 Sig- ríði Stefánsdóttur, f. 13. nóvember 1913. Foreldrar hennar eru Stefán Kristinsson, prófastur á Völlum í Svarfaðardal, og kona hans, Sól- veig Pétursdóttir Eggerz. Þau hjón eru því systrabörn. * Systkini Birgis: Kristín, f. 25. júlí 1899, d. 20. ágúst 1899; Sigurður, f. 4. júlí 1900, d. 17. ágúst 1945, skóla- stjóri Austurbæjarskólans í Rvík, ekkja hans er Aslaug Thorlacius; Kristín, f. 21. október 1901, d. 5. fe- brúar 1916; Ragnhildur, f. 3. janúar 1905, d. 12. janúar 1936; Erlingur, f. 15. apríl 1906, d. 1. febrúar 1981, bifreiðastjóri hjá BSR, en kona hans var Anna Jónsdóttir, d. 1981, og Kristján, f. 17. nóvember 1917, formaður BSRB, kvæntur Aðal- heiöi Jónsdóttur. Foreldrar Birgis voru Ólafur Thorlacius, f. 11. mars 1869, d. 28. febrúar 1953, héraðslæknir á Bú- landsnesi í Suður-Múlasýslu, og kona hans, Ragnhildur Pétursdótt- ir, f. 31. október 1879, d. 14. júní 1963. Ólafur var sonur Jóns Thorlacius, prests í Saurbæ í Eyja- firði, bróður Þorsteins, afa Vil- hjálms Þórs, forstjóra SÍS. Jón var sonur Einars Tfiorlacius, prests í Saurbæ, og konu hans, Margrétar, systur Álfheiðar, móöur Helga, langafa Ragnhildar Helgadóttur al- þingismanns. Álfheiður var einnig langamma Helga Hálfdanarsonar skálds. Margrét var dóttir Jóns læröa, prests á Möðrufelli, Jóns- sonar og konu hans, Helgu Tómas- dóttur. Móðir Ólafs var Kristín Tómasdóttir, b. á Steinsstöðum í Öxnadal, Ásmundssonar og konu hans, Rannveigar Hallgrímsdóttur, systur Jónasar skálds. Meöal móðursystkina Birgis var Siguröur Eggerz ráðherra, faðir Péturs Eggerz sendiherra, og Arn- dís, amma Þóröar Þ. Þorbjarnar- sonar borgarverkfræðings. Ragn- hildur var dóttir Péturs Eggertz, kaupstjóra á Borðeyri, bróður Sig- þrúðar, ömmu Sturlu Friöriksson- ar erfðafræðings. Pétur var sonur Friðriks Eggertz, prests í Skarðs- þingum, og konu hans, Arndísar Pétursdóttir. Móðir Ragnhildar var Sigríður, systir Solveigar, ömmu Ásgerðar Búadóttur veflistarkonu. Sigríður var dóttir Guömundar, b. Birgir Thorlacius. á Kollsá í Hrútafirði, Einarssonar og konu hans, Helgu Jakobsdóttur. Móðir Helgu var Guðrún Jóns- dóttir, sýslumanns í Bæ í Hrúta- firði, Jónssonar og konu hans, Hólmfríðar Ólafsdóttur, systur Ingibjargar, konu Björns Jónsson- ar í Bólstaðarhlið, langömmu Þor- valds, afa Vigdísar Finnbogadótt- ur. Kjartan Pálsson Kjartan Pálsson, b. að Vaðnesi í Grímsnesi, er sjötugur í dag. Kjartan fæddist í Reykjavík en ólst upp i Ásgarði í Grímsnesinu hjá fósturforeldrum sínum, Guö- jóni Gíslasyni og konu hans, Guð- rúnu Grímsdóttur. Þar dvaldi hann til fullorðinsára og hóf þar búskap 1942. Kjartan bjó að Ásgarði ásamt móður sinni til 1946 en þá fluttu þau aö Vaðnesi og hefur hann búið þar síðan. Kjartan hefur setið í hreppsnefnd frá 1982. Kona Kjartans er Helga Helga- dóttir, f. 28.8. 1942. Kjartan og Helga eiga fjóra syni. Þeir eru: Páll Helgi, f. 7.5. 1972, starfar hjá fóður sínum; Jón Stein- grímur, f. 24.7.1973,; Guðjón, f. 23.2. 1975; og Ólafur Ingi, f. 10.8. 1978. Fósturböm Kjartans eru: Guð- mundur Jóhannesson, b. á Klaust- urhólum, f. 27.6.1959, kvæntur Þór- leifu Gunnarsdóttur; Brúney Kjartansdóttir, f. 9.8. 1963, búsett að Vaðnesi; Ragnhildur Eiríksdótt- ir, húsmóðir á Selfossi, f. 11.8.1966, en sambýlismaður hennar er Einar Valtýr Baldursson; Ingólfur Heim- ir Kjartansson, verkamaður á Flúöum, f. 9.8.1968; Birna Kjartans- dóttir nemi, f. 16.1.1971. Kjartan á tvö systkini á lífi. Þau eru Þórunn Pálsdóttir, húsmóðir í Reykjavík, gift Þorgeiri Guð- mundssyni trésmiö, og Bjarni Páls- son, sjómaður í Reykjavík, kvænt- ur Bergljótu Einarsdóttur. Foreldrar Kjartans voru Páll Steingrímsson, f. 1876, og Ólöf Ingi- björg Jónsdóttir, f. 1892, dóttir Jóns b., síðast í Miðhúsum í Garði, Ól- afssonar og konu hans, Þórunnar Björnsdóttur, b. að Dyrhólum, Bergsveinssonar. Kjartan tekur á móti gestum að Félagsheimilinu Borg á afmælis- daginn klukkan 20. Ulja L Knudsen Lilja L. Knudsen húsmóðir, Hofs- vallagötu 17, Reykjavík, varð sjö- tug í gær. Lilja fæddist í Stykkishólmi og ólst þar upp. Hún flutti til Reykja- víkur og giftist þar 3.10.1945 Guð- jóni Júlíusi Hinrik Jóhannssyni, starfsmanni hjá H. Ólafsson og Bernhöft í fjölda ára, f. í Súlunesi í Melasveit 12.7. 1902, d. 7.12. 1969. Lilja og Guðjón bjuggu alla sína búskapartíð á Hofsvallagötunni. Foreldrar Guðjóns voru Jóhann Pétur Jónsson, b. í Eystra-Súlunesi og síðar verkamaður í Reykjavík, og kona hans, Guðný Hólmfríður Jónsdóttir. Lilja og Guðjón eignuðust þrjú börn en auk þess á hún son frá því fyrir hjónaband. Sá er Ásgeir Er- lendsson, vélstjóri í Keflavík, f. 17.2.1937, kvæntur Hlíf Pálsdóttur og eiga þau þrjú börn. Börn Lilju og Guðjóns eru: Hólmfríður Jó- hanna Guðjónsdóttir, húsmóðir í Garðabæ, f. 4.9. 1939, gift Jóni Vil- berg Inga Guðlaugssyni pípulagn- ingamanni en þau eiga fjögur börn; Guðný Guöjónsdóttir, húsmóðir og verkakona á Hellissandi, f. 2.2.1943, gift Halldóri Kristjáni Kristjáns- syni vélstjóra en þau eiga sex börn; og Ragnar Guöjónsson, sjómaður á Hellissandi, f. 6.4. 1945, kvæntur Sigrúnu Maríu Láru Antonsdóttur, en þau eiga tvö börn. Bróðir Lilju var Knútur Lárus, f. 24.7. 1915, en hún átti auk þess þrjú hálfsystkini samfeðra. Foreldrar Lilju voru Lárus Michael Knudsen vegagerðarverk- stjóri og Ragnheiður Einarsdóttir. Föðurforeldrar Lilju voru Lau- ritz Michael Knudsen verslunar- maður, smiður og lengi kaupmaður í Keflavík, og fyrri kona hans, Margrét, dóttir Magnúsar Runólfs- sonar, b. á Ketilsstöðum, og konu hans, Álfheiðar Jónsdóttur. Lau- ritz var sonur Lauritz Michaels, Lilja L. Knudsen. verslunarmanns á Geirseyri, og fyrri konu hans, Guðrúnar, dóttur Jóns Grímssonar, b. á Hóh á Geirs- eyri, og konu hans, Kristínar Pét- ursdóttur. Foreldrar Lauritz á Geirseyri voru Lauritz Michael Knudsen, kaupmaður í Reykjavík, ættfaöir Knudsenættarinnar, og kona hans, Margrethe Andrea Hölter. Móöurforeldrar Lilju voru Einar Ólafur Einarsson og kona hans, Guðrún Jensdóttir. Ottó Guðmundur Guðjónsson Saga Jónsdóttir Ottó G. Guðjónsson, Norðurbrún 1, Reykjavík, verður níræöur á mánudaginn. Ottó Guðmundur fæddist á Eskifirði og ólst upp á Vopnafirði. Hann fór til Reykjavík- ur 1917 og lærði klæðskeraiðn hjá Andrési Andréssyni og lauk þar námi 1921. Ottó vann sem klæð- skeri í Reykjavík og á Eyrarbakka 1921-1967 og var vaktmaður hjá Ríkisútvarpinu og Seðlabankanum 1967-1981. Hann var söngstjóri Templarakórsins 1940-1950 og org- anleikari Stórstúku íslands 1940- 1988. Ottó hefur samið nokkur sönglög og hefur unnið við útsaum og eru verk hans víða til, bæði hér á landi og erlendis. Ottó kvæntist 4. febrúar 1922 Guðbrandínu Tómasdóttur, f. 31. ágúst 1889, d. 23. mars 1981. For- eldrar Guðbrandínu voru Tómas Guðbrandsson, vinnumaður á Svarfhóh í Laxárdal, og kona hans, Sigríður Jónsdóttir. Fósturforeldr- ar hennar voru Hans Grönfeldt, veitingamaður í Borgamesi, og kona hans Þóra Þorleifsdóttir. Böm Ottós eru: Sigurður, f. 25. júlí 1922, bhkksmiöur í Rvík, kvæntur Sigríði Ólafsdóttur verkstjóra; Þor- björg, f. 23. júli 1924, var gift Tóm- asi Tómassyni, rafvirkja í Rvík; Andrés, f. 3. apríl 1928, múrari í Rvík, kvæntur Helgu Ólafsdóttur skrifstofustúlku; Kristín, f. 7. apríl 1929, verslunarmaður í Rvík, gift Hauki Þorsteinssyni framkvæmda- stjóra; Guðjón, f. 18. apríl 1930, d. 3. nóvember 1942; Þórir, f. 13. febrú- ar 1937, bifreiðasfjóri hjá DV, kvæntur Helgu Laxdal verslunar- Ottó G. Guöjónsson. manni, og Erla, f. 6. apríl 1945, gjaldkeri í Rvík, gift Erlingi Stef- ánssyni framkvæmdastjóra. Ottó á 17 barnabörn og 7 bamabarnabörn. Systur Ottós vom Jörgínía og Sús- anna en þær eru báðar látnar. Hálf- systkini Ottós vom Eyþór Guðjóns- son, bókbindari í Rvík, og Lára Guðjónsdóttir, húsmóðir í Rvík. Foreldrar Ottós voru Guðjón Jóns- son Vopnfjörð, verslunarmaður í Vopnafirði, Eskfirðingur, skyldur Ríkarði Beck prófessor, og kona hans, Guðrún Jónsdóttir, systir Stefáns á Höfða í Homafirði. Ottó verður með opiö hús eftir kvöldmat hjá dóttur sinni, Erlu, aö Hryggj- arseli 15. Saga G. Jónsdóttir leikkona, Mar- karflöt 8, Garðabæ, er fertug í dag. Saga fæddist á Akureyri og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hún starfaöi á unglingsárunum hjá KEA en var aðeins sextán ára þeg- ar hún hóf að leika hjá LA. Saga var fastráðin hjá LA árið 1973 og þar starfaði hún til 1978. Hún flutti þá til Reykjavíkur og lék í Þjóðleik- húsinu í sex ár. Saga stofnaði ásamt manni sínum Revíuleikhúsið 1981 og hefur starf- að við það en Reviuleikhúsið hefur sýnt eitt til tvö leikverk á ári. Saga starfar nú á Stöð 2. Saga hefur samið sjónvarps- og útvarpsþætti, leikið í sjónvarps- og útvarpsleikritum, leikstýrt á Akur- eyri og í Reykjavík og annast leik- hstarnámskeið víða á landsbyggð- inni. Maður Sögu er Þórir Steingríms- son rannsóknarlögreglumaður, f. 24.8. 1946, sonur Steingríms Páls- sonar, alþingismanns og símstöðv- 85 ára Vilhelm Steinsen, Hrafnistu, Reykja- vík. 80 ára Ólöf Guöfinna Jakobsdóttir, Búöa- granda 7, Reykjavík. 75 ára Sigurður Sumarliðason, Austurgötu 22, Keflavík. Sigurður Björgvin Jónasson, Möðru- vallastræti 1, Akureyri, varö sjötíu og fimm ára þann 25. júlí. Hann tekur á móti gestum á sumarheimili sínu í Hró- arstjóra á Brú í Hrútafirði, og konu hans, Láru Helgadóttur. Saga og Þórir eiga einn son; Helga Pál, f. 10.3. 1978. Synir Sögu frá fyrra hjónabandi em: Hreiðar Ingi Júlíusson, háskólanemi og starfs- maður á Stöð 2, og Friðrik Geirdal Júlíusson, menntaskólanemi í Reykjavík, f. 22.1.1970. Saga á fimm systkini. Þau eru: Hekla Geirdal, starfsmaður hjá Lind á Akureyri; Hreiðar Jónsson, starfsmaður við íþróttaskemmuna og íþróttavöhinn á Akureyri; Hólmfríður Geirdal, hjúkrunarfor- stjóri á Kleppi; dr Ingimar Jónsson, æskulýðs- og félagsfuhtrúi á Dal- vík, og María Halla, húsmóðir að Ingvörum i Svarfaðardal. Foreldrar Sögu voru Jón Kristján Hólm Ingimarsson, formaður Iðju og bæjarfulltrúi á Akureyri, f. 6.4. 1913, d. 1981, og kona hans, Gefn Jóhanna Geirdal, f. 20.8. 1910, d. 1988. Fööurforeldrar Sögu voru Ingi- arsdal í Skagafirði sunnudaginn 31. júli en þann dag verður eiginkona hans, Lflja Sigurðardóttir, sextíu og fimm ára. 70 ára Kristín Guðjónsdóttir, Kleppsvegi 32, Reykjavík. 60 ára Jóna Aðalheiður Haraldsdóttir, Víði- lundi 8 I, Akureyri. Sigurþór Magnússon, Vesturbergi 89, Reykjavík. Lára Jóhannesdóttir, Ferjubakka 3, Borgarhreppi. Ragnar Vignir, Gfljalandi 4, Reykja- vik. Saga Jónsdóttir mar Jónsson, iðnverkamaöur á Akureyri, og kona hans, María Kristjánsdóttir. Móðurforeldrar Sögu voru Stein- ólfur Eyjólfur Geirdal, kennari og smiður í Grímsey, og kona hans, Hólmfríður Petrína Sigurgeirsdótt- ir, b. á Parti í Reykjadal, Stefáns- sonar og bústým hans, Jóhönnu Pálsdóttur. Foreldrar Steinólfs voru Eyjólfur, b. í Gilsíjarðarmúla, Bjarnason, prests í Garpsdal, Egg- ertssonar, og kona hans, Jóhanna Halldórsdóttir, prests í Tröllatungu Jónssonar. Solveig Erla Ólafsdóttir, Grettisgötu 70, Reykjavik. Guðrún Guðmundsdóttir, Álftamýri 20, Reykjavik. 50 ára Helga Gunnlaugsdóttir, Grænagarði 2, Keflavík. Gissur Sæmann Axelsson, Holtagerði 55, Kópavogi. Anna Elin Hermannsdóttir, Akraseii 10, Reykjavík. 40 ára Guðrún Hafldórsdóttir, Helgustöðum, Holtshreppi, Skagatjaröarsýslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.